Þjóðviljinn - 26.10.1966, Qupperneq 3
Miðvikudagur 26. október 1966 ÞJÖÐVHJINN — SlÐA 3
145 fík fundin / Afberfan. 113 af börnum
ABERFAN 25/10 — Síðdegis í dag höfðu í námubænum Aberfan í Wales þar sem skriðan féll á
föstudaginn fundizt 145 lík, 113 þeirra af börnum, en ætlað er að enn séu ófundin um 40 lík. —
Snm þeirra munu sennilega aldrei finnast, sagði einn af björgunarmönnunum í dag. — MYNDIN:
Enn er haldið áfram að grafa eftir líkum í gjallhaugnum þar sem barnaskólinn stóð.
Manilaráðstefnunni lokið
Nýtt orðalag á kröfu um
skllyrðislausa uppgjöf
MANILA 25/10 — í dag lauk í Manila á Filipseyjum ráð-
stefnu stjórnarleiðtoga þeirra ríkja sem hafa herlið í Suð-
ur-Vietnam. í lokatilkynningu ráðstefnunnar vottar ekki
fyrir friðarvilja, heldur er þar enn krafizt, að vísu með
nýju orðalagi, skilyrðislausrar uppgjafar Þjóðfrelsisfylking-
arinnar í Suður-Vietnam.
Ríkisstjórnirnar sjö sem að
ráðstefnunni stóðu, Saigonstjórn-
in og stjórnir Bandaríkjanna,
Filipseyja, Thailands, Suður-
Kóreu, Ástraliu og Nýja Sjálands,
segja í rauninni í lokatilkynn-
ingunni að þær séu fúsar að
kalla burt allan her sinn frá
Suður-Vietnam innan sex món-
aða frá því að Norður-Vietnam
kalli heim sitt herlið og þjóð-
frelsisherinn leggi niður vopn.
Jafnframt er ítrekað að ríkin
sjö séu staðráðin að halda áfram
stríðinu svo lengi sem nauðsyn
krefji.
Öll tilkynningin mótast af
þeirri blekkingu að í Suður-Viet-
nam eigi Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra aðeins í höggi
við innrásarlið frá Norður-Viet-
Deilur sovézkra og
Kínverja harBna enn
Óspektir „varðliða“ við sovézka sendiráðið
í Peking — Rætt um líkur á hernaðarátökum
Moskvu 'Og PEKING 25/10 — Síðustu daga hafa deilur
Kínverja og sovézkra enn harðnað, sovézk blöð hafa birt
hatrammar árásargreinar á leiðtoga Kínverja og í Peking
efndu „rauðu varðliðarnir“ í gær til nýrra óspekta við
sovézka sendiráðið.
Skólabörn í Svíþ/óð heimta
að fá kennara sína aftur
„Komsomolskaja Pravda“ birti
í dag grein frá fréttamanni sín-
um í Peking þar sem sagt var
að kínverskir ráðamenn og her-
foringjar tali opinskátt og í
fullri alvöru um hættuna á
hernaðarátökum milli Kína og
Sovétríkjanna. Grein þessi var í
heild lesin upp í Moskvu-út-
varpið.
Fréttamaðurinn segir að þjóð-
hátíðardaginn 1. október hafi í
Peking verið haldnar þrjár ræð-
ur þar sem beint eða óbeint hafi
verið vikið að líkum á hern-
aðarátökum milli landanna. Lin
Piao landvarnaráðherra hafi
sagt að Kínverjar muni ganga
af endurskoðunárstefnunni
dauðri, en leiðtogar Sovétríkj-
anna séu helztu forsprakkar
hennar. Hershöfðingi hafi tekið
undir þessi orð og hrópað yfir
mannfjöldann: Um leið og Mao
formaður segir svo, munum við
halda af stað til að brjóta end-
anlega á bak aftur bandarísku
heimsvaldasinnana og glæpa-
nauta þeirra, og ekki hafi verið
farið dult með að þar hafi verið
átt við Sovétríkin.
„Pravda“ birti í gær grein
þar sem leiðtogar Kínverja eru
kallaðir „öfgamenn sem mótist
af smáborgaralegum viðhoríum
í stað hugsjónar sósíalismans,
haldi fram fáránlegum heraga-
kommúnisma í stað hins frjálsa
kommúnistíska þjóðfélags fram-
tíðarinnar, vilji bæla niður
menninguna í stað þess að glæða
hana ,og stofni til ábyrgðarlausra
æsinga í stað þess að vinna að
verkefnum verklýðshreyfingar-
innar“.
„Alþýðudagblaðið" í Peking
sakaði í gær Sovétríkin um að
spilla enn sambúðinni við Kina
með því að vísa kínverskum
stúdentum sem eru við nóm i
Sovétríkjunum úr landi. Daginn
áður hafði sovézki sendifulltrú-
inn í Peking neitað að taka við
mótmælum kínverska utanríkis-
ráðuneytisins vegna þessarar á-
kvörðunar, sem tekin var eftir
að sovézkum og öðrum erlendum
stúdentum í Kína hafði verið
vísað þaðan úr landi.
Þúsundir „rauðra varðliða“
söfnuðust í dag annan daginn
í röð saman við sendiráð Sovét-
rikjanna í Peking til að láta í
ljós mótmæli sín við brottvís-
un kínversku stúdentanna frá
Sovétríkjunum.
STOKKHÓLMI 25/10 — Nem-
endur í sænskum skólum eru nú
orðnir þreyttir á deilum kenn-
ara sinna við ríkisvaldið og þús-
undir þeirra fóru í dag fylktu
liði um göturnar í ýmsum bæj-
um í Svíþjóð og báru spjöld þar
sem á stóð: Við viljum fá kenn-
ara okkar aftur, — Kennarar,
við þörfnumst ykkar og Leysið
deiluna strax.
Verkbann var sett á 25.000
kennara í samtökunum SACO í
síðustu viku, eftir að samtökin
höfðu boðað til skyndiverkfalla.
Reynt hefur verið að halda uppi
kennslu þrátt fyrir verkbannið,
en það hefur gengið mjög erfið-
lega og í mörgum skólum njóta
nemendur engrar kennslu. Erf-
itt hefur að sjálfsögðu verið að
halda uppi aga við slíkar að-
stæður; nemendur sem áttu að
stunda sjálfsnám í tímum hafa
stytt sér stundir á annan hátt,
við öldrykkju, spilamennsku,
dans og dufl.
1.100 nemendur við einn
hafa ákveðið að virða skóla-
skylduna að vettugi meðan á
verkbanninu og verkföllunum
stendur'og búizt er við að nem-
endur fleiri skóla muni fara að
dæmi þeirra.
nam. Þjóðfrelsisfylkingin er ekki
nefnd á nafn, þaðan af síður
réttur hennar til samningsaðild-
ar, og hvergi vottar heldur fyrir
því að Bandaríkin og banda-
menn þeirra hafi gefið gaum að
öðrum tillögum Ú Þants, fram-
kvæmdastjóra SÞ, um einu leið-
ina til friðar í Vietnam, þ.e.
að Bandaríkin hætti loftárásum
sínum á Norður-Vietnam og
dragi úr hernaðaraðgerðum sín-
um.
Orðrétt segir svo í tilkynning-
unni um „tilboð“ ráðstefnunnar
um brottflutning herliðs innan
sex mánaða: „Suðurvietnamska
þjóðin mun biðja bandamenn
sína að flytja burt herlið sitt
og leggja niður herstöðvar sínar
samtímis því sem herlið og und-
irróðurssveitfr Norður-Vietnams
verða fluttar heim, hætt verður
að senda lið til Suður-Vietnams
baðan og þannig verður dregið
úr hernaðinum. Þá mun herlið
bandamanna verða flutt burt
eins fljótt og auðið er og ekki
síðar en sex mánuðum eftir að
þessi skilyrði hafa verið upp-
fyllt“.
Varðfíðarnir
gagnrýna Mao
PEKING 25/10 — Bandaríska
blaðakonan Anna Louise Strong
sem búsett er í Peking segir frá
því í fréttapistli sínum „Letter
from Peking“ að þess sé a-m.k.
eitt dæmi að gagnrýni „rauðu
varðliðanna‘‘ hafi bitnað á Mao
formanni sjálfum. Hún nefnir
þetta sem dæmi um það að eng-
inn sé óhultur fyrir gagnrýni
þeirra sem miði að því að allir
taki upp strangara lífemi.
Tass segir að á spjöldum
„varðliðanna'* í Þeking hafi þess
verið krafizt að Líú Sjaosji for-
seti og Teng Hsjaoping flokks-
ritari verði settir af.
stærsta skólann í Stokkhólmi I valið sér.
85 ára afmælis
Picassos minnzt
PARÍS 25/10 — 85 ára afmælis
snillingsins Pablos Picassos var
minnzt um allan heim í dag, en
að sjálfsögðu einkiim í heima-
landi hans, Frakklandi, enda
þótt afmælisbarnið muni sjálft
ekki hafa gert sér neinn daga-
mun-
KommúnistaflQkkur Frakklands
minntist afmælisins sérstaklega.
„l’Humanité“ birti boðskap frá
formanni flokksins, Waldeck Ro-
chet, sem hyllti Picasso og sagði
að hann hefði gengið í flokkinn
árið 1944 og aldrei vikið út af
þeinji braut' sem hann hefði þá
Lúna á braut
í gærkvöld
MANCHESTER 25/10 — Vís-
indamenn við athugunarstöðina
í Jodrell Bank skýrðu frá því í
kvöld að síðasta tunglfar Sov-
étríkjanna, Lúna 12. sem skotið
var frá jörðu á laugardaginn
hefði farið á braut umhverfis
tunglið. Enda þótt ekki hafi
verið látið neitt uppi um það
opinberlega, þykja allar líkur á
því að Lúna 12.. hafi með sér
ljósmynda- og sjónvarpstæki og
sé ætlunin að hún sendi til
jarðar myndir af yfirborði
tunglsins. Lúna 12. er þriðja
sovézka geimfarið . sem fer á
braut um tunglið.
Vön skrifstofustúlka
Óskum eftir að ráða skrifstofustúlku með góða vél-
ritunarkiinnáttu. Til mála kaemi starf hálfan dag-
inn, eða vinnutími eftir samkomulagi. — Góð laun.
Tilboð merkt „SKRIFSTOFUSTÚLKA“
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 29. þ.m.
600.
MALBIKUN
Nú eru síðustu forvöð að malbika í haust.
Undirbúningsvinnu að malbikun næsta ár er heppi-
legt að vinna í vetur.
Upplýsingar í síma 36454 allan daginn.
»
MALBIKUN H.F„
Suðurlandsbraut 6.
Samsteypustjórn Erbards i
þann veginn að splundrast?
AUGLYSIR
RO
BONN 25/10 — Það er ekki ein
báran stök fyrir Erhard, for-
sætisráðherra Vestur-Þýzkalands.
Ofan á óáran í efnahagslífinu
sem honum er ekki hvað sízt
kennt um. ósigra í fylkiskosn-
ingum, óánægju og sundrungu í
hans eigin flokki, hefur það nú
bætzt að allar horfur eru á að
upp úr stjórnarsamvinnu Kristi-
legra og Frjálsra demókrata
slitni vegna ósamkomula^s um
f j árlagaf rumvarpið.
Það ósamkomulag á rætur
sínar að rekja til þess að fiúr
hagur ríkisins er ' algerum ó-
lestri, en um það kenna and-
stæðingar Erhards honum fyrst
og fremst. Útlit er fyrir gífur-
legan halla á ríkisreikningunum
(um 4 miljarða marka) og eru
ekki nema tvær leiðir færar til
að jafna hann, draga úr útgjöld-
um eða hækka skatta. Kristi-
legir hafa viljað taka síðari kost-
inn, en Frjálsir demókratar eru
því algerlega andvígir og heimta
niðurskurð á útgjöldunum.
Fulltrúar stjórnarflokkanna
ræddust við i sex tíma í dag.
og nýr fundur var ákveðinn í
kvöld. þegar engin niðurstaða
fékkst. Ekkert samkomulag tókst
heldur á honum.
ur. suoancirio iyrir nerreiwnum í ujaKaria
Súbandrio dæmdur til dauða
— má leita á náðir Súkarnos
GÓÐAR VÖRUR — GOTT VERÐ
Wheatsheaf ávextir niðursoðnir
DJAKARTA 25/10 — Herréttur-
inn í Djakarta kvað í dag upp
dauðadóm yfir dr- Súbandrio,
fyrrverandi utanríkisráðherra og
helzta samstarfsmanni Súkamos
forseta um langt árabil- Súband-
rio fær 30 dagai frest til að sækja
um náðun til Súkarnos.
Rétturinn taldi sannaða þó
meginákæru að Súbandrio hefði
vitað fyrirfram um hina mis-
heppnuðu uppreisnartilraun í
fyrrahaust, en látið hjá líða aö
gera ráðstafanir til að koma í
veg fyrir hana. Súbandrio hafði
viðurkennt að hann hefði heyrt
sögusagnir um slíkt samsæri, en
hefði ekki talið þær sennilegar
og ekki ástæðu til að láta Súk-
| arno forseta vita. Þótt Súband
i rio reyndi að verja sig eftir
| beztu getu, sagði hann ekki neitt
í réttarhöldunum sem hægt væri
að nota gegn Súkarno.
Apríkósur 1/1 ds. kr. 45,50
Apríkósur % ds. — 27,55
Perur 1/1 ds. — 48,15
Perur % ds. — 29,20
Cocktail 1/1 ds. — 52,95
Two fruit % ds. — 29,00
Gerið aðalinnkaupin í KRON
J.