Þjóðviljinn - 26.10.1966, Síða 6
0 SÍÖA — ÞJÓÐVTLJINN — Miðv'ilcwdagur 26. cJítóber 1966.
skriffað
..K“ hefur sent Þjóðviljanum
svofelldan pistil um sjónvarpið:
Miðvikudaginn 19. þ.m. var
sent út frá sjónvarpi okkar
íslendinga eins og undanfariö
hefur verið gert á þeim dögum.
Sá ég þessa útsendingu, en
get þó sagt eins og einn ráð-
herra okkar sagði í útvarps-
viðtali, þá er hann skrapp eitt
sinn heim til ættjarðarinnar:
„Ég á ekkert sjónvarp sjálfur,
en horfi á það stundum hiá
krökkunum mínum“.
t þessum þætti var fyrir-
spumaþáttur ungs fólks og
asskulýðsfulltrúi Reykjavíkur-
borgar leysti úr spurningum á
mjög glöggan hátt og hafði að
ýmsu leyti allmikinn fróðleik
að fæna fyrirspyrjendum og
þeim sem á þetta samtal hlýddu.
Var hér úr Reyk.javík meðal
þeirra sem báru fram spurning-
ar Óli Týnes, ungur piltur.
Þótti mér ánægjulegt að finna
það að hann hefur fengið í
arf orðheppni og kfmnigáfu afa
síns, því að hún mátti alis
ekki falla með honum, svo oft
skemmti hann samborgurum
sínum og þó sérstaklega starfs-
fólki með léttlyndis-frásögnum
og á annan hátt.
Var mest talað þarna um
stærstu vandamál æskunnar
sem eru neyzla áfengis og tó-
baks, orsakir og afleiðingar, og
hver ráð væru til úrbóta. Kom
það fram sem orsök að ungling-
ar nú á dögum hefðu of mikið
fjáremagn til umráða og virðist
þá orsök fundin hjá forráða-
mönnum þeirra. Er það því
miður svo, að unglingar, marg-
ir hverjir, hafa það sem þe’r
vinna fyrir aðeins sem vasa-
peninga en fá það sem þeir
þurfa til fæðis og klæðnaðar
hjá forráðamönnum sínum.
Einnig er svo það að erfitt er
að fá störf fyrir unglinga á
vissum aldri, og ef þau hafa
ekkert starf með höndum leiö-
ast þau oft út í það sem síðar
verður þeim og aðstandendum
þeirra til leiðinda.
Að unglingar nú á tímum séu
verr innrættir en á árum áður
tel ég ranga hugsun. Á hitt er
frekar lítandi að þá var þétt-
býlið minna, fólk dreifðara um
sveitir landsins og ávallt nægi-
legt starf fyrir unga sem gamla
og því enginn vandi hvernig
aetti að eyða tímanum.
Að þessum þætti loknum i
sjónvarpinu, þegar búið var að
leita að leiðum til að bjarga
unglingum frá neyzlu þessa
skaðvalds, tóbaks og áfengis,
kemur auglýsing. Og hvaðhald-
ið þið að efni hennar hafi ver-
ið? Jú, það voru sýndir sígar-
ettupakkar og menn sem eru
af sérstakri ánægju að kveikja
í sígarettum og reykja mikið.
Mér varð orðfall vegna
smekkleysis þeirra sem sjá um
dagskrána, því að það varvart
hægt að fá annað út úr þessu
en það eitt, að það sem fram
hefði farið í þaettinum væri
markleysa ein og ekkert tak-
andi tillit til þess. Hugsun
þeirra væri: Reykið þið bara
eftir vild. — K.
• Námskeið fyrir
rjúpnaskyttur
• Hjálparsveit skáta í Reykja-
vík heldur í þessari viku nám-
skeið fyrir almenning í með-
ferð áttavita og landabréía.
Námskeiðið er fyrst og fremst
ætlað fyrir rjúpnaskyttur og
verður haldið í Iðnskólanum.
Væntanlegir þátttakendur eiga
að láta skrá sig í Skátabúðinni.
sími 12045, á miðvikudag. Þar
sem þátttakendafjöldinn er tak-
markaður. eru þeir sem áhuga
hafa á að sækja námskeiðið
beðnir að láta skrá sig sem
fyrst á miðvikudag.
• Nýlega voru gefin saman i
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Birna Ágústs-
dóttir og HötxJur Ingólfsson.
Heimili þeirra verður að Mel-
gerði 37. (Stúdíó Guðnvundar,
Garðastræti 8).
• 15. október voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Ingólíi
Guðmundssyni ungfrú Guðrún
G. Ámadótlir og Bjarni Ólafs-
son flugvélavirki. Heimili þeirra
er að Fellsmúla 9 (Stúdíó Guð-
mundar, Garðastræti 8).
13.15 Við vinnuná.
14.40 Hildur Kalman les söguna
Upp við fossa-
15.00 Miðdegisútvarp. Hause og
tangóhljómsveit hans leika
sjö lög. Schifrin og hljóm-
sveit hans leika fjögur lög.
Silvester og hljómsveit hans
leika sjö lög.
16.00 Síðdegisútvarp. Guðrún
Tómasdóttir og Kristinn
Hallsson syngja- Fou Ts'ong
leikur á píanó Svítu nr- 14
eftir Handeí. Janacek-kvart-
ettinn ieikur Strengjakvartett
op. 33 nr. 2 eftir Haydn.
16.40 Sögur og söngur. Guðrún
Guðmundsdóttir og Ingibjörg
Þorbergs stjóma þætti. fyrir
yngstu hlustenduma-
1705 Framburðarkennsla
í esperanto og spænsku í
tengslum við bréfaskóla
Sambands ísl. Samvinnufé-
laga og Alþýðusambands Isl.
17.20 Þingfréttir. Tónleikar.
19-30 Daglegt mál-
19.35 Togaraútgerðin á vega-
mótum. Guðmundur Jörunds-
son útgerðarmaður flytur er-
indi.
20.00 Divertimentó í B-dúr
(K137) eftir Mozart. Hátíða-
hljómsveitin í Luzern leikur-
Baumgartner stjómar.
2010 Silkinetið, nýtt fram-
haldsleikrit eftir Gunnar M
Magnúss. Leikstjóri: Klemen^
Jónsson. Fyrsti þáttur: Gest-
koma í Stöðlakoti. Leikendur:
Rúrik Haraldsson, Helga Val-
týsdóttir, Jón Sigurbjömsson
og Borgar Garðai-sstm.
21.30 Tónlist eftór Dvorák: »)
Binleikarahljómsveitin i
Prag leitour Karnevai, íorleik
op- 92; Talioh stjómar. b)
Rita Streich syngur ariu úr
Rusalka. c) Paprocki syngur
ariu úr Dimitri. d) Rauch
leikur pianólag I gömlum
kastala. e) Konunglega fil-
harmoníusveitin í LAindúnum
leikur Helgisögn op. 59 nr. S
Sir Thomas Beecham stj.
22 00 Gullsmiðurinn i Æðey-
Oscar dausen rithöfundur
flytur annan frásöguþátt sinn.
22.30 Harmonikuþáttur. Pétur
Jónsson kynnir.
23.05 Tónlist á 20. öld: Atli
Heimir Sveinsson kynnir- a)
Passacaglia op. 1 eftir We-
bem. b) Entflieht auf leicht-
en Kahnen eftir Webem. c)
óró I eftir Leif Þórarinsson.
d) Syntagma eftir Raxach.
23.45 Dssskrárlok
sjónvarpið
• Sjónvarpsþáttur
• Sjónvarpið sýnir í kvöld þátt
um ástralskan fugl; vonandi er
það ekki sá hinn sami fugl og
ó það til að læra að taka i
nefið þegar lítið gerist í heims-
fréttum.
Þá er hægt að eyða kvöld-
stund með Ingelu Brander. Hún
er sænskur skemmtikraftur en
söng á ensku hér í Lídó. Þsð
kom að vísu ekki til af góðu:
hún byrjaði á því að syngja
á sænsku en vai’ð að hætta þvf
fyrir sakir ákafra mótmæla við-
staddra sem kváðust ekki skilja
svoleiðis tungumái.
Þá er sýnd íslandsmynd Mai
Zetterling og er það forvitni-
legt þeina sem af henni urðu
á sínum tfma; okkur er sagt
að þessi mynd sé líkleg til að
vekja upp óánægju og gagn-
rýni ólíkra afla í þjóðfélaginu.
Enskt heiti myndarinnar hefur
ekki verið þýtt í dagskrá — og
sktiium við ekki lá það neinum.
Og svo fer hér á eftir sjón-
varpsdagskráin f kvöld, mið-
vikudag, 26. október.
★
20,00 „Frá liðinni viku“ Fi'étte-
kvikmyndir utan úr heimi,
sem teknar voru í síðustu
viku.
20.30 Steinaldarmennirnir.
Teiknimynd gerð af Hanna
og Barbara. Þessi þáttur
nefnist: „Ekki hjálparþurfi".
Isienzkan texta gerði Pétur
H. Snæiand.
20.55 Brolga. Kvikmynd um iíf
og hætti hins ástralska Brol-
ga-fugls. Þýðinguna gerði
Markús örn Antonsson, og er
hann jafnframt þulur í mynd-
inni.
21.15 Kvöldstund með Ingelu
Brander. Kynnir Ámi John-
sen.
21,45 ísland í augum útlend-
inga: íslandskvikmynd Mai
Zetterling. „Do ít yourself
Democracy**.
23.30 Dagskrárlök.
• Kveðja úr
kuldanum
• Strax í fyrsta kuWakasti
vetrarins um helgina (og var
þó reyndar ekki kominn vet-
ur samkvæmt almanakinu þeg-
ar kólnaði í veðri) brást hita-
veitan í sumura bæjarhverf-
um.
Af því tilefni sendir íbúi á
Skólavörðuholti, sem alitaf
verður illa úti í þrengingum
hitaveitunnar, eftirfarandi
kveðju til borgarstjórans og
hitaveitustjóra:
Viljið þið smia hátt til hlés
og hitanum spúa aldellis,
<>11 borgin rúin, allt það glys,
er vatnið búið, Jóhannes? ]
SÖLUSKILMÁLAR
OLÍUFÉLAGANNA
Svo sem áður hefur verið auglýsí komu eftirfarandi nýir sðluskilmál-
ar hjá öllum olíufélögunum til framkvaemda hinn 1. október s.l.
1. Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram gegn staðgreiðslu.
Ef um félög eða firmu er að ræða er heimilt að selja gegn mánaðar-
viðskiptum, enda sé greitt aukagjald kr. 25,00 fyrir hverja af-
greiðslu vegna vinnu við bókhald og innheimtu, sbr. þó 4. grein.
2. Öll sala til húsakyndinga skal fara fram gegn staðgreiðslu. Ef við-
skiptamaður af einhverjum ástæðum greiðir ekki við afhendingu
vörunnar, skal reikna sérstakt aukagjald kr. 100,00 fyrir hverja af-
hendingu vegna vinnu við bókhald og innheimtu, sbr. þó 4. grein.
3. Önnur vörusala beint til notenda skal að jafnaði vera gegn stað-
greiðslu. Þó skal heimilt að semja við stóra viðskiptamenn um mán-
aðarviðskipti, enda greiði þeir sömu aukagjöld og um getur í 1. og
2. grein. Skulu þeir greiða úttektir sínar fyrir 15. dag næsta mán-
aðar eftir úttektarmánuð.
4. Viðskiptamenn, sem eru í reikningsviðskiptum, geta leyst sig und-
an greiðslu innheimtugjalda með því að greiða fyrirfram andvirði
áætlaðrar mánaðarúttektar, enda hafi þeir að öðru leyti gert upp
við félagið.
Fyrirframgreiðsla þessi skal stauda óbreytt inni á viðskiptareikn-
ingi viðkomandi viðskiptamanns og endurskoðast með hliðsjón af
viðskiptum.
Slíkir viðskiptamenn skulu þó jafnan greiða mánaðarreikninga
sína innan tilskilins tíma (þ.e. fyrir lok 15. dags næsta mánaðar
eftir úttektarmánuð) á skrifstofu félagsins eða senda greiðslu
með tékka.
5. Hafi reikningsviðskiptamaður ekki greitt skuld sína að fullu fyrir
lok greiðslumánaðar skal reikna honum dráttarvexti 0,83% á mán-
uði miðað við skuld í lok úttektarmánaðar að frádregnum inn-
borgunum í greiðslumánuði. Jafnframt skal stöðva reikningsvið-
skipti og hefja venjulegar innheimtuaðgerðir.
/ ... . .. .
Olíufélögin vilja vekja athygli viðskiptamanna sinna á því, að inn-
heimtugjöld eru nú skuldfærð á allar reikningsúttektir viðskipta-
manna, sem ekki hafa gengið frá uppgjöri sínu við félögin og innt af
hendi fyrirframgreiðslu sína.
Innheimtugjöld þessi verða hins vegar færð til baka hjá þeim við-
skiptamönnum, sem gengið hafa frá uppgjöri sínu fyrir lok þessa
mánaðar.
Viðskiptamenn, sem vilja nota þessa viðskiptaaðferð, eru beðnir að
ganga frá þessum málum nú þegar.
OLÍUFÉLAGIÐ H. F.
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS H. F.
OLÍUFÉLAGIÐ SKEUUNGUR H. F.