Þjóðviljinn - 26.10.1966, Side 7
Miðvikudagur 26. október 1966 ÞJÓÐVILJXNN — SlBA [
Stefna ríkisstjórnarínnar
Framhald al 1. síðu.
útgerðarinnar sem haft væri að
yfirskyni fyrir þessum aðgerð-
um.
Minnti Hermann á aðdraganda
að stofnun bæjarútgerðarinnar,
en þá hafði einkaframtakið
brugðizt og bæjarútgerðin verið
stofnuð fyrir frumkvæði verka-
lýðsfélaganna í bænum, þótt
fyrirsjáanlegt væri að reiknings-
legt tap yrði á rekstri hennar.
Þyrfti ekki að lýsa fyrir Hafn-
firðingum hvert gildi hennal
hefði verið fyrir atvinnulífið í
bænum og bæjarbúa alme^sj.
Þessar ráðstafanir sem nú er
verið að gera eru rangar og
hljóta að leiða til tjóns fyrir
byggðarlagið, sagði form. Hlífac
Vörubílstjórafé-
lagið Þróttur
Félagið hefur ákveðið að allsherjaratkyæðagreiðsla
skuli viðhöfð við kjör fulltrúa og varafulltrúa á 7.
þing Landssambands vörubifreiðastjóra.
Skv. því auglýsist hér með eftir tillögum um 5
aðalfulltrúa og 5 til vara og skal tillÖgúm skilað
á skrifstofu félagsins ekki síðar en föstudaginn
28. okt. n.k. kl. 17, og er þá framboðsfrestur út-
'runninn.
Hverri tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 22
fullgildra félagsmanna.
Kjörsttjómin.
TRABANT EIGENDUR
V iðgerðarverkstæði
Smurstöð
Yfirförum bílinn
fyrir veturinn.
FRIÐRIK ÓLAFSSON, vélaverkstæði
Dugguvogi t7. Sími 30154.
Verkstjóranámskeiðin
Annað verkstjómarnámsikeiðið á þessum vetri
verður haldið sem hér segir:
Fyrri hluti 14. — 26. nóvember n.k.
Síðari hluti 23. jan. — 4. febrúar n.k.
Umsóknarfrestur er til 8 nóv. n.k. Allar upplýsing-
ar og umsóknareyðublöð fást hjá Iðnaðarmálastofn-
un íslands, Skipholti 37, Reykjavík.
Stjórn .Verkstjórnarnámskeiðanna.
Leikfimifíokkurinn
frá Ollerup
Flokkurinn sýnir í íþrótta- og sýningahöllinni í
Laugardal fyrir almenning miðvikudaginn 26. okt.
kl. 20,15 og fyrir skólaneniendur fimmtudaginn 27.
okt. kl. 20,15 en ekki kl. 17,30 eins og áður var
auglýst.
Forsala miða er í bókaverzlunum Lárusar Blöndal,
Skólavörðustíg 2 og í VesturVeri.
Móttökunefndin.
HELGA MARÍA ÞORBERGSDÓTTnt
frá Krossi
andaðist 25. okt.
Vandamenn.
Spurt væri hvort ekki mætti
einu gilda hver rekur fyrirtæk-
ið ef það bara getur, gengið. Nei,
hafnfirzkur verkalýður hefur
fyrir því langa reynslu að hann
hefur engan rétt gagnvart einka-
framtakinu og það hefur jáfnan
skipað sér gegn verkalýðnum
er á hefur reynt. ’ Verkalýður
Hafnarfjarðar getur ekki þolað
að bæjarútgerðin verði lögð
niður og eignir hennar síðan
afhentar einstaklingum. Það er
okkar krafa að bæjarútgerðin
verði gerð af öflugasta atvinnu-
fyrirtæki í Hafnarfirði.
Síðan vék Hermann að þvx að
fleiri blikur væru á lofti í at-
vinnulífi'bæjarins en erfiðleikar
bæjarútgerðarinnar. Hin nýju
og stóru síldveiðiskip væru
ekki mikil lyftistöng fyrir at-
vinnulífið í bænum, tilraunin
með Norðurstjörnuna hefði farið
út um þúfur og væru menn ekki
trúaðir á þær ástæður sem hald-
ið væri 'á lofti fyrir lokun fyrip
tækisins, þ.e. að hráefni væri
ekki fyrir hendi, heldur væru
af öðrum ástæðum enginn
grundvöllur fyrir rekstri þess.
Að lokum benti Hermann á
að helzta orsök þess hvernig
komið væri fyrir undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar, sjávar-
útVeginum væri sú stefna rík-
isstjómarinnar sem fram kæmi
í útlánapólitík bankanna, rekst-
urslánabann til sjávarútvegsins
ætti að skapa aðstæður sem
hagkvæmar þættu til að berj-
ast gegn verkalýðnum.
í síðari ræðu sinni sagði Her-
mann að hér væri ekki um það
eitt að ræða hvort Hafnfirðing-
ar vildu halda áfram rekstri
bæjarútgerðarinnar heldur um
það hvort íslenzka þjóðin .viidi
halda áfram útgerð á íslandí.
Þessi fundur er þoðaður til þess
að brýna bæði bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði og stjórnarvöld
landsins að styðja. og efla ís-
lenzka atvinnuvegi.
Síðari framsögumaður á fund-
inum, Sigurrós Sveinsdóttir,
Framhald af 10, síðu.
Helga RE
Ófeigur III VE
Oddgeir HÞ
Seley SU
Súlan EA
Sigurfari AK
Jón Garðar GK
Ásbjörn RE
Kristján Valgeir GK
Ingvar Guðjónsson SK
Þorlákur ÁR
ísleifur IV VE
Elliði GK
Garðar GK
190
40
80
70
110
60
170
220
130
130
80
180
140
60
Alþíngi
Framhald af 10. síðu.
leysi. Réttast væri að málið færi
ekki lengra en til 1. umræðu á
þingi; Alþingi væri vansæmd að
máli sem þessu.
Umræðunni var lokið en at-
kvæðagreiðslu frestað. — Rætt
er um málið í forystugrein.
Ræða Geirs
Framhald af 5. síðu.
ingamar næsta sumar með efl-
ingu Alþýðubandalagsins.
I bæjarstjómarkosningunum
s.l. vor sneri verulegur hópur
i kjósenda baki við Sjálfstæðis-
flokknum — forustuflokknum í
viðreisnarstjóminni, en Alþýðu-
bandalagið fékk að sama skapi
aukið fylgi-
Nú er aðeins rúmlega hálft
ár til alþingiskosninga, sem
munu ráða mestu um afkomu
alþýðuheimilanna næstu árin.
Þann tíma þurfa launþegar um
allt land að nota vel til þess
að tryggja með auknum áhrif-
um Alþýðubandalagsins nýja,
jákvæða stjómarstefnu að kosn-
ingum loknum.
rv -j* *■_
nmn
form. VerkakvennaféL Framtíð-
arinnar, flutti stutta ræðu og
lagði áherzlu á að þegar væri
farið að gæta verulegs atvinnu-
leysis meðal þess fólks sem unn-
ið hefði við fisbvinnu í Hafnar-
firði, sérstaklega hefði borið á
samdrætti í vinnu verkakvenna.
Fimm frystihús hefðu starfað í
Hafnarfirði sl. vetur og margar
konur haft þar vinnu allt árið,
nú hefði frystihúsi Jóns Gísla-
sonar verið lokað og ætlunin
væri að loka bæjarútgerðinni.
Við þetta hljóta tekjur margra
fjölskyldna að minnka ef ekk-
ert kemur í staðinn. Krafðist
Sigurrós afdráttarlausra svara
bæjaryfirvalda um hvað æfiað
væri að gera til að mæta þess-
um samdrætti í atvinnulífinu í
bænum.
Að loknum framsöguræðum
hófust almennar umræður, en
ræðutími var takmarkaður við
10 mínútur. í þessum umræðum
komu fram fulltrúar hinna póli-
tísku flokka og töluðu m.a. allir
bæjarfulltrúar nema efsti maður
á lista óháðra. Auk þeirra töl-
uðu Geir Gunnarsson alþm.,
Kristján Andrésson fyrrv. bæj-
arfulltrúi, Þórður Þórðarson
fyrrv. bæjarfulltrúi, Sigmundur
Björnsson verkamaður, Markús
Þorgeirsson skipstjóri og Gunn-
ar Bjarnason héilbrigðisfulltrúi.
Enginn Framsóknarmaður lét í
sér heyra á fundi þessum og
styður það þá almennu skoðun
að Framsóknarflokkurinn sé
ekki lengur nokkurt pólitískt afl
þar í bæ.
Allir ræðumenn Sjálfstæðis-
flokksins og óháðra reyndu að
verja gerðir meirihlutans í bæj-
arstjórn og eins þeir ræðumenn
Alþýðuflokksins sem voru að
burðast við að deila á atlöguna
gegn bæjarútgerðinni forðuðust
að víkja nokkru orði að, hver
væri höfuðástæðan fyrir því að
svo illa væri komið hag bæjar-
útgerðarinnar sem annarra út-
gerðarfyrirtækja að atvinna við
þessi fyrirtæki hefði stórléga
dregizt sáman svo að atvinnu-
leysi blasti við.
Ræðumenn Alþýðubandalags-
ins bentu hins vegar á að vanda-
málin sem við væri að etja
væru fyrst og fremst afleiðin"
rangrar stjömarstefnu í land-
inu, sem þrengt hefði svo að
undirstöðuatvhmuvegum þjóðar-
innar, að þeir vænx að hrynja
í rúst og svo hlyti að fara ef
ekki yrði breytt um stefnu hið
skjótasta. Þegar ríkisstjómar-
stefnan þrengdi sífellt meir .hag
bæjarútgerðarinnar þá væru
viðbrögð íhaldsins í bælarstjórn
ekki þau að gera kröfu til
flokksbræðra sinna í ríkisstjórn
um bætta stjórnarstefnu og af-
nám þeirrar stefnu sem mark-
visst er að drepa alla útgerð
togara og smærri báta. Nei,
heldur ætti nú að láta kné
fylgja kviði og nota afleiðing-
ar rangrar stjómarstefnu til að
íhaldsmenn í Hafnarfirði getj
náð fram langþráðu markmiði
sínu, sem -er jafngamalt bæjar-
útgerðinni — að koma henni
fyrir kattarnef.
Þessa aðför að bæjarútgerð-
inni þarf hafnfirzkur verkalýð-
ur hvar í flokki sem hann hef-
ur staðið að sameinast um að
hindra og gera sér ljóst að kraf-
an um úrbætur í atvinnumálum
og úrbætur í málum togaraút-
.gerðarinnar er krafa um nýja
stjórnarstefnu í landsmálum.
Raunhæfasta leiðin til að skapa
bæjarútgerðinni bættan rekstr-
argrundvöll og efla að nýju at-
vinnulífið í bænum er að verka-
fólk tryggi nýja stjómarstefnu
með ósigri þeirra íhaldsafla,
sem nú sækja að bæjarútgerð-
inni, í alþingiskosningunum
næsta sumar.
Auðheyrt var á þeim undir-
tektum sem málflutningur ræðu-
manna Alþýðubandalagsins fékk
meðal fundarmanna að vaxandi
skilningur er á þessu meðal
hafnfirzks verkalýðs. Einnig
mátti marka það af einörðum
og raunsæjum málflutningi Her-
manns Guðmundssonar sem tal-
aði af hálfu íundarboðenda, en
hann benti á> í upphafi máls
síns eins og áður segir að menn
skyldu gera sér vel ljóst að þau
vandamál sem við væri að etja
væru pólitísks eðlis.
JónFinnson
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsgötu 4.
(Sambandshúsinu III. hæð)
Simar: 233?1! og 12343.
■ ■ ■
• * / > , !
......................................................
' 'v ■ ’’ i
SlMASTÓLL
Fallegur - vandaður
Verð kr. 4.300.00.
Húsgagnaverzlun
AXELS
ÉYJÓLFSSONAR
Skipholti 7. Sími 10117.
TRIUMPH
undirfatnaður
í fjölbreyttu
úrvali.
ELFUR
Laugavegi 38.
Snorrabraut 38.
KRYDDRASPIÐ
FÆST í NÆSTU
BÚÐ
Höfðu falið
viðfœkin
Lögreglan fékk í fyrrinótt til-
kynningu um að brotinn hefði
verið sýningargluggi Radíóþjón-
ustunnar á Vesturgötu 27 og
höfðu sýnilega horfið nokkur
viðtæki úr glugganum er lög-
reglan kom á staðinn. Svipuð-
ust lögreglumenn um í nágrenn-
inu og fundu skömmu síðar tvo
grunsamlega náunga, sem að
vísu höfðu ekkert meðferðis, en
gátu ekki gert grein fyrir ferð-
um sínum. Voru þeir teknir og
settir í gæzluvarðhald og vísuðu
við yfirheyrslu í morgun á þrjú
tæki sem þeir höfðu tekið og
falið.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍM£ 32-10L
FRAMLEIÐUM
ÁKLÆÐÍ
á allar tegundir bSa
OTUR
Hringbraut 121.
Sími 10659.
BRl DGESTONE
HJÓiBARÐAR
Síaukin sala
sannargæðin.
B:RIDGESTONE
veitir aukið
öryggi í aksfrl.
BRI DGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
BlL A
LÖKK
Grunnur
Fyllir
Sparsl
Þynnir
Bón.
EINKAUMBOÐ
ASGEIR ÖLAFSSON heild^
v' marstræti 12 Sími 11075
>