Þjóðviljinn - 11.11.1966, Síða 5

Þjóðviljinn - 11.11.1966, Síða 5
Föstudagur U. nóvomber 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SfÐA g Sænsku skáldkonuna Söru Lidman þarf víst varla að kynna fyrir lesendum Þjóðviljans eftir öll þau blaðaskrif sem koma hennar hingað til lands kom af stað. Rétt áður en hún fór aftur heim hafði Þjóðviljinn við hana eftirfarandi viðtal þar sem hún segir fyrst og fremst frá því sem henni er minnisstæðast frá dvöl sinni í Vietnam í fyrra EIGUM RÉTT Á AÐ DRAGA EIGIN ÁLYKTANIR AF ÞVÍ SEM GERIST Ætli íslenzkir blaðamenn forðist ekki yfirleitt orðið að spyrja útlendinga sem hingað koma um álit þeirra á landi og þjóð, því fátt getur fárán- legra að líta á prenti en hina yfírborðskenndu kurteisi: ó, land- ið er dásamlega fallegt ogþjóðin- framúrskarandi vingjarnleg o. s. frv. í sama stíl. Þó verður vart ,.hjá .því komizt eftir hin, miklu blaðaskrif og þær deil- ur sem koma Söru Lidman og erindi hingað til lands hafa vakið að spyrja einmitt hana rétt áður en hún hverfur á burt aftur, hvernig land og þjóð hafi komið henni fyrir augu. — Ja, við segjum stundum í Svíþjóð að ekki sé hægt að sjá skógirin fyrir trjám. Ég gæti kannski sagt það sama um ísland, ég hef enga yfir- sýn, hef bara séð Reykjavík, Keflavík og Akureyri. Akureyri er á sömu breiddargráðu og mínir eigin átthagar og þar fannst mér eins og ég væri komin heim, það var bæði loft- ið sem var líkt og svo þetta rólega_, alvarlega fólk. — Áttirðu von á þeim árás- um sem þú varðst íyrir af hálfu Morgunblaðsins og þeirri framkomu sem háskólayfir- völdin sýndu síðar? — Nei, og ég get ómögulega litið á þessar smáárásir eða þá sem að þeim stóðu scm ein- hverja fulltrúa fyrir íslend- inga því að sú hjartanlega hlýja sem ég hef yfirleitt ma:tt var miklu meiri. Hefði ég verið sérfræðingur í einhverju hcfði ég kannski orðið móðguð þeg- ar Háskóli íslands lokaði dyr- um sínum, en þar sem ég hef engan titil að verja og ætlaði ekki að tala til stúdentanna fyrst og fremst sem háskóla- borgara heldur sem lifandi meðbræðra fannst mér í raun og veru alveg eins gott að við hittumst á stað sem öllum var opinn. En ég varð hissa, því að mér finnst ég ekki vera 9vo hættuleg. Auk þess stóð það öllum opið að sanna að ég hefði skýrt rangt írá stað- reyndum — ef sú hefði verið raunin, en ég sagði frá stað- reyndum sem að visu hafa mikils til verið birtar í blöð- um Vesturlanda, en hafa á síð- ari árum sjaldan verið dregn- ar fram í dagsljósið í opinber- um deilum um Vietnammálið. Með fullri virðingu fyrir pólitískum og vismdalegum sérfræðingum sé ég enga á- stæðu til að við trúum blint á þá. Við höfum fullan rétt til að taka ræðu eftir Johnson til nákvæmrar athugunar sjálf, rétt til að spyrja hvort Viet- nam tilheyrý Bandaríkjunum C'ða vietnömsku þjóðinni og sem dauðlegir menn höfumvið líka rétt til að draga okkar eigin álýktanir af þvi sem gér- ist á okkar tímum, alveg á sama hátt og enginn þarf að vera sérfræðmgur í næringar- efnafræði til að álykta að hin- ir hungruðu eigi rétt á að fá mat. ÚR OPINRERUM SKJÖLUM Það sem ég hef lagt fram í ræðum mínum hér málinu til stuðnings er m.a. tekið úr op- inberum skjölum, heíur stað- ið í Hvítu bók Bandaríkja- stjórnar og í ræðum Johnsons og Eisenhowers, — þetta eru ekki hlutir sem Vietnamar hafa fundið upp sem áróður. Mér hefur fundizt nauðsynlegt að rekja forsögu þeirra at- burða sem nú eiga sér stað í Vietnam vegna þess að þeir cru svo margir á Vesturlönd- um sem trúa gagnrýnislaust á útgáfu Bandaríkjastjórnar á þessari sögu: að það sé Norð- ur-Vietnam sem ráðizt hefur á Suður-Vietnam og Banda- ríkjaher sé þar til að vorja S-Vietnam. — , Hvernig stóð á að þú fórst til Vietnam? — Eftir að hafa séð með eigin augum hvernig Vestur- landamenn ræna Afríku fór mig að gruna að hin opinbera útskýring á Vietnamstríðinu sem við íáum úr vestri, væri ekki réttlát. Ég byrjaði á að athuga hvernig Vietnambúar iifðu áður en Bandaríkjamenn komu til landsins og í fyrra fór ég síðan til Hanoi og var þar einn mánuð. — Hvað er þér minnisstæð- ast frá dvölinni í Vietnam? — Minnisstæðast? Það er erfiU að segja, það eru svo margar myndir sem leita á hugann. Það sem vekur mesta furðu er kannski að Vietnam- amir eru engan veginn eins daprir, fátækir né vonlausir eins og maður gæti ímyndað sér; þeir era rólegir og á- kveðnir og hvergi verður mað- ur var við taugaveiklun. Þeir vita hvað þeir eiga að gera og það gera þeir á sinn hæga, látlausa hátt. Þeir vinna ótrú- lega hratt, en það gerist líka með þessari kyiTlátu atorku — eins og hægar bárur sem bera áfram skip. Gamli og nýi tíminn mæt- ast svo víða í þessu landi, sumstaðar er allt unnið með vélum og nýjustu tækni, ann- arstaðar eru enn notaðar alda- gamlar aðferðir. Mér kemur í hug vökvun hrísgrjónaakranna, sem ungar stúlkur annast. Þarna standa þær í röðum og hverjar tvær sveifla á milli sín bandi eins og í snúsnú, en í bandinu hangir skjóla sem í hverri sveiflu fyUist af vatni úr áveituskurðinum og kastar því út á akurinn. Þetta er ein fegursta sjón sem ég hef séð, en náttúrlega er þetta úrelt og seinleg aðferð og víða eru nú komnar sjálfvirkar áveit- ur. Svona er þetta allsstaðar, sambland hins nýja og gamla. Þeir eiga fáa bíla, nota reið- hjól í staðinn og þeir flytja allt á þessum hjólum, hafa börar ofan á og ýta þeim svo áfram. Járnbrautarnetið er ekki stórt og hefur verið sprengt upp hvað eftir annað, en þeir reyna eftir föngum að gera við það jafnóðum. UNNIÐ OG KENNT Á NÓTTUNNI Það eru þúsundir verksmiðja í Norður-Vietnam, bæði ný- tízku og gamaldags verksmiðj- ur, landið er auðugt að alls- kyns málmum og þeir íram- ileiða nú sjálfir flest það sem þeir þurfa, hafa mikinn efna- iðnað og vefnað, en líka tals- verðan landbúnað, sem aðal- lega hefur þróazt síðan 1955 þegar ekki var lengur hægt að fá hrísgrjón og önnur matvæli frá Suður-Vietnam, þar sem upphaflega var aðal landbún- aðarsvæði landsins. Norður- Vietnamar urðu þá að auka eigin framlciðslu og það hefur þeim tckizt. Hungur er ekki til í landinu, ég sá aldrei eitt einasta vannært barn, og dreif- ing r atvæla hefur verið vel skipulögð. En það er erfitt að stunda landbúnaðinn núna vegna stríðsins, konurnar ganga með byssur á bakinu á ökranum og oft verður að vinna á næturnar í þeim hér- uðum þar sem sprengjuárás- imar eru tíðastar, því að sprengjunum er ekki kastað á næturnar. Á hverjum degi er kastað yfir landamærin 150—200 sprengjuförmum og það er mikið yfir svo lítið land, ekki sízt af því að það er svo þétt- býlt, alls 8 miljónir íbúa, manni virðist allsstaðar vera fólk. í borgunum þar sem hætt- an er mikil er barnaskóla- bekkjunum skipt sundur og dreift um borgarhverfin til að koma í veg fyrir, ef illa fer, að heilir árgangar farist. Á mestu hættusvæðunum er bara kennt á nóttunni og markaðir eru haldnir þá, á daginn fel- ur fólkið sig, oft í jarðgöng- um. Það er margt sem aðeins er hægt að gera á nóttunni vegna sprengjuárásanna, víða hefur sólarhringurinn alveg snúizt við. Mér detta í hug vegirnir, um þá er aldrei ek- ið nema að nóttu til og ljós- laust nema í neyðartilfellum. Á daginn eru vegirnir auðir, en fyllast þegar dimmir. Þegar mér var ekið eitthvað var það alltaf um nætur og það var einkennileg tilfinning þegar maður kom svo allt í einu að fljóti og ekki var hægt að fara lengra með bílnum því að búið var að sprengja brúna í loft upp. Fólkið fer yfir fljótin á litlum bátum al- þöktum laufi og það er fjöldi af þessum bátum. Alltaf er verið að gera við brýrnar, en þær eru venjulega sprengdar fljótt aftur. Á nóttunni varfullt af unglingum á ferli með litla iampa, hjálma á höfði og byss- ur á baki — þau voru að gera við brýr og annað sem eyði- lagt hafði verið í árásum ó- vinanna og það var ekki á þeim að sjá að þau væru raunamaKld, nei, þau voru glöð og sungu við vinnuna. Þau eru glöð, en bandarísku hermennimir hljóta að vera leiðir því þeir hafa ekkert að berjast fyrir. Vietnamarmr berjast fyrir landi sínu, lífi og öllu sem þeim er kært. — Óneitanlega virðist þetta vonlaus barátta, — Ég sá brú sem hafði ver- ið sprengd fimm sinnum, — og fimm sinnum gert við hana aftur. Segir það ekki sínasögu? ÞJÓÐIN STOLT AF SÖGU SINNI Þessi þjóð á sér sögu sem hún getur verið stolt af og er stolt af, hún hefur ríka þjóð- cmiskennd og þetta veitir einnig persónulegt stolt sem er hverjum manni mikils virði í lifinu. Auk þess á hún minn- inguna um Dien Pien Phu, að hún skyldi geta yfirbugað hinn mikla franska her, sem átti að vera ósigrandi — það þýðir að hún getur haldið þetta út líka. Auk þess kem- ur annað til: hin þjóðfélags- lega, breyting sem orðið hefur eftir byltinguna. Nú hafa all- ir nóg að borða, fá að ganga í skóla, búa við þjóðfélagslegt öryggi sem ekki var til áður. Áður var öll þjóðin þrælar Frakka og leppa þeirra, stór- landeigendanna, og þegar henni hefur einu sinni tekizt að rísa upp úr þeirri eymd og heimta frelsi sitt getur hún ekki snú- ið aftur til baka. — Þykir Vietnömum vænt um að frétta um stuðning ann- arra þjóða, t.d. í mynd mót- mælafunda eða gangna? — Ákaflega, og þeir fylgj- ast mjög vel með slíku. í Sví- þjóð var eitt sinn mótmæla- fundur sem lögreglan dreifði og í þeim átökum meiddist ung stúlka á hendi. Þegar fólk í Hanoi heyrði að ég væri frá Svíþjóð sögðu margir: Þar var stúlkan sem særðist á hendi okkar vegna, skilaðu kveðju til hennar og segðu að við vit- um að hún sé vinur okkar. í mótmælaskyni við stefnu Bandaríkjastjórnar í Vietnam brenndi ungur maður sig til dauða fyrir utan Pentagon. Þegar þessar fréttir bárust til Hanoi ólgaði öll borgin ef hægt er að nota það orð um þetta kyrrláta fólk, en það stóð fyr- ir utan blaðsöluturna, las og grét, og þúsundir bréfa voru send frá Vietnam til systur hans og ort hafa verið um hann fjölmörg ljóð. Vietnamar eru fullir mann- úðar eða náungakærleika og það er mjög auðvelt að kynn- ast þeim, þeir hafa framkomu sem 'fcr ótrúlega mjúk og eðli- leg og þeir eru hugrakkir og glaðir, mikið fyrir að syngja, spila á hljóðfæri og dansa, leika og yrkja. Þeir hafa mjög ríka kímnigáfu og ég held að hún hjálpi þeim mikið á þess- um erfiðu tímum. Ég kom einu sinni til aðseturs Hermanna í heimavarnarliðinu og þar , :sá,, ég að þeir voru að yrkja gam- ankvæði, hengja upp teikning- ar og leika smágrinþætti, ^ — Eru konur líka í hemum? — Já, stúlkur eru líka í heimavarnarliðinu, þær eru þó ekki sendar á hættulegustu staðina, en standa vörð um brýr, verksmiðjur og í borg- um. Einu sinni sá ég útbúnað bandarísks flugmanns sem hafði farizt, þar á meðal var vegabréf hans og hann var að- eins 21 árs og bar sænskt nafn, kannski hefur afi hans flutzt vestur, — hann vax svo líkur frændum mímun, rétt eins og hann hefði verið skyld- ur mér. Síðan hefur oft leitað á mig hugsunin um þennan pilt sem án nokkurrar ástæðu eða sakar var sendur í svo ó- hugnanlega ferð. Maður finn- ur til þess hve himinhrópandi ranglæti þetta stríð er, ekki bara gagnvart Vietnömum en líka gagnvart bandarísku þjóð- innL Ma-rgir Bandaríkjamenn neita að láta senda sig til Vietnam, en þeir hljóta þá 5 ára fangelsi. Bandaríska stjórn- in fórnar ungu mönnunum í landinu og það eru þeir en ekki ráðamennirnir sem fá að bera byrðarnar og tapa lífinu, það eru þeir sem verða að taka á móti hatrinu og fyrir- litningunni í löndunum sem Bandaríkin hemema og það er í þeirra eyrum sem „Yan- kee go home“ hljómar oftast. Pentagon er óðum að breyta ungum Bandaríkjamönnum í afhrök jarðar. FÓLKIÐ KALLAR HANN HO FRÆNDA Kannski hljómar það ein- kennilega, en þegar maður ber saman lítil efni Vietnama í vopnum og útbúnaði og hin miklu auðævi sem Bandaríkja- menn hafa reitt fram til að kúga þessa þjóð og heimur- inn fær að sjá að það er samt Framhald á 7. síðu í i i í

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.