Þjóðviljinn - 14.12.1966, Side 2

Þjóðviljinn - 14.12.1966, Side 2
2 SföA — f> JðÐVILJXNN — Miðvifcudagur 14. desember 1066. Líf í synd Forðum tíð, þegar þekking manna á veðurfræði var næsta takmörkuð, var kom- izt svo að orði í stjórnmála- umræðum á íslandi að efna- hagsvandamál nokkurt væri eins og vindurinn, enginn vissi hvaðan það kæmi eða hvert það færi. En vilji stjórnmála- menn um þessar mundir rétt- læta getuleysi sitt andspænis efnahagsmálum telja þeir að vonum ekki vogandi að vitna til raunvísinda. Þess vegna leitaði Bjami Benediktsson til trúarbragðanna er hann ræddi um óðaverðbólgu sína á þingi í fyrradag; hann sagði að því er Morgunblaðið hermir: „I>að er eins með verðbólg- una og syndina. Flestir kvarta undan henni, en nærri því enginn gerir nokkuð á móti henni og ástæða er til að ætla að flestum vegni sæmilega vel í sambúð við hana“. Ekki mun Bjarni Benedikts- son þurfa að óttast að síðari vitneskja um syndina geri samlíkingu hans marklausa. Hitt mun ýmsum finnast að tal hans um sæmilega vel- gengni í sambúð við syndina sé næsta léttúðarfullt. því for- sætisráðherra íslahds er sem kunnugt er sannlúterskur maður að eigin sögn og að- hyllist raunar þá ströngu grein lúterskunnar sem iðkuð er í Kristilegu félagi ungra manna, þar sem siðareglur Helgakvers eru enn í heiðri iiafðar. í því kveri segir svo um þá sambúð sem forsætis- ráðherrann lætur sér vel líka: „Syndin veitir enga sanna gleði né gæfu, heldur er hún þvert á móti rót allra mann- legra eymda, orsök og upp- spretta tímanlegs, andlegs og eilífs dauða . . . Eilífur dauði er ævinleg útskúfun frá guði og ævinleg hegning, sem bíð- ur óguðlegra í öðru lífi, þá er þeir hafa í þessu lífi án yf- irbótar haldið áfram í synd- unum“. . Þeir sem bera umhyggju fyrir sálarheill Bjarna Bene- diktssonar vona sannarlega að það sé á misskilningi byggt að verðbólgan sé í hópi trú- fræðilegra synda. Að öðrum kosti er hætt við að honum sé fyrirbúinn staður fyrir norð- an og neðan sjálfan Húsa- víkur-Jón. — Austri. Verður hafín framleiðsla á hágerilsneyddri mjélk hér? Um þessar mundir fer fram Jíönnun á því hjá Mjólkursam- sölunni hvort það borgi sig að hefja framleiðslu á svokallaðri hágerilsneyddri mjólk hér á landi, en framleiðsla á henni er hafin i nokkrum löndum, m.a. Svíþjóð, en hún hefur þann kost að geymsluþolið er mun <> unnar ullarvörur, gærur, myndabækur, brúður í þjóðbúning- um, silfurmunir, gestabækur. I j j ! BAÐSTOFAN HAFNARSTRÆTI 2S meira en á mjólk sem geril- sneydd er á venjulegan hátt og tryggt er að hún geymist í heil- an mánuð við venjulegan stofu- hita. Stefán* Björnsson fqrstjóri Mjólkursamsölunnar skýrði blaðamönnum frá þessu á mánudag og sagði að þessi að- ferð væri ekki alveg ný, en sífellt unnið að endurbótum á henni, m.a. í Svíþjóð, Þýzka- landi og Englandi og hefði Mjólkursamsalan talið rétt að fylgjast nákvæmlega með þeirri þróun sem á sér stað í þessu efni ef í ljós skyldi koma að hagkvæmt væri að hefja fram- leiðslu hágerilsneyddrar mjólk- ut hérlendis. Sagðist Stefán. þó- ekki búast við að mjólk þessi vrði vinsæl sem neyzlumjólk almennt. eins og málin stæðu nú. bæði vegna verðs og bragðs, en hún er talsvert dýrari í framleiðslu en mjólk sem ger- ilsilsneýdd er á venjulegan hátt og eins er af henni dálítið suðubragð, sem fólki fellur ekki vel. en kannski tekst er fram í sækir að minnka framleiðslu- kostnað og eyða þessu bragði og er unnið að tilraunum við það m.a. í Svíþjóð, þar sem hágerilsneydd mjólk er komin á markað fyrir nokkru. Hins vegar sagði Stefán, get- ur svona mjólk leyst vandann á stöðum þar sem ekki er hægt að ná til venjulegrar mjólkur vegna fjarlægðar, á skipum og i löndum þar sem erfitt er að framleiða mjólk, og gæti þetta jafnvel orðið útflutningsvara ef flutningskostnaður frá fs- landi reyndist ekki of hár mið- að við verðmæti vörunnar og ef í ljós kemur að þessi vara þurfi minni útflutningsuppbæt- ur en sumar landbúnaðarvörur okkar aðrar. Frá sænsku framleiðendunum hefur Mjólkursamsalan fengið allar upplýsingar um fram- leiðslu hágerilsneyddrar mjólk- ur, kostnaðaráætlanir miðað við sænskar aðstæður og tillögur um vélasamstæður er hér kæmu til greina og er þetta mál allt í athugun, einkum hvaða mögu- leikar eru í sambandi við mjólkina hér, bæði fyrir ís- lenzka neytendur og til út- flutnings. Ekki er unnt að skýra ná- kvæmlega frá þeirri aðferð sem notuð er við framleiðslu há- gerilsneyddrar mjólkur, en hún er um margt önnur en sú sem notuð er við venjulega geril- sneyðingu, mjólkin er hituð mjög mikið upp örskamma stund, leidd gufa inn í mjólk- ina sjálfa, sem þá blandast vatni og þrýstingurinn síðan tekinn af og verður þá skyndi- leg uppgufun sem. svarar til sama vatnsmagns og gufan. Eftir þessa meðferð á mjólkin að þola miklu lengri geymslu en annars og hafa sænsktj framleið- endurnir tryggt a.m.k. mánað- argeymslu á sinni mjólk við venjulegan stofnhita. ANDRES auglýsir. Vegna' breytinga á verzluninni um næstu áramót, verða öll erlend karlmannaföt seld með afslaetti Verð frá kr. 1.290,00 til kr. 1.890,00. Stakir karlmannajakkar, verð kr. 875,00. Terylenebuxur karlmanna á kr. 590,00. • Kvenkánur frá kr. 500,00 — Dragtir og pils, mjog lágt verrð. Gerið góð kaup — Allt á að seljast Ný bók eftir metsöfuhöfundinn ALISTAiR MACLEAN er komin á markal- ; inn. Hún heitir: ; ; ; Síðasta skip frá Singapore Segir þar frá því, er síðasta vígi Breta í Asíu, Singapore, féll í hendur Japönum í síöustu heimsstyrjöld. En meginefni bókarinnar e.r frásögn af flótta síöasta fóiksins, er komst undan, þegar borgin féll. Gerist sú saga bæðf á sjó og landi, og er frásögnin æsispennandi, eins og væftta má frá hendiþessa höfundar. ALISTAIR MACLEAN ... .-....______________ZÍí*. • hií-ím ÁVur eru komnar fil efllrtaldar b»kur eftir þennan vinsæla höfund: Byssurnar í Navarone Nóttin langa Skip hans hátignar Ödysselfur Til mótsvið gullskipið Neyðarkalí frá Ofantaldar bælcnr fást hjá bóksölmn nm land allt. Sendura ; gegn póstkröfu. Verð bókanna er kr. 265,00—325,00 áu söli : Seljum gegn afborgunum. IÐUNN — Skeggj’agötu 1 — Símar: Undset talar enga taepi- tungu. Þessi bók hennar er Mirifa- lífssaga. Mikil örlagasaga þróttmiklu fólki. Bókin bregður upp lifandi mynd af norsku sveitalífi á 18! öld. Þetta er án efa bókin sem vand-. látir lesendur óska sér. ÆGISÚTGÁFAN. ' (T Maddama Dorothea ÍWWWWWWWilWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWiUr

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.