Þjóðviljinn - 31.12.1966, Qupperneq 3
Laugardagur 31. desember 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J
Eskífirðí
Óskar öllu starfsfólki sínu og viðskíptavinum
GLEDILECS KOMAND/ ARS
með þakklæti fyrír það liðna
!Émm
Hongkong banda-
rísk flotastöð?
HONGKONG 30/12. — Hin opin-
bera kínverska fréttastofa réðst
á brezku stjórnina í dag fyrir
stuðning hennar við stefnu
Johnsons forseta í Vietnam. Seg-
ir þar, að Bretar leyfi Banda-
ríkjamönnum að nota Hongkong
sem hjálparbækistöð í auknum
lofthernaði gegn Norður-Viet-
ham — þannig hafi síðast um
jól legið tíu bandarísk herskip
við Hongkong.
Faðir Adolf
var ekki Bormann
RECIFE 30/12 — Lögreglan í
Recife í Brasilíu hefur borið ti!
baka orðróm um að maður
nokkur, sem handtekinn varfyr-
ir skömmu í klaustri einu þar
í grennd sé þýzki stríðsglæpa-
maðurinn Martin Bormann, stað-
gengill Hitlers.
Maður þessi hefur kallað sig
„faðir Adólf“. Hann er tattóver-
aður með hakakrossum og SS-
merkjum.
fylkingin
Gleðilegs nýs árs óskum við landsmönnum
öllum með þakklæti fyrir það liðna.
Tilkynning
til þjónustufyrirtækja.
25/1966
Vegna framkvæmda hinna nýju verðstöðvunarlaga
er hérmeð lagt fyrir öll þjónustufyrirtæki að senda
verðlagsskrifstofunni nú þegar gildandi verðskrá
ásamt upplýsingum um, frá hvaða tíma hún hefur
verið í gildi.
Reykjavík, 29. desember 1966.
Verðlagsstjórinn. '
Milovan Djilas
gefnar upp sakir
BELGRAD 30/12. — Tító, for-
seti Júgóslavíu, hefur tilkynnt að
hinn kunni stjórnmálamaður og
rithöfundur, Milovan Djilas,
skuli látinn laus úr fangelsi.
Djilas gekk ungur í kommún-
istaflokkinn og var einn af helztu
foringjum skæruliðaherjanna
sem börðust gegn fasistum á
stríðsárunum. Hann var um
tíma varaforseti landsins og
þingforseti en smám saman dró
sundur með honum og fyrri fé-
lögum unz hann var árið 1956
handtekinn fyrir harða gagnrýni
á stjórnarfar í landinu. Honum
tókst að senda úr landi handrit
að bókinni „Hin nýja stétt“ og
var þá dæmdur í sjö ára fang-
elsi 1957 en látinn laus 1961 eftir
að hann lofaði að hætta baráttu
sinni gegn flokknum. Samt gaf
hann út erlendis bókina „Samtöl
við Stalín“ sem þótti skaða al-
þjóðlega aðstöðu ríkisins og var
þá dæmdur í fimm ára fangelsi
árið 1962 og bætt við óafplánuð-
um dómum og skyldi þá sitja
inni átta ár og átta mánuði.
Júgóslavíustjórn hefur fengið
margar áskoranir um að láta
Djilas lausan. Talið er líklegt
að ákvörðun Títós nú standi i
sambandi við það, að forsetinn
/Óí mjög mildum höndum um
Rankovic, fyrrum yfirmann ör-
yggisþjónustunnar, er honum
var vikið frá fyrir misbeitingu
valds. Kom Tító því þá til leiðar,
að Rankovic yrði ekki stefnt fyr-
ir rétt fyrir afbrot sín.
Kona Djilasar hefur sagt, að
fregnin um náðun hafi komið sér
mjög á óvart.
Stutt vopnahlé
í S-Vietnam
SAIGON 30/12 — Vopnahlé
hófst í dag kl. 7 eftir staðar-
tíma í Suður-Vietnam og varir
1 tvo sólarhringa. Ölíklegt þykir
að vopnahléð verði framlengt og
ber ýmislegt til —■ bandaríska
herstjómin segir til að mynda,
að skæruliðar hafi notað vopna-
hléð um jólin til að koma sér
upp nýjum birgðastöðvum.
SAS vill færa
út kvíarnar
KAUPMANNAHÖFN 30/12 Gert
var í dag hlé á viðræðum milii
Sovétríkjanna og fulltrúa Nor-
egs, Danmerkur og Svíþjóðarum
nýjan loftferðasamning. Er m.a.
rætt um að SAS fái leyfi til að
taka upp samgöngur við Tokíó
um Moskvu og um að koma upp
nýrri flugieið til Leningrad.
Listsýning
Framhald af 6. síðu.
Jóhann Eyfells (f. 1923) sýnir
með gjörólíku efni sama óróa
í hverju einstöku atriði og
skilst helzt í sambandi við
náttúruna, hér auðvitað alveg
sérstaklega i sambandi við
náttúru íslands
Og Claude Flor skrifaði í
„Hannoversche Presse“:
í hverju Norðurlandanna ber
listin sinn sérstaka svip, en þó
eru nægir snertipúnktar fyrir
hendi og samtengjandi öfl. Hlý-
leiki efnisins. endurspeglun
loftslags og veðurfars á breyti-
legum árstímum. mismunur
landslagsins. innblástur frá
skýjum, klettum, jöklum, mið-
Sterkbyggður, léttbyggður, sparneytinn. — Þýðgengar vélar 172—235 hestöfl án forþjöppu. — 6 eða 12
gíra. Ein, tvær eða þrjár drifnar hásingar með niðurfærslu í hjólum, þess vegna mjög hár á vegi,
ákjósanlegur fyrir íslenzka staðhætti. — Burðarþol á grind: 8500 kíló til 23000 kíiú
nætursól, skógum og námum,
þetta allt eru vakar litskynj-
ana og tilfinninga, sem er um-
breytt í áþreifanlega hluti,
drauma, stemmningar. Það er
játazt hreinskilnislega undir
nútíma stíltegundir Evrópu,
frönsk áhrif eru greinileg, en
þau eru sveigð til hlýðni við
norrænt skapferli og norræna
veraldarhyggju ( = Weltge-
stimmtheit). Samblanda hefð-
ar, þjóðmenningar og alþjóð-
legrar örvunar hefur skapað
eitthvað, sem hér hefur mark-
að sér sitt eigið svið.
er stærsta og bezta nafnið í þungaflutningabílum í Þýzkalandi.
tryggir fullkomna þjónustu með því að staðsetja þýzkan vélaverkfræðing
1M hjá umboðinu upp úr áramótum.
Kynnið yður gæði verð og greiðsluskilmála M.A.N. vörubifreiðanna
Einkaumboð á íslandi: KRAFTUR H.f. ^ringbraut 121 — Sími 12535.