Þjóðviljinn - 31.12.1966, Side 12
Ráðherraskipti
r
I
STOKKHÓLMI 30/12 — Frú
Alva Myrdal var í dag skipuð
afvopriuriarniálaráðh. í sænsku
ríkisstjórninni og mun það vera
nýtt embætti. Á sama ríkisráðs-
fundi lagði önnur kona, Ulla
Lindström, niður ráðherradóm í
mótmælaskyni við knappar fjár-
Véitingar til aðstoðar við van-
þróuð lönd, en hún hafði ein-
mitt farið með þau mál í stjórn-
inni.
Súkarno forseti
r
a
DJAKARTA 30/12. — Súkarno
Indónesiuforseti hefur nú beygt
sig fyrlr þeirri kröfu, að hann
gefi opínberlega skýringu á þeim
átburðum sem leiddu til mis-
heppriaðrar byltingartilraunar í
fyrra og svari ásökunum um að
hann hafi vitað af áformum
uppreisnarmanna en ekkert
hafzt að, Áður hafði Súkarno
neitað að gefa skýringu á af-
stöðu- sinni og hótað að segja
af sér ef árásum á hann linnti
ekki.
EFTfl-ríkín
eru á undan
áætluninni
GENF 30/12 — Áform Friverzl-
unarbandalagsins (EFTA) um
tollfrjálsa verzlun með iðnaðar-
vörur verða að veruleika um
áramót. Leggja þá aðildarríkin
sjö niður 20% vemdartolla á
iðnaðarvörur, en þau hafa verið
að lækka tolla smám saman síð-
an 1960. Koma þá áform EFTA
til framkvæmda um þrem árum
fyrr en gert var ráð fyrir i upp-
hafi.
f aðildarríkjum EFTA búa nj
um 100 miljónir manna. Meðal
þeirra eru Danmörk, Noregurog
Svíþjóð.
Ríræfinn smygl-
ari hindtekÍM
NEW YORK 30/12. — Ungur
Breti var í gær handtekinn á
Kennedyflugvelli við New York
— höfðu tollþjónar fundið í
ferðatösku hans heróín fyrir um
eina miljón dollara.
Gaf Fornritafé^
laginu 1 miljón
til útgáfustarfs
- í gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Framkvæm'dabankanum:
Framkvæmdabanki íslarids
hættir störfúm nú um áramótin,
eri frámkvæmdasjóður íslands
tekur' þá til starfa. Á fundi
bankaráðs i<, amkvæmdabank ■
áns í dag samþykkti bankaráð
einróma að gefa Hinu íslenzka
fornritafélagi eina miljón króna
til eflingar útgáfu þess á ís-
lenzkum handritum.
5ASHKATOON 30/12— Banda-
'íkjamaðurinn Bob Segren sló í
lag heimsmét sitt í stangar-
tökki innanhúss. Fór hann yfir
>,21 m á íþróttamóti í Kanada
dag.
Maí kemur með full-
fermi í annað sinni
■ Á annan nýársdag mun togarinn Maí leggja að
bryggju í Hafnarfirði með fullfermi af karfa af Ný-
fundnalandsmiðum, eða nærri 500 tonn. Er þetta í ann-
að skiptið í röð sem Halldór Halldórsson skipstjóri
fyllir skip sitt á þessum miðum og færir þannig óvænta
björg í bú Hafnfirðinga. Þegar hann kemur að landi
hefur hann verið tæpa 16 sólarhringa í túrnum.
Svo sem kunnugt er kom
togarinn Maí af Nýfundna-
landsmiðum rétt fyrir miðjan
desember með fullfermi af
karfa. Hafði hann reynt fyrir
sér við Grænland en orðið
frá að hverfa undan ísnum cg
brá sér á Nýfundnaland —
á gömlu karfamiðin, sem fræg
urðu á árunum 1958 — 1959.
Þar fyllti hann sig á nokkrum
sólarhringum og hélt með afl-
ann heim til Hafnarfjarðar.
Togarinn fór aftur út þann
16. des. og á sömu slóðir aft-
ur. Hann var 8 sólarhringaá
veiðum og er nú á heimleið
með fullfermi. Einhverjir af
þessum 8 sólarhringum féllu
úr vegna veðurs, þannig að
aflinn hefur raunverulega
fengizt á nokkru skemmri
tíma. Hér er því um mjög
góða veiði að ræða, þar sem
450 — 500 tonn eru nærri
tveir farmar gömlu togaranna,
en þeir voru frá 2 og upp i
6 sólarhringa að fylla sig þar
vestra þegar bezt gekk hér
á árunum.
Þessi mikli afli skapar
mikla og kærkomna vinnu í
Hafnarfirði og breytir veru-
lega öllum viðhorfum í rekstri
Bæjarútgerðarinnar þar. Verð-
mæti fyrra farms togarans
var 1.730.000 kr., þannig að á
ca. hálfum öðrum mánuði
hefur hann veitt og lagt upp
fisk fyrir um þrjár og hálfa
miljón króna. Hásetahlutur úr
farminum nú verður 16—17000
kr. að meðtöldum dagpening-
um.
Halldór Halldórsson skipstj.
á Maí er mikill aflamaður og
þaulvanur togaraskipstjóri þóít
ungur sé að árum. Ha t
gat sér mjög goft orð sem
skipstjóri á Júní hérfyrr á ár-
um og er vanur á Nýfundna-
landsmiðum. Þá er og þess
að minnast að hann bjargaði
norsku vitaskipi í ofviðri á
Norðursjó fyrir tæpum fimm
árum, með því að leggjaskipi
sínu, Júní, áveðurs við hið
sökkvandi skip og verja það
þannig fyrir sjóum. Sigldi
hann síðan skipi sínu heilu *>2
höldnu heim, þrátt fyrir að
stýrið var laskað. Var þetta
afrek mjög rómað.
Laugardagur 31. desember 1966 — 31. árgangur — 299. tölublað.
Stilling h.f. flyt-
ur í nýtt húsnæ&i
í gaer, föstudag, flutti fyrir-
tækið Stilling h.f. í nýtt húsnæði
að Skeifunni 11. Stilling hf. var
stofnað 1. okt. 1960 og hefur
starfað síðan að Skipholti 35
og gerðist hluthafi í Iðngörðum
h.f. 1963. Starfssvið fyrirtækis-
ins hefur frá upphafi verið sér-
hæfing í hemlaþjónustu.
Bjarni Júlíusson, framkvæmda-
stjóri, bauð fréttamönnum og
öðrum að skoða nýju húsakynn-
in í gær en fyrirtækið tekur til
starfa þar strax eftir áramót-
in.
Þegar íyrirtækið var stofnað
störfuðu þar aðeins tveir menn
en s.l. 2 til 3 ár hafa starfað þar
allt að 10 menn þegar mest hefur
verið. Er ætlunin að bæta við
starfsfólki og þá sérstaklega í
sambandi við bifreiðaskoðunina
í sumar. Sagði Bjarni það há
mjög verkstæðum af þessu tagi
hve mikið væri að gera einmitt
þegar starfsfólkið færi í sumar-
leyfi en aftur minna á vetrum.
Árið 1963 gerðist Stilling hf.
hluthafi í Iðngörðum sem byggðu
iðnaðarhús við Skeifuna eins og
kunnugt er. Hlutur fyrirtækisins
er ca. 2000 rúmmetra hús sem
er þó aðeins áfangi í væntan-
legri byggingu. Þjónustan sem
fyrirtækið lætur viðskiptamönn-
um í té er alhliða hemlaþjón-
usta. Bílaeigandi kemur með
bifreið sína að morgni og fær
hana að kvöldi í flestum tilfell-
um. Farið er yfir fót og hand-
hemil og „Power“ hemla og ef
þörf krefur eru renndar skálar,
límdir og endurnýjaðir bremsu-
borðar, þeir réttir af, slípaðar
hjól- og höfuðdælur og endumýj-
uð gúmmí í þeim eða settar nýj-
ar í staðinn.
Einnig verður í náinni fram-
tíð lögð rík áherzla á varahluta-
þjónustu og er ætlunin að opna
í vetur verzlun í sambandi við
verkstæðið sem mun aðeins
verzla með varahluti í hemla.
Þeir sem sáu um byggingu
þessa húsnæðis voru húsameist-
ari Þórður Jasonarson, innrétt-
ing Óskar Kristjánsson, raflögn
Ingólfur Björgvinsson, hitalögn
Ásgrímur Egilsson og málningu
Rafn Bjarnason.
Frestað ákvörðun á
fískverði um viku
í gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Verðlagsráði sjávarútvegsins.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins hefur að undanförnu
unni að ákvörðun lágmarks-
Húsnæðismálastofnunin úthlutaði í
ár lánum að upphæð 360 miljón kr.
Tæplega 2500 af umsækjendum um lán fengu lánveitingu
■ Um miðjan desember-mánuð lauk húsnæðis-
málastjóm lánveitingum sínum á þessu ári. Höfðu
þá lán verið veitt samtals að upphæð kr. 345.399.00
til 2452 umsækjenda, auk lána til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis, er námu kr. 16.965.000.
Hafa því lánveitingar á árinu numið samtals kr.
360.364.000. Er þetta langhæsta lánveiting, sem
fram hefur farið á vegum húsnæðismálastjómar.
Fyrri lánveitingin á þessu ári
fór fram í april og maí og voru
þá veitt lán samtals að upphæð
kr. 175.592.000. Voru þá veitt
662 byrjunarlán og 573 viðbótar-
lán. Tókst í þeirri lánveitingu
Til tunglsins á næsta ári?
MOSKVU 30/12. — Gert var ráð
fyrir, að rannsóknarstöðin Lúna
13., sem lenti fyrir sex dögum
á tunglinu lyki verkefni sínu í
nótt. Vísindamenn vinna nú úr
fengnum upplýsingum, en hafa
þegar fengið staðfest að á lend-
ingarstað í Stormahafinu er ,yf-
irborðið allþétt og því líklegt
að það verði fyrir valinu sem
ákvörðunarstaður er sovézkt
mannað geimfar verður senttil
tunglsins.
Þrálátur orðrómur gengur um
það í Moskvu, að sovézkir geim-
vísindamenn leggi allt kapp á að
koma mönnuðu geimfari til
tunglsins þegar á næsta ári og
helzt í sambandi við 50 ára af-
mæii októberbyltingarinnar.
að veita öllum þeim umsækjend-
um lán, er þá áttu fyrirliggj andi
fullgildar umsóknir. Síðari lán-
veiting ársins fór fram í nóv-
ember og desember, eins og áður
segir. Voru þá veitt 591 byrjun-
arlán samtals að upphæð kr.
83.135.000. Þá voru einnig veitt
626 viðbótarlán samtals að upp-
hæð kr. 84.672.000. Á árinu hafa
því veriö veitt 2452 lán til 1253
íbúða samtals að upphæð kr.
343.399.000. f síðari lánveitingu
ársins tókst eigi að veita öllum
þeim byrjunarlán, sem áttu fyr-
irliggjandi fullgildar lánsumsókn-
irhjá stofnuninni, enda voru þær
stórum fleiri en ráðgert var að
kæmu til úrlausnar hjá stofnun-
inni, er henni voru fengnir nú-
verandi tekjustefnar. Hins veg-
ar var lánsfjárþörfinni fuUnægt
að því er snerti viðbótarlán.
Fengu nú allir þeir umsækjend-
ur full viðbótarlán, er fengu
byrjunarlán í vor. Viðbótarlán
til félagsmanna verkalýðsfélaga
innan A.S.f. voru veitt til fulls
þeim, er nú fengu almenn við-
bótarlán, en af fjárhagsástæðum
var frestað að veita þau þeim.
er nú fengu byrjunarlán.
Öll byrjunarlán að þessu
sinni námu 140 þús. krónum,
þannig að viðbótarlán til þeirra
íbúða, er framkvæmdir hófust
við á þessú ári, munu nema
hærri upphæð, enda séu þá fyrir
hendi öll skilyrði til þeirrar lán-
veitingar. Hinn 28. desember sl.
voru fyrirliggjandi hjá stofnun-
inni 1226 umsóknir, er fengið
böfðu viðurkenningu hennar um
lánshæfni. Þar af voru f{58 um-
sóknir fullgildar, þ.e. viðkomandi
íbúðir fokheldar. Til samanburð-
ar má geta þess, að 15. febrúar
sl. voru fyrirliggjandi hjá stofn-
uninni 758 umsóknir, er fengið
höfðu viðurkenningu um láns-
hæfni. Má því glögglega sjá hve
umsóknum hefur fjölgað stórlega
á árinu, en það er meginástæðan
fyrir því, að eigi tókst að full-
nægja lánsfjárþörfinni i haust,
að því er snerti veitingu byrjun-
arlána.
Næsta lánveiting Húsnæðis-
málastofnunarinnar fer fram á
komandi vori. í sambandi við
hana skulu væntanlegir umsækj-
endur um íbúðarlán hvattir til
þess að kynna sér rækilega aug-
lýsingu er birtast mun í blöðum
og útvarpi næstu daga.
verðs á bolfiski fyrir árið 1967.
Stefnt hefur veriö að því að
ljúka verðákvörðun fyrir ára-
Fyrirsjáanlegt er, að nefndin
muni ekki geta lokið störfum
fyrir áramót, og hefur því ver-
ið leitað heimildar til þess að
frestað verðákvörðun til 8. janú-
ar.
Þá hefur Verðlagsráð unnið að
ákvörðun lágmarksverðs á síid
í bræðslu norðan- og austan-
lands og síld i bræðslu og fryst-
ingu sunnanlands- og vestan frá
1. janúar n.k. Samkomulag náð-
ist ekki um þessar verðákvarð-
anir, sem fara því til úrskurðar
yfimefnda.
Yfirnefndir þær, sem fjalla
um verðákvarðanir á síld, munu
ljúka störfum um eða uppúr
áramótum.
KAUPMANNAHÖFN 30/12. ■—
Danska lögreglan hefur lagthald
á tvö málverk eftir danska lista-
manninn David Rubello fyrir
þær sakir að þær séu klám-
fengnar. Myndirnar voru til sýn-
is á sýningu ungra listamanna
á Charlottenborg.
Niemöller fíoginn til Hanoi
— Ú Þant fíytur friðarávarp
PARIS 30/12. Hinn þekkti þýzki
guðsmaður, séra Martin Nie-
niöller, hélt af stað flugleiðis í
dag frá París til Hanoi til að
mótmæla loftárásum Bandaríkja-
manna á Norður-Vietnam.
Niemöller varð þekktur fyrir
baráttu sína gegn nazisma í ætt-
landi sínu eftir að Hitler komst
til valda. Hann sagði við brott-
förina, að hann myndi einnig
nota heimsóknina til að finna
leiðir til að hjálpa vietnamskri
þjóð sem nú lifir miklar hörm-
ungar. Við höfum samband við
rauða ki’ossinn í Norður-Vietnam
um það mál og óskum eftir
betri samskiptum við alþjóðlegí
rauða krossinn.
Niemöller vildi ekkert látí
uppi um ummæli hins banda-
ríska kardínála Spellmanns, sem
hefur sagt að ekki megi annaf
koma til mála en fullnaðarsigut
Bandaríkjamanna í Vietnam.
U Þant, aðalritari SÞ hefui
sent frá sér nýársávarn bar sen-
hann hvetur „alla sóðviljaðs
menn“ til að beita sér fyrii
friði i Vietnam. Lagð! hann
því sambandi áherzlu á bað. af
allar þjóðir væru hver annarr:
háðar, og engin, hve fjölmenn os
voldug sem hún væri, gæti verif
sjálfri sér nóg.