Þjóðviljinn - 09.02.1967, Síða 3
Firnmtudagur 9. febrúar 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
Samþykktir aukafundar SH:
r-
Iskyggilegar horfur
T
„Almennur aukafundur S. H.,
haldinn 7. febrúar 1967, telur að
ískyggilegar horfur séu nú í má'.-
efnum frystiiðnaðarins í land-
inu, og bendir á þá staðreynd,
að þótt komið sé fram í febrúar-
mánuð, hefur enn ekki tekizt að
ná neinum samningum um við-
hlítandi rekstrargrundvöll fyrir
frystihúsin.
Samkvæmt ýtarlegum athugun-
um, sem fram - hafa farið á
rekstrárstöðu frystihúsanna, ligg-
ur fyrir, að reksturskostnaður
þeirra hlýtur að vera að minnsta
kosti 2V2% hærri, miðað við
framleiðsluverðmæti á árinu
1967, en hann var á árinu 1966,
og er þá reiknað með algjörri
stöðvun verðlags allt árið 1967.
Kostnaðarauki af þessum á-
stæðum mun nema 40—50 milj.
kr. fyrir frystiiðnaðinn, sem
hei'ld. Þá liggur fyrir, að miðað
'við það verðlag á útfluttum,
frystum bolfiskafurðum, sem vit-
að var um við sl. áramót, hefir
markaðsverð þeirra þegar lækk-
að 'um 11,8% frá því meðaltals-
verði, sem var á árinu 1966.
Þessi verðlækkun nemur 160—
170 milj. kr. á ári fyrir frysti-
iðnaðinn. Auk þessara stað-
reynda liggja svo fyrir fréttir
um útlit á ýmsum þýðingar-
mestu mörkuðum erlendis, sem
benda til þess að verðlag muni
enn fara lækkandi.
Hér er því um mjög alvarlegt
vandamál að ræða, sem þjóðin
með engu móti fær vikið sér und-
an að horfast í augu við, svo
þýðingarmikil atvinnugrein, sem
frystiiðnaðurinn er fyrir þjóðar-
búið, en vandamál þau, sem hér
er við að eiga, eru ekki bundin
við eigendur hraðfrystihúsanna,
þau eru jafnframt vandamál
aílrar þjóðarinnar. Frystar fisk-
afurðir hafa um langan tíma
verið verðmesta útflutningsvara
þjóðarbúsins, og enn eru þær á-
samt saltfiski og skreið og ýms-
um fylgiafurðum bolfiskveið-
anna, méiri hlutinn af ölluvérð-
mæti útflutnings landsins.
Verðfall það, sem nú hefir
orðið á frystum fiski erlendis,
er frystiiðnaðinum mjög þung-
bært, en það hefði þó ekki átt
að valda þeim úrslitum, sem það
gerir nú, ef ekki hefði annað
komið til.
Verð á frystum fisk!i hækkaði
mikið á erlendum mörkuðum á
s.l. þrem árum. Þessar verð-
hækkanir hafa allar horfið fisk-
iðnaðinum jafnóðum vegna gíf-
urlegrar hækkunar innanlands á
öllum framleiöstukostnaði. Þann-
ig má benda á, að frá 1963 —
1966 hefir meðaltalskauphækkun
í frystihúsunum numið samtals
70—80% og kemur þar m.a.
fram veruleg kauphækkun
kvenna, en mestur hluti rekstr-
arkostnaðar frystiiðnaðarins hefir
aukizt hlutfallslega án þess að
eigendur frystihúsanna fengju
þar nokkru um ráðið.
Hin hagstæða verðþróun á er-
lendum mörkuðum fór því yfir-
leitt út í verðlagið jafnóðum, og
svo þegar kemur til verðlækk-
unar nú, stendur allur hinn hái
tilkostnaður eftir á framleiðsl-
unni.
Fundurinn telur, að útilokað
sé með öllu, að frystihúsin í
landinu geti haldið uppi rekstri
við þau skilyrði, sem felast í til-
boði því, sem fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar hafa gefið kost a.
Hann samþykkir því að kjósa
fulltrúa í 5 manna nefnd, sem
gangi á fund ríkisstjórnar og
Alþingis af háifu S.H. og SÍS
og geri þeim fulla grein fyrir,
hvernig komið er málum frysti-
iðnaðarins og leiti eftir að fá
þá aðstoð, sem tryggja megi rekst-
urinn á árinu.
Fáist ekki viðunandi lausn á
vandamálum frystihúsanna, telur
fundurinn, að óhjákvæmilega
hijóti að koma til stöðvunar hus-
anna.
Fundurinn frestar störfum sín-
um. þar til nefndin hefir skilað
áliti sínu“.
Eitthvert lát á „menningarbyltingunni“?
Rauðum varðliðum
sagt að fara heim
Kennsla aftur að byrja í barna- og unglinga-
skólum — Óspektir ennþá við soVétsendiráðið
PEKING og MOSKVU 8/2 — Skýrt var frá því í veggblöð-
um í Peking í dag að kommúnistaflokkurinn og ríkis-
stjórnin hefðu í sameiningu ákveðið að rauðir varðliðar
skuli nú hverfa til heimkynna sinna, hefja aftur vinnu
eða skólanám.
Hríðarbylur og frosthörkur
í austurfylkjunum / USA
Japanska blaðið „Asahi Shimb-
un“ skýrði frá þessu í gærkvöld
og var þar sagt að fyrirmælin til
rauðu varðliðanna hefðu verið
gefin 3. febrúar s.l. Fylgdi það
með að allir rauðir varðliðar sem
nú væru staddir 500 km eða
meira frá heimilum sínum
myndu fá ókeypis far heim með
járnbrautarlestum eða skipum.
Kennsla mun. nú vera að hefj-
ast aftur í barna- og unglinga-
skólum í Peking, en ekki er enn
vitað til þess að æðri mennta-
Nauðsyn stofnlána
■ „Almennur aukafundur frysti-
húsaeigenda, haldinn 7. febrúar
1967, vill vegna tillagna, sem
komið hafa fram um endur-
skipulagningu á uppbyggingu og
rekstri hraðfrystiiðnaðarins, taka
fram eftirfarandi:
Fundurinn er samþykkur því,
að málefni frystiiðnaðarins verði
tekin til ýtarlegrar athugunar
með það fyrir augum, að leitað
verði leiða til að auka, enn frek-
ar en orðið er, framleiðni og
bæta skipulag, bæði tæknilega
ög rekstrarlega, í frystiiðnaðin-
um i landinu.
'Við slíka athugun telur fund-
urinn að leggja beri sérstaka á-
herzlu á, að frystiiðnaðinum
verði tryggð nægjanleg og hag-
kvæm stofnlán til eðlilegrar upp-
býggingar og breytinga, sem
unnið sé að í fullu samræmi við
þarfir hans.
Þó að fundurinn sé meðmælt-
ur almennri athugun á málefn-
um frystiiðnaðarins. ítrekar hann
fyrri skoðanir frystihúsaeigenda
um að rekja megi aðsteðjandi
erfiðleika frystihúsanna til enn
veigameiri ástæðna en hugsan-
légs skipulagsleysis þessa at-
vinnuvegar, eða að draga þurfi
úr framleiðslugetu þeirra, jafn-
vel með því að leggja mörg
þeirra niður.
Reynslan hefir sýnt, að svo
að segja um allt land anna frysti-
husin ekki því aílamagni, sem
berst að, á þeim 2—3 mánuðum,
sem aðalaflamagnið kemur á
land, þ.e. á vetrarvertíðinni.
Stórfellt vandamál margra
frystihúsa er það, hve starfs-
tími þeirra er stuttur og óreglu-
legur. Á síðustu árum hefir þetta
vandamál aukizt, þar sem dreg-
ið hefir stórlega úr afla togar-
anna með fækkun skipanna og
auknum siglinaum og jafnframt
héfir útgerð smærri báta orðið
veikari vegna fjárhagsörðugleika
þeirra og fólkseklu. Við þetta
hefir svo bætzt, að stórlega hef-
iv dregið úr síldarfrystingu, eink-
um vegna minni síldveiða Suð-
Vestanlands, en einnig á þessu
ári vegna minnkandi markaða
erlendis, sem m. a. stafar af
breyttri viðskiptastefnu.
Fundurinn varar því við þeim
hugsunarhætti að halda, að
vandamál fi-ystiiðnaðarins nú
verði leyst með einfaldari skipu-
lagsbreytingu, og telur enda, að
víðast hvar annarsstaðar í þjóð-
arbúskapnum sé meiri þörf á
hagræðingu í rekstri, en í hrað-
frystiiðnaðinum, sem sannað
hefir það á erlendum mörkuð-
um, að hann er fyllilega sam-
keppnisfær við hliðstæðan iðnað
annarra þjóða, sé um sambæri-
legar rekstraraðstæður að ræða á
sviði fjármála og framleiðslu-
kostnaðar".
Rifhöfundar frá
NorSorlöndum o;
Afríku á fundi
STOKKHÓLMI 8/2 — Nú stend-
ur yfir í Hasselby-höll í Stokk-
hólmi ráðstefna rithöfunda frá
Afríku og Norðurlöndum. Meðal
sænskra þátttakenda í ráðstefn-
unni eru þau Sara Lidman og
Olof Lagercrantz, ritstjóri „Dag-
ens Nyheter“.
I’ramhald ,af 1. síðu
á um áramótin 1966—’67. Nú
væri útséð um að staðgreiðslu-
kerfi gæti orðið komið á þetta
ár. Nefnd ynni nú að því með
miklum hraða að búa málið í
hendur ríkisstjórnarinnar og yrði
það lagt fyrir þetta þing í ein-
hverju formi, ef til vill sem
skýrsla ríkisstjórnarinnar. Leitt
væri að ríkisstjórnin hefði gefið
um þetta stefnuyfirlýsingu sem
ekki fengi staðizt en alls óvíst
; að þingmenn eða sveitarstjórnar-
rrenn væru til í þær róttæku
breytingar á skattalöggjöfinni
sem til þyrfti.
Eðvarð taldi að fram hefði
komið í svari ráðherra að lítið
1 hefði verið unnið að málinu fyrr
1 en síðustu mánuðina. Lagði hann
áherzlu á að málinu yrði hrað-
að svo einhvers árangurs gæti
sem fyrst orðið að vænta.
stofnanir hafi aftur verið opnað-
ar. f upphafi „menningarbylting-
arinnar" á síðásta ári var öllum
skólum í landinu lokað og var
tilkynnt að þeim yrði lokað út
skólaárið. Ekki mun ætlunin að
höfð verði sama tilhögunin á
kennslunni í unglingaskólunum
og var fyrir lokunina. Kennsl-
unni verður stjórnað af nefndum
sem skipaðar verða af kennurum
og nemendum í sameiningu.
Kennsla í sögu og félagsfræði
mun falla niður meðan verið er
að semja nýjar kennslubækur i
þessum greinum.
Þótt þannig virðist vera ætl-
unin að nokkurt lát verði á
„menningarbyltingunni“ sem
rauðu varðliðarnir hafa helzt
stáðið fyrir halda þeir enn áfram
óspektum sínum við sovézka
sendiráðið og er nú liðinn hálf-
ur mánuður síðan þær hófust.
Kínversk stjórnarvöld hafa til-
kynnt starfsmönnum annarra
sendiráða Austur-Evrópu að þau
geti enga ábyrgð tekið á því að
ekki verði á þá ráðizt ef þeir
hætta sér í heimsókn í sovézka
séndiráðið. Spurzt hefur að
starfsmenn sendiráða Ungverja
og Pólverja hafi .ákveðið , að
senda heim fjölskyldur sínar
eins og sovézku sendiráðsmenn-
irnir hafa þegar gert.
Aftúr' í dag vá'r"hokkúr 'mann-
safnaður við kínverska sendiráð-
ið í Moskvu.
NEW YORK 8/2 — Mesti hríðar-
bylur sem komið hefur í fimm
ár geisaði í gær á austurströnd
Bandaríkjanna og olli miklum
truflunum á samgöngum allt frá
Virginíu norður til Maine.
Svo mikið var fannkyngið í
New York að sumstaðar var ekki
fært yfir götur. Það er tekið til
marks um hve ófærðin var mikil
að ekki var hægt að opna kaup-
höllina fyrr en stundarfjórðungi
eftir venjulegan kauphallar-
tíma. Öllum skólum var lókað í
borginni, einnig öllum þremur
stærstu flugvöllunum og hundruð
bíla sátu fastir í snjónum.
Kosygin ræðst á
Bandsríkin fyrir
Vietnamstríðið
LONDON 8/2 — Kosygi^, for-
sætisráðherra Sovétríkjanrte, fór
mjög hörðum orðum um Iram-
ferði Bandaríkjamanna í Viet-
nam í ræðu sem hann hélt í
dag þegar hann gekk á fund
borgarstjórans í London.
Kosygin sagði Bandaríkjamenn
bera alla ábyrgð á stríðinu í
Vietnam. — Það voru Bandarík-
in sem áttu upptökin að deilunni
þegar þau neituðu árið 1954 að
undirrita Genfarsamningana sem
bundu enda á sjö ára stríð
Frakka í Indókína, sagði Kosyg-
in sem hvatti brezku stjórnina
til að leggja fram sinn skerf til
lausnar á grundvelli Genfar-
samninganna.
Snjókoman mældist 7 til 25
sentimetrar í fylkjunum á aust-
urströndinni, en í New Orleans
rigndi óskaplega, 21ft mm.
Siglingar um St. Lawrence-
skurðinn hafa alveg stöðvazt
vegna ísa. Fjórir ísbrjótar megn-
uðu ekki að ryðja leiðina.
Einnig í miðfylkjunum snjóaði
mikið í gær og mældist snjókom-
an þar 27 sm. Stöðugt óveður
hefur verið í miðvestrinu síðustu
þrjár vikur.
Enn í dag snjóaði mikið víðast
hvar á austurströndinni og mæld-
ist snjókoman 33 sm í New
York, 25 sm í Washington og 22
sm í Boston. Tíu stiga frostvar
í Phiiladelphia, en 14 stig í New
York. öllum skólum var lokað
annan daginn í röð. Þúsundir
manna úr úthverfunum komust
ekki heim til sín sökum ófærðar.
GÓLtTEPPI
V/ILTON
TEPPADREGLAR
TEPPALAGNIR
EFTIR MÁLI
Laugavegi 31 - Sími 11822.
Jafnrétti
Framhald af 1. síðu.
ríkjanna skammast sín fyrir þá
afturhaldslöggjöf sem í gildi er
í Bandaríkjunum um þessi mál,
en afturhald Bandaríkjaþings er
sterkt og hindrar breytingar. En
svo gæti farið ef ísland yrði til
þess að krefjast jafnréttis við
Bandaríkin að fleiri þjóðir kæmu
á eftir. Sá tími er að verða liðinn
að Bandaríkin geti beitt þjóðir
frekju og yfirgangi í krafti auðs
síns. Með Evrópuþjóðum liggur
nú þungur straumur gegn áhrifa-
valdi Bandaríkjanna.
Lagði Einar áherzlu á að full
rök væru til þess að rikisstjórn
íslands ætlaðist til fulls jafn-
réttis á þessu sviði gagnvart
Bandaríkjunum.
Frakkarsenda á
loft prvitun;!
PARlS 8/2 — Frakkar skutu í
morgun á loft frá tilraunastöð
sinni í Alsír gervitungli af
gerðinni „Diadem“ og komst það
á braut. Gervitunglið sem hefur
fimm mínútum styttri umferðar-
tíma en til var ætlazt er búið
sérstökum speglum sem nota á til
endurvarps á laser-geislum, sem
sendir verða frá jörðinni og er
tilgangurinn sá að auka me'ð
því nákvæmni í landmælingum.
Þetta er fjórða gervitunglið sem
Frakkar senda á braut og vegur
það 23 kíló.
Fasta fyrír
NEW YORK 8,2 — Þúsundir
manna úr ýmsum kristnum
kirkjufélögum í Bandaríkjunum
hófu í dag þriggja daga föstu
fjmir friði í Vietnam. Nefndin
sem stendur fyrir föstunni segir
að fastan verði í 110 borgun
Bandaríkjanna.
Vopnahlé
í Vietnam
Áskorun frá Páli páfa
SAIGON 8/2 — Vopnahléið sem
báðir aðilar í Vietnamstríðinu
höfðu boðað til vegna tunglný-
ársins víetnamska hófst í dag.
Eins og jafnan áður þegar vopna-
hlé hefur verið gert í Vietnam
kom í dag_ til nokkurra vopna-
viðskipta. í Saigon er sagt að
skæruliðar hafi rofið vopnahléið
23 sinnum og hafi orðið mann-
tjón í níu viðureignum. Á það
er bent að mjög erfitt sé að
framkvæma vopnahléið þar .sþm
engir formlegir samningar eru
gerðir um það milli striðsaðila.
Bandaríkjamenn segja að ein
könnunarflugvél þeirra hafi vér-
ið skotin niður yfir Norður-Viet-
nam í dag. Þeir segjast ekki hafa
sent þangað neinar sprengju-
flugvélar til árása.
Páll páfi hvatti í dag John-
son Bandaríkjaforseta og ráða-
menn i Hanoi og Saigon til að
hefja samningaviðræður um frið
meðan vopnahléið stendur yfir.
Grjóti kastað í
Indiru Gaidhi
NYJU DELHI 8/2 — Aðsúgur
var gerður að frú Indiru Gandhi
forsætisráðherra á kosningafundi
sem hún hélt í dag í bænum
Bhubeneswar í Orissa-fylki á
austurströnd Indlands. Var kast-
að grjóti í hana og brákaðist
nefbeinið, tönn losnaði og hún
fékk skrámur í andilitið. Það
voru einkum stúdentar sem stóðu
fyrir óspektunum og voru sjö
þeirra handteknir. Þingkosning-
ar fara fram í Indlandi síðar í
þessum mánuði.
Staða aðstoðar/æknis
við lyflæknisdeild Borgarspítalans, er laus til um-
sóknar. Staðan veitist frá 1. maí n.k. til eins árs í
senn. Laun samkvæmt samningi Reykjavíkurborg-
ar og Læknafélags Reykjavíkur.
Upplýsingar varðandi stöðuna veitir yfirlæknir
deildarinnar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og
fyrri störf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur,
Heilsuverndarstöðinni, fyrir 10. marz n.k.
Reykjavik, 7. febr. 1967.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Staða röntgenlæknis
(sérfræðings eða aðstoðarlæknis) við röntgendeild
Borgarspítalans er laus til umsóknar.
Upplýsingar varðandi stöðuna veitir yfirlæknir
deildarinnar. Sfaðan veitist frá 1. maí eða síðar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og
fyrri læknisstörf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykja-
víkur fyrir 15. marz n.k.
Reykjavík, 7. febr. 1967.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Kjötbúb Suðurvers tilkynnir:
Tökum áð okkur veizlur, kalt borð, smurt brauð,
snittur, kokteilsnittur og brauðtertur.
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, horni Stigahlíðar og
Hamrahlíðar. - Símj 35645 - Geymið auglýsinguna.
♦