Þjóðviljinn - 09.02.1967, Blaðsíða 10
Öskudagur á Akureyri
Aktireyri stendur á gömlum
merg og á sér ýmsa sér-
stæða siði: Það er því ekki
nema von að íbúum staðarins
þyki það heldur súrt í brot-
ið að láta sögulaust pláss
(eða svotil), Kópavog, kom-
ast, upp, fyrir sig á hagskýrsl-
um: við erum ekki lengur
naeststærsta borg landsins
segja menn hér.
Þessi staðarsorg kemur þó
ekki í veg fyrir það að börn
Akureyrar hafi í heiðri gaml-
ar siðvenjur á Öskudag, sið-
venjur sem eiga rætur sínar
að rekja til virkra menning-
artengsla við Danmörku á
Jjðnum stórveldisdögum.
Þetta byrjar með óþolin-
mæði daginn áður og mæður
eru gagnrýndar fyrir frammi-
stöðu sína í saumaskap. Og
það er heimtað að vekjara-
klukkan sé ekki stillt á sjö
heldur sex því á slíkum degi
skiptir miklu máli að að verða
fyrstur á vettvang í öndvegis-
fyrirtækjum eins og súkku-
laðifabrikkunni Lindu eða
gosdrykkjafabrikkunni Sana,
sem um þessar mundir er
öflugust ógnun við hið skugga-
lega Reykjavíkurvald.
Og snemma morguns fara
þau á kreik í stórmerki-
legum búningum. Þar fara
grilur og leppalúðar, blökku-
fólk óg indíánar, kábojar
fleiri en tölu verður á komið
og þeim til verðugs þjóðlegs
andsvars: ekta vofur, beint
upp úr kirkjugarði. Ég er
drottning en hún er kóngs-
dóttir, sagði ein buddan, við
erum úr Brekkugötu. Og ég
er púki. Og við erum her-
menn sögðu nokkrir Zorróar
og Batmenn og brugðu sverð-
um til að hita sig upp í nepj-
unni meðan beðið var eftir
því að opnað yrði hjá súkku-
laðinu.
Krakkarnir fara „í lið“ og
ganga á milli fyrirtækja
og verzlana með poka og
ganga um og syngja og þiggja
fyrir bragðgóða vöru eða pen-
inga, sem sett er í pokann
— síðarmeir er öllu skipt upp
á milli liðsmanna og kannski
fær Rauði krossinn pening-
ana ef siðferðið er á verulega
háu stigi
Þetta fer fram furðu stilli-
lega, að því er virtist, stund-
um voru krakkar að minna
hvert annað á „að það má
ekki vera nema eitt lið inni
í einu“: ég heyrði þau syngja
hér og þar, Stóð ég útí
tunglsljósi og Fyrr var oft
í koti kátt, voru helzt á dag-
skrá. Það var ekki voldugur
söngur, hamsleysi kjötkveðju-
hátíða var óralangt í burtu:
mann grunaði sérstaklega alla
stráka um að þeir mundu
ekki reka upp minnsta bofs
nema fyrir þær sakir einar
að þeir voru faldir undir
stríðsmálningu og grímum.
Það hefur verið siður að slá
kött úr tunnu á staðnum
— sem er reyndar ekki leng-
ur köttur og þá allra sízt lif-
andi (dýravernd. mannúðar-
stefna): en það verður ekki
gert að sinni nema þá hesta-
mannafélagið taki á sig rögg
á sunnudaginn — við vitum
ekki enn hvort af því verður.
Ab.
Samkomulag hefur enn ekki náðst um
úrbætur til handa hraMrystihúsunum
■ Framhaldsaukafundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna um vandamál hraðfrystiiðnaðarins hófst að Hótel
Sögu 7. febrúar s.l. kl. 14,00. Hraðfrystihúsaeigendur hvað-
anæva af landinu voru mættir til fundarins. Fundarstjóri
var kjörinn Jón Árnason, alþm. Akranesi og fundarrit-
ari Helgi Ingimundarson, viðskiptafræðingur.
Formaður SH, Gunnar Guðjóns-
son, forstjóri flutti yfirlitsræðu í
upphafi fundarins og skýrði frá
niðurstöðum af störfum nefndar
þeirrar, sem skipuð var af hálfu
hraðfrystiiðnaðarins og ríkis-
valdsins í byrjun þessa árs til
Betra benzínið
er nú komið
Það hefur lengi verið baráttu-
mál bíleigenda að hingað yrði
flutt benzín með hærri oktan-
tölu en hingað til hefur tíðk-
azt. Benzínið, sem verið hefur
á markaðnum um árabil hefur
oktantöluna 87, en nú er komið
hingað til Reykjavíkur sovézkt
olíuskip með 5000 tonn af 93ja
oktana benzíni, sem á að duga
fyrir allar þær bílvélar, sem í
notkun eru hér á landi. Benzín-
ið verður til sölu um mánaða-
mótin, þegar eldri birgðir verða
uppurðar. Það verður 5% dýrara
en það sem fyrir er: Og verð-
ur sennilega selt á kr. 7,42 lítr-
inn.
þess að kanna hag frystihúsanna
og gera tillögur til úrbóta. Sam-
eiginlegt álit nefndarinnar 'á
ekki fyrir á fundinum, en hins
vegar voru lagðar fram hug-
myndir sérfræðinga ríkisvaldsins
um hugsanlegar leiðir til lausnar
vandamála hraðfrystiiðnaðarins. Í
nefnd þeirri, sem að framan
greinir voru: Af hálfu hrað-
frystiiðnaðarins, Eyjólfur 1. Eyj-
ólfsson, frkv.stj. SH og Bjarni
V. Magnússon, frkv.stj. SlS, og
af hálfu ríkisvaldsins Jóhannes
Norðdal, bankastjóri og Jónas
Haralz, forstjóri.
Þá lagði formaður fram frum-
drög að ályktunum um afstöðu
hraðfrystihúsaeigenda til þess-
Athugasemd
vegna fréttar sem birtist
hér í blaðinu í gær um sölu-
skatt Karlakórs Reykjavíkur
vegna Baltikuferðarinnar, hefur
formaður kórsins beðið um að
fram væri tekið, ef það kynniað
hafa misskilizt, að stjórn kórs-
ins hafi aldrei reiknað með
jöðru en að greiða söluskatt af
ferðinni.
ara mála og skýrði þær. Eyjólf-
ur I. Eyjólfsson, framkvæmdastj.
tók næstur til máls og gerði
grein fyrir rekstursgrundvelli
hraðfrystihúsanna.
Skýrslur og framlagðar til-
lögur voru ræddar og síðan
samþykkti fundurinn einróma 3
ályktanir. Fer ein þeirra hér á
eftir, en hinar eru birtar á bls. 3.
Á almennum aukafundi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, sem haldinn var 7. fcbrú-
ar 1967, var rædd framkomin
tillaga frá fulltrúum ríkisstjórn-
arinnar um stofnun verðjöfnun-
arsjóðs. Sjóðurinn hafi það hlut-
vcrk að jafna á milli ára veru-
legum hluta þeirra verðbreytinga
á fiskafurðum, sem eigi sérstað
á erlendum mörkuðum.
Næg raforka
□ Lúðvík Jósepsson
hvatti til þess á Alþingi í
gær að hafizt yrði handa
um varanlega lausn raf-
orkumála Austurlands,
og mætti ekki horfa í þó
vatnsaflsvirkjun kosti
125 miljóriir króna.
Þriggja daga stöðvun
Fundurinn getur ekki tekið
cndanlega afstöðu til myndunar
slíks verðjöfnunarsjóðs fyrr en
nánar liggja fyrir tillögur um
uppbyggingu hans, fjáröflun og
starfsemi.
Fundurinn getur þó fallizt á,
að samtök frystihúsanna tilnefni
fulltrúa í nefnd til athugunar
a þessu máli.“
Fyrsta fræðslu- og
skemmtikvöld ÆF
Fyrsta fræðslu- og skemmti-
kvöld ÆFR er í kvöld í Tjarn-
argötu 20 og hefst það kl. 21.
— Sjá nánar á æskulýðssíðu í
dag.
á Austurlandi
síldarverksmiðjanna og
síldveiðiflotans vegna
rafmagnsskorts gæti
valdið 130 miljóna tjóni.
Framhaldsumræður fóru fram í
gær á fundi sameinaðs þings
um fyrirspurn sem þingmenn
Austurlands, Lúðvík Jósepsson,
Eysteinn Jónsson, Halldór Ás-
grímsson og Páll Þorsteinsson,
báru fram á fyrri hluta þingsins
til raforkumálaráðherra um raf-
magnsmál. Austurlands.
Fimmtudagur 9. febrúar 1967 — 32. árgangur — 33. tölublað.
Sinfóníutónleikar í kvöld:
Agætír gestír koma
fram á tónleikunum
■ Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur aðra tónleika sína á
síðara misseri starfsársins 1
kvöld kl. 20,30 í Háskólabíói.
Stjórnandi er Finninn Paavo
Berglund en einleikari
bandaríski fiðluleikarinn
Ruggiero Ricci. í fréttatil-
kynningu frá Sinfóníuhljóm-
sveitinni segir m.a. svo um
þessa tónleika:
„Á fimmtudagskvöld fær Sin-
fóníuhljómsveit Islands heimsókn
góðra gesta. Annar er ungur,
finnskur hljómsveitarstjóri, Pa-
avo Berglund, sem nú er aðal-
hljómsveitarstjóri finnsku út-
varpshljómsveitarinnar. Berg-
lund hefur stjórnað hljómsveit-
um sem gestur víða um lönd.
Hann hefur m.a. stjórnað aust-
ur i Tókíó, Sidney og Melboume
auk hljómsveita í nærliggjandi
borgum.
Hinn gesturinn er ekki síður
víðförull. Það er bandaríski
fiðlusnillingurinn Ruggiero Ricci.
Ricci kom fyrst fram opinber-
lega 8 óra gamall, og síðan hefur
líf hans verið óslitin frægðar-
ganga. Ruggiero Ricci er einn
hinna fáu núlifandi fiðlusnill-
inga, sem í erlendum blöðum
kallast „alþjóðlegur". Sumir
gagnrýnendur hafa kalla§ Rjccj
20 króna frímerkr
Nýtt frímerki verður gefið út
fimmtudaginn 16. marz n.k.
Verður það með mynd af him-
brima. Verðgildi þess er 20 kr.
Af öðrum frímerkjum, sem
fyrirhugað er að gefa út á þessu
ári má nefna frímerki í tilefni
af þátttöku íslands í Heimssýn-
ingunni í Kanada nú í ár.
Evrópufrímerkið kemur að
þessu sinni út 2. maí og verður
það með mynd eftir Belgíumann-
inn Oscar Bonnevalle.
Þá er og fyrirhugað að gefa út
síðar á árinu frímerki í tilefni
af 50 ára afmæli Verzlunarráðs
íslands.
Vélstjórafélag
Vestmannaeyja
heldur aðalfund
Aðalfundur Vélstjórafélags
Vestmannaeyja var haldinn
sunnudaginn 5. febrúar s.l. í
stjórn félagsins voru kosnir:
Sveinn Gíslason, formaður,
Magnús Jónsson, varaformaður,
Sævar Sæmundsson, ritari, Al-
freð Þorgrímsson, gjaldkeri og
Gunnar Haraldsson, fjármálarit-
ari. Varamenn í stjórn eru: Helgi
Egilsson, og Egill Árnason.
R. Ricci
„Paganini okkar tíma“, það verð-
ur því ekki ófróðlegt að heyra
hann leika fyrsta Paganini kons-
ertinn með hljómsveitinni á
fimmtudagskvöldið“.
Á efnisskrá tónleikanna eru
Juventas variationes eftir Sallin-
en, Fiðlukonsert nr. 1 eftir Paga-
nini og Sinfónía nr. 6 (Pastoral)
eftir Beethoven.
T ryggingaskól
inn settnr í dag
Tryggingaskólinn verður sett-
ur í dag, fimmtudaginn 9._ febrú-
ar, kl. 17.30 í Átthagasal Hótel
Sögu.
Formaður skólanefndar, Jón
Rafn Guðmundsson, setur skól-
ann, en síðan gera kennarar ■ á
næsta kennslumisseri, þeir Kr.
Guðm. Guðmundsson, Egill
Gestsson og Þorsteinn Egilson,
nokkra grein fyrir kennslutil-
högun, og Benedikt Sigurjónsson,
hæstaréttardómari, flytur erindi
um vátryggingar.
Blað-
dreifíng
Blaðburðarbörn óskast í
eftirtalin hverfi:
Mávahlíð
Vesturgjötu
Laufásveg
Laugaveg
Hverfisgötu
Skipholt.
Safamýri
er hagsmunamál þjóðarinnar
Við fi-amhaldsumræðurnar töl-
uðu tveir flutningsmanna, Ey-
steinn Jónsson og Lúðvík Jós-
epsson, og lögðu þunga áherzlu
á nauðsyn nægrar raforku á
Austurlandi.
★ Mikil verðmæti í húfi.
Lúðvík taldi að ekki mætti
láta við það sitja að bæta við
mótoraflsstöðvum á Austurlandi,
heldur yrði af krafti að ráðast
i vatnsvirkjun sem væri nægi-
lega stór.
Hér væri ekki einungis um
hagsmunamál A-usturlands að
ræða heldur landsmanna allra,
á þessu svæði hefði þýðingar-
mesti iðnaður landsmanna nú
rekstrarstöðvar mikinn hluta
ársins. Þar væri mikið í húfi
að tafir þurfi ekki að verða
vegna rafmagnsskorts.
Áætlað væri að myndarleg
vatnsaflsvirkjun fyrir Austurland
kosti 125 miljónir króna. Ef
hinsvegar síldveiðiflotinn og
síldarverksmiðjurnar stöðvast í 3
góða veiðidaga er tjónið af því
ekki undir 130 miljónum króna.