Þjóðviljinn - 08.03.1967, Side 2

Þjóðviljinn - 08.03.1967, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 8. marz 1967. RITNEFND: Gylfi M. Guðjónsson, Leifur Jóelsso n, Rannveig Haraldsdóttir, Vemharður Linnet. HerstöSvomáliS: Tímamönnum svarað y ■ i Síðastliðinn fimmtudag birt- ist illyrt grein í Tímanum og bar yfirskriftina: „Kommúnist- ar dauðhræddir við þjóðfylk- ingu við (!) tiUögur S.U.F. í vamarmálunum". Af hæversku sinni lætur höfundur ekki nafns síns getið. en eftir- grennslan hefur leitt í ljós, að hér er hinn valinkunni braut- ryðjandi, Ölafur Ragnar Grims- son, enn á ferð og fer með vigspá um velli. Tilefni þessar- ar greinar Ólafs er ályktún framkvæmdanefndar Æ.F. um herstöðvamálið og grein, sem birtist i æskulýðssíðu Þjóðvilj ■ ans, en öll grein Ólafs sver sig í ætt Staksteinahöfunda Morgunblaðsins. Þær röksemd- ir, sem teflt var fram í álykt- un Æ.F., eru afbakaðar og af- fiuttar, tilvitnanir eru slitnar úr samhengi og rangtúlkaðar vísvitandi. Það er ekki tilgang- ur þessarar greinar að keppa við grein Ólafs í ruddaskap, heidur að víkja að nokkrum atriðum, sem fram koma f grein hins alræmda hugmynda- fræðings Framsóknarflokksins. ★ 1 greininni segir: „ . . . sér- staklega vilja ungir framsókn- armenn nú vara við þeirri hættu að Atlantshafsbandi- lagið verði léyst upp, en Islendingar sitji jafnframt uppi með bandarískan her.“ I þessu sambandi er rétt að benda á, að hér er farið í kringum sannleikann. Hin raun- verulega hætta er sú, að Bandaríkin myndi nýtt hernað- arbandalag með dyggustu fylgi- ríkjum sínum, ef Nato liðast í sundur. Hér stöndum við því frammi fyrir óleystum vanda. Minnka tillögur S.U.F. líkumar til þess, að Island verði bundið slíku bandalagi? Mun forsætis- ráðherra hverfa frá þeirri skoðun sinni, að það 4éu „svik við íslenzku þjóðina að skilja landið eftir varnarlaust“? Mun málstað hernámsandstæðinga vaxa fylgi, þegar komið hefur Hér birtist enn sá skortur Öl- afs á virðingu fyrir rituðu máli, sem ég hefi fyrr vikið að. Ávarp til fslendinga frá ungu fólki hefst þannig: „Við undirrituð, sem höfum ólíkar skoðanir á ýmsum mál- um, erum sammála um, að við viljum ekki hafa herstöðvar eða herlið í landi okkar.“ Síðar í ávarpinu segir e.f.: „Við teljum að landi okkar sé engin vörn að herbúnaði hér, en hins vegar -sé það nú öruggt skotmark. ef heimsstríð bryt- ist út“. Hér er skýring þess fund- in, hvers vegna óþarft er að nefna tímatakmörk um brott- för hersins eða úrsögn úr Atl- antshafsbandalaginu í þessu á- varpi. 1 ályktun S.U.F. er gert ráð fyrir fjögurra ára áætlun um brottför hersins, til þess^að tími gefist til þess að þjálfa íslenzkan sérfræðingaher. Til- lögur, sem hins vegar byggjast á brottför hersins samtimis af- námi herstöðva og eyðileggingu hemaðarmannvirkja. þurfa 2. Kíféin. Hlutverk samtakanna er að berjast fyrir afnámi her- ■ ' •- . hlutleysi íalande í hernaöár^ökutó ' qr -'Otajada segn hvera kohár erlendri ..■/: • ^ . *■ - ■ ■ , -óAt.. . : ’ . 'u':..V.: Cr regium Samtaka hernámsandstæðinga. -<$> Kötturinn Tékknesk kvikmyndalist er rómuð um gjörvalla heims- byggðina og leitt er til þess að vita hve við íslendingar höfum haft lítið af henni að segja. Því ber að fagna því að Æsku- lýðsfylkingin í Reykjavík sýnir eina af nýrri myndum Tékka Na Lané, n.k. sunnudagskvöld. Kvikmjmd þessi verk kvikmyndastjórans Ivo Novák, sem þekktur er fyrir kvikmynd sína Stenata (Ekki fleygir enn). Novák er fundvís á það sem miður fer í mannlífinu, en gagnrýni hans er alltaf jákvæð og réttlát. Næmleiki hans fyr- ir vandamálum æskunnar er við bimgðið.. 1 þeirri mynd er ÆFR sýnir nú er farið nær- fajmum höndum um vandamál drengsins Karels (kallaður Kötturinn af félögum sínum), sem er snilldarlega leikinn af Ladislav Janský. Faðír fians er ofdrykkjumað- ur, heimiiislífið þrúgað. Karel missir hverja vinnuna af ann- arri. Hann er réttlaus í þjóð- félaginu. í þessari mynd fylgj- umst við með baráttu hans á öllum vígstöðvum: á heimilinu, í félagahópnum, í vinnunni. í huga okkar greypast ýmsar svipmyndir: Karel hlaupandi um auð stræti í leit að föður sínum, sofandi í mannlausri bifreið en heimilið var orðið óbærilegt- Við skynjum heim hans falla i rúst og einnig er hann rís til nýs lýfs sem fyllt er fegurð og tilgangi. Ekki er vert að rekja efni myndarinnar nánar, en enginn ætti að láta þetta tékkneska listaverk sér úr greipum ganga. verið upp íslenzkri undirdeild f herafla Atlantshafsbandalags- ins? Munu hinir íslenzku mála- liðar í her Nato og fjölskyldur þeirra fremur kjósa, að „sér- fræðingarnir" verði gerðir at- vinnulausir, heldur en að skipta um húsbændur? Bera hemámsandstæðingar í Fram- sóknarflokknum yfirleitt nokk- um sigur af hólmi í „áfanga- baráttu" sinni, þótt tillögur S, U.F. séu samþykktar? ★ 1 grein Ólafs er ennfremur vitnað til ávarps frá ungu fólki, sem birtist í Dagfara 1. tbl. 6. árgangs. Segir Ólafur, að ekki séu nefnd nein tímamörk þar um hvenær herinn eigi að fara og ekki minnzt einu orði á úr- sögn úr Atlantshafsbandalag- inu. Til þessa ávarps vitnaði Ólafur einnig á kappræðu- fundinum á Hótel Borg og þóttist' finna þar greinilegan skyldleika með tillögum S.U.F, ekki á fjögurra ára áætlun um brottför hersins að halda. Sá umsamdi frestur, sem Banda- ríkin hafa samkvæmt her- stöðvasamningnum frá 1951 til þess að vera á brott með haf- urtask sitt, er fuUnógur. Þess vegna er ekki minnzt á tíma- möfk í ávarpi ungs fólks, að gert er ráð fyrir uppsögn her- stöðvasamningsins á eðlilegan hátt, sem gefur Bandaríkjunum frest í eitt og hálft ár til að vera á brott með her sinn. Ef herstöðvar væru afnumdar á Islandi, og Islendingar mörk- uðu sjálfir stefnu sína í utan- ríkismálum, þá væri landið ekki lengur Natoríki nema að nafninu til. Atlantshafsbanda- lagið hefði þá engan hag ai veru fslands í bandalaginu. Eftir afnám herstöðvanna og eyðileggingu hernaðarmann- virkja gæti Nato aldrei orðið stytkur að liði íslands í nú- tímahemaði, hvorki • í vöm né sókn. Þannig hefði ísland lokið hlutverki sínu í Nato. Framhald á 6. síðu. rifjað var upp í sunnudags- blaði Þjóðviljans hvemig aug- lýsendur, einkanlega danskir kaupmenn, hefðu sölsað und- ir sig Morgunblaðið nokkrum árum eftir að það var stofn- að, greitt fyrir það með sterlingspundum, og síðan ráðið stefnu þess. Hefðu hin- ir erlendu eigendur um skeið st.iáklað á ritstjórnarskrifstof um blaðsins og gefið rifstjór- Boðið í þagnarhlutafélag Morgunblaðið segir í gær: „Það er býsna mikil ósvífni af hálfu Þjóðviljans að dirfast yfirleitt að bera fram stað- lausar fullyrðingar um ann- arleg áhrif — fjárhagsleg op önnur — utanaðkomandi að- ila á önnur dagblöð." Tilefni þessara ummæla eru þau að um fyrirmæli á dönsku. Frá- ^agnirnar um þetta efni eru komnar frá tveimur látnum merkismönnum . og fyrrver- andi ritstjórum Morgunblaðs- ins, Vilhjálmi Finsen og Þor- steini Gíslasyni. Mun mörg- um þykja fróðlegt að Morg- unblaðið skuli nú dirfast að telja frásagnir þeirra „stað- lausar fullyrðingar" og væri blaðinu sæmst að reyna að færa rök að þeirri niður- stöðu sinni. Ástæðan til þess að Morg- unblaðinu finnst það „ósvífni" að Þjóðviljinn skuli „dirfast" sð rifja upp frásagnir Vil- biálms' Finsens og Þorsteinf '“‘■'slasonar er sú að blaðið Þlur að Þjóðviljinn hafi not- ið annarlegrar erlendrar fyr- irgreiðslu við kaup á prent- vél sinni og talar meira að segja um „99 ára lán í Sovét- ríkjúnum“ í því sambandi Okkur .Þjóðviljamönnum er semsé boðin þátttaka í þagn- arhlutafélagi hinnar gagn- kvæmu sektar, en Morgun- blaðsmenn verða að láta sér nægja aðra þátttakendur í þeim félagsskap. Víst' naut Þjóðviljinn fyrirgreiðslu við kaup á prentvél sinni, en hún var hvorki annarleg né er- lend. Til þess að géta keypt prentvélina þurfti Prent- smiðja Þjóðviljans að fá lán í sænskum banka, og það lán reyndist fáanlegt ef ís- lenzkur banki tæki að sér að ábyrgjast greiðslurnar. Þá ábyrgð veitti Útv'egsbanki ís- lands og hefur nú að mestu lokið yfirfærslum á afborgun- Bréf frá Laugarvatni: UNGMENNAHÚS Á ÍSLANDI Skilningur íslenzkra stjóm- arvalda á málefnum æskunnar í landinu hefur á undanfömum áratugum verið harla lítill. Er slíkt næsta furðulegt, þar sem ætla má að þeir menn sem veljast til forustu f stjómmál- um landsins hafi til að bera þá framsýni og séu svo gáfum gæddir, að þeir sjái að velferð landsins í framtíðinni byggist á góðu og hóllu uppeldi æskunn- ar. Hlýtur slíkt skiilningsleysi að styrkja grun manna um það að efst í huga ráðandi manna landsins hafi ekki verið og sé ekki hagur landsins og velferð í framtíðinni heldur hagsmunir þeirra þjóðfélags- þegna sem ráða úrslitum um valdaaðstöðu þeirra. Svo er gjarnan hneykslazt á ýmsum miðum skemmtiilegum ærslum æskufólks en aldrei reynt að grafast fyrir rætur meinsins eða komast að eðli vandamáls- ins. Upp úr síðustu aldamótum tóku þjóðfélagshættir að breyt- ast hér á landi. Fólk streymdi úr sveitum f kaupstaði. Land- búnaður varð ekki lengur aðal- atvinnuvegur landsmanna held- ur sjávarútvegur. Samfara þessu varð breyting á högum þjóðarinnar, peningaráð og kaupmáttur óx v^rulega. Sér- staklega varð þessi breyting hröð er stríðsgróði síðari heimsstyrjaldarinnar hleypti nýju Iffi í atvinnuvegina og þá sérstaklega sjávarútveginn Þessar miklu berytingar grófu líka undan fomum hugsunar- hætti þjóðarinnar, og nýr eld- móður peningagræðgi og lífs- þægindáæðis náði tökum á henni. Stofur heimilanna urðu ' svo 'fínar áð bömunum vnr bannað að koma inn í þær. Hin gamla baðstofumenning með kvöldvökum sínum og kvæða- lestri var leyst upp en ekkert skapað i staðinn! Börnum og unglingum var hreinlega kastað út á götuna til að sækja þang- að uppeldi sitt. Heimili þeirra voru orðin of fín til þess að þau mættu vera þar og for- eldrar þéirra voru orðin of öfinum kafin við að græða peninga til þess að þau mættu vera að því að sinna bömum sínum. Það er í sjálfu sér eðlilegt að grundvöllur fornra uppeldis- hátta hrynji með svo miklum breytingum á þjóðfélagsháttum og hugsunarhætti þjóðarinnar Á dögum fslenzks bændaþjóð- félags voru heimili tiltölulega einangruð hvert frá öðru, sök- um fjarlægðar, og gerði það að verkum að áhrif þeirra hvort á annað voru að sama skapi lítil Heimilið var miðstöð alls upp- eldis og mótaði í megindráttun hugsunarhátt og lífsviðhorf æskumannsins. Það var athvarf hans f blíðu og stríðu, og það lifði sínu tiltölulega sjálfstæða menningarlífi. Sem afleiðing af þessu urðu svo íslendingar nokkuð sjálfstæðir í hugsunar- hætti sem einstaklingar og lausari við múghyggju en flest- ar aðrar menningarþjóðir. En er þjóðin tók skyndilega að flytjast saman í kaupstaði og sjávarpláss, varð hlutverk heimilisins sem uppeldisaðila minna. Fólk tók að hafa meiri áhrif hvert á annað ög móta meira hugsunarhátt hvers ann- ars. Böm og unglingar fóru að kynnast og mótast meira en áð- ur af hugmyndum er leiksyst- kini þeirra komu með frá sfn- um hejmilum. Þörfin fyrir sam- eiginlegt félagslíf varð brýnni. Þar með var grundvelli hins forna uppeldis heimilanna koll- varpað að nokkru leyti. En hvað á að taka við? Þeirri spurningu er ósvarað enn. Við verðum, vegna breyttra þjóðfélagshátta, að sætta okkur við minni sérhyggju en áður, og miða því uppeldið meira við heildina. Ég álít því að þjóðfé- lagið, samfélagið sem slíkt, verði að takg við því hlutverki heimilanna sem það nú þegar hefur kastað frá sér. Það er svo aftur vandamál á hvern hátt slíkt verði gert, þannig að sér- kenni og persónuleiki hvers einstaklings verði sem bezt varðveittur og komið verði í veg fyrir of mikla múghyggju. Það eitt yrði ærið verkefni fyr- ir uppeldisfræðinga framtjéar- innar að glíma við. Æska þessa lands er full ®f atorku og fjöri, sem þarf útrás. Hún er í rauninni ekkert frá- brugðin æsku annarra alda, en lifir aðeins í sinni samtíð, i þeim aldaranda og því þjóðfé- lagi sem hún hefur ekki skaþ- að heldur foreldrar hennar. Þess vegna felst í hverri ásök- un fullorðna fólksins á hendur æskunni ásökun á það sjálft. Það er gjaman hneykslazt á ýmsum miður heppilegum til- tækjum nokkurra unglinga. En þau eru aðeins, afleiðing þess rótleysis sem aldarandinn hefur innprentað þeim. Eða hvaðá aðstöðu eða tækifaéri veitir þjóðfélagið þessum „hneykslan- legu“ unglingum til þess að veita útrás atorku sinni og æskufjöri svo það verði þeim til þrozka? Jú, það lokar öllum heilbrigðum skemmtistöðum þess og gerir þá að vínveitinga- stöðum fyrir fullorðna fólkið. Það vísar þeim á götuna til að iðka þar sína félagsstarfsemi. Aflleiðing þess verður svo að þessí unglingar reyna að smygla sér inn á vínveitinga- staðina og feta i fótspor hinna eldri með því að drekka sig þar blindfulla. Slíkur er upp- eldisháttur hins íslenzka þjóð- félags. Framhald á 6. síðu. um af þessu láni, en nauð- synleg leyfi voru veitt af rík- isStjórn íslands. Þeir tveir menn sem einkanlega greiddu götu þessara viðskipta af hálfu stjórnarvaldanna voru Ólafur Thors, þáverandi for- sætisráðherra og formaður Sj álf stæðisflokksins, og Jó- hann Hafstein, þáverandi bankastjóri Útvegsbanka ís- Iands. Ótrúlegt verður að teljast að þeir hafi beðið um rússneskt lán vegna þessara viðskipta, en raunar ættu að vera hæg heimatökin hjá Morgunblaðsmönnum að fá um það öruggar fregnir hjá núverandi dómsmálaráðherra Hinsvegar er árásum Morg- unblaðsins á Vilhjálm Finsen. Þorstein Gíslason, Ólaf Thors og Jóhann Hafstein óvefengj- anlega komið á framfæri með aðstoð prentvélar sem Morg- unblaðið fékk með annarlegri erlendri fyrirgreiðslu. Hrað- pressa Morgunblaðsins var á sínum tíma keypt með Mars- hallaðstoð. en slik aðstoð var sem kunnugt er látin í té fyrir tilstilli bandaríska sendi- ráðsins. Væntanlega er Morg- unblaðið fyrir löngu búið að greiða upp þetta Marshalllán með aðstoð auglýsenda sinna og eigenda en greiðslurnar hafa þá runnið i Mótvirðis- sjóð Bandaríkjanna á ís- landi. Þeim sjóði ráðstafar sendiráðið að eigin geðþótta og án nokknrs eftirlits. einn- ig sá þrið.jungur þess sem starfar undir st.jórn banda- rísku leyniþjónust.unnar CIA. — Austri.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.