Þjóðviljinn - 08.03.1967, Síða 6

Þjóðviljinn - 08.03.1967, Síða 6
0 SlÐA — ÞJÓÐVILJXNN — Miðvikudagur 8. marz 1967. Ungmennahus á íslandi Framhald af 2. síðu. 1 hverjum manni felst ein- hver sköpunarþrá og ekki sízt æskumanninum með sinn eld- móð og óvirkjuðu krafta. Þess- um kröfum þarf að beina inn á réttar brautir. svo þeir megi verða honum til sem mests lærdóms og þroska. Það þarf því að skapa aðstöðu fyrir æskulýðinn til þess að svala sköpunarþrá sinni og nota tómstundir sínar á heilbrigðan hátt. Það hlýtur hver maður með heilbrigða skynsemi að sjá að það er sízt til að bæta sið- ferðilegan þroska aeskunnar að -.......... .........—.—.. < Iðnnemar fái rétt til viðbotarlána í gær barst Þjóðviljanum eft- irfarandi samþykkt Sveinafélags skipasmiða. „Aðalfundur Sveinafélags skipa- smiða í Reykjavík, haldinn þriðju- daginn 28. febrúar 1967, skorará Alþingi að samþykkja framkom- ið frumvarp Geirs Gunnarsson- ar og Hannibals Valdimarsson- ar um rétt iðnnema til viðbót- arlóna frá Húsnæðismálastjóm. Fundurinn lítur svo á, að að- staða iðnnema í sambandi við húsbyggingar sé slík, að brýna nauðsyn beri til að þeir njóti sömu réttinda og meðlimir verka- lýðsfélaga innan Alþýðusam- bands íslands“. Hafnargerðir og bændamálin rædd 1 neðri deild Alþingis var i gær m.a. rætt um frumvarp Hannibals Valdimarssonar og Lúðvíks Jósepssonar um að stór- aukinn verði hluti ríkissjóðs í kostnaði við hafnargerðir og lendingarbætur, og töluðu auk Hannibals sem flutti framsögu- ræðu Gísli Guðmundsson ogSig- urður Bjarnason, Málinu var vísað tíl 2. umræðu og sjávar- útvegsnefndar. Þá héldu áfram umræður um frumvarp Hannibals um félags- mál og hagsmunamál bænda og talaði Ágúst Þorvaldsson auk flutningsmanns, sem svaraði ræðu Ágústs í alllöngu máli. í efri deild var frumvarpinu um ráðstafanir vegna sjávarút- vegsins vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefndar. Auk ræðu Gils Guðmundssonar sem sagt er frá í annarri frétt töluðu HelgiBergs og sjávarútvegsmálaráðherra, Eggert G. Þorsteinsson. Allmörg önnur mál voru á dagskrá í þingdeildunum. reka h'ana út á götu með fé- lagsstarfsemi sína. Því aðeins verður skapaður góður og þroskaður maður að hann sé alinn upp sem slíkur. Uppeldið mótar manninn! Það er því mikið gleðiefni að loksins er komin fram á Al- þingi tillaga um byggingu Ung- mennahúss í Reykjavík. Eiga flutningsmenn tillögunnar, þeir Þórarinn Þórarinsson og Einar Ágústsson miklar þakkir skild- ar fyrir þetta framtak sitt. Er vonandi að alþingismenn haíi til að bera þá framsýni að þeir samþykki þessa tillögu. Það er víða í heiminum sem menn eiga við unglingavanda- mál að stríða. Hafa ýmsar þjóðir gripið til einmitt þessa ráðs, þ.e. að hið opinbera skapi aðstöðu fyrir æskulýðinn til hollra tómstundaiðkana og reynt með því að beina huga hans inn á heillavænlegar brautir. Hefur það yfinleitt reynzt mjög vel. Hafa t.d. Bandaríkjamenn komið á fót í flestum stærri borgum sinum ungmennahúsum (Teenage centers) og ráðið til þeirra sér- þjálfaða leiðbeinendur fyrir æskulýðinn (Social workers). Hefur það að sjálfsögðu ekki leyst til hlítar unglingavanda- mál þeirra, því þau eru flókn- ari en svo, en þó leyst mik- inn vanda. Hér á landi mundi slík að- staða verða mjög til úrbóta. Slíkt hús gæti verið samkomu- staður unglinga og athvarf, og kæmi þá í stað „sjoppanna“ og er i þeim lítil eftirsjá. Einn- ig þyrfti að sjá þeim fyrir leidbeinendum er væru sérstak- lega þjálfaðir í að umgangast þennan viðkvæma aldursflokk. Þarna yrði aðstaða fyrir alls konar tómstundaiðkanir og fé- lagsstarfsemi. 1 tillögu þeirra Þórarins og Einars er aðeins gert ráð fyrir Ungmennahúsi í Reykjavík. Þar er að vísu brýnust þörfin, en það er aðeins spor í áttina, því hver kaupstaður og hvert kauptún þarf að eiga slíkt hús sem gæti þá verið í nánum tengslum við unglingaskólana. Það er ekki síður í kaupstöð- um landsins að rótleysi ung- linga er vandamál og þarf að skapa þar aðstöðu til hollra tómstundaiðkana, ekki síður en í Reykjavík. Ættu bæir og sveitarfélög að sjá sóma sinn í þvf að reisa á næstu árum unglingahús og hlúa þannig að æskufólki sínu, sínu eigin sveit- arfélagi og landinu öllu til farsældar. Kristján Elberg Guftmundsson. Menntaskólanum Laugarvatni. • Dúfnaveislan á fimmtudag • Dufnaveislan, nýjasta leikrit Halldórs Laxness, hefur hlotið feikna vinsældir. Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi það í apríl- mánuði í fyrra og er það því nú búið að ganga samfleylt í tæpt ár. Leikurinn hefur vakið mikla eftirtekt erlendis og verið skrif- að um þessa sýningu Leikfélagsins í blöð á Norðurlöndum, en Þorsteinn Ö. Stephensen fékk Silfurlampann fyrir túlkun sína á pressaranum í sýningu Leikfélagsins. í undirbúningi er nú sýn- ing á Dúfnaveislunni í Árósum í Danmörku. Leikstjóri Dúfnaveisl- unnar í Iðnó er Helgi Skúlason, leikmyndir eru eftir Steinþór Sig- urðsson og tónlist eftir Leif Þórarinsson. Búast má við að sýning- um fari nú að fækka, en á sunnudag var 49. sýning og uppselt á hana, en 50. sýning leiksins verður á fimmtudagskvöld. Á mynd- inni eru Borgar Garðarsson, Haraldur Björnsson og Helga Bach- mann í hlutverkum sínum. Tímamönnum svaraö Framhald af 2. siðu. að, og segja beri Atlantshafs Ólafur R. Grímsson getur þvi aðeins greint einhvern skyld- leika meft ávarpinu og tillögum S.U.F., aft hann Ioki augunum gersamlega fyrir því, aft ávarp- ið í heild sinni er í beinni mótsögn við tillögur S.XJ.F. ★ Þriðja og síðasta tiiraun Öl- afs til, þess að tefla fram mál- efnaiegum rökum í grein sinni fer einnig út um þúfur. ólafur segir: „Hitt er hins vegar full- Ijóst, að innan Samtaka her- námsandstæðinga hafa ætíð verið skiptar skoðanir um miK- ilvægi algers hlutleysis og taf- arlausrar brottfarar úr Atlants- hafsbandalaginu .... Það cr fullljóst, að aðalstefnumark Samtaka hernámsandstæftinga hefur jafnan vcrið, og á að vera aft lcoma varnarliðinu úr landi . . . “ Og nú kastar tólfunum. önnur grein í lögum Sam- taka hernámsandstæftinga er jafnframt stcfnuskrá samtak- anna. Hún afmarkar þann mál- efnalega grundvöll, sem sam- tökin starfa á. Greinin hljóðar svo: „Hlutverk samtakanna er að berjast fyrir afnámi herslöðva í íslenzkri grund og hlutleysi^" Islands í hemaftarátökum og standa gegn hvers konar er- lendri ásaelni.“ Ætlar hinn sjálfskipaði foringi í sjáilfstæðisbaráttunni að segja, að hann þekki ekki þessa grein? Á fjórða landsfundi Samtaka hernámsandstæðinga í Bifröst s.l. sumar var samþykkt álykt- un um alþjóðlegt viðhorf her- námsmálanna. I henni segir m.a.: „Landsfundurinn lítur svo á, að aftild Isiands aft Nato stríði gegn hagsmunum fslcndinga sem friðsamrar og vopnlausrar smáþjóftar, sem og hagsmunum heimsfriðarins yfirleitt .... Fundurínn telur því, aft hlut- ieysi fslands í hemaftarátökum sé þaft mark, sem stefna skuli bandalagssamnmgnum upp strax og lög leyfa sumarið 1969.“ Þessi ályktun var samþykkt einróma á landsfundinum. Henni greiddu allir viðstaddir framsóknarmenn atkvæði sitt. Mát. ★ Með þessum athugasemdum ætti grein Ólafs að vera full- svarað. Þó vil ég í eftirmála vitna til gamallar kínverskr- ar bókar. Þar segir: „Þegar maður á að taka að sér heiminn og móta hann, þá sé ég, að hann hlýtur að vera neyddur til þess. Því að heimurinn er guðdómlegt ker. Hann verður ekki mótaður; og hann verður ekki kúgað- ur.“ Nú er ég ekki að segja með þessum orðum, að Framsókn- arflokkurinn sé „guðdómlegt ker“, og ekki heldur, að Ólafur Ragnar Grímsson verði kvadd- ur til að móta flokkinn og stefnu hans. Hitt finnst mér fullljóst, að ályktun S.U.F. verður ekki að hjálpræði Framsóknarflokknum og frama- braut baccalaureusar verður þyrnum stráð. — L.J. Spakmæli eft- ir Tarsis • Á fundi með fréttamönnum í Bergen í gær sagði Tarsis að vestrænir lesendur hefðu valdið sér vonbrigðum. „Þeir halda sig að leynilögreglusögum og sorpbókmenntum. Rússneska þjóðin les Ijóð og heimspeki, jafnvel þótt engrar heimspeki gæti í landinu sjálfu“, sagði Tarsis. „1 Sovétríkjunum geta bóka- unnendur ekki fengið þær bækur, sem hugurinn gimist, aðeins verk Lenins og Stalins. En þar ríkir mjög mikill áhugi á alvarlegum bókmenntum“. (Úr viðtali við Valerí Tars- is í Mogga). • Athygli skal vakin á því, að f kvöld hefst nýr þáttur í út- varpinu um kvikmyndir — um hann sér Þorgeir Þbrgeirs- son sem hefur af góðri kunn- áttu og mikilli harðfylgni bar- izt . fyrir óskoraðri virðingu manna fyrir þessari listgrein, sem nú er öllum öðrum lístum áhrifameiri. 13-15 Við vinnuna. 14.40 Edda Kvaran les fram- haldssöguna Fortíðin gengur aftur (26). 15 00 Miðdegisútvarp. T. Lopez, H. Gunther, G. Twitti, P. Kreuder og Joan Baez skemmta með söng t>g hljóð- færaleik. 16.00 Síðdegisútvarp. Sigurður Skagfield syngur. Fílharmon- íusveit Lundúana leikur Carneval op. 92 eftir Dvorák; C. Silvestri stjórnar. M. Reizen, L. Maslennikova, kór og hljómsveit Bolshoj-óper- unnar í Moskvu flytja atriði úr Rúslan og Lúdmílu eftir Glinka. A. Winograd stjóm- ar flutningi á Lftilli svftu fyrir strengjasveit op. 1 eftir Carl Nielsen. 17.05 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku. 17.20 Þingfréttir. 17.40 Sögur og söngur- Guðrún Bimir stjórnar þætti fyrir yngsfu hlustendurna. 19.30 Daglegt mál- 19.35 Um kvikmyndir. Þorgeir Þorgeirsson flytur erindi. 19.55 Verk eftir Leif Þórarins- son. a) Sónata fyrir píanó. Rögnvaldur Sigurjónsson leikur. b) Mósaik fyrir fiðlu og píanó. Einar G- Svein- bjömsson og Þorkell Sigur- björnsson leika. c) Epitaph. ■ Sinfóníuhljómsveit fslands leikur; Páll P- Pálsson stj. 2000 Framhaldsleikritið Skyttumar. Marcel Sicard samdi eftir skáldsögu Alex- anders Dumas. Flosi Ólafs- son bjó til flutnings f útvarp óg er leikstjóri. Leikendur í 7. þætti: Arnar Jónsson, Erlingur Gíslason, Helga Bachmann, Benedikt Áma- son, Gísli Alfreðsson, Sigríð- ur Þorvaldsdóttir og Valdi- mar Helgason. 21.30 Dagskrá Félags guðfræði- nema í Háskóla fslands um guðsb j ónustuna. 22.20 Djassþáttur. Ólafur Step- hensen kynnir. 22.55 Tónlist á 20- öld- Konsert fyrir óbó og hljómsveit eftir Mart.inu. F. Hantak og Ríkis- hljómsveitin í Bmo leika; Turnovsky stjómar. 23.10 Dagskrárlok. • Leiðrétting • f grein Steindórs Ámasonar: Togaraútgerð í brennipúnkti sem birtist í Þjóðviljanum i gær (3. grein) urðu þau mistök í setningu að ein lína féll nið- ur. Setningin sem hér um ræð- ir er í kaflanum um þótt lög- gjafans og er hún þannigrétt: Það er þjóðarhneyksli að launa sjómönnum, sem sækja gullsi- gildi f greipar ægis, sér til tekna og þjóðinni gjaldeyris, með því að tlæma þá af miðum, ræna þá afla og veiðarfærum, halda þeim tímunum saman á saka- mannabekk, dæma í háar sekt- ir og tugthús ef sekt er ekki greidd fyrir það eitt að dýfa vörpu f sama sjó og öll önnur fiskdrápstæki eru boðin og vel- komin. Leiðréttist þetta hér með og eru hlutaðeigendur beðnir af- sökunar á mistökunum. • Brúðkaup • Nýlega voru gefín saman í Giftingarhöll Moskvuborgar ungfrú Ingibjörg Haraldsdóttir frá Reykjavík og hr. Idelfonso Ramos Valdes frá Havana, Kúbu. — Þau stunda bæði nám við kvikmyndaháskólann í Moskvu. Siónvorpið 20.00 Fréttir- . V 20.30 Steinaldarmenn. Teikni- mynd gerð af Hanna og Bar- bera. fslenzkur texti: Pétur H. Snæland- 20.55 Tannhirðing. Magnús R. Gíslason, formaður fræðslu- nefndar Tannlæknafélags ís- lands, lýsir því helzta, sem leggja ber áherzlu á varð- andi vemdun tanna og rétta hirðingu þeirra. 21.05 Mussolini. Myndin sýnir þennan einvald hefjast til vegs með sósíalisma að vegar- nesti, þróast yfir í fasisma og stjóma þjóð sinni um skeið, leiða hana út í ógöng- ur og örvilnan, falla í ónáð og láta síðan lífið á torgi Milano í apríl 1945. Frétta- maður CBS, Walter Cron- kite hefur samið tex-tann. Þýðinguna gerði Hersteinn Pálsson. Þulur er Eiður Guðnason. 21.30 Kápan. (II Capotto) ftölsk kvikmynd, gerð eftir sam- nefndri sögu Nikolai Gogol- Þessa mynd gerði Alberto Lattuada árið 1951- f mynd- inni snýr hann hinu rúss- neska sögusviði til ítalskra nútímastaðhátta. í aðalhhit- verkum eru Renato Rascel og Yvonne Sanson. íslenzkan texta gerði Halldór Þorsteins- son. 23.15 Dagskrárlok. KAUPUM gamlar bækur og frímerki. Njáisgata 40 HRÆÓDÝR FRÍMERKl FRÁ AUSTURRÍKI Tvö þúsund og átta hundruð úrvals frímerki og sérmerki handa söfnurum, að verðmæti samkvæmt Michel-katalóg um 320,— þýzk mörk, seljast í auglýsingaskyni fyrir aðeins 300,— ísl. kr. eftir póstkröfu, á meðan birgðir cndast. Nægir að senda bréfspjald. MARKENZENTRALE. Dempschergasse 20, 1180 Wien

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.