Þjóðviljinn - 12.04.1967, Blaðsíða 10
B\örn Jónsson / úfvarpsumrœðunum i gœrkvöld:
Verkalýðurinn verður að auka
áhrifamátt sinn í þjóðfélaginu
□ Stjómarsamsteypa Sjálístæðis- og Alþýðu-
flokksins, sem nú hefur farið með völd nokkuð á
9. ár, hefur haft meiri og betri mögruleika til þess
að koma fram varanlegum umbótum í íslenzku
þjóðfélagi heldur en nokkur önnur ríkisstjórn
sem setið hefur í landinu fyrr eða síðar.
Samfellt góðæri hefur rikt til
lands og sjávar, og hvert met-
aflaárið rekið annað, sagði B.iörn
Jónsson í útvarpsumraeðunum í
gærkvöld. öll ytri efnahagsleg
skilyrði til stórfelldrar uppbygg-
ingar í landinu hefði bannig ver-
ið fyrir hendi. Undirstaða af-
komuöryggis aetti að vera traust-
ari en nokkru sinni fyrr, þótt
á móti blási nú um stundarsakir.
Arður góðæranna hefur ekki
runnið til undirstöðuatvinnuveg-
anna heldur hafa þeir verið
mergsognir af milliliðum og
verzlunarvaldi sem nú hirðir til
sín fjórfaldan eða fimmfaldan
hlut móts við það sem var fyr-
ir valdatöku viðreisnarstjómar-
innar.
Björn minnti á að kaupmátt-
ur tímakaups verkamanna væn
því sem næst hinn sami og 1959
og kjarabætur væru í engu sam-
ræmi við vöxt þjóðartekna. Hefði
verkafólk því orðið að sækja sín -
rauntekjuaukningu að öllu leyti
í lengdan vinnutíma og tíma-
bundna yfirborgun þar sem eft-
irspum hefði verið eftir vinnu-
afli.
landinu er það einungis fylgis-
aukning Alþýðubandalagsins sem
getur hnekkt hinum nauma
þingmeirihluta þeirrar stjómar-
samsteypu, sem hefur sýnt það
og sannað að hún hvorki vill ná
getur stýrt þjóðarbúinu eftir
þeim leiðum sem nú eru ein-
ar færar.
Allt sem sameinar
í lok ræðu sinnar sagði Bjöm:
„Alþýðubandalagið hefur nú birt
framboð sín um allt land. og um
þau hefur verið og er alger ein-
hugur og sigurvissa í 7 kjördæm-
um af 8. Hitt er ekki launung-
armál að í einu kjördæmi hefur
verið ágreiningur um skipan
framboðslista.
Við þá sem þegar hafa reynt
og munu reyna að notfæra sér
þann ágreining til framdráttar
lélegum málstað vil ég aðeins
segja: Maður líttu þér nær, og
tíunda þá einingu, sem í þín-
um flokki ríkir.
Allan ágreining stóran og smá-
an innan Alþýðubandalagsins ber
að harma og hann getur ekki og
má ekki hindra það að allt hið
stóra, sem sameinar, ráði úrslit-
um þegar meira er í húfi í tvi-
sýnnj baráttu fyrir framtíð ís-
lenzku þjóðarinnar, en nokkru
sinni áður.
Ágreining gerum við upp á
réttum vettvangi innan okkar
eigin raða en tvíeflum baráttuna
fyrir fullum sigri þeirrar eining-
arstefnu, sem vinstri menn og
Miðvikudagur 12. apríl 1967 — 32. árgangur — 82. tölublað
Björn Jónsson
t
verkalýðssinnar hafa háð innan
Alþýðubandalagsins sem utan og
ein getur skapað þá stjórnmála-
legu brjóstvöm, sem hún nú
þarfnast öllu öðru fremur."
í sjálfheldu
Það eru þessar staðreyndir um
þróun kjaramála verkafólks á-
samt síversnandi afkomu undii-
stöðuatvinnuveganna og láns-
fjárkreppu, sem þegar í dag hef-
ur leitt af sér alvarlegan sam-
drátt í ýmsum greinum atvinnu-
lífsins og tilfinnanlegs atvinnu-
leysis í heilum landshlutum, —
það eru þessar staðreyndir sem
nú um sinn hafa sett eðlilega og
lífsnauðsynlega kjarabaráttu
vinnandi fólks i sjálfheldu og
ógnar nú jafnvel þeim neyðar-
rröguleika sem verkafólk hefur
haft til þess að framfleyta sér
og sinum með gegndarlausri yf-
irvinnu.
Styttur vinnutími — svo knýj-
andi sem hann er — hlýtur að
leiða til neyðarástands ef kaun-
gjald hækkar ekki að sama
skapi. tír þessari sjálfheldu
verður íslenzk verkalýðshreyfing
að brjótast og það getur hún, ef
hún beitir til þess jöfnum hönd-
um samtakamætti sínum á sviði
hinnar faglegu hagsmunabaráttu
og á stjórnmálasviðinu, og
tryggir sér þar sterk áhrif í sam-
félagi við þau þjóðfélagsöfl, sem
nú hafa sömu hagsmuna að gæta.
Eins og flokkaskipan er nú í
Framleiðendur frá 5 Austur-Evrópuþjóðum taka þátt í
4. vörusýningu Kaupstefn-
unnar 20. maí tiS 4. júní
□ Dagana 20. maí til 4. júní verður 4. vörusýning Kaup-
stefnunnar haldin í Laugardals'höllinni og eru þátttakend-
ur framleiðendur frá eftirtöldum viðskiptaþjóðum okkar í
Austur-Evrópu: Póllandi, Sovétríkjunum, Tékkóslóvakíu,
Ungverjalandi og Þýzka alþýðulýðveldinu.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmunðsson
Guðjón Jóhannsson
32. — g5
Sýningin fer fram í Laugar-
dalshöllinni sem fyrr segir og
auk þess að fylla sýningarsvæð-
ið innanhúss verður einnig sýn-
ing á útisvæði.
Sýningarsvæðið er samtals um
4000 fermetrar og er þetta því
langstærsta erlenda vörusýningin
sem hér hefur verið haldin. Sagði
Haukur Bjömsson í viðtali við
blaðamenn í gær að ekki vævi
ólíklegt að fleiri lönd tækju þátt
i vörusýningum hér á landi í ná-
inni framtíð og munu hafa bor-
izt fyrirspumir þar að lútandt.
Væri aðstaða nú mun betri en
áður þegar ekkert sýningarhús
var til.
Auk framleiðenda frá löndun-
um fimm hafa 6 íslenzkir um-
boðsmenn fyrir framleiðendur í
Þýzka alþýðulýðveldinu sýning-
ardeildir. í sambandi við sýn-
inguna kemur hingað fjöldi fúll-
trúa frá hinum erlendu fyrir-
tækjum sem gefa upplýsingar um
verð og afgreiðslu á framleiðslu-
vörunum.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 20. maí fyrir um 600
boðsgesti og mun viðskiptamála-
ráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason,
sem er vemdari sýningarinnar
opna hana með ræðu, en auk
hans munu borgarstjórinn í Rvik
og formaður Verzlunarráðs fs-
lands flytja stutt ávörp. Forseii
fslands, Ásgeir Ásgeirsson, verð-
ur heiðursgestur sýningarinnar.
Framkvæmdastjóri vörusýn-
ingarinnar er Óskar S. Óskars-
son, auk forstöðumanna Kaup-
stefnunnar, þeirra ísleifs Högna-
sonar og Hauks Bjömssonar.
Vegna rúmleysis í blaðinu X
dag verður frekari frásögn af
sýningardeildunum að bíða betri
tíma.
760 félagsmenn
í Alþý&ubandalag-
inu í Reykjavík
□ Eins og getið var í fréttum Þjóðviljans í gær, var
bramboðslisti Alþýðubandalagsins í Reykjavík við alþing-
iskosningarnar í sumar samþykktur á fjölsóttum aðalfundi
félagsins í fyrrakvöld.
Salkindhjónin ieika i kvö/d
á hijómieikum Musica nova
Bandarísku hjónin Milton og
Peggy Salkind eru ekki ókunn
reykvískum tónleikagestum. Þau
eru ein af þeim sárafáu tónlist-
armönnum, sem ferðast um
heiminn og leika fjórhent á
píanó. Fyrst komu þau hingað
fyrir fjórum árum og léku þá
fyrir Musica nova og þá nær
eingöngu nýja píanómúsik. Ári
síðar léku þau hér í Reykja-
vík á vegum Tónlistarfélagsins í
Austurbæjarbíói. Nú eru þau
aftur hér á ferðinni. Þau hafa
meðferðis ný-uppgötvuð tilbrigði
eftir Chopin, sem þau fundu í
Póllandi. Þau hafa einnig með-
ferðis tónsmíðar eftir Ben Web-
er, Debussy, Felciano og eina
óþekkta íslenzka tónsmíð.
Þess vegna býður Musica
nova öllum, sem áhuga hafa, að
koma á tónleika Miltons og
Peggy Salkind í sal Tónlistar-
skólans í Reykjavík á miðviku-
dagskvöldið, 12. þ.m., kl. 21. —
Aðgangur er ókeypis.
Fundurinn var haldinn íTóna-
bíói og var það þéttsetið. Magn-
ús Torfi Ólafsson formaður Al-
þýðubandalagsins í Rvík setti
fomdinn og stjómaði honum. Las
hann í upphafi nöfn 108 einstak-
linga, sem gengu í félagið og
skýrði jafnframt frá því að fé-
lagar væru þar með orðnir um
760 talsins. Þá flutti hannskýrslu
stjórnar um starf félagsins á
liðnu starfsári, en það beindist
einkum að skipulagsmálum sam-
takanna og undirbúningi og
framkvæmd kosningabaráttunn-
ar fyrir borgarstjómarkosning-
amar á liðnu vori.
Tekjuafgangur kosningasjóðs
Nokkrar umræður urðu um
skýrslu félagsstjömar og töluðu
þeir Páll Bergþórsson, Sigurðnr
Guðnason, Jón Rafnsson ogBerg-
mundur Guðlaugsson.
Þá gerði starfsmaður Alþýðu-
bandalagsins, Svavar Gestsson,
grein fyrir reikningum félagsins
og greindi m.a. frá því, aðtekju-
afgangur kosningasjóðs hefði
numið 165 þús. kr. Munaði þar
mestu tekjumegin, að happdrætti
kosningasjóðs gaf af sér 466 þús.
kr. Reikningar félagsins voru
samþykktir einróma.
Afgrciðslu laga frestað
Næsta dagskrármál fundarins
voru lög Alþýðubandalagsins í
Reykjavík og var lagt fyrir
fundinn frumvarp að lögum frá
meirihluta félagsstjórnar og
breytingatillaga við eina fmm-
varpsgreinina frá minnihluta
stjórnarinnar. Urðu allmiklar
umræður um málið og töluðu
m.a. Ragnar Stefánsson, Ólafur
Hannibalsson, Páll Bergþórsson,
Jón Rafnsson, Steinþór Guð-
mundsson, Einar Olgeirsson,
Gísli Gunnarsson, Alfreð Gfsla-
son, Ingi R. Helgason. Samþykkt
var tillaga um að frestað yrði
umræðu og afgreiðslu laganna
en framboð Alþýðubandalagsins
í Reykjavík tekið þess í stað á
dagskrá. Var sú tillaga samþykkt
með allmiklum atkvæðamun.
Sigurður Guðgeirsson, formað-
ur framboðsnefndar, skýrði frá
þvi að samkomulag hefði ekki
tekizt innan nefndarinnar um
sameiginlega tillögu að fram-
boðslista og myndu tvær tillögur
því koma fram.
Hörður Bergmann, framsögu-
maður meirihluta framboðs-
nefndar, mælti fyrir tillögu
nefndarhlutans um skipan sex
efstu sæta listans, en um þau
varð ágreiningur í nefndinni,
fullt samkomulag var um önnur
14 sæti listans.
f tillögu meirihluta framboðs-
nefndar voru sex efstu sæti list-
ans þannig skipuð: 1. Magnús
Kjartansson, 2. Einar Hannesson,
3. Eðvarð Sigurðsscm, 4. Jón
Baldvin Hannibalsson, 5. Adda
Bára Sigfúsdóttir, 6. Ingi R.
Helgason.
Scx efstu sæti listans
ákveðin
Guðmundur J. Guðmundsson
gerði grein fyrir tillögu minni-
hluta framiboðsnefndar, en sam-
kvæmt henni voru sex efstu sæti
listans þannig skipuð: 1. Magn-
ús Kjartansson, 2. Eðvarð Sig-
urðsson, 3. Jón Snorri Þorleifs-
son, 4. Ingi R. Helgason, 5. Sig-
urjón Þorbergsson, 6. Adda Bára
Sigfúsdóttir.
Skrifleg atkvæðagreiðsla fór
fram nm þessar tvær tillögur og
hlaut tillaga meirihluta fram-
boðsnofndar 81 atkvæði, en til-
laga minnihlutans 254 atkvæði,
8 seðlar voru auðir. Var fram-
Framhald á 3. síðu.
Enginn sátta-
fundur haldinn
Er Þjóðviljinn leitaði frétta af
verkfalli lyfjafræðinga síðdeg-
is í gær hafði nýr sáttafundur
ekki verið boðaður og heldur
verkfallið áfram. Vilja forsvars-
menn beggja deiluaðila engar
upplýsingar gefa um hve mikið
ber á milli eða hvort einhverj-
ar horfur séu á lausn deilunnar
á næstunni.
Austur-Þjóðverjar hætta við landsleik í knattspyrnu við íslendinga:
Fá ekki að keppa undir þjóðfána sínum
Féll í höfnina
og drukknaði
Um kl. 3 í fyrrinótt sást Kk
á floti í Reykjavíkurhöfn rétt
við Grandagarð. Lögreglunni
var þegar gert aðvart og náði
hún líkinu. Reyndist það lík
skipverja af mb. Hafnarbergi
sem lá hér í höfninni. Var hinn
látni tæplega sextugur að aldri.
Er talið að hann hafi fallið í
höfnina milli kl. 12 og 1 um
nóttina, því úr sem hann hafði
á handleggnum hafði stöðvazt
kl. 0.45.
□ Fyririmgaður landsleikur í knattspyrnu mtlti Austur-
Þjóðverja og íslendinga mun falla niður naesta sumar og
mætir þannig ekki til leiks eitt sterkasta landslið Evrópu.
— það varð til dæmis númer tvö á Olympíuleikjunum í
Tokíó árið Í96i.
Fyrir hálfu öðru ári hófust
bréfaiskriftir milli Knattspyrnu-
sambands Islands og Austur-
Þjóðverjanna og var þá gengið
frá landsleik milli þjóðanna
sumarið 1967 hér í Reykjavík.
Þessir samningar tókust meðal
annars á hagkvæmum fjárhags-
legum grundvelli, — Austur-
Þjóðverjarnir buðu að borgai
ferðakostnað fyrir liðið til og frá
landinu, — en Islendi’ngarnir
skyldu sjá um uppihald liðsins
meðan á dvöl þess stæði í land-
inu.
Núna hefur hinsvegar slitnað
upp úr samningum og byggist
það fyrst og fremst á stirfni og
fastheldni hjá íslenzkum stjóm-
arvöldum í úreltar reglugerðir
frá tíma kalda stríðsins, — þar
er austurþýzka liðinu gert að
biðja náðai-samlegast um leyfi
hjá Natóyfirvöldum í Berlín til
Islandsfarar og það sem þyngra
er á metunum, — þeir fá ekki
að keppa undir þjóðfána sínum.
Að þessum skilyrðum vilja
ekki Austur-Þjóðverjar ganga og
samkvæmt viðtali við Björgvin
Schram, forseta K. S. I. í gær-
dag, — þá munu íslenzk knatt-
spyrnuyfirvöld ekki sjá sér fært
að brjóta í bág við fyrirmæli frá
íslenzkum stjómarvöldum, —
þannig er fyrirsjáanlegt að hætta
verður við þennan landsleik
milli þjóðanna í sumar.
Síðastliðið sumar fór fram
landskeppni milli íslendinga og
Austur-Þjóðverja í tugþraut á
Laugardalsvellinum og kepptu þá
Austur-Þjóðverjar undir fána
lands isíns og jafnframt komu
þeir án áritunar Natóyfirvalda í
Vestur-Berlín hingað til lands og
fór þessi keppni fram með sóma.
Austur-Þjóðverjum mun nú
heimilt að keppa á öllum stór-
mótum erlendis undir eigin þjóð-
fána sem sjálfstæð þjóð. Þaamig
blakti fáni þeirra á Evrópumeist-
aramótinu í Búdapest í frjálsum
íþróttum síðastliðið sumar og á
Olympíuleikjunum í Mexíkó á
næsta ári munu þeir kbma fram
sem sjálfstæð þjóð.
Þá mun ekki sízt vera breytt
andrúmsloft í Vestur-Þýzkalandi
sjálfu í þessum efnum eftir síð-
ustu stjómarskipti og eru íslend-
ingar þannig orðnir kaþólskari
en sjálfur páfinn í þessum efn-
um.