Þjóðviljinn - 25.04.1967, Page 10
10 SiÐA — ÞJÓÐVTLJINN — ÞriSjudagtrr 25. april 196T7.
JOHN FOWLES:
SAFNARINN
46
sw. ég gasti gifzt htonum og aí-
ið Ihann upp. Er það ekki rétt?
Og þú veizt að þú gætir það
aidrei. Eða þá að þú kynnir að
fana að sofa hjá honum til gam-
ans, og einn góðan veðurdag
uppgötvaðirðu að þú værir ást-
fangin af líkama hans og gætir
ekki lifað án hans og yrðir svo
að umbera þetta rotna hugarfar
hans til eilífðarnóns.
Svo sagði hún: Ertu ekki
hrædd við þetta?
Ekki hræddari við það en
margt annað.
Mér er alvara. Ef þú giftist
honum myndi ég aldrei tala orð
við þig framatr.
Og henni var alvara- Hún fékk
þennan þunga snögga svip sem
hún beitir eins og vopni. Ég reis
á fætur og gekk til hennar og
kyssti hana á leiðinni til strák-
annai. Og hún sat kyrr og horfði
niður í sandinn.
Við sjáum skelfilega í gegn-
um fólk, báðar tvær. Við getum
ekki að því gert. En hún sagði
alltaf: á þetta trúi ég, þetta ætla
ég að gera. Það hlýtur að vera
til einhver sem þér finnsit að
minnsta kosti standa þér jafn-
fastis, sem sér í gegnum hlut-
ina jafnvel og þú. Og þetta með
kroppinn verður að koma í ann-
arri röð. Og ég hef alltaf hugs-
að með mér í leyni: Carmen
m
fEFNI
SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18, III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SlMl 33-968.
emdar sem pipairmey. Lifið er of
flókið til þess að maður geti
lagt sjálfum sér slíkar Iffsreglur.
En nú hugsa ég um G. P. og
ber hann saman við Piers. Og
>ðers hefur ekkert sín megin.
Aðeins brúngullinn líkama sem
kastar steinum í blindni út á
vatnsflöt.
Ég gerði allt vitlaust uppi í
kvöld-
Ég byrjaði á því að fleygja
hlutum. Fyrst púðum og síðan
diskum. Mig hefur lengi langað
að brjóta þá.
En ég var reyndar íuidstyggi-
leg. Dekursjúk. Hann sætti sig
við allt. Hann er svo lítill bóg-
ur. Hann hefði átt að gefa mér
utanundir.
Að vísu þreif hann í mig til
að koma í veg fyrir að ég bryti
einn aí þessum andstyggðar disk-
um. Við snertum hvort annað svo
sjaldan. Mér fannst það ógeð-
fellt. Það var eins og ískalt vatn.
Ég hellti mér yfir hann. Ég
sagði honum álit mitt á honum
og hvað honum bæri að gera.
En hann hlustar ekki. Honum
líkar ágætlega að ég skuli tala
um hann. Það er alveg sama
hvað ég segi.
Ég ætla að skrifa meira. Ég
er að lesa „Sense and Sensi-
bility" og ég verð að komast að
því hvemig gengur með Mari-
anne. Marianne er ég. Eleanor er
sú sem ég ætti að vera.
Hvað verður ef hann lendir í
bilslysi? Fær slag? Fárveikist.
Ég dey.
Ég gæti ekki komizt út. Það
sem ég gerði í fyrradag er sönn-
un þess.
6. nóvember.
Það er miður dagur. Enginn
hádegismatur.
Ný flóttatilraun. Andartaks
bjartsýni. En það tókst ekki.
Hann er djöfull.
Ég reyndi botnlangabragðdð.
Mér datt það í hug fyrir mörg-
um vikum. Ég hef hugsað um
það sem þrautalendingu. Sem ég
mætti ekki eyðileggja með því
að vera illa undirbúin. Ég hef
ekkert minnzt á það hér, ef ske
kynni að hann fyndi þessi skrif
mín.
Ég neri talkúmi í andlitið. Og
þegar hann bariK að dyrum í
mcnrgun, gíeypti ég heilmikið af
ealti, sem ég hafði tekið frá, og
vatn og ýtti á tunguna, og ég
hafði reiknað þetta ljómandi vel
út, þvi að ég kastaði upp um
leið og hann kom inn. Ég gerði
óttalegt uppistand. Lá í rúminu
með hárið út í allar áttir og
hélt um magann. 1 náttfötum og
slopp. Stundi dálítið og þóttist
vera skelfing dugleg. Allan tím-
ann stóð hann þarna og sagði:
hvað er að, hvað er að? Og sam-
talið var slitrótt og ankanalegt.
Caliban reyndi að komast undan
þvi að senda mig á sjúkrahús
og ég sagði að hann mætti til. Og
allt í einu var eins og hann
ætlaði að láta undan. Hann taut-
aði eittbvað um að þetta væru
„endalokin“ og þaut út.
Ég heyrði að járnhurðin skellt-
ist (ég sat enn og starði á vegg-
inn) en ekki boltarnir. Svo úti-
dymar. Og svo varð hljótt. Það
var undarlegt. Svo skyn<SD*'ga
og algerlega hljótt. Það hafí*
tekizt. Ég fór í sokka og skó <»g
hljóp að jámhurðinni. Hún hafði
ýtzt ögn upp — stóð opin. Mér
datt i hug að þetta væri gildra-
Svo að ég hélt áfram að leika,
ég opnaði dymar og nefndi nafn-
ið hans lágt og haltraði vesæld-
arlega gegnum kjallarann og upp
stigann. Ég sá Ijósið, hann hafði
ekki heldur læst útidyrunum.
Mér datt allt í einu í hug, að
það myndi hann einmitt gera,
hann myndi ekki fara til lækn-
is. Hann myndi flýja. Tapa sér.
Ég hlýt að hafa beðið margar
mxnútur, ég hefði átt. að vita
betur, en ég þoldi ekiki eftir-
væntinguna. Ég ýtti upp hurð-
inni og þaut út. Og þanja var
hann. Rétt fyrir utan. Úti í dags-
birtunni.
Beið.
Ég gat ekki látið sem ég væri
veik. Ég var komin í skó. Hann
var með eitthvað í hendinni
(hamar?), augun voru undarlega
galopin, ég er viss um að hann
var í þann veginn að fleygja sér
yfir mig. Við stóðum stundar-
korn eins og ráðvillt bæði tvö,
hvorugt okkar vissi í rauninni
hvað gera skyldi. Svo sneri ég
mér við og hljóp aftur niður.
ég Ég veit ekki hvers vegna, ég
hugsaði ekki. Hann kom á eftir
mér, en hann stanzaði, þegar
hann sá að ég fór inn (og ég
vissi með sjálfri mér að hann
myndi gera það — eini staður-
inn þar sem ég er örugg fyrir
honum er héma niðri-) Ég heyrði
hann koma og loka og læsa.
Ég veit að ég gerði það eina
rétta. Það bjargaði lífi mínu.
Ef ég hefði æpt eða reynt að
flýja, hefði hann drepið mig.
Stundum er hemn eins ag and-
setinn, alveg stjómlaus.
Þennan slag átti hann.
(Miðnætti). Hann kom niður
til mín með kvöldmatinn. Hann
sagði ekki eitt einasta Drð. Um
dáginn hafði ég verið að teikna
af honum myndaseríu. „Hræði-
leg saga um meinlausan pilt“.
Alveg fráleitt. En ég verð að
gera allt sem ég get til að bægja
frá mér raunveruleikanum og
skelfingunni. 1 fyrsbu er harm
skikkanlegur lítill skrifari og
endar sem hræóilegt siferímsli úr
hroMvekju.
Ég sýndi honum hana áður en
hann fór. Hann hló ekfei, hann
virti betta nákvæmlega fyrir sér.
Þetta er ósköp eðlilegt, sagði
hann. Að ég geri gys að honum,
átti hann við.
Ég er eitt eintak af ótal. Hann
hatar mig þegar ég reyni að
flógra út úr röðinni. Ég á að
vera dauð, sitja á nál, alltaf
eins, alltaf falleg. Hann veit að
fegurð mín byggist á því «ð ég
er lifandi, en það er dauði hlut-
inn af mér sem hann vill eiga.
Hann vill eiga mig lifandi-en-
dauða. Ég fann þaö svo greini-
lega í dag. Það að ég vtar lif-
andi og breytileg og með séretak-
an hugsunarhátt og duttlunga
og hvað eina, var að verða
plága.
Hann er þungur, óhreyfanlegur
með jámvilja- Einu sinni sýndi
hann mér dálítið sem hann kall-
aði aflífgunarglasið sitt, ég er
fangi í þvi. Og flögra að glerinu.
Af því að ég sé gegnum það,
held ég enn að ég geti sloppið.
Ég hef von. En það er aðeins
blekking.
Þykkur kringlóttur glerveggur.
7. nóvember.
Dagarnir dragnast áfram. Ö-
bærilega langir.
Eina huggun mín er teikningin
hans G. P. Hún vex í mér. 1
hverjum sem er. Hún er það
eina hér sem er Bfandi, skapað,
einstakt í sinni röð. Hún er það
fyrsta sem ég horfi á þegar ég
vakna, það síðasta á kvöldin. Ég
þekki hverja linu. Hann hefur
gert eitthvað undarlegt við ann-
an fótinn á henni. Það er dá-
Htið jafnvægisleysi í allri mynd-
byggingunni eins og eitthvað
vanti einihvers staðar. En hún er
lifandi.
Eftir kvöldmatinn (alit er aftur
komið í eðlilegt hbrf) lét Cali-
ban mig hafa „Hver fær sitt
— við hinir ekki neitt“ og sagði:
og mér fannst hún ekkert sór-
stök.
SKOTTA
Kuldajakkar, úlpur
og terylene buxur í úrvali.
Ó. L. Traðarkotssundi 3
(mót) Þjóðleikhúsinu)
ÞORÐUR
sjóari
„O, ég er nú svo sem ekki heldur neinn sakleysingi,“ heldur
hann áfram. „Lascar vissi það Dg vildi ná sér niðri á mér, en
ég vissi miklu meira um hann, svo ég gat alltaf haldið velli.
Þegar ég heyrði að hann ætti von á heimsókn þetta fcvöld, á-
kvað ég að hlera hvað fram færi- Káetan mín var við hliöina
á hans káetu. Maðurinn sem kom var Amerfkani að nafni
W'allace. Eins og ég halði buizt vio voru pexr ao taia um málm-
plötumar sem Wallace átti að taka við í Roohefleawr. Af sam-
tali þeirra mátti skilja að þetta mál var mjög mikilvægt, og,
eins og mig hafði réttilega grunað, var hér alls ekki um blikk
að ræða.
UG-RAUÐKÁL - UNDRA GOTT
Það verður allt í lagi með hana, en haltu, henni frá
í pylsuáti framvegis.
PADIONETTE
henta þar sem erfið skilyrði
eru. — Byggð fyrir fjalllendi
Noregs.
Sérhæfðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
þjónustuna af þekkingu.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
ATHUGIÐ
Getum bætt við okkur klæðningum og við-
gerðum á bólstruðum húsgögnum. — Góðir
og vaiiir fagmenn.
Húsgagnav. Þorsteins Sigurðss.
Grettisgötu 13. — Sími 14-0-99.
Klapparstíg 26
Sími 19800
BUÐfN
Condor
TRABANT
EIGENDUR
Viðgerðaverkstæði.
Smurstöð.
Vfirförum bílinn
fyrir vorið.
FRIÐRIK ÓLAFSSON, vélaverkstæði.
Dugguvogi 7. — Sími 30154.