Þjóðviljinn - 12.05.1967, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 12.05.1967, Blaðsíða 10
Ásthildur Gunnarsdóttir með börnum síniim. Htisaleigulögin vantar Réttur leigjenda er enginn Húsaleigan hækkuð þrátt fyrir verðstöðvunina Eins og sagt var frá hér í blaðinu í gær hefur okrið á húsaleigu líklega aldrei ver- ið eins ósvífið og þetta vor og standa margir ráðalausir frammi fyrir þeim vanda að útvega sér leiguhúsnæði sem þeir ráða við að borga. Þá virðist einnig mikið um það að húseigendur reyni að hækka húsaleiguna, þrátt fyr- ir lögboðna verðstöðvun, og skáka þá i þvi skjólinu, að leigjendur þeirra séu í svo miklum vandræðum að þeir gleypi fremur þegjandi við hækkuninni en að þeir kæri fyrir viðeigandi yfirvöldum. Margir sem nú eru í hús- næðisleit hafa haft samband við Þjóðviljann og lýst vand- ræðum sínum og er greini- legt af frásögnum þessa fólks að aldrei hefur okrið verið jafn gífurlegt, enda eru eng- in gildandi ákvæði í lögum um hámarkshúsaleigu. Tiltölu- lega langmest virðist vera okrað á minnstu íbúðunum. eins til tveggja herbergja og oft ótrúlegt hvað talið er til íbúða í þessum stærðarflokki. Einhleyp eldri kona hefur t.d. lýst því fyrir blaðinu sem henni hefur verið boðið og . hefur verðið á íbúðunum verið frá 3.500 kr. upp í 6000 fyrir utan ljós og hita, en svona mikið1 sagðist konan ekki getað borgað. Hún vinn- ur úti og hefur um ll þús. kr. á mánuði í kaup, og það er alveg útilokað, sagði hún. að borga kannski helminginn af kaupinu sínu í húsaleigu. því þegar búið er að taka skattinn líka verður lítið eft- ir til að lifa á. Skárstu kjör- in sagði hún að væru á stór- um íbúðum miðað yið stærð, — en það er erfitt að standa í því að leigja út frá sér og ég treysti mér ekki heldur til að taka á mig ýmsar þær kvaðir sem fylgja, eins og t.d. að hreinsa íbúð húseigandans eftir að ég kem frá vinnu minni á kvöldi'n. Sem dæmi um hvað boðið er upp á sem íbúðir nefndi konan að hún hefði getað fengið leigða svokallaða tveggja herbergja íbúð sem átti að kosta 3000 kr. á mán- uði, en þegar á staðinn kom reyndust herbergin tvö vera eitt kjallaraherbergi sem hólfað hafði verið í sundur að hálfu með tréskilrúmi og að hálfu með tjaldi og var innri hlutinn gluggalaus. í eldhúsinu með þessu var eng- in eldavél, en bent á að leigj- andi gæti keypt sér rafmagns- plötu til að elda á. Álíka sögur sagði okkur ung einstæð móðir þriggja barna, sem stendur á götunni um næstu mánaðamót ef henni tekst ekki að ná sér í eitthvað fyrir þann tíma. Konan, sem heitir Ásthildur Gunnarsdóttir, sagðist hafa reynt allt sem hún gat til að útvega sér og börnunum húsnæði, — en ég hef ekki ráðið við þetta, sagði hún, ýmist eru íbúðirnar svo stór- ar og dýrar eða þá að heimt- uð er fyrirframgreiðsla fyrir hálft og heilt ár, — fyrir. ut- an þau tilfelli þar sem íbúð- in stendur ekki til boða fólki með börn. — Svo er það lykilgjaldið og fleiri kröfur. Einn heimt- aði 30 þúsund í lykilgjald og annar vildj gjarna leigja ungri konu með því skilyrði að hann fengi að heimsækja hana! Ég ætlaði ekki að leita til bæjarins fyrr en í fulla hnef- ana, en hef nú neyðzt til þess. Þeir tóku mér vel svo ég vona að úr rætist. Mannleg greind, bék frá Máli og ný félags- menningu Súkamo sviptur titlz DJAKARTA 11/5 — Súkarnó fyrrum Indónesíuforseti, hefur nú endanlega verið sviptur titli þjóðhöfðingja og fengið tilmæli um að flytja úr Merdekahöllinni, sem hefur verið embættisbústað- ur hans í 22 ár. DIOÐVIUINN IPöstudagur 12. maa H)6V — 32. ángangur — 105. tölublað. , Vísitalan óbreytt í maí Aukin niðurgreiðsiu ★ I fróttatilkynningu sem Þjóð- viljanum barst í gær frá Hag- stofu íslands segir að kaup- lagsnefnd hafi reiknáð út vísi- töllu framfærsiluikosrtnaðar í maíbyrjun og hafi hún reynzt vera 195 stig eða hin sama og í aprílbyrjun. ★ Breytingar hafa orðið á tveim liðum vísitölunnar. Húsnæðis- liðurinn hefur hækkað um 4 stig, úr 140 stigum í 114 stig. Hins vegar hefur liðurinn matvörur lækkað um 2 stig, úr 245 stigum í 243 stig. Hef- ur sú lækkun verið fengin fram með aukinni niður- greiðslu úr ríkissjóði á kart- öflum. Er það gert til þess að halda visitölunni óbreyttri. ★ Um þessar breytingar segir svo í fréttatilkynningu Hag- stofunnar: Húsnæðisliður vísi- tölunnar, sem breytist éftir sérstökum reglum, settum af kauplagsnefnd, hækkaði nú sem svarar 0,6 stigum, vegna hækkunar á vísitölu bygging- arkostnaðar ó síðastliðnu ári. Samtímis var, að tilhlutun ríkisstjórnarinnar, ákveðin lækkun á smásöluverði kart- aflna sem svarar 0,7 stigum. Þessi verðlækkun er greidd niður af ríkissjóði að svo miklu leyti sem tekjur af er- lendum kartöflum — innflutt- um á þessum vetri — hrökkva ekki til þessara útgjalda. — Aðrar breytingar í aprílmán- uði voru ekki teljandi. Iðnskólanum gefnar kennslu- skuggamyndir og stillitæki í gærdag voru Iðnskólanum í Keykjavík færðar að gjöf 96 lit- skuggamyndir, — ásamt texta með hverri mynd. Eru þessar myndir ætlaðar til kennslu á viðhaldi og stilíingu olíukyndi- tækja á sérstökum námskeiðum fyrir rafvirkja og rafvélavirkja I skólanum. Gjöf þessa aflhenti Helgi Tlhor- valdsson, forsitjóri AiLuminium & blilcksmiðjunnar h.f. við Suður- landsibraut 10, — gaf Helgi jafn- framit fyrirheit um aðra gjöf sfð- ar, — sérstalkit sett af sitillitælkj- um og mælum frá B.I.I.C. í Pitts- burg, Bandaríkjunum. Eru lit- skuiggamyndirnar lýsingar á þessum mælum og stillitækjum og hvemig þau eru notuð við ölíuikynditækin. Þá útskýrði Ágúst Karlsson, kennari og tæknifræðingur hjá Olíufélaginu h.f. og sýndi jafn- framt sett af svona mælum, en það eru mælar fyrir kolsýrling, kolsýru, brennisteinsvatnsefni og súrefni, mælar til leitar á ýms- um gastegundum og edtruðum gufum, mæilar fyrir loftstreymi, raika, þrýsting og hita, sjálfrxt- andi línuritsmælar, súg- og reyk- msalar fyrir kynditseiki, nýtnis- mælar fyrir olíukynditæki svo að eitfihivað sé nefnt. Svóna mælasett toostar um sex þúsund krónur og rfkir furðu- legt tómlæti um svona hluti í a.tvinnulífinu, sagði Helgi Thor- valdsson. Mér er ekki kunnuigt um að kyndistöðin inn- við Blliðaárvog eigi sivona mæla, sagði Heigi, og brennir hún þó um 60 tonnum af ollíu á sólarhring, — en fúilyrt er, að notkun á svona mælum getd sparað um 4% til 8% í nýt- Framhald á 7. síðu. t; Út er komin ný félagsbók Máls og menningar, Mannleg greind — þróunarskilyrði hennar og hlutverk í siðmenntuðu þjóðfé- Iagi, eftir Matthías Jónasson. I formála gerir höfundur svo- fellda greind fyrir venki sínu:„Sið menntuð nútímaþjóð hefúr ek'ki ráð á að láta aflburðagreinda unglinga fara á mis við viðeig- andi menntun sökum fjárskorts þeirra, afskekktrar búsetu eða jafnvel ókunnu^lei'ka þeirra Afli Suðureyrar- báta í apríl sl. Suðureyri 9/5 — Afli Suður- eyrarbáta í apríl var sem hér segir: Tonn í lögnum Ól. Friðbertss. 166,0 10 Friðbert Guðm. 141.1 10 Tonn í róðrum Síf 295,9 23 Vilborg 122,3 20 Stefnir 199,5 22 Páll Jónsson 191,2 21 Barðinn 285,5 21 sjálfra um eigin hæfileika og væntanlega menntabraut. Af sömu nauðsyn ber að nýta tak- markaða greind hins tomæma og efla hana til þroska, svo að hann verði nýtur samfélagsþegn. Án slíkrar hagsýni í menntunarvið- leitni sinni fær siðmenntað nú- tímaþjóðfélag ekki staðizt. Bók mán er ofunlítið framlag til lausnar þessa vanda. I henni reyni ég að skýra manniega greind í verund sinni og þróun, þann sálarlífslþátt sem mestu ræð- ur um árangur og árangursleysi í námi. Ég leitast við að sýna, hvaða tök eru á mælingu eða vísindalegu mati greindar og hvaða vanda slílct mat er bund- ið. Jafnfnamt er reynt að gera •grein fyrir þeim samfélagslegu aðstæðum, sem ráða verulega þróunarsldlyrðum greindar og hlutdeild hennar í framvindu menningarinnar. Höfundur styðst vitanilega við skoðanir margra vísindamanna en bókin er þó ekki sáður vaxin upp af rann- sófcnum hans á íslenzkum umg- mennum, mikílum námsafrékum þeirra annarsvegar og hönmu- legum mistöioum í námi hins- vegar.“ Þá er þess að geta að baaöi þúsundir bama og unglinga og skólastjórar hafi sýnt hjálpsemi í sambandi við þessar rannsókn- ir og að Vísindasjóður hafi tvisvar veitt fé til þeirra. Bólkin, sem er 304 bls. skiptist í fjóra þætti, 'heitir sá fyrsti Hvað er greind?, annar Eðlisgreind og umJhverfi, þriðji Greindarmat og greindar- mælingar, fjórði Framvindulhlut- verk greindar. Átök í Hongkong HONGKONG 11/5 — Til átaka kom í dag milli lögreglu og hundraða , kínverskra verka- manna í Hong Kong, og hrópuðu verkamenn Maósinnavígorð og hentu grjóti í lögreglumenn. Á- tök þessi spretta af vinnudeilu í gerfiblómaverksmiðju, þar hefur 20 verkamönnum verið sagt upp vinnu sakir þess að þeir væru óþarfir og 1000 hafa um hríð verið atvinnulausir fyr- ir sakir verkbanns. Það gcrast nú daglega tíðindi að „viðreisnar‘‘stjómin setji ný bráðaþirgðalög — til að bjarga „viðreisninni“. Vaori ekki óvið- eigandi að stjómin tæki upp gamla auglýsingaorðið: Einn banani á dag setur meltinguna í lag — með smábreytingu þó. Ein bráðabirgðalög á dag setja „viðreisnina í lag“. Að þessu sinni fjalla bráða- birgðalög um ráðstöfun á áfgangi fjár er verja átti til verðuppbótar á ferskfiski og eru þau svohljóð- „Porseti Islands gjörir kur.nugt: Sjávarútvegsmálaráðlherra hef- ur tjáð mér, að útvegsmenn hafi orðið fyrir stórkostlegu veiðar- færartjóni á s.l. vetrarvertíð og beri nauðsyn til að hlaupa hér undir bagga. Br frumvarp til laga um ráðstafanir vegna sjávarút- vegisins var- lagt fram á síðasta Alþingi hafi verið gert ráð fyrir að verðbætur á fersk- fisk samkvæmt 1. grein lag- anna myndu nema allt að 100 milljónum króna á árinu 1967. Vegna aflaleysis á siðustu vetrar- vertíð sé Ijóst, að verðbætur sam- kvæmt 1. gr. laganna verði a.m. k. 12,5 milljónir króna lægri en gert var ráð fyrir. Sé því/rétt að verða við eindregnum óskum út- vegsmanna, að þessari fjáiihæð verði varið til greiðslu upp í framangreint veiðarfæratjón. Fyrir því ern hér með sett bráðabirgðalög samkvæmt 23. gr. stjórnarskrárinnar. 1. gr. Aftan við 1. gr. laganna komi ný málsgrein svohljóðandi: Auk þeirra verðuppbóta, sem um rasðir í 1. mgr. þessarar greinar er heimilt að greiða úr ríkissjóði 12,5 milljónir króna til að bæta útgerðarmönnum tjón á fiskinetum, er þeir hafa orðið fyrir á vetrarvertíð 1957. Lands- samband íslenzkra útvegsmanna skal ráðstafa þessu fé í samráði við Fiskifélag fslands. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi“. Gjört að Bessastöðum, 11. maí 1967. Ásgeir Ásgeirsson (L. S.) Verk Jakobínu Sigurðardóttur kynnt Menningar- og friðarsamtök kvenna efndu til mjög fjöl- sóttrar og vel heppnaðrar kynningar á verkum Jakobínu Sigurðardóttur á miðviku- dagskvöldið. í upphafi samkomunnar minntist fonnaður MFÍK María Þorsteinsdóttir, friðar- dagsins. Amheiður Sigurðar- dótttr magister flutti greinar- gott erindi um Jakobínu Sig- urðardóttur, rakti æviferil hennar og skáldferil og gerði grein fyrir stöðu hennar í íslenzkum bókmenntum. Þá las skáldkonan sjálf upp úr ó- prentuðu verki sínu við mikla hrifningu viðstaddra. Að loknu hléi var í upp- lestri gefinn þverskiurður af verkum J akobínu. — Helga Hjörvar las úr ljóðum henn- ar, Vilborg Dagbjartsdóttir las kafla úr ævintýrinu Saga af Snæbjörtu Eldsdóttur og Ketilríði kotungsdóttur, Bryn- dís Schram las kafla úr Dæg- urvísu og Guðrún Stephensen söguna „Maður uppi í staur" úr safrrinu „Púnktur á skökk- um stað“. — Á myndinni sér yfir Muta fundarmanna. IMNHfllinil

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.