Þjóðviljinn - 16.06.1967, Page 5
Föstudagur 16. júní 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
209 miljónir í tjónabætur
hjá Samvinnutryggingum
Aðalfundír Samvinnutrygg-
inga og Líftryggingafélagsi ns
Andvöku voru haldnir að Hótol
Sögu 2. þm. Fundina séibu 21
fuUtrúi víðswegar að af landinu
auk stjómar og nokikurra starfs-
manna félaganna.
1 upphaEi fundanna minntist
formaður st.iómarinnar, Erlend-
ur Einarsson, forstjóri, tveggja
starfsmanna félaganna, sem lát-
izt höfðu frá hví að síðasti
aðalfundur var haldinn, þeirra
Gunnars Steindórssonar, fluíil-
trúa, og Þorsteins Jakobssonar,
tryggingamanns.
Fundarstjóri var kjörinn Jak-
ob Frímannsson, stjómarfor-
maður Sambandsins, en fundar-
ritarar þeir Óskar Jónsson, fulí-
trúi, Selfossi, Þorgeir Hjörleifs-
son, deildarstjóri, Isafirði, og
Jón Einarsson, fullltrúi, Eorgar-
nesi.
60% afsláttur af iðgjaldi
Formaður stjórnarinnar, Er-
lendur Einarsson, forstjóri,
flutti skýrsilu stjómarinnar og
gat þess, að þetta væri tuttug-
asti aðalfundur Samvinnu-
trygginga, sem voru stofnaðar 1.
september 1946. í tilefni 20 ára ^
afmælis félagsins, 1. septemiber
s.l., afhenti það Styrktarfólagi
vangefinna að gjöf kr. 100 þús.,
eins og áður hofur komið fram
£ fréttum. Rakti hann í ræðu
sinni sögu félagsins og þess
merka staivfs, sem fólagið hefur
unnið á sviði vátryggingamáia
hér á landi. Hann skýrði og frá
helztu framkvæmdum félagsins
á s.l. ári, og kom þar m.a. fram
að félagið hafði í byrjun arsins
tekið upp nýja tegund trygg-
ingar — ÖF-tryggingu — sem |.
tryggir ökumenn bifreiða og
dráttarvéla auk farþega í einka-
bifreiðum. Þá kom og fram í
skýrslu stjórnarformannsins, að
nýtt bónuskerfi hafði verið tek-
ið upp í ábyrgðartryggingum
bifreiða, og tók gildi 1. mai
1966. Samkvæmt því fá gætnir
ökumenn allt upp í 60% aifsilátt
af iðgjaldinu eftir 5 ára tjón-
lausan akstur, auk 10 ára viður-
kenningar, sem félagið tók upp
á 15 ára afmælinu, árið 1961.
Ásgeir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri, las reikninga fé-
laganna og skýrði þá, jafnframt
því, sem hann flutti ýtarlega
skýrslu um starfsemi fólagsins
á árinu 1966. Hann skýrði fra
því, að helzta einkenni érsins
1966 hefðu verið hin gffurlega
aukning tjónatoóta, en þetta
væri í fyrsta skipti, sem heild-
artjónin væru meiri en heilidar-
iðgjöldin. Auk þess hefði rekst-
urskostnaður hækkað og erfið-
leikar með alla inntoeimtu auk-
izt, hvort heldur væri iðgjöld
eða afborganir og vextir af lán-
um.
Haldið var áfram stófnun
klúbbanna öruggur akstur, sem
nú eru orðnir 25 að tölu í öll-
um landsifjórðungum, en mark-
mið þessara klúbba er að stuðla
að auknu umferðaröryggi og
betri umferðarmenning í við-
komandi byggðarlögum.
Samvinnutryggingar beittu sér
í byrjun ársins 1966, ásamt hin-
um bifreiðatryggingafélögunum,
fyrir umferðarráðstefnu í jan-
úarmánuði 1966, en sú ráðstefna
varð undanfari samtakanna
VÁV — Varúð á vegum —
Mikil aukning iftg.jalda
HeiHdariðgjaldatekjur Sam-
vinnutrygginfea námu á árinu
1966 kr. 206.5 miljónum •tg
höfðu iðgjöldin aukizt um kr.
20.0 milj. eða 19.74% frá árinj
1965. Er um að ræða aukningu
iðgjalda í öllum tryggingagrein-
um nema ökutæ.kjatryggingum,
sem stafar af breytingu þeirri,
sem gerð var á bóhuskerfi á-
byrgðartrygginga bifreiða vorið
1966, og áður var getið um.
Heildarstjórn Samvinnutrygg-
inga námu á árinu 1966 kr.
209.4 milj. og höfðu þau aukizt
um kr. 60.3 milj. eða 40.47%
fré árinu 1965. Eins og áður
segir hafa tjónabætur félagsins
aldrei orðið eins háar og sl. ár,
enda fóllu mörg stór tjón á fé-
lagið ein'kum í sjó- og bruna-
tryggingum. Stærsta tjónið nam
kr. 18.4 milj. Tjónaprósentan
árið 1966 var 101.38% á móti
79.92% árið áður.
Nettóhagnaður af rekstri
Samvinnutrygginga árið 1966
nam kr. 477.506, eftir að endur-
gréiddur hafði verið tekjuaf-
gangur til tryggingartakanna að
fjárhæð kr. 1.050.500. Eru þá
slikar endurgreiðsllur tekjuaf-
gangs orðnar frá upphafi kr.
62.8 milj. Bónusgreiðslur til
Framhald á 7. síðu.
Tónskáldafélagið
minnir á tillögur
Frá Tónskáldafélagi Islands
hefur Þjóðviljanum borizt
greinargerð, þar sem rifjaðar
eru upp gamlar tillðgur félags-
ins um flutning íslenzkra tón-
vcrka í Ríkisútvarpinu. Sumar
þessara ttnagna hafa vcrið
framkvæmdar, öðrum mun ekki
hafa verið sinnt. Tillögurnar
cru svoliljóðandi:
» 1.) Að minnsta kosti eitt 's-
tenzkt. tónverk sé í hverjuin
dagskrárlið tónlistar hjá Rfkis-
útvarpinu, svo sem morgun-
tónieikum, danslagatímum, sin-
fóniskum tónileifcum, kmrner-
tónleikum, kirkjutónleikum o.s.
frv.
2.) Samráð sé haft við tón-
164.700 fjár var
slátrai hjá S. S.
Nýlega voru halldnir í Rvik
deildafulltrúafundur og aðal-
fundur Sláturfélags Suðurlands.
Fundarstjóri var Pétur Ottesen,
fyrrv. alþm., fonmaður fólagsins.
og fundarritari Þorsteinn Sig-
urðsson, formaður Búnaðarfé-
lags Islands. 1 skýrslu, sem for-
stjóri félagsins, Jón H. Bengs,
flutti um starfsemi fólagsins ð
árinu sem leið, var m.a. greint
frá því, að heildar'vönusala fé-
lagsins na.m 461 miljón króna á
árinu og hafði aukizt um 101
miljón frá árinu 1965. Félagið
starfrækir nú, eins og áður, 8
sláturhús á Suðurlandi og var
slátrað alls 164.700 fjár. Meðai-
þungi dilka í sláturhúsunum
var 12.68 kg, en var 13.69 kg
árið 1965. Sauðfjársilátrun hafði
aukizt um 24.700 fjár, eða 17%
frá árinu á undan. Stórgripa-
slátrun jókst mjög mikið á ár-
inu, alls var slátrað hjá féllag-
inu 10.750 stórgripum. Þar af
6.470 nautgripum, sem var um
2.900 gripum fleira en árið 1965.
Svínakjötsframleiðsla fer stöð-
ugt vaxandi.
SDártórfélagið hefur nú starfað
í 60 ár. Það var stófnað 28. jan-
úar 1907. I sláturhúsum félogs-
ins er nú ailils hægt að siátra
6.700 fjár a dag, og fólagið rek-
ur frystihús, kjötvinnslustöövar,
pylsugerð, n iðursuðuverksmi ðj u,
ullarverksmiðju, sútunarverk-
smiðju og 11 matanbúðir. Á að-
alfundi S.S. nú, höfðu lokið
kjörtíma sínum þeir Gísli And-
résson, Hálsi í Kjós, og Sigurð-
ur Tómasson, Bankai’stöðuni,
Fljótsihlxð. Voru þeir báðir end-
urkjömir. Auk þeirra skipa
stjórnina Pétur Ottesen, fyrrv,
allþm., sem er fonmaður, Helgi
Haraldsson, Hrafnkellsstöðum og
Sigigeir Lárusson, Kirkjutoæjar-
klaustri.
★
1 sambandi við aðailfund fé-
lagsins, var efnt til kvöldfagn-
aðar fyrir fundanfuílltrúa og
konur þeirra tiil þoss að minn-
ast 60 ára afmælis félagsins á
þessu ári. Vanu þar margar
nasður fluttar, Magnús Jónrason
óperusöngvari söng einsöng og
flokkur frá Þjóðdansafélagi R-
vfkur sýmíi þjóðdansa og að
lofcum var stigimi dans.
skáldin eða rétthafa verkanna
um samsetningu dagskrár og
kynningu verka þeirra.
3. ) Stofnað sé auk þess til yf-
irlitskynningar á verkum að
minnsta kosti eins íslenzks tón-
skálds á hverju ári, þannig að
kynnt séu öll tónverk viðkom-
andi tónskálds með áframhald-
andi dagsiknáiliðum í alllt að því
heillan klukkutima á hverri vifcu
eða á fárra vikna fresti, ">c
verkin annaðhvort flutt og
skýrð eða sagt greinilega frá
l>eim, sem ekki reynist fært að
flytja í bili, og skýrt frá orsök-
um til þess með rækilegum rök-
um.
4. ) Samin sé nákvæm yfirlits-
skrá um öll íslen2Ík tónverk,
som flutt hafa verið í útvarpinu
og skrá um hljóðritanir ís-
lenzkra tónverka, sem til eru í
fórum útvarpsins, en auk þe&s
áætlun um hljóðritun íslenzkra
tónverka fyrir útvarpið í fram-
tíðinni.
5. ) Einum ákveðnum starfs-
manni hjá Ríkisútvarpinu sé
falin framkvæmd ofangreindra
atriða, og honum séu að
minnsta kosti fyrst um sinn
ekfci ætluð önnur störf hjá it-
varpinu en einmitt þessi.
0.) Honum og tónlistardeild
útvarpsins til aðstoðar sé skip-
uð dagskrárnefnd tónlistar með
svipuðum hætti og hjá öðrum
útvarpsstöðvum, og Tónskálda-
félag ísilands eigi þar að
minnsta kosti einn fulltrúa,
kjörinn á aðalfund þess. Nefnd-
in haldi fundi svo sem einu
sinni í mánuði til þess að ganga
frá dagskrártiiilögum tónlistar
til útvarpsráðs.
7. ) Þegar íslenzkt tónverk er
flluitt í allra fyrsta sinn hjá út-
varpinu, þá skal það flutt aftur
— að minnsta kosti fjórum
sinnum að ekki meira en einni
vik,u eða örfáum vikum liðnum
á milli hverrar endurtekningar,
svo að hlustendum gefist kostur'
á að kynnast því og venjast þv;.
8. ) A hverjum degi kl. 12 til
12:25 séu flutt eingöngu létt fs-
lenzk lög.
9) A hverjum degi strax qftir
fyrri kvöldffréttir séu fllutt æðri
íslenzk tónverk eingöngu í svo
sem 25 mínútór að minnsta
kosti.
Risaf)otur frá Boeing
• Eftir fáa daga er Boeing-
þota FlURfélags íslands vænt-
anleg hingað til lands, mikill
og fullkominn farkostur. Nú
eru í smíðum hjá Boeingverk-
smiðjunum í Bandaríkjunum
enn stærri farþegaþotur, m.a.
þær sem bera tegundarhcitið
Boeing 747 og eiga að geta
flutt milli 350 og 490 far-
þega í einu. Gert er ráð flyrir
að þotur af þessari gerð verði
tcknar í notkun í almennu
farþegaflugi árið 1970. Mynd-
irnar gefa til kynna hversu
stórar þotur þessar verða og
sýna jafnframt að ætiunin er
að veita farþegunum ýmsa þá
þjónustu á flugleiðunum sem
nú þekkist lítt eða ekki —
þama verður t.d. vínstúka á
fyrsta farrými (neðsta mynd-
in — sjá stigann upp) og góð
aðstaða til kvikmyndasýninga,
sem ýmis flugfélög hafa reynd-
ar þegar tekið upp á lengrí
flugleiðum.
Margir á biðlista
Tollvörugeymslunnar
Aðalíundur Tollvörugeymsl-
unnar h.f. var haldinn fyrir
nokkru.
Formaður stjórnarinnar, Al-
bert Guðmundsson, stórkauii-
maður flutti yfirlit um störf
honnar og kvað þau einkum
Drekahaus frá 9.
ö!d seldur á um
1,3 milj. króna
LONDON 14/1 — Útskorinn
(Jrekahaus úr tré, sem talinn er
vora frá níundu öld var í gær
seldur á uppboði í London fýrir
11.000 sterlingspund eða rúm-
lega 1,3 milj. kr. Drekahausinn,
sem mun vera af víkingaskipi
fannst í botnleðju flljóts f Belgíu
á síðusta striðsárum.
hafa beinzt að því að reyna
að útvega fé til áframhaldandi
byggingarframkvæmda, þar
sem núverandi húsnæði væri
orðið alltof lítið og mikil á-
sókn að komast í geymsluna og
fá pláss þar. En hann skýrði
frá að því miður þá hefðu
jressar tilraunir ekki borið ár-
angur ennþá.
Helgi K. Hjálmsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, flutti
skýr9lu um rekstur fyrirtækis-
ins. Gat hann þess að 65 að-
ilar væru á biðlista og íyrir-
liggjandi væru pantanir, sem
myndu nægja til að fylla
3 til 4000 íern\ vöruskemmu.
Aukning á leigutekjum á ár-
inu nam 25%. En aukning á
afgreiöslum varð 49% á ár-
inu 1966 miðað við árið 1965,
enda hefur verið um að ræða
gjörnýtingu á geymsluplássi
allt árið. — í skýrslu Hélga K.
Hjálmssonar kom einnig fram
að hluthafar eru nú orðnir
306.
Framkvæmdastjórinn las upp
reikninga félagsins og skýrði
þá. í þeim kom í ljós að eign-
ir félagsins nema nú röskum
12 miljónum króna.
Stjórn félagsins og vara-
stjómnvar öll einróma endur-
kjörin, en hún er þannig skip-
uð: Formaður: Albert Guð-
mundsson, varaform.: Hilmar
Fenger, féhirðir: Einar Far-
estveit og meðstjómendur: Sig-
urliði Kristjánsson, Jón Þór
Jóhannsson. Varastjóm: Bjami
Bjömsson og Þorsteinn Bem-
harðsson.
Táragasá stúd-
enta í Seoul
SEOUL 13/6 — Lögreglan í
Seoul beitti táragasi og kylf-
um gegn u.þ.b. I00ft stúdent-
um sem fóru í kröfugöngu til
að mótmæla framkvæmd þing-
kosninga í Suður-Kóreu í fyrri
viku — segja þeir að ekki hafi
verið farið að lögum. Um
tuttugu stúdentar voru hand-
teknir.