Þjóðviljinn - 25.07.1967, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.07.1967, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 25. júlí 1967 — ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA g fslandsmótið. 1. deild: Akureyri—Fram 1:0, fyrsti tapleikur Fram á sumrinu □ Akureyi'ingar urðu fyrstir til að sigra Fram á þessu keppnistíma'bili í sinni óslitnu sigurgöngu að undan- fömu (fimm sigurleikir í röð) sl. sunnudag með einu marki gegn engu. Fram hefur aftur á móti unnið tvo léiki en gert fjögur jafntefli í þessu íslandsmóti. Ég myndi segja að Akureyringar hafi verið heppnir að sigra, jafntefli hefði verið sanngjarnara eftir öllum gangi leiksins. Akureyringar geta fyrst og fremst þakk- að þennan sigur hinum frábæra miðverði Jóni Stefánssyni. Á honum brotnuðu nær allar sóknarað- gerðir Framara sem voru margar og þungar, sérstak- lega í fyrri hálfleik. Leikurinn var allan tímann heldur þófkenndur en þó áttu bæði liðin nokkur góð mark- tækifæri og þeir Framarar öllu fleiri og hættulegri. Til að mynda var Helgi Númason í dauðafæri á 13. mín. en skaut framhjá mannlausu markinu. Fjórum mínútum seinna stóð Erlendur Magnússon óvaldaður á markteig, en á einhvem ó- skiljanlegan hátt skaut hann yfir markið Hreinn Elliðason var með boltann á markteig á 37. mín. og hafði nógan tíma til að athafna sig en skaut yfir. Baldur Scheving í Fram og Magnús Jónatansson IBA háðu oft einvígi um knöttinn, og gekk á ýmsu eins og sést á þessari mynd og tvídálka myndinni liér á síðunni. Sótt og varizt af hörku. Anton Bjarnason, miðvörður Fram, situr á kncttinum og dró hann þann- ig klemmdan milli fóta sér þó nokkum spöl inni í vítateig, en Skúli Ágústsson reynir að krækja í knöttinn. — (Ljósm. Þjóðv. H.K.). Þeitta eru aðeins nckkur dæmi úr fyrri hálflleik, fyrir utan allar þær sóknir sem brotnuðu á Jóni Stefánssyni. 1 þessum hálfleik áttu Akureyringar eng- in tækifæri sem umtalsverð eru. 1 seinni hálfleik snerist dæm- ið við. Akureyringar komu sem allt annað lið inniá eftir hlé og héldu'' uppi mikilli sókn mest allan seinni hálflleik. Strax á 7. mín. s.h. komst Þormóður h. útherji Akureyringa í -gott færi og skaut en Hallkell í Frammarkinu varði naumlega. Nokkrum mínútum síðar komst Þormóður aftur í dauðafæri, en skaut framhjá. Kári Ámason komst innfyrir alla Framvörn- ina en missti böltann of langt frá sér og ekkert varð úr þessu góða tækifæri. Þetta var á 25. mín. Svo var það á 30. mínútu að Kári fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Framara og brunaði upp völlinn og komst innfyrir Framvömina. Hadlkell kom út á móti og hálfvarði skot Kára, en boltinn hafnaði í netinu, 1-0 fyrir Akureyringa. Við þetta mark gáfúst Framar- ar hreinlega upp, allir nema Baldur Schevihg, en uppgjöf er áreiðanlega óþekkt hugtak hjá honum. Akureyringar aft- ur á móti drógu sig allir í vörn til að hætta engu, svo að úr varð leiðinda miðjuþóf. 6g held, eins og áður sagði, að jafntefli hefði verið sanngjörn- ustu úrslit leiksins. En Akur- eyringar höfðu heppnina með sér nú og ef til vill þarf alltaf örlitla heppni til að vinna. Llðin: Jón Stefánsson, miðvörður I.B.A., er í algjörum sérflokki í sínu liði og að’ mínum dómi hlýtur hann að öðlast aftur sæt.i- sitt í landsliðinu. Að öðru leyti er Í.B.A. liðið noikkuð jafnt og í því felst aðalstyrkur liðsins. Skúli Ágústsson og Kári Áma- son skera sig ef til vill svolítið úr, annar með sínu góða auga fyrir samleik, en hinn mað- hraða sínum. Framliðið var án sfns eina landsliðsmanns Elmars Geirs- góðu formi. Annars voru Anton Sigurðsson, Baldur Scheving og Erlendur Magnússon beztu menn liðsins. Einar Ámason cr hraðvaxandi leikmaður og með sama áframhaldi verður hann einn ok'kar bezti knattspyrnu- maður. Jóhann Atlason og Hrannar Haraldsson áttu báðxr góðan leik. Dóonari var Baldur Þórðarson og er. langt síðan ég hef séð hann dæma sxv>na vel. Það sem helzt hefði mátt finna að er. Það kom að vísu ekki að sök í þessum leik, þvi að hann var prúður, en það er alltaf hætta á að leikir fari út í hörku, ef dómari dæmir of lítið. S.dór. Staðan í 1. deild: L V J T M St. Valur 8 5 2 0 16-13 12 ÍBA 8 5 0 3 19-10 10 Fram 7 2 4 1 8-7 8 I.B.K. 8 3 2 3 7-8 8 K.R. 7 3 0 4 13-14 6 Í.A. 8 10 7 8-19 2 sónar og veikti það liðið mjög : að hann hafi daemt- full lítið. mikið sem yonlegt er; það^ munar um minna en Elmar í Þjóðhátíðin i Eyjum haldin 4.-5. ágúst Valur sigraSi Valur varð íslandsmeistari í handknattleik kvenna í 2. fl. en mótið fór fram í Vestmanna- eyjum um halgina. 10 lið tóku þátt í mótinu, og léku Vallur og Þór í Vest- mannaeyjum til úrslita. Valur sigraði með 5 mörkum gegn 1. fslandsmótið í hand- knattleik utanhúss 1 kvöld verða leiknir tveir leikir í karlaflokki í Islands- mótinu í handknattleik utan- húss, sem haldið er við Lækjar- skólann í Hafnarfifði. Keppni hefst kl. 8.00 og leilca fyrst KR og IR og síðan FH og Víkingur. Dómarar verða Ragn- ar Jónsson og Valur Benedikts- son. Næst verður leikið á föstu- dagstevöld, Þjóðhátíðin í Vestmannaeyj- um verður haldin dagana 4. og 5. ágúst n.k. og sér Knatt- spymufélagið Týr um hátíðina að þessu sinni. Eins og endranær mun verða mikið um íþróttir á hátíðinni og vill Týr sérstaklega hvetja fþróttamenn, sem verða munu f Eyjum um þjóðhátíðina að taka þátt f þéim. Þeim sem hafa áhuga fyrir að kbma til keppni mun verða séð fyrir ókeypis húsnæði og fæði, ef þeir láta vita nógu; timanlega. Vilji einhverjir íþróttaflokkar koma á hátíðira mun að sjálf- sögðu verða tekið á móti þeim á sama hátt, komi þeir fram í keppni eða ‘sýningu. Þeir sem áhuga hafa á því að heimsækja Eyjar í þessu skyni um þjóðhátíðina hafi samband við Reyni Guðsteins- son á skrifstofu félagsins sími 98-1080 milli kl. 16 og 19 alla virka daga nema laugardaga: (Frá Knattspyrnufélaginu Tý) Valur vann ÍA 2:1 sjá frásögn á bls. 4. Loksins komst Kef lavíku rliðið „í m m gang" og sigraði KR-inga með 2:0 □ Eftir slælega frammistöðu tmdanfarið komst Í.B.K. liðið loks í „gang“ og sýndi hvað í þvi býr s.l. sunnu- dagskvöld, er Keflvíkingar gjörsigruðu KR-inga með 2-0. Eftir gangi leiksins hefði sá sigur getaö orðiö stærri, en frábær markvarzla Guðmundar Pétursson- ar. í KR-markinu kom í veg fyrir það. KR-ingar misstu þama endanlega allan möguleika til sigurs í mótinu, og meira að segja gæti sú staða komiö upp, að þeir lékju úrslitaleik um fallsætið við Skagamenn. Gamla máltækið „öðruvísi mér áður brá“ á vel við núna. Keflvíkingar sýndu það strax i byrjun að þeir voru staðráðmr í að ná sigri. Fyrsta tækifærið kom á 2. minútu, er Karl Her- mannsson skaut rétt yfir mark- slá úr góðu færi. Á 8. mín. kom svo fyrra mark Keflvík- inga. Jón Jóhannsson gaf vel fyrir markið frá hægri, en KR- ingar hreinsuðu fró, boltinn fór til Friðriks Ragnarssonar, ný- liða í I.B.K. liðinu, sem s'kaut viðstöðulaust óverjandi fyrir Guðmund Péfcursson 1-0. Góð byrjun hjá kornungum pilti. Við þetta mark tvíefldust Keflvíkingar og sóttu nær lát- laust út allan fyrri hálfleik en tókst þó ekki að skora. Mark- varzla Guðmundar Péturssonar var oft á tíðum stórikostleg i þessum leik, þó sérstaklega í fyrri hálfleik. Þetta var þeim mun betur gert hjá Guðmundi, þar sem hann var með al- ómögulega vöm fyrir framan sig, sem nær engin stuðningur var í, nema aðeins Ársæii Kjartanssyni einum. Framan af seinni hálfleik hélt sama sagan áfram, IBK sótti nær látlaust. Á 10. mín, sendi Sigurður Albertsson boltann innfyrir KR-vömina og Jón Jóhannsson hljóp alla af sér og skoraði mjög faliilega 2-0. Þar með var útséð með úrslit leiks- ins. Um miðjan seinni hálfleik drógu Keflvíkingamir sig aillir aftur og vörðust það sem eftír var. KR-ingar áttu aðeins eitt dauðafæri sem kallað er, þegar Baldvin Baldvinsson skaut í stöng og boltinn hrökk til Jó- hanns Reynissonar sem skaut en Guðni Kjartansson bjargaði á línu. Mikil haiika var i þessum leik og áttu nokkrir KR-ingar sök á því. Bæði Baldvin, Elllert Sehram og Bjami * Felixson reyna að bæta upp getúleysið með mjög ógeðfelldri hörku og ruddaleik, sérstaklega Baldvin og Bjarni. Til að mynda þegar Baldvin sló Guðna ’Kjartansson í fyrri hálfleik, er boltinn var víðs fjarri. Þetta er með þvi ruddalegasta sem sézt hefur í mörg ár á knattspyrnuvelli hér- lendis., Eg spurði Stein Guð- mundsson dómara eftir leikinn, hvi hann hefði ekki rekið Baldvin af léikvelli, eins og lög gera ráð fyrir eftir svona gróft brot. Steinn sagðist ekki hafa séð atvikið, sem eðlilegt er, þar sem boltinn var hinummeginn á vellinum. Aftur á móti sagð^ ist Steinn hafa séð línuvörðinn veifa og farið og talað við hann og línuvörðurinn þá sagt sér frá hvað Baldvin hefði gert. Steinn Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.