Þjóðviljinn - 16.09.1967, Blaðsíða 1
Laugardagur 16. september 1967 — 32. árgangur— 208. tölublað.
Fundur / Alþýðubandaluginu í Reykjuvík
Q Félagsfundur verður haldinn í Alþýðubandalaginu í Reykja-
vík næstk. miðvikudag á Hótel Sögu. Hefst fundurinn kl. 20.30. M.a.
verður kosið á fundinum fulltrúaráð fyrir félagið og liggja tillögur
stjórnarinnar um fulltrúaráð frammi á skrifstofu félagsins á mánu-
dag og þriðjudag frá kl. 2 til 7 síðdegis.
Niðurgreiðslur vöruverðs
950 miljón krónur á ári!
■ Niðurgreiðslur á vöruverði hafa sem kunnugt er
sífellt verið að aukast að undanförnu, síðast í september
þegar niðurgreiðslur á k'jöti voru stórhækkaðar til þess
að „verðstöðvunarstefnan" fengi staðizt. í heild nema nið-
urgreiðslumar nú um 28 vísitölustigum. Á þann hátt er
vísitala framfærslukostnaðar látin standa í stað í 195 stig-
um, en séu riiðurgreiðslurnar reiknaðar með er raunveru-
leg framfærsluvísitala 223 stig.
30-40 miljónir kr. hvert stig
Kostnaður við að greiða niður vísitölu nem-
ur 30-40 miljónum króna á ári á hvert vísitölu-
stig, mismunandi eftir því hvaða vörur verða fyr-
ir valinu. Miðað við almenna neyzlu eins og hún
er nú imunu niðurgreiðslurnar yfirleitt ekki .vega
upp þær verðhækkanir sem koma til fram-
kvæmda, þannig að í niðurgreiðslukerfinu felst
nokkur kjáraskerðing fyrir flesta. Kostnaður við
að greiða niður 28 vísitölustig- jafngildir um 950
miljónum króna á ári — nærri því miljarði!
Niðurgreiðslurnar auknar
1. september s.l. voru niðurgreiðslurnar auknar um 2,2
vísitölustig. Voru tvö stig fengin með því að lækka verð
á kjöti eri 0,2 með því að greiða niður sumarkartöflur. Nið-
urgreiðslur þessar voru látnar mæta verðhækkunum á gas-
olíu, hækkuðum opinberum gjöldum og hækkun á húsnæð-
islið vísitölunnar. Hækfcunin á gasolíu hafði hækkað vísi-
töluna fyrir „hita, rafmagn o.fl.“ um 10 stig, í 204 stig.
Vísitalan fyrir „opinber gjöld“ hækkaði um 6 stig, í 151
stig. Vísitala „húsnæðis" hækkaði um 6 stig í 150 stig, en
þar er aðeins fafið eftir byggingarvísitölu en ekki eftir
raunverulegu ástandi á húsnæðismarkaðnum. Allar þessar
Fjölbreytt a-þýzk
bókasýning hjá MM
□ I dag verður opnuð fyrir almenning austur-þýzk
bókasýning í húsakynnum bókaverzlunar Máls og menn-
ingar. Á sýningunni eru um það bil 1000 titlar, allt frá
sjaldhafnarútgáfum á furðuverkum bó'kagerðar til ódýrra
útgáfna á þýzkum samtímahöfundum.
ÞSóðviliinn
á morgun
Þjóðviljinn verður tólf síður á
morgun, sunnudag. Af efni
sunnudagsblaðsins skal sér-
staklega bent á tvær megin-
greinamar:
Jóhann Páll Árnason skrifar
fróðlega grein um nýkapítal-
isma og verkalýðsihreyfinguna
á Itaib'u. Þetta er fyrri hluti
greinarinnar, sem birtist á
morgun, síðari hlutinn kemur
í þriðjudagsblaðd.
Vilborg Harðardóttir blaðamaður
segir frá sérstæðri bílferð fyr-
ir nokkrum dögum, ferð lang-
ferðabifreiðar um sandana
miklu á Suðurlandi. Pylgja
greininni fjölmargar myndir.
Á blaðamannafundi í gær
skýrði Magnús Torfi Ólafsson
svo frá, að til þessarar sýningar
væri stofnað í samvinnu við það
fyrirtæki austurþýzkt sem annast
inn- og útflutning bóka og tíma-
rita og svo verzlunarfulltrúa
Þýzka alþýðulýðveldisins á ls-
Iandi. Hann sagði, að á sýning-
unni væru_um það bil 1000 titlar,
og væri fjölbreyttast bókaúrval
á sviði vísinda og tækni. Þárna
eru og alþjóðl. útgáfur á þýzk-
um rithöfundum og nýjum, ágæt-
lega vel út gefnar listaverka-
bækur, barnabækur, pólitísk rit
C|g margt fleira.
Þess var og getið að bækur
þessar væru yfirleitt fremur ó-
dýrar — þannig kostar t.a.m. tólf
bindá útgáfa á verkum Goethes
sem svarar 720 kr. — en þarna
er einnig til sölu nákvæm eftir-
mynd á miklu furðuriti — Astro-
nomiceum Caesareum, hinu síð-
Framhald á 7. síðu.
hækkanir voru vegnar upp með því að greiða niður mat-
vælavísitöluna um 7 stig, í 236 stig. Þannig hélzt fram-
fæi'sluvísitalan fyrir september óbreytt í 195 stigum.
Fjórir slösuiust í
bílveltu í gærdag
Q í morgun varð stórslys austur við Búrfell
er bíll sem flutti verkamenn valt þar í brattri
hlíð og voru fjórir menn fluttir stórslasaðir í
sjúkrahús. Mun þetta vera mesta slys sem orðið
hefur þar á vinnustaðnum, og er um að kenna
^vanrækslu verktaka að
fylgja settum öryggis-
ÖræfajökuÚ séður frá SkaftafcUi.
Náttúruverndarráð afhendir þjóðgarðinn
Skaftafell friðlýst og fengið
ríkinu til varðveizki í gær
□ Skaftafell í Öræfum
hefur nú verið friðlýst sem
þjóðgarður og var í gær af-
hent íslenzka ríkinu til
vörzlu. Afhenti formaður
náttúruverndarráðs, Birgir
Kjaran, Gylfa Þ. Gíslasyni
menntamálaráðherra jörðina
við hátíðl. athöfn á Skafta-
felli rétt fyrir hádegi í gær.
□ Við sama tækifæri var
reist á staðnum merki nátt-
úruvemdarráðs sem ætlunin-
er að auðkenni í framtíðinni
a'lla þá staði á íslandi sem
náttúruvemdar hjóta.
Veður var heldur leiðinlegt í
Öræfum í gær, rigning og súld,
en stytti upp meðan afhending-
in fór fram. Viðstaddir voru
náttúruverndarráðsmenn, full-
trúar menntamálaráðuneytisins,
bændur úr sveitinni, vegamála-
stjóri og fleiri gestir.
Birgir Kjaran hóf mál sitt með
því að segja að náttúruverndar-
ráð væri valdalítil stofnun þótt
hún ætti veigamiklu hlutverki að
gegna, að vera sáttasemjari
milli manns og lands. Minntist
hann þess, að ráðið hefði ný-
verið borið lægri hlut á bökk-
um Mývatns, en nú fagnaði það
sigri í skjóli hins volduga
Vatnajökuls.
Hann rakti aðdraganda þess
Framhiald á 7 síðu.
reglum, og auk þess er
grunur um að ökumað-
ur hafi verið undir áhrif-
um áfengis.
VI
Slysið varð um kl. 10.40 í gær-
morgun er bíll sem' var að flytja
menn í kaffi ofan úr grjótnám-
inu valt út af veginum. Níu
menn voru aftan á palli bíls-
ins, sem var af Pickup-gerð, en
slikir flutningar á fólki eru al-
gerlega bannaðir og verktökum
þar á staðnum höfðu verið gefn-
ar margar áminningar vegna
þess. Engu að síður sinntu þeir
engu þessu banni — héldu upp-
teknum hætti.
Vérkamennirnir sem voru aft-
an á palli bílsins töldu að öku-
maður hefði ekið mjög ógæti-
lega niður brekkuna og virðist
hann hafa misst stjórn á bíln-
um þar sem beygja var á veg-
inum. Var bílstjórinn fluttur til
Reykjavíkur og mun lÖgreglan
þar taka mál hans til rannsókn-
ar.
Bíllinn valt tvær og hálfa
veltu og var fallið um 10 metr-
ar. Farþegar slösuðust flestir en
fjórir þó mest og -yoru tveir
þeirra fluttir á sjúkrahús á Sel-
fossi og tveir til Reykjavíkur.
Einn þeirra brotnaði bæði á
hendi og fæti og hlaut auk þess
mikið höfuðhögg.
Menntamálaráöherra veitiv þjóðgaröinum viðtöku. — (Myndirnar tók ljósmyndari Þjóðviljans vh).
t