Þjóðviljinn - 16.09.1967, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 16.09.1967, Qupperneq 2
i 2 SlÐA — ÞJOÐVILJINN — Laugardagur 16. september 1967. Vilhjálmur Þ. Gíslason sjötugur Persónuleg kynni mín af Vil- hjálmi Þ- Gislasyni voru næsta lítil unz ég gerðist starfsmaður Menntamálaráðs fyrir röskum ellefu • árum. Hann hafði þá átt sæti i ráðinu nokkuð á annan áratug, og þar er hann enn í dag. Við höfum því haft allmikið saman að sælda nú um hríð, svo sem að líkindum lætur. Hafa þau samskipti ver- ið á þá lund, að ég finn hjá mér hvöt til að brjóta þá reglu mína að skrifa ekki afmælis- greinar- Bið ég því Þjóðviljann fyrir fáein þakklætis- og ám- aðarorð til Vilhjálms, sem er sjötugur í dag- Vilhjálmur Þ. Gíslason er fæddur í Reykjavík 16. sept- • ember 1897. Hann ólst þar upp á kunnu- menningarheimUi mikilhæfra foreldra, Þorsteins skálds og ritstjóra Gíslasonar og konu hans Þórunnar Páls- dóttur. Stúdent varð Vilhjálm- ur 1917 og lauk meistaraprófi i íslenzkum fræðum við Háskóla íslands 1923. Síðan stundaði hann um hrið framhaldsnám í Kaupmannahöfn, Osló, Löndon og Oxford. Snemma varð Vil- hjálmur þjóðkunnur maður fyrir ritstörf. Sökkti hann sér um hríð niður í íslenzka sögu og bókmenntir 18. aldar. Ávext- ir þeirra rannsókna voru tvö allstór rit, lslenzk cnduireisn (1923) og Eggert Ólafsson (1926). Var um þær mundir útlit fyrir að hann hygðist gera 18. öldina að kjörsviði sínu. En áhugamál Vilhjálms hafa löng- um verið af mörgum toga spunnin, maðurinn ekki við eina fjöl felldur í þeim efnum. Því gat naumast hjá því farið, að hann léti margt fleira en sagnavísindi á afmörkuðu sviði til sín taka. Hann hefur alla tíð verið starfsmaður mikill, enda eru ritstörf hans og margs konar opinber störf svo marg- þætt orðin, að ég ber ekki við að telja þau hér upp- Um þáu má lesa langar skrár í Kenn- aratali bg víðar.' Það veit líka hvert mannsbam, að um nær hálfrar aldar skeið hefur Vil- hjálmur verið einhver afkasta- mesti fræðari þjóðarinnar, sem rithöfundur, blaðamaður, fyrir- lesari, skólamaður og útvarps- stjóri. Ég gat þess, að persónuleg kynni okkar Vil’njálms væra mest hin síðari árin. En hneigð hans til að miöla öðrum fræðslu ýtti snemma við mér með þeim hætti. sem einkar ánægjulegt er að minnast. Á þeim dögum, þegar ég, ófróður sveitardreng- ur, bjó við stöðugt bókahungur fram um sautján ára aldur, var Lögrétta þeirra feðga, Þor- steins skálds og Vilhjálms magisters, næsta kærkominn gestur. Móðurbróðir minn var kaupandi Lögréttu, og taldi hana öðrum blöðum betri, sem -------:-------------------,------ó Alls- nægtaborðið Ógnarlegar raunir dynja nú á íslenzku þjóðinni. Banda- ríska sjónvarpinu hefur verið bægt á haf út, svo að auk „næsta nágrennis1* fái þorsk- ar einir notið þess; það alls- nægtaborð hefur verið frá okkur tekið sem áður veitft næringu mestan hluta sólar- hringsins, og það ókeypis — líkt og draumurinn um komm- únisma hefði rætzt þar sem hans var sízt von. Og með allsnægtaborðinu hefur gleð- in horfið úr lífi okkar, sú hríslandi tilhlökkun sem vakti okkur á hverjum morgni, sú ógleymanlega endurminninga- sæla sém svæfði okkur á hverju kvöldi og tryggði okk- ur ljúfa drauma; nú er lífið orðin þung byrði og sú von ein bundin við svefninn að hann verði ævarandi. Eða eins og Félag sjónvarpsáhuga- manna segir réttilega í álykt- un sinni: dátapjónvarpið er frá okkur tekið „aðeins til þess... að skaprauna fjölda íslendinga.“ Og hvers virði er lífið þegar það er orðið sam- ' felld raun? ■ Félag sjónvarpsáhugamanna ■bendir á að ekki aðeins hafi raunirnar nú lagt undir sig bústaði gleðinnar í sálum landsmanna, heldur muni hið hroðna allsnægtaborð valda pólitískum umskiptum á ís- landi; það muni „skapa óvild í garð íslenzkra stjórnar- valda.“ Stjórnarvöldin hafa haldið velli í nærfellt áratug; þau hafa staðizt femar al- þingiskosningar, nú síðast í sumar; röksemdir og önnur spellvirki stjórnarandstæðinga hafa ekki hrinið á ráðherrum frekar en vatn á gæsum. En enginn má sköpum renna; ráðherrarnir hafa reynzt eiga þá ósk eina að skaprauna landsmönnum ogmunu í stað- inn uppskera óvild. Og sú stjórn mun ' ekki standast stundinni lengur sem þjóðin vill ekki, En breytingin á stefnuloft- neti hemámsstöðvarinnar í þágu sjávarkykvenda mun einnig hafa örlagaríkar al- þjóðlegar afleiðingar. Félag sjónvarpsáhugamanna segir að hún muni „sþilla góðri samvinnu við NATO-vamar- stöð' okkar á Keflavíkurflug- velli." Gegn þeirri samvinnu hefur verið barizt um langt árabil ekki síður en gegn rík- isstjóminni og með ámóta takmörkuðum árangri. En nú er semsé komið að tímamót- um einnig á því sviði. Sú samvinna sem spillt hefur verið fær að sjálfsögðu ekki staðizt stundinni lengur; her- námsliðið mun hverfa í sömu átt og stefnuloftnetið vísar. Megum við þá minnast þeirr- ar djúphugsuðu speki sem Bjami Benediktsson hefur aldrei þreytzt á að kynna, að keðja er engu sterkari en veikasti híekkur hennar. Um leið og herstöðin hverfur af Miðnesheiði er Atlanzhafs- bandalagið farið veg allrar veraldar, og við stöndum varnarlausir andspænis þeim alþjóðlega kommúnisma sem voklr yfir okkur, gulur á lit. Senn munu varðliðar kenna okkur ; að þylja orðskviði Maós af þeim biblíupappír sem að sögn Morgunblaðsins reyndist eldtraustur í brun- anum niikla í Borgartúni. Þetta hefðu einhvern tíma þótt ískyggilegar horfur, en svo er ekki lengur. Til eru þær sorgir sem eru svo sárar að allur síðari harmur verð- ur léttbær í samjöfnuði við þær, Slíka skapraun lifum við nú; allsnægtaborðið er horfið; við höfum verið svipt gleðinni að eilífu. — Austri. þá komu þar í sveit. Hann var glöggur maður og fróðleiksfús og fór ekki með fleipur. Frá- leitt hef ég kunnað að meta nema sumt, seíh í Lögréttu birt- ist, og vel man ég það, að ellefu ára gömlum þótti mér Ævisaga Krists eftir Papini heldur langdreginn lestur. Hana lærði ég ekki að meta fyrr en síðar. En þegar Vesalingarn- ir eftir Hugo tóku að birtast (í þýðingu Kvaransfeðga og V-Þ.G.), þá var póstsins beðið með- óþreyju í Hjarðardal — í slíka sögu vantaði ekki bar- dagann! Og enn minnist ég þáttanna, sem báru samheitið Um víða veröld. Þeir voru í hverju blaði Lögréttu, lapgir eða stuttir eftir atvikum. Oft birtust þar endursagnir úr for- vitnilegum erlendum ritum- Hygg ég, að “Vilhjálmur hafi ósjaldan lagt þar hönd að verki, og með vissu voru sumir pistl- arnir með fangamarki hans. Þessi greinarflokkur var æsku- manni á þeirri tíð eins konar gluggi, þar sem sá býsna vel út í margslunginn ©g furðuleg- an heim. Allt frá þessum dög- um tel ég mig eiga V.Þ.G. þakkarskuld að gjalda. Á sjötugsafmæli Vilhjálms Þ. Gíslasonar eru mér að vonum ofarlega í huga störf hans í Menntamálaráöi og stjórn Bóka- útgáfu Menningarsjóðs. Ýkju- laust er, aö Vilhjálmur hefur ýmist átt frumkvæði að éða stutt ötullega þau verk útgáf- unnar, sem svipmest eru, svo sem Sögu Islendinga, íslenzk úrvalsrit, Orðabók Menning- arsjóðs og alfræðibók þá, sem nú er að unnið. Og um þessar mundir eru til meðferðar hjá útgáfustjóm fjölhliða og rök- studdar tillögur Vilhjálms Þ. Gíslasonar um breytt og fast- ar mótað útgáfusnið og út- gáfustefnu. Bera þær tillögur þess Ijósan vott, sem raunar er engin nýjung, að Vilhjálmi er annt um Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs, telur hana hafa mikilvægu hlutverki að gegna og vill veg hennar sem mestan- Er þess að vænta, að takmörk- uð fjárráð eða örðug aðstaða að öðru leyti þurfi ekki lengi að torvelda framkvæmd þessara tillagna í megindráttum. Vilhj. Þ. Gíslason hefur flest- um betur lifað samkvæmt því boðorði Hávamála, að „glaður og reifur“ skuli hver maður. Vafalaust á þetta bjarta lífs- viðhorf og létta lundarfar sinn þátt í því, hversu vel Vilhjálm- ur ber áratugina sjö. Og þótt hann íeggi nú á áttunda tnig- inn. hverfi senn frá daglegum embættisönnum, er lítil hætta á að hann verði iðjulaus meðan kraftar endast. Áhugamálin eru mörg, skemmtileg viðfangs- efni blasa án efa hvarvetna við. Ég held að Vifhjálmi Þ. Gísla- syni þyki gaman að lifa. Og okkur vinum hans þykir gaman að hann lifi, glaður og reifur, eins og hann hefur alltaf ver- ið. i Gils Guðmundsson. Frá barnaskólum Kópavogs Eldri deildir skólanna eiga að he'fja skóla- nám mánudaginn 18. sept. og koima þann dag í skólana á þessum ’tíma: 12 ára deildir komi kl. 9 f.h. 11 ára deildir komi kl. 10 f.h. 10 ára deildir komi kl.ll f.h. Fræðslufulltrúi. LögtaksúrskurBur Samkivæmt kröfu bæjargjaildkerans í Hafnarfírði úrskurðast hér með lögtak fyrir ógreiddum útsvör- um og aðstöðugjöldum til Hafnarfjarðarkaupstað- ar, álögðum árið 1967. Lögtök verða framkvæmd fyrir gjöldum þessum að liðnum 8 dögum frá dagsetningu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði 4. september 1967 Skúli Thorarensen, fulltrúi. Stúlka óskast Óskum eftir að ráða áreiðanlega og reglu- sama stúlku, ekki yngri en 16 ára, 'til sendi- ferða, símavörzlu og fl. Eiginhandarum- sóknir sendist skrifstofu yorri eigi síðar en 22. sept n.k. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18900 Atvinna Stúlka óskast nú þegar til að annast síma- vörzlu í skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2. Umsóknum, er tilgreini ald- ur og fyrri störf, sé skilað til skrifstofu- stjóra fyrir 22. þ.m. Kennarar óskast Tvo kennara vantar að bamaskólanum í Neskaupstað. Fræðsluráð Neskaupstaðar. Listkynningu og kaffisölu halda Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 17. september kl. 14,30. Þessir listamenn sýna verk, sín: Sverrir Haraldsson, listmálari Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari Vigdís Kristjánsdóttir, listmálari Eyborg Guðmundsdóttir, listmálari Sigurður Sigurðsson, listmálari Kjartan Guðjónsson, listmálari Jóhannes Jóhannesson, listmálari Jóhann Eyfells myndhöggvari - Kristín Eyfells, listmálari Magnús Ámason, listmálari Barbara Árnason, listmálari Steinþór Sigurðsson, listmálari Hringur Jóhannsson, listmálari Ragnheiður Óskarsdóttir, listmálari s •** Sigríður Björnsdóttir, listmálari Sigrún Jónsdóttir, kennari, sýnir batik. Ragnar Lárusson, listmálari teiknar andjits- myndir af ge^tum ef óskað er. Kruaur g- blomaverzlun 12 teg. túlipana, einfaldir og tvöfaldir á kr. 6. Páskaliljur á kr. 7. 4 teg. crocusar og ýmsir aðrir smálaukar. Jóla-hyacintur á kr. 15. Hyacintur á kr. 12. Hyacintuglös. Allt 1. ‘flokkur. Urvals pottablóm — Ný sending. Daglega ný af- skorin blóm. íslenzkt handunnið keramik og önnur vönduð gjafa- vara. —- Opið alla daga frá kl. 10 — 22. — Næg bíla- stæði. — Góð þ'jónusta. Blómaverzlunin Skrúður við Hafnarfjarðarveg, sunnan Kópavogslækjar. BRAUÐHÖLLIN OPNAR í DAG SMURBRAUÐSTOFU AÐ LAUGALÆK 6 * VEIZLUBRAUÐ — SNITTUR — BRAUÐTERTUR — ÖL OG GOSDRYKKIR. * BRAUÐHÖLLIN Laugalæk 6 — Sími 30-941. ! *

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.