Þjóðviljinn - 16.09.1967, Síða 3

Þjóðviljinn - 16.09.1967, Síða 3
Ijaugardagur 16. september 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J Hundrað miljón dollara tjón í Bandaríkjunum nú í sumar CHICAGO 15/9 — Allt var með kyrrum kjörum í suðurhluta Chicago í dag þó miklar blikur væru erín á lofti eftir margra klukkutíma óeirðir í gær- dag, þar sem 12 manns þ.á.m. 6 lögregluþjónar særðust og 54 blökkumenn voni teknir höndum. Myndin er frá kynþáttaóeirðunum í Bandaríkjunum. Þarna er verið að flytja fanga til yfirheyrslu. -<S> Spænskur verkalýS- ur krefst kjarubótu SAN SEBASTIAN 15/9 — Spænska stjórnin kom í dag saman á fund undir forystu Franko ein- ræðisherra til að ræða sérstaklega hinar sívaxandi kröfur um almennar launahækkanir í landinu. Einnig verður rætt um Gibr- altar en íbúarnir þar samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta í aimennum koSningum á sunnu- dag að halda sambandi sínu við Bretland. Lágmarks daglaun spænskra verkamanna eru nú 84 pesetar þ.e. um 60 ísl. kr. og hafa leið- togar verkalýðssamtakanna, sem lúta forsjá ríkisvaldsins, kraf- izt þess að þau verði hækkuð ppp í 125 til 160 peseta vegna vaxandi dýrtiðar. Ríklsstjórn Nigeríu tekur sáttanefnd LAGOS 15/9 — Ríkisstjórnin í Lagos hefur fallizt á það að sendinefnd þjóðhöfðingja sex Afríkuríkja komi til höfuðborg- ar Nigeríu til að reyna að miðla málum með sambandsstjórninni og uppreisnarmönnum í Biafra. f fyrstu voru menn mjög ugg- andi um það að Nígeríu,stjórn mundi ekki leyfa málamiðlunar- nefndinni að koma til landsins, en snemma í dag tók ríkisstjórn- in ákvörðun um að gera það, þó enn sé óljóst hvort hún tekur nokkurri málamiðlun. Ríkisstjórnin vill hins vegar ekki ganga lengra á móts við kröfur þeirra en hækka launin upp í 90 til 96 peseta lágmarks- daglaun. Þetta hefur valdið megnri óánægju meðal verkamanna. Verðlag á flestum nauðsynja- vörum hefur farið mjög hækk- andi síðan 84 peseta lágmarks- launin voru ákveðin j fyrravor og þrátt fyrir það, að flestir verkamenn á Spáni fá meira en lágmarkslaun að sögn NTB tel- ur verkalýðshreyfingin að þeir eigi rétt á launahækkun. Frett'amenn segja • að þessar launakröfur geti v'aldið miklum ágreiningi með verkalýðssamtök- unum og ríkisstjéminni. Margir hinna handteknu voru blökkuunglingar. Lögreglan leitaði vandlega á svæðinu að leyniskyttum sem höfðu skotið að lögreglunni af húsaþökum, en árangurslaust. Lausnartryggingagjald fyrir þá sem hafa verið handteknir fyrir að trufla opinbera röð og reglu, taka þátt í slagsmálum og ólög- legum kröfugöngum hefur verið hækkað upp í 25 til 50 þúsund dollara. í allan dag var lögregla á vakt á götum borgarinnar við öllu bú- in. Tjón á tryggðum eigum eftir kynþáttaóeirðirnar í sumar í Bandaríkjunum var í dag metið á 100 miljónir dollara (á fimmta miljarð ísl- kr.). Það var Richard Hughes fylk- Verður greiff þjóðaratkv. um aðild Frakka að Nato? PARÍS 15/9 — Þjóðaratkvæðagreiðsla verður ef til vill haldin í Frakklandi næsta ár um það hvort landið skuli slíta öll tengsl við NATO, sagði náinn samstarfsmaður de Gaulle í dag. I grein í tímaritinu Notre Republique segir Louis Vallon að árið 1968 verði framtíðarstefna franskrar utanríkisstefnu mörkuð og það sé mjög líklegt að de Gaulle muni fara þess á leit að franska þjóðin samþykki að Frakkar slíti öllum tengslum við NATO í þeim tilgangi að efla friðsamleg samskipti Austur- og Vestur-Evrópu. isstjóri í New Jersey sem skýrði frá þessu mati, en hann er for- maður sérstakrar opinberrar nefndar sem skipuð var til að rannsaka tjónið í þeim héruðum sem kynþáttaóeirðir hafa sett svip sinn á. Friðarsamning- ar óhugsandi WASHINGTON 15/9 — Fomiæl- endur bandarísku ríkisstjórnar- innar lýstu því yfir í dag að það væri óhugsandi að nokkrar samn- ingaviðræður um frið í Vietnam gætu farið fram á næstunni. Þessi yfirlýsing var gerð í til- efni þess að franskir fréttamenn í Hanoi höfðu komið því á fram- færi að hægt væri að koma á friðarumræðum á þrem til fjór- um vikum, ef Bandaríkjamenn hættu Ioftárásum á Norður-Viet- Vísindamanni refsað fyrir andstöðu við Vietnamstríð SAN FRANCISCO 15/9 — Vísindastofnun Banda- ríkjanna sem nýtur fjárstuðnings hins opinbera hefur vísað frá umsókn stærðfræðings uin 250.000 dollara til stærðfræðirannsókna, vegna þess að hann er eindreginn andstæðingur styrjaldarstefn- unnar í Vietnam. Ríkið borgi kosningsbarált- una í USA WASHINGTON 15/9 — Fjár- málanefnd öldungadeildar Banda- ríkjaþings samþykkti í gær rót- tæka þreytingu á kosningalögun- um, sem verða til þess ef þær fá meirihluta í fulltrúadeildinni, að frambjóðandi hvors flokksins Demokrata og Repúblikana í for- setakosningunum næsta ár fær 14 miljón dollara af almannafé til að verja í kosningabaráttuna, Hingað til hafa frambjóðendur orðið að treysta á framlög ein- staklinga. Samkvæmt hinu nýja lagafrumvarpi munu þeir geta valið hvort þeir vilja heldur njóta stuðnings einstaklings eða ríkisvaldsins. Russell Long fbrmaður fjár- málhnefndar sagði, að hann teldi að lagafrumvarpið, en samkvæmt er því er einnig gert ráð fyrir að frambjóðendur í kosningum um 34 öldungadeildarmenn á næsta ári fái 26 miljónii- dollara. muni uppræta svo til alveg fjár- málaspillingu í opinberu lífi. Litasjónvarp í Danmörku KHÖFN 15/9 — Danska út- varpsráðið hefur ákveðið að leggja það til við menntamála- ráðuneytið að litasjónvarp verði undirbúið í Danmörku. Það er talið að útgjöld danska útvarpsins vaxi um 10 miljónir árlega þegar litasjónvarp verð- ur tekið til starfa, en fyrir þessa upphæð verður hægt að hafa 10 tíma útsendingu í litum á viku. Kostrfaður við breytingar yfir í litsjónvarp er áætlaður nema um 18 miljón krónum. Raunverulegt litasjónvarp í Danmörku mun þó ekki taka til starfa fyrr en 1970. Dzu var dæmdur í 9 mánaða fangelsi SAIGON 15/9 — Truong Dzu lögfræðingur, for- ystumaður þeirra frambjóðenda í S-Vietnam sem ekki náðu „kjöri“ en hafa nú myndað samtök til að berjast gegn kosningasvindlinu í forsetakosn- ingunum, var í dag dæmdur í níu mánaða fang- elsi og rúml. 250 þús. króna'sekt fyrir fjárglæfra. Vísindamaðurinn heitir Step- han Smale og starfar við Háskól- ann' í Berkley utan við San Francisco. Hann heldur því fram að stofnunin hafi tekið þessa á- kvörðun af ótta við Bandaríkja- þing. Dr- Smale vár í fyrra í Moskvu þar sem hann fékk verð- laun fyrir afrek í stærðfræði. Meðan hann dvaldist þar tók hann opinbera afstöðu gegn utan- ríkisstefnu bæði Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og meðferð Sovétstjórnarinnar 4 mennta- mönnum. Árið 1965 aðstoðaði hann við að skipuleggja kröfugöngur gegn stríðinu í Vietnam í Bandaríkj- unum, m.a. reyndu þáttiakendur að stöðva herflutningalest í Berkley. KÁPUR OG KJOLAR •. # Stórt og glæsilegt úrval af KJÓLUM - DRÖGTUM BUXNADRÖGTUM - KÁPUM Mv» ýjjipf í öllum stærðum og nýjum tízkulituim. Selt með afborgunarskilmálum. Kjólabúðin Kjólabúðin Lækjargötu 2 Bankastræti 10 Dzu var ekki viðstaddur er dómur var kveðinn upp, þar sem hann hafði áður lýst því yfir að ákærurnar væru upplognar. Fréttamenn í Saigon telja það ólíklegt að Dzu verði stungið inn á næstunni og muni hann geta skotið málinu til Hæstaréttar. Dzu var sekur fundinn um að hafa ólöglega yfirfært samtals 11.500 bandaríska dollara á banka í San Francisco í júní í ár. Annar liður ákærunnar var að hann hefði gefið út gúmítékka upp á tæpar fimm hundruð þús- undir árið 1962. Hann var sýknaður af þriðja kæruatriðinu sem snerti fjár- glæfna á árinu 1957. Skrifstofustúlkur Opinber stofnun óskar að ráða tvær skrif- stofustúlkur nú þegar. Kunnátta í vélritun nauðsynleg. Umsóknir er tilgreini mennt- un og starfsreynslu sendist afgreiðslu olaðs- ins fyrir 21. þ.m. 1967“. merkt „Skrifstofustarf Ný sérverzlun VERIÐ VELKOMIN Opnum í dag sérverzlun með ÚTIHURÐIR Kynnið vkkur verð og gœði að Lyngási 8 Garðahreppi á framleiðslu okkar | 0NDVEGI H«F« Lyngási 8 Garðahreppi símar 52374-51690 I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.