Þjóðviljinn - 16.09.1967, Side 7

Þjóðviljinn - 16.09.1967, Side 7
I Laugardagur 16. september lf)67 — Þ.TÖÐVILJINN — SlÐA J Skaftafell var afhent í gærmorgun Kristín Þorláksdóttir vift náttúruvcmdarmcrki sitt- Framhald af 1. síðu. að Skaftafell er friðlýst sem þjóðgarður, en sú ráðstöfun var samþykkt í náttúruverndarráði í febrúar 1961 að tillögu Sig- urðar Þórarinssonar. í grelnar- gerð fyrir tillögu sinni sagði Sigurður á sínum tíma að varla léki á tveim tungum, að náttúru- fegurð í Skaftafelli í Öræfum væri stórfenglegri en á nokkru öðru byggðu bóli á fslandi og vaeri þar að finna flest það er prýða mætti íslenzka náttúru: stórleikur landslags er óvíða meiri, útsýn fögur til hæsta jök- uls landsins, miklar sandauðn- ir sem skapa andstæður, skóg- ur, fjölbreytilegar bergtegundir, mesti skriðjökull landsins, Mors- árjökull, fagrir fossar og gil og gróður fjölbreyttari en víðast annars staðar, enda engin jörð önnur nema grannjörðin Svína- fell sem nýtur eins mikillar veðursældar. . Tók Birgir Kjaran undir orð Sigurðar um náttúrufegurðina og gat þess að landareignin Skaftafell væri all víðáttumikil. allt að þúsund ferkílómetrar eða 1/100 af flatarmáli alls lands- ins. Hann sagði náttúruvemdar- ráð hafa gilda ástæðu til að ætla að friðlýsingin muni mæl- ast mjög vel fyrir, ekki aðeins meðal almennings á fslandi, en einnig meðal erlendra vísinda- manna, þar eð Skaftafell væri vel þekkt í heimi nátúruvísind- anna. Kvaðst hann vilja þakka World Wide Life Fund, sem styrkt hefði fyrirtækið og gert mögulegt að festa kaup á jörð- inni. Birgir benti á að reist hefði verið að Skaftafelli merki nátt- úruverndarráðs, sem framveg- is er ætlunin að auðkenni alla staði á fslandi sem náttúru- verndar njóta. Merkið er teikn- að af Kristínu Þorláksdóttur og er táknið laufblað, á efri helmingi fjall og fljúgandi fugl og á neðri öldur og fiskur. Bað hann síðan menntamálaráðherra að taka við Skaftafelli fyrir hönd íslenzka ríkisins, sagði það gjöf til allrar þjóðarinnar og óskaði að hún mætti vel njóta. Auglýsing um svéinspróf Sveinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram um land allt í október og nóvember 1967. Meisturum og iðnfyrirtækjum ber 'að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sína sem lokið hafa námstíma og burtfárarprófi frá iðnskóla. Ennfremur er heimilt að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sem eiga 2 mánuði eða minna eftir af námstíma sínum. enda hafi þeir lokið iðnskóla- prófi. Umsóknir um próftöiku sendist formanni viðkom- andi prófnefndar fyrir 1. október n.k., ásamt venju- legum gögnum og prófgjaldi. Meistarar og iðnfyrirtæki í Reykjavík fá umsókn- areyðublöð afhent í skrifstofu iðnfræðsluróðs, sem einnig veitir upplýsingar um formenn prófnefnda. Reykjavík, 15. september 1967. Iðnfræðsluráð. Faðir okkar, SVEINN EINARSSON frá Ólafsvík, lézt að Hrafnistu miðvikudaginn 13. þessa mánaðar. — - Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 13. september n.k. kl. 13.30. Jarðsett verður í Ólafsvík. Börn og tengdabörn. Faðir okkar og tengdafaðir EMIL TÓMASSON, Brúarósi, Kópavogi, sem andaðist að Landakoti 11. sept. sl. verður jarðsett- ur frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. sept. kl. 10.30. Athöfninni verður útvarpað. Börn og tengdabörn hins látna. Gylfi Þ. Gislason mennta- málaráðherra sagði, að venju- lega væri svarað, að það sem gerði okkur að íslendingum væri tungan, sagan sem gerzt hefði í landinu og menningin sem hér hefði myndazt í nær 1100 ár Væri það rétt, en þó værum við ekki þeir íslendingar sem við erum ef landið væri ekki eins og það er. f 1100 ár hefðu forfeður okkar og við horft á fegurð landsins og hrika- leik, dáðst að því og lært að elska það. Það væri hluti af okk- ur .og við hluti af bví. Án ís- lands væru engir íslendingar, sagði ráðherra. Hann minntist á skyldur ís- lendinga við landið. það væri þáttur i slíkri baráttu þeirra fyrir því að vera íslenzkir að varðveita landið. náttúru þess, sérkenni og fegurð. Ságði ráðherra að sér væri innilegt gleðiefni að veita þessu landssvæði viðtöku, og kvaðst vita að gjörvöll þjóðin fagnaði því að það yrði þjóðgarður, friðað. svo fegurð þess héldist ósnortin. tign þess órofin. Kvaðst menntamálaíáðherra að lokum vona að mörg spor þessu lík yrðu stigin á næstu árum. Þeim mun betur sgm við gætum landsins. þeim mun frem- ur eigum við skilið að eiga það, sagði hann. Aðalfundur Nor- ræna félagsins Aðalfundur Norræna félagsins var haldinn 14. þ.m. Sigurður Bjarnason ritstjóri, formaður fé- lagsins setti fundinn og stjórn- aði honum en fundarritari var Sveinri Ásgeirsson hagfræðingur. Einar Pálsson framkvæmdastj. félagsins gerði grein fyrir störf- um þess á sl. starfsári. Frú Am- heiður Jónsdóttir gjaldkeri fé- lagsins gerði grein fyrir reikn- ingum þess. Þá fór fram stjóm- arkosning. Sigurður Bjarnason ritstjóri var endurkjörinn for- maður félagsins. Aðrir í aðal- stjóm eru: Vilhjálrriur Þ. Gísla- son útvarpsstjóri, Páll ísólfsson tónskáld, frú Arnheiður Jóns- dóttir, Thorolf Smith blaðamað- ur, Sveinn Ásgeirsson hagfræð- ingur og Lúðvíg Hjálmtýsson fratnkvæmdastj., er var kjörinn í stað Sigurðar Magnússonar fulltrúa er baðst undan endur- kosningu. f varastjórn voru kjörnir Bárður Daníelsson verkfræðing- ur, Gils Guðmundsson alþingis- maður, frú Valborg Sigurðar- dóttir, Páll Líndal borgarlögmað- ur og Hans Þórðarson stórkaup- maður. Endurskoðendur voru kjömir Þór Vilhjálmsson borg- ardómari og Óli J. Ólason kaup- maður. Bótasýnmg Framhald af 1. siðu. asta undirstöðuriti í stjarnfræði sem byggði á þeirri forsendu að jörðin væri miðdepill alheimsins. og geta lysthafendur greitt 21 þús. krónur fyrir þennan grip ef vlll. Sýningin er haldin áiþeimtíma að þar er t.a.m. ekki ný fom- íslenzk orðabók, sem er að koma út í Austur-Þýzkalandi og ekki heldur Islenzk-þýzk orðabók þróf- Sveins Bergsveinssonar. — Hinsvegar gefur þar að líta af- mælisrit til Walthers Baetke, all- mikið greinasafn um íslenzka bókmenntasögu og norræna goða- fræði. ■M gullsmíp; STÍmlMl Mfl Auglýsið í ÞJÓÐVILJANUM Æskulýðssíðan Framhald af 4. siðu. — Já, það er einmitt á slík- um tímum, sem launþegar finna bezt hve nauðsynlegt er að eiga samhenta sósíalíska forustu og vonandi getur ÆF lagt þar sitt af mörkum. — Á næsta ári verður Æsku- lýðsfylkingin 30 ára, þeirra tímamóta verður væntanlega minnzt á verðugan hátt? — Ég held að við minnumst afmælisins verðugast með að stórefla starf og félagatölu okkar. Verkefni eru næg. En til að hrinda þeim í fram- kvæmd þurfum við feikna starfslið fylltu áhuga og hug- kvæmni ungs fólks. Æskulýðs- fylkingin getur ekki boðið þeim dugmestu notaleg embætti, bitlinga eða vel launaðar stöð- ur í eigin fyrirtækjum, eins og manni virðist tíðkast hjá sum- um öðrum æskulýðsfélögum. Aflvaki okkar mun samt reyn- ast drýgri, en hann er sú full- næging og ánægja, sem felst í því að vinna göfugu málefni gagn. , Ólafur Ormsson. BLAÐ- DREIFING Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Hjarðarhagi. Framnesvegur. Vesturgata. Hringbraut. Kaplaskjólsvegur. Tjarnargata. Langahlíð. Blönduhlíð. Hvassaleiti. Vogar. ÞJÓÐVILJINN Sími 17-500. VIÐGERÐIR á skinn- og rúskinnsfatnaði. Góð þjónusta Leðurverkstæði Úlfars Atlasonar, Bröttugötu 3 B. Simi 24-678. Sigurjón Björnsson sálfræðingur Viðtöl skv. umtali. Símatími virka daga kl. 9—10 f.h. Dragavegi 7 Sími 81964 Allt til RAFLAGNA ■ Kafmagnsvorur. ■ Heimilistækl. ■ Útvarps- og sjón- varpstækL Rafmagnsvöru- búðin s.f. Suðurlandsbraut 12. Simi 81670. NÆG BÍLASTÆÐl „ A __AX.1»ÝÐTJ bandaiagið I REYKJAVÍK Alþýðubandalagið í Rvík hefur nú opnað skrifstofu sína regluicga á nýjan Ieik. Verftur skrifstofan opin frá kl. 2—7 síðdegis, frá mánu- degi til föstudags. Skrifstof- an er að Miklubraut 34, síminn er 180 81. Guðrún Guðvarðardóttir hefur ver- ið ráðin starfsmaður Ál- þýftubandalagsins í Reykja- vík. Eru félagsmcnn og aðr- irf Aiþýðubandalagsmenn hvattir til að hafa samband vift skrifstofuna. BRIDG ESTO N E HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannar gseðin. BRIDGESTONE veitir aukið öryggi í akstri. BRI DGESTON E ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA Verzlun og viðgerðir Gúmmbarðinn h.f. Brautarholti 8 Sími 17-9-84 ÞÚ LÆRIR MÁLIÐ I MlMI INNHEIMTA lÖOmÆOt&TÖttF Mávahilð 48. Siml 23970. Sængurfatnaður - Hvítur og mislitur — \ ★ ' ÆÐARDÚNSSÆNGUB GÆSADÚNSSÆNGUB DRALONSÆNGUB SÆNGURVEB LÖK KODDAVER triðin Skólavörðustig 21. Smurt brauð Snittur \ brauð boer — við Oðinstorg Simi 20-4-90. Laugavegj 38. Sími 10765. * Enskar buxna- dragti * ir Mjög vandaðar og íallegar. * i Póstsendum um allt land. HÖGNI JÓNSSON Lögfræði- og fasteignastofa Bergstaðastræti 4. Simi 13036. Heima 17739. ÖNNUMST flLLfl HJÖLBARÐANðNUSTU, FLJÚTT OG VEL, MEO NÝTÍZKU TÆKJUM §•“’ NÆG BÍLASTÆÐI OPID ALLA DAGA FRÁ kl. 7.30-24.00 HJOIBARÐAVIÐGERÐ KÓPAVOGS Kársnesbrant 1 Sími 40093 ur og skartgripir KDRNELÍUS JÓNSSON skólavördustig 8 [R -Vcn+u+x&f frezf khbki

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.