Þjóðviljinn - 17.10.1967, Side 1
Ætlun ríkisstjórnarinnar er
bótalaus kjaraskeriing
Þriðjudagui 17. október 1967, — 32. árgangur — 233. tölublað.
FarmiSaskaitinum œtla3 oo ]atna k]örin!
-<?>
■ í mjög langri framsöguræðu Bjama Benedikts-
sonar um kjaraskerðingarfrumvarp ríkisstjórnar-
innar taldi hann annan eins vanda ækki hafa
blasað við síðan á verstu kreppuárunum, 1931 til
’40, og hótaði þjóðinni atvinnuleysi og sams kon-
ar ástandi og þá var ef ekki yrði tekið við kjara-
skerðingunni sem ríkisstjórnin réttir nú að fólki,
eftir átta ára samfellda stjórn Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðuflokksins í hinu mesta góðæri.
Miklum hluta ræðu sinnar
varði Bjarni til að koma á fram-
færi þeim áróðri að allir erfið-
leikamir sem nú er við að stríða
ættu sér orsakir sem ríkisstjóm-
in hefði ekkert vald á og var
þar enn lögð áherzla á lélega
vetrarvertíð og verðfall á út-
flutningsafurðum. Hann játaði að
þær ráðstafanir sem nú væru
gerðar myndu ekki leysa vanda
atvinnuveganna en væm for-
senda þess að haegt yrði að leysa
þann vanda smám saman.
Ráðherrann kvað sér það Ijóst
að ráðstafanir ríkisstjómarinnar
kæmu við heimilin, en ríkis-
stjómin hefði talið að þessi leið
veldi minnstri truflun.
Ráðherrann reyndi ekki að
verja það, að með því að taka
Fyrsti snjórinn
1 GÆRMORGUN kom fyrsti
snjórinn á þessu hausti hér á
Suðvesturlandi og raunar snjó-
aði um allt Iand en fyrr í
haust var búið að snjóa fyrir
vestan og norðan. Kom allmik-
ill snjór í fjöll hér syðra og
talsvert föl allt niður í sjó eins
og myndin sýnir.
— (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
A 12. SlÐU blaðsins í dag er
nánar sagt frá snjókomunni í
gærmorgun.
j Happdætti ÆF !
□ Þegar hefur verið dreg- |
ið í happdrættinu og verða :
: vinningsnúmerin birt á ■
■ morgun. Þeir sem ekki i
hafa gert skil eru beðnir *!
! að gera þau í dag í skrif- j
stofu ÆF I Tjarnargötu ■
■ 20, opið kl. 3—11 e.h.
: :
□ Vestmannaeyingar! Ger- j
ið skil hjá Gunnari Sigur- ■
mundssyni í prentsmiðj- i
; unni. — ÆF.
■ ■
s ■
*!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■£
Áskorun ráSstefnu S]ómannasambands Islands:
sstjórnin endurskoði
efnahagsráðstafanirnar
□ Sjómannasarruband íslands
boðaði til sjómannaráð-
stefnu um síðustu helgi
og sóttu hana auk stjórn-
ar sambandsins fulltrúar
frá öllum aðildarfélögum
svo og fulltrúar frá flest-
um sem eiga aðild að
bátakjarasamningum með
Sjómannasambandinu.
Miklar rafmagnstruf/anir á
Austuriandi á sunnudaginn
Miklar rafmagnstruflanir urðu
á Austurlandi á sunnudaginn
vegna bilunar í Grímsárvirkjun
og varð hluti af svæði því sem
fær raforku þaðan rafmagnslaus
um tíma, en svæðið nær frá
Seyðisfirði til Stöðvarfjarðar.
Að því er Brynjólfur Vil-
hjálmsson starfsmaður Grimsár-
virkjunar sagði .Þjóðviljanum í
gær stafaði bilunin af því að
ísnálar mynduðust í vatninu við
Félagsfundur ÆF
Félagsfundur Æskulýðsfylk-
ingarinnar í Reykjavík verður
haldinn n.k. fimmtudagskvöld kl.
9 í Tjárnargötu 20.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Starfsáætlun sambauds-
^tjórnarfundar ÆF um þjóð-
frelsisbaráttuna fram til
í
1969.
3. Vetrarstarfið.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
fyrsta frostið og komst klaki í
vélina. Ef lónið ofan virkjunar-
innar leggur í frosti gerist þetta
ekki, en í þetta sinn var norð-
austan vindur og lónið náði
ekki að leggja.
Bilunin varð um kl. 10 á
sunnudagsmorgun en á meðan
Grímsárvirkjun var óvirk fékk
rafveitusvæðið straum frá dís-
ilrafstöðvum svo langt sem þær
náðu, en hluti þess varð straum-
laus um tíma. Tvær síldar-
bræðslur voru í gangi þennan
dag, á Seyðisfirði og Eskifirði,
og urðu þær að hætta störfum
og var hægt að hafa straum á
meginhluta svæðisins eftir að
lokað var fyrir hann til þessara
rafmagnsfreku stofnana.
Rafmagnstruflanimar leiddu
af sér fleiri bilanir, t.d. biluðu
rofar á Eskifirði og var þar
lengur ljóslaust en annarsstaðar
á svæðinu.
Viðgerð lauk í Grímsárvirkj-
un kl. hálffimm og komst þá
rafveitan í samt lag á ný.
□ Meðal þeirra mála sem
rædd voru á ráðstefnunni
voru hinar nýju efna-
hagsráðstafanir ríkis-
stjómarinnar og sam-
þykkti ráðstefnan eftir-
farandi ályktun þar sem
þeim er harðlega mót-
mælt og skorað á ríkis-
stjórnina að taka þær til
endurskoðunar og taka nú
þegar upp samninga við
verkalýðssamtökin um
önnur úrræði er ekki komi
eins hart niður á þeim
sem minnst hafa úr að
spila.
□ Samþykkt ráðstefnunnar
um þessi mál er svohljóð-
andi:
„Sjóman uaráóstcfna Sjó-
mannasambands fslands, hald-
in 14. og 15. okt. 1967, við-
urkennir að þurft hafi að gera
sérstakar ráðstafanir tll
stuðnings við undirstöðuat-
vinnuveg þjóðarinnar, sjáv-
arútveginn, sem nú hefur við
alvarlega erfiðleika að stríða
vegna minnkandi afla og
mikilla verðhækkana sjávar-
afurða á erlendum mörkuðum.
Hinsvegar mótmælir ráð-
stefnan/ ráðstöfunum í þeirri
mynd, sem ríkisstjórnin hef-
ur nú boðað, þar sem megln-
þungi þeirra Iendir á þeim,
scm minnst hafa úr að spila
og flesta hafa á framfæri sínu
auk sý.'.kra, aldraðra og Br-
yrkja, en snerta ékki að veru-
legu ráði hlna efnameiri í
þjóðfélaginu og þá sem fáa
hafa á framfæri sínu.
Ráðstefnan telur, að hækk- |
un sú, sem orðið hefur á að-
allífsnauðsynjum fólks, svo 1
sem mjólkur- og kjötvörum
o.fl., sé allt of mikil og hægt !
hefði verið fyrir rrkisstjórn-
ina að ná sama árangri til
fjáröflunar, með því t.d. að
hækka meira ifiunaðarvörur,
Framhald á 12. síðu.
vísitöluna úr sambandi væri ver-
ið að brjóta gegn júnísamkomu-
laginu, og viðurkenndi að það
væri ætlun ríkisstjómarinnar að
menn ættu að taka á sig bóta-
laust þá rýrnun lífskjara sem nú
er ráðgerð.
Um aðstoðina við sjávarútveg-
inn sagði ráðherrann að' þar væri
einungis um framlengingu að
ræða til ársins 1968 á sömu hjálp
og veitt er í ár. Vera mætti að
frekari og róttækari ráðstafan-
ir yrðu gerðar, en rök fyrir því
lægju ekki fyrir í dag.
Framhald á 3. síðu.
Rauða kverið
á íslenzku
Út er komin f íslenzkri
þýðingu bók sem hefur
umfram aðrar verið í
heimsfréttum undanfarin
misseri — Rauða kverið,
safn ívitnana úr ritum
Maó Tse-tungs, en menn-
ingarbyltingarmenn í Kína
hafa ekki stigið eitt skref
í pólitískum átökum í því
landi án þess að hampa
bókinni.
Bókin er um 300 bls. í
smáu broti, henni er skipt
í kafla eftir viðfangsefn-
um og er safnað í þá úr
ræðum og ritgerðum Maós
frá ýmsum tíma. Formáli
er eftir Lin Piao vamar-
málaráðherra og náinn
samherja Maós. Þýðinguna
gerði Brynjólfur Bjama-
son en útgefandi er Heims-
kringla.
I
I
Fidel Castro
staðfestir
andlát Guevara
HAVANA 16/10 — Fidel Castro,
forsætisráðherra Kúbu, staðfesti í
sjónvarpsræðu í gær að félagi hans
og samherji „Che“ Guevara, væri
látinn. — Það hryggir mig að verða
að viðurkenna að fréttin um dauða
hans i Bolivíu er því miður sönn,
sagði Castro. Það hefði í fyrstu
leikið vafi á þvi, sagði Castro, en
ljósmyndir og önnur gögn sem birt
hefðu verið hefðu sannfært sig um
að Guevara væri látinn, þótt að-
standendur hans neituðu enn að
trúa þvi. 'ímislegt benti til þess
að Guevara hefði verið drepinn
eftir að hann féll i hendur her-
mönnum Bóliviustjórnar, sagði
Castro, sem Iýsti yfir þriggja daga
þjóðarsorg á Kúbu.
Erneoto „Che“ Guevara