Þjóðviljinn - 17.10.1967, Side 3
Þriðjudagur 17. október 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA J
Detlurnar í SF-flokknum danska
Larsen og félagar halda til
streitu kröfu um aukaþing
Einn nánasti samstarfsmaður Larsens krefst þess að
nuverandi meirihluti í flokksstjórni nni segi af sér
KAUP,MANNAHÖFN 16/10 — Eftir skrifum danskra blaða
að dæma er nú stefnt að allsherjaruppgjöri í SF-flokkn-
um danska, en miklar deilur hafa verið uppi í flokknum
að undanförnu milli meirihlutans í flokksstjóminni og
minnihlutans undir forystu Aksels Larsens, formanns
flokksins.
Sovézka geimfarið Venus iV
lótið lenda á rekistjörnunni?
Geimfarið kemur til Venusar árdegis á morgun og í
Jodrell Bank er talið sennilegt að það lendi þar
LONDON 16/10 — Sovézka geimfarið Venus IV kemur^
til Venusar árdegis á miðvikudag eftir að hafa verið
fjóra mánuði á leiðinni frá jörðu. Talið er sennilegt að
ætlunin sé að láta geimfarið lenda hægri lendingu á
plánetunni.
„Information" segir þannig að
Larsen og félagar hans reyni
ekki lengur að halda þvi leyndu
að þeir stefni að því að kallað
verði saman annað aukaþing
flokksins á þessu ári. Tilgangur-
inn sé að koma frá meirihluta
flokksstjórnarinnar sem kosinh
var á , aukaþinginu í sutnar.
Minnfhlutinn hefur ekki nægilegt
fylgi í flokksstjórninni til að fá
hana til að kalla saman auka-
þing og er því unnið að þvi að
KjaraskerSng
Framhald af 1. síðu.
Um farmiðaskattinn sagði
Bjarni m.a. að sú hugmynd hefði
áður komið frám en verið frá
henni horfið vegna óvinsælda
hennar. Nú væri svo komið að
þeir sem gætu veitt sér utan-
landsferðir og keypt vaming í
þeirn nytu sérstakra hlunninda,
og væri þvi farmiðaskatturinn
ráðstöfun til að jafna kjör iands-
manna! (en ekkert var minnzt
á blessun hins alfrjálsa inn-
flutnings og takmarkalaust vöru-
val!).
Skerfur verkamanma
Eini ræðumaðurinn sem að
komst vegna ræðulengdar Bjarna
Var Eysteinn Jónsson og stóð
fundur þó til kl. hálf fimm
Eysteinn mótmælti harðlega
frumvarpinu og kjaraskerðingar-
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar.
Minnti hann á hvað verkamenn
og iðnaðarmenn fengju í laun á
ári fyrir dagvinnutíma ef þeir
ynnu hvern virkan dag, 114-140
þúsund krónur, og taldi með ó-
líkindum ef þetta kaup þýddi að
verkamenn og aðrir launþégar
hefðu fengið sinn skerf og vel
það af hinum stórauknu þjóðar-
tekjum, en Bjarni hélt því fram
í framsöguræðu sinni.
Una ekki kjara-
skerðingunni
Eysteinn minnti einnig á hinn
gífurlega húsnæðiskostnað flestra
fjölskyldna, og taldi óhæfu að
ráðast á þetta dagvinnukaup og
skerða það með lögum og ráð-
stöfunum ríkisstjómarinnar.
Taldi Eysteinn alveg óhugs-
andi að menn vildu una þessu;
verkalýðshreyfingin hlyti að gera
ráðstafanir til að hindra svo
rangláta kjaraskerðingu. Lagði
hann til að ríkisstjómin drægi
frumvarpið til baka eða frestaði
því og sneri sér í þess stað að
því verkefni að leysa vanda at-
vinnuveganna.
Eysteinn var í miðri rajðu
þegar fundi var frestað. Umræð-
umar halda áfram á fundi neðri
deildar í dag, sem hefst kl. 2.
fá samþykktir nægilega margra
flokksdeilda fyrir þeirri kröfu.
Það verður að kallla saman auka-
þing ef flokksdeildir sem í er
fjórðungur flokksmanna, eða um
2.000, fara fram á það. Talið er
sennilegt að þingið verði kallað
saman fyrir jól.
Aksel Larsen sagði fyrir helg-
ina að hann byggist við því að
óhjákvæmilegt yrði að kalla
saman aukaþing flokksins. —
Það hefur lengi verið megn óá-
nægja f mörgum flokksdeildum
með það hvernig aðalstjórnin og
framkvæmdanefndin hafa gegnt
störfum sínum, sagði hann.
Yfirlýsing
Þrír af þingmönnum flokksins,
sem styðja Larsen, þeir Ove
Krog Hansen, Poul Dam og
Morten Lange, gáfu út yfirlýs-
ingu fyrir helgina. Þar segja þeir
m.a.: — Undanfarið hálft ár
hefur verið sundnung í SF. Þetta
ástand ógnar möguleikum flokks-
ins til hagnýts starfs og því
hlýtur að vera að því komið að
flokksfélagar krefjist þess að
bundinn verði endi á þessa ó-
vissú svo að þingflokkurinn fái
viðunandi starfsskilyrði.
Þeir félagar segja að hin ný-
kjöma aðalstjórn og fram-
kvæmdanefnd hennar hafi ekki
tekizt~að tryggja einingu' í röðum
flokksins og ekki sé seinna
vaenna að gera ráðstafanir til að
koma í veg fyrir að hún vinni
BELGRAD 16/10. Norska síjórn-
in telur að Bandaríkjamenn eigi
skilyrðislaust að hætta loftárás-
um sínum á Norður-Vietnam.
Hætta ber loftárásunum hvort
sem leiðtogar Norður-Vietnams
lýsa því yfir að þeir muni þá
fúsir til samninga eða virða
að vettugi tOkynningu um stöðv-
un loftárásanna.
Per Borten, forsætisráðherra
Noregs, segir þetta í viðtali við
hann sem birt var í Belgrad í
gær. Borten er væntanlegur til
SAIGON 16/10 — Bandarískar
flugvélar vörpuðu í gær sprengj-
um á virki Bandaríkjamanna við
Con Thien, rétt fyrir sunnan
flokknum tjón sem ekki verði
bætt fyrir. Morten Lange bætti
því við að nauðsynlegt væri að
kalla saman aukaþing ef ,,aðal-
stjómin áttar sig ekki og bætir
ekki ráð sitt“.
Meirihluti flokksstjórnarinnar
er andvígur nýju flokksþingi.
Hann telur að sögn „Informa-
tion“ að sundrungin í flokknum
stafi einvörðungu af því að Aks-
el Larsen hafni allri samvinnu
og virði vilja meirihlutans að
vettugi.
Fáránlegt
Leiðtogi meirihlutans, Erik
Sigsgaard, segir í viðtali við
„Information“ um yfirlýsingu
þremenninganna:
— Það hefur verið talað um
að koma verði á kyrrð í flokkn-
um, en það verður ekki gert með
því að ' vekja vantraust á hina
löglega kjömu flokksstjórn. Mér
finnst það einnig heldur fárán-
legt að slík yfirjýsing skuli
koma frá nokkrum hellztu að-
standendum hins nýja klofnings-
tímarits sem öðru fremur hefur
valdið ókyrrðinni í flokknum.
(Larsen og félagar háns hafa ný-
lega hafið útgáfu nýs mánaðar-
rits, „Her og Nu“.)
„Þið verð'ið að fara"
Jens Maigaard, einn helzti
samstarfsmaður Aksels Larseps,
skrifar grein í „Information",
bar sem hann krefst þess að
stjórn SF segi af sér. „Þið verð-
ið að fara“, heitir greinin. Hann
kennir henni um allar deilur
innan flokksins og segir um bá
með umrituðum fleygum orð-
um Churohills: Aldrei hafa svo
fáir -eyðilagt svo mikið fyrir svo
mörgum.
Júgóslavíu á morgun í fimm
daga opinbera heimsókn. í við-
tali við blaðið „Borba“ segir
Borten að Vietnamdeilan verði
aðeins leyst með samningavið-
ræðum. Augljóst sé að hvorugur
aðilinn geti knúð fram hernað-
arlausn með úrslitasigri á víg-
vellinum. Mikil og vaxandi
hætta sé á því að stríðið breið-
ist út og því sé það mjög að-
kallandi að hlé verði gert á
vopnaviðskiptum og samninga-
viðræður hafnar, segir Borten.
markalínuna við 1.7. breiddar-
baug í Vietnam og var það í
annað sinn á þrem dögum sem
slík árás var gerð á virkið. Á
föstudaginn varpaði bandarísk
flugvél sprengjum á útvarð-
stöðvar virkisins og biðu þá
tveir bandarísikir landgöngulið-
ar bana og 21 særðist. í loft-
árásinni á virkið í gær féllu
þrir Bandaríkjamenn, en rtíu
særðust.
Stórskotálið Vietnama hélt á-
fram skothríð sinni á virkið í
gær, en skothríð á það hófst
aftur á föstudaginn, eftir nokk-
urra daga hlé. Síðan hefur
sprengjum rignt yfir það nær
látlaust.
Bandarískar flugvélar hétdu
“áfram -loftárásum á skotmörk í
Hanoi og Haipihong um helgina.
Sir Bernard Lovell, forstjóri
athugunarstöðvarinnar í Jodrell
Bank í Englandi, skýrði frá því
í dag að borizt hefði bréf frá
forseta Vísindaakademíu Sovét-
ríkjanna, M. V. Keldysh, þar
sem þess er farið á leit að fylgzt
verði með Venus IV frá Jodr-
ell Bank.
Þetta er í fyrsta sinn í all-
mörg ár sem sovézkir vísinda-
menn hafa, farið fram á aðstoð
Breta við að fylgjast með ferð-
um geimskipa og sir Bernard
þykir það benda til að þeir leggi
mikið upp úr ferð Venusar IV.
í orðsendingunni frá Keldysh
er ekki tekið fram hvort ætlunin
sé að láta geimfarið lenda á
plánetunni. Hugsanlegt sé að
það eigi að fara fram hjá henni,
en þó sé' sennilegra, að ætlunin
sé að láta það lendá hægri lend-
ingu.
Fréttamaður brezka útvarps-
ins spurði sir Bernard hvort bú-
ast mætti við því að sendar yrðu
sjónvarpsmyndir af plánetunni
frá Venus IV. Hann kvaðst ekki
hafa átt von á því, en þó væri
það alls ekki útilokað og myndi
mikill fengur að slikum mynd-
um, þar sem enginn hefur hug-
boð um hvernig umhorfs er á
yfifborði Venusar, af þvi að
plánetan er alltaf skýjum hul-
in.
Daginn eftir að Venus IV
kemur til plánetunnar verður
bandaríska geimfarið Mariner
þar á ferðinni, en því er ætlað
að fara fram hjá plánetunni.
Njósnari gefur
sig fram
WASHINGTON 16/10 — Starfs-
maður sovézku leyniþjónustunn-
ar. Évgeni Rung, að nafni, gaf
sig fyrir skömmu fram við
bandarísk hernaðaryfirvöld í
V-Þýzkalandi og hefur hann nú
fengið hæli í. Bandaríkjunum.
Runge kom upp um fjóra Vest-
ur-Þjóðverja sem hafa stundað
njósnir fyrir Sovétríkin og voru
þeir handteknir á miðvikudag-
inn. Einn- þeirra, kona að nafni
Leonore Suetterling, hehgdi sig
í fangaklefanum í gær. Hún
hafði starfað í vesturþýzka ut-
anríkisráðuneytinu og hafði þar
kómizt yfir ýms leyniskjöl sem
hún ljósmyndaði handa sov-
ézku leyniþjónustunni. Einn
hinna handteknu var eiginmað-
ur hennar.
Brenndi sig til bana til
að mótmæla Vietnamstríði
LOS ANGELES 16/10 — 55 ára gömul kona framdi í
gærkvöld sjálfsmorð í Los Angeles í mótmælaskyni við
stríðið í Vietnam. Hún vætti klæði sin í benzíni, bar eld
að og stóð þegar í björtu báli. Þetta gerðist við byggingu
sambandsstjórnarinnar f borginni. Konan, sem hét Flor-
ence Beaumont, var flutt í sjúkrahús og lézt þar skömmu
síðar.
ALLT GENGIIR
(hvar sem er og hvenær sem er
- vi3 leik og störf » úti og inni
BETURMEÐ COCA-COLA
drykkurinn sem hressir bezt, léttir skapi3
og gerir Iífi3 ánægjulegra.
FRAMLEITT AF VERKEMIOJUNMt VÍFTEFEU. í UMBOÐI THE DOCA-COLA EKPQRT OOttPORAVKM
Borten, forsætisráðherra Noregs:
Hætta verður loftárásum á
N- Vietnam skilyrðislaust
2 loftárásir gerðar á Con
Thien-virkið fyrir mistök