Þjóðviljinn - 17.10.1967, Side 7

Þjóðviljinn - 17.10.1967, Side 7
ÞrfðjH&agur K. ofebðber 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA ^ B. B. Brigitte Bartfot þýzkur borgari Hin heimsþekkta þokkadís, kvikmyndaleikkonan . Brigitte Bardot hefur ákveðið að leggj a fram sinn skerf til að efla vináttu Frakka 'og Þjóð- verja. Til* þess að tryggja og inn- sigla vináttu þessara' þjóða er áður voru erkifjendur hef- ur hin fullkomna BB ákveðið að gerast vestur-þýzkur rík- isborgari. En hún vill ekki afsala sér frönskum rikisborgararétti sínum og óskar þess að verða þannig tákn um bræðralag þjóðanna. Það var núverandi eigin- maður hennar, Gunther Sachs sem skýrði frá þessu í viðtali við Munchen biaðið Bild und Funk nýlega. Af ást á mér og löndum mínum vill eiginkona mín fá vestur-þýzkan ríkisborgara- rétt í viðbót við þann franska, sagði Sachs. Frægasta skáMsaga Kazan tzakis í íslenzkrí þýðingu Almenna bókafélagið hefur gefið út fræga skáldsögu eftir Nikos Kazantzakis, Alexis Sor- bas, í þýðingu Þorgeirs Þor- geirssonar. Gríska skáldið Kazantzakis er í fremstu röð bókmennta- ^ manna þessarar aldar. Hann var maður víðmenntaður, dokt- or í lögum og lagði síðar stund á heimspeki og bókmenntir vjð erlenda háskóla. Hann átti um skeið sæti í ríkisstjórn Grikk- lands og gegndi fleiri trúnað- arstörfum, m.a. hjá UNESCO. Hann ferðaðist mikið og bjó lengi erlendis en var þó alla ævi sjaldgæflega samgróinn þjóð sinni og ættjörð. Naut hann þar virðingar umfram aðra höfunda og fráfall hans 1957 olli þjóðarsorg. Eftir Kazantzakis hefur áð- ur komið út á íslenzku skáld- verkið Frelsið eða dauðinn, en af öðrum verkum hans hefur Alexis Sorbas náð mestri frægð og orðið vinsælust, enda er hún af flestum talin skemmtilegust allra skáldsagna hans. Sögumaðurinn er bók- menntaður heimsmaður, sem hefur dregið sig út úr skark- ala veraldar og setzt að á eynni Krit ásarnt verkstjóra sínum, Sorbasi, sem annast jöfnum höndum um ekkjuna Búbúlinu og brúnkolanámu. Þessir tveir menn eru á sinn hátt eins og ósættanlegar andstaiður í mannssálinni. I samskiptum þeirra og eðlisfari eigast við tveir öndverðir heimar, andinn og holdið, aginn og taumleys- ið, en baksvið atburðanna er ástríðumettað smábæjarsamfé- Iag í viðjum fátæktar og munkdóms. En Sorbas, þessi ó- borganlega persóna, er ekki að- eins tákn hins frumstæða Grikkja, heldur sver hann sig engu síður í ætt við grískar goðsagnahetjur, Seif og Ódys- seif,, en manninn á götunni. Þetta er með öðrum orðum persónugerð, sem gæti auð- veldlega minnt íslenzkan les- anda á tvær aðrar og nærstæð- ari sagnahetjur, þá Bjart í einm og somu Sumarhúsum og Jón Hregg- gerði kápuna. viðsson — í persónu. Bókin ,er 313 bls., prentuð og bundin i Prentsmiðju Hafnar- fjarðar. Kristín Þorkelsdóttir Norðantímarít heíur nýja útbreiðslusókn Bókaforlag Odds Björnsson- ar á Akureyri hefur síðan 1956 gefið út mánaðarritið Heima er bezt. Það hefur hlotið mikla útbreiðslu, einkum til sveita, norðanlands og austan. Hafa útgefendur nú í huga að hefja útbreiðslusókn fyrir ritið sunn- anlands og verður það sent hópi manna í Reykjavík og ná- grenni til kynningar í þrjá mánuði. Ritstjóri er Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum. Ritið flyt- ur aðallega íslenzkt efni, eink- um frásagnir og viðtöl við merka samtíðarmenn, rækilega myndskreytt, svo og framhalds- sögur eftir vinsæla höfunda (nú er birt saga eftir Magneu frá Kleifum). Þá er og í rit- inu efni fyrir yngri lesendur, dægurlagatextar, myndasaga og fleira. - ★ - Áskrifendur ritsins geta einn- ig keypt útgáfubækur forlags Odds Björnssonar með 30% af- slætti að meðaltali og fá þeir árlega senda skrá yfir bækur sem á böðstólum eru, en þær eru nú á þriðja hundrað. Nýtt smásagnasaín eftír GuBmund Frimann komiB át A'B. hefur gefið út nýtt smá- sagnasafn eftir Guðmund Frí- mann sem nefnist „Rautt sortulyng*1. Guðmundur Frímann byrjaði kornungur að yrkja og hefur getið sér orðstír sem Ijóð- skáld. Fyrsta bók hans kom út er hann var tvítugur, ,en alls hefur hann samið fimm ljóða- bækur auk þýðinga á erlend- um kvæðum. 'Fyrir þrem árum gaf hann út smásagnasafn, Svartárdalssólin, sem seldist upp á skömmum tíma að sögn útgefanda. Samkvæmt sömu heimild sækja flestar sögurnar ,í hinni nýju bók „efni í marinlegar ástríður og ástir, sem eru þó að sama skapi margvíslegar sem persónur þær sem þar fara með hlutverk eru hver annarri ólíkar að aldri og skap- gerð.“ Rautt sortulyng geymir átta sögur, 163 blaðsíður. Bókin er gerð í Prentsmiðju Hafnar- fjarðar. Torfi Jónsson teiknaði kápuna. Ljós og sjón — nýjasta bók- in á AlfræBasafni Almenna Nýlega er komin út fimmt- ánda bókin í Alfræðasafni Al- menna bókafélagsins og nefn- ist hún Ljós og sjón. Aðalhöf- undar hennar eru þau Conrad G. Mueller, prófessor í tauga- fræði við Indianaháskólann og vísindaráðunautur bandaríska sjórannsóknaráðsins, og Mae Rudolph, sem skrifað hefur margt um læknisfræðileg efni, m.a. á vegum Alberts Ein- steinslæknaskólans. Auk þeirra hefur fjöldi annarra sérfræð- inga haft hönd í bagga um samantekt og myndaval bókar- innar, en íslenzka þýðingu gerðu þeir Jón Eyþórsson veð- urfræðingur, sem jafnframt er ritstjóri Alfræðasafnsins, og Örnólfur Thorlacius, mennta- skólakennari, sem einnig skrif- ar formála fyrir íslenzku út- gáfunni. Um efni þessarar bókar þarf ekki að fara mörgum órðum fram yfir það, sem nafnið gef- ur berléga í skyn. Það er al- kunna, að ljós, litir og \jón hafa verið mönnum hugleikið efni athugunar og rannsókr.a allt frá því, er mannkynið^ komst á legg og hóf að ieita lausnar á huldum dómum til- veru sinnar og umhverfis. Og þessi þrotlausa forvitni og þekkingarleit á sér að sjálf- sögðu mjög nærtækar orsakir. Eins og komizt er að o.ði í upphafi Ljóss og sjónar hefur flestum einhvern tíma ,orðið á að loka augunum og reyna að þreifa sig áfram þvert yfir herbergi til að skapa sér hug- mynd um, hvernig það er að vera blindur. En fáir hafa sál- arþrek til að halda þessari til- raun lengi áfram, þeim verð- ur fljótt ómótt og fá ekki bælt niður þörf sína til að sjá. Er maðurinn opnar augun, léttir honum mjög, enda nefur hann endurheimt meira en sjónina: Hann er á ný í tengslum við umheiminn.“ í svo ríkum mæli á maður- inn hamingju sína og velfarn- að undir sjón sinni og því ljósi, sem gerir hondm mögu- legt að njóta hennar. Sjónin er honum ekki einungis vopn í lífsbaráttunni', heldur einnig tæki til hugsunar g þrcska og um leið uppspretta pcrsónu- legrar lífsnautnar. En þó að mannsaugað sé dásamlegt líf- færi er það ekki alltaf á- gallalaust eða ónæmt fyrir hrörnun og sjúkdómum. Fyrir því hafa hugir manna beinzt snemma að augnlækningum og jafnvel í fornöld komust menn þar furðulangt. Þannig tíðkuð- ust í Austurlöndum fyrir þrjú þúsund árum skurðaðgerðir við skýi á augum, þó að tækin væru ærið frumstæð, enda én- Happdrætti ÆF ÞEGAR HEFUR verið dregið i happdrættinu en vinnings- núnier verða ekki birt að svo stöddu þar sem margir eiga, eftir að gera skil. GERIÐ SKIL sem fyrst. Skrif- stofa ÆF í Tjarnargötu 20 er opin daglega kl. 3—7 síð- degis. att úr steini. Þá' var í Babí- lóníu lögfest gjaldskrá lyrir augnlækningar og var hún all rífleg, einnig á nútíðarmæli- kvarða sérstaklega, ef auðug- ir menn og frjálsir áttu í hlut. En ábatavoninni fylgdi líka talsverð áhætta /yrir skurð- lækninn, því að honum var gert að ' láta hönd sína, ef sjúklingurinn missti sjón við aðgerðina. Frá öllu slíku kann Ljós og sjón mörg skemmti- leg dæmi, en að sjálfsögðu skipa þar mest rúm augnvís- indi nútímans, sem á seinni árum hafa margfaldað þekk- ingu manna á ljósi og sjón- skynjun og aukið við bata- horfur augnsjúklinga að sama skapi. Þannig fjallar Ljós og sjón um efni, sem varðar hvern mann. Bókin er 200 bls. að stærð og eins og aðrar bækur Alfræðasafnsins hefur hún að geyma mikinn sæg mynda, og þar á meðal litmyndir á um það bil 70 blaðsíðum. (Frá AB). Bessi Bjarnason í hlutverki „Jónatans" í „Kardemommubæn- um“ — og Lánis Ingólfsson ’í hlutverki bakarans. Bessi Bjarnason í norska sjónvarpinu Bessa Bjamasyni hefur ver- ið boðið að taka þátt í norskri sjónvarpskvikmynd, sem norska sjónvarpið vinnur nú að. Kvik- myndin á að fjalla um norska leikritahöfundinn Thorbjöm Egner og verk hans. Margir norrænir leikarar taka þátt í þessari kvikmynd, og verður hún væntanlega sýnd í sjón- varpinu hér innan tíðar. Bessi lék sem kunnugt er i leikritum Egners, þegar þau voru sýnd hjá Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum. Hann lék Jónatan, einn ræningjanna í „Kardemommubæ“ og Mikka j:ef í leikritinu „Dýrin í Hálsa- skógi“. ★ Bessi hlaut mikið lof fyrir frábæra túlkun á þessum hlut- verkum. Þegar „Kardemommu- bærinn" var sýndur í 75. sinn var höfundurinn sjálfur stadd- ur hér og varð mjög hrifinn af túlkun Bessa á hlutverki sínu. Beiðni Loftleiða um vetrar- fargjöld synjað af ráðherra □ • Samgöngumálaráðuneytið hefur fyrir skömmu synjað til- mælum Loftleiða um sérstök vetrarfargjöld á áætlunarlcið félagsins milli Reykjavikur og Lúxemborgar. ' Um þetta mál hefur ráðu- neytið sent frá sér svofellda ályktun: Vegna blaðaummæla varð- andi svonefnd vetrarfargjöld Loftleiða h.f. á flugleiðinni Reykjavík-Luxemborg - Reykja- vík vill ráðuneytið taka eftir- farandi fram: Samkvæmt ósk Loftleiða h.f. og að fengnum meðmælum Flugráðs heimiláði ráðuneytið 17. ágúst 1963, félaginu um- beðin vetrarfargjöld á ferðum fram og til baka milli íslands annars vegar og Luxemborgar, eða Amsterdam hins vegar, til reynslu næstu tvo vetur, 1. október 1963 til 1. apríl 1964 og 1. október 1964 til 1. apríl 1965. Haustið 1965 sóttu Loftleið- ir h.f. um það til Flugráðs að mega hafa sömu vetrarfar- gjöld á flugleiðinni og áður veturinn 1965—1966.'Enda þótt Flugráð féllist á málaleitan fé- lagsins að því er Luxembor^ snerti, var málið ekki borið undir ráðuneytið og lá því ekki fyrir leyfi frá réttum aðila til vetrarfargj aldanna að þessu sinni. Haustið 1966 sóttu Loftleið- ir h.f. ekki um leyfi til sér- stakra vetrarfargj alda á þess- ari leið. Verður því að líta svo á ------------------------------^ Kveðja frá skattþegnum. Veizluhöld ríkisstjórnar og bjargráð Þið veltist stöðugt í veizluhöldum vetur, sumar og haust. Skattþegn, er boginn bo.rgar, brýnir hér sína raust: Bjargráðin ykkar birtast nú óðum; hinn blásnauði greiðir þar mest. Þið ættuð heima í hurðarlausu . . ., það hsefði ykkur bez’t. að hinn opinberi fargjaldataxti á umræddri flugleið hafi tvo siðastliðna vetur verið kr. 9.256,00 fyrir báðar leiðir, enda þótt nú sé upplýst, að taxtinn hafi í framkvæmd verið kr. 7.065,00. Hinn 15. ágúst þ.á. sóttu Loftleiðir h.f. um leyfi ráðu- neytisins til vetrarfargjalda á flugleiðinni milli Luxemborg- ar og fslands næstu tvó vet- ur, þ.e. 1. október 1967 til 1. apríl 1968 og 1. október 1368 til 1. apríl 1969. — Fargjald skyldi vera kr. 7.065,00 fyrir báðar leiðir. Rétt er að leggja áherzlu á, að umrædd vetrarfargjöld eiga aðeins við sjálfstæðar feiðir fram og til baka milli íslands og Luxemborgar, en ekki tíl ferða á þeirri leið sem ‘•luta af lengri flugleið, t.d. til '’ða frá Bandaríkjunum. Samkvæmt upplýsingum Loft- leiða h.f. var tala þeirra far- þega, sem nutu vetrarfargjalda síðustu tvo vetur 62 fyrri og .71 síðari veturinn. Ráðuneytið leitaði umsagnar Flugráðs um málið og í um- sögn ráðsins segir: „Með því að umrædd fai> gjaldalækkun myndi Dijóta al- gerlega í bága við margyfir- lýsta stefnu íslenzkra flug- málayfirvalda um að gilda skuli IATA-fargjöld milli ís- lands og annarra Evrópulanda en einmitt vegna þessarar stefnu hefur tekizt að gera 'oft- ferðasamninga við hin Evr- ópulöndin um flug íslenzkra flugfélaga til þessara landa, þá telur flugráð ekki rétt að víkja frá hinum almennu IATA fargjöldum á einni tiltekinni Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.