Þjóðviljinn - 31.10.1967, Page 8
1
g-SÍ&A — W1QÐ.3ií-í,J.ir)ra — öciðjudagiur 3L okióber ÍÍUK.
um breyting á reglugerð nr. 79 frá 27. maí
1960 um skipan gjaldeyris- og innflufcn-
ingsmála o.fl.
— 1- gr.
Ný 3. málsgrein 7. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðskiptamálaráðuneytið ákveður, að höfðu sam-
ráði við Seðlabankann, skilyrði, sem innflytjend-
ur hvers konar vara þufa að fullnægja við gjald-
eyriskaup eða innlausn vöruskjala, þar á meðal
innborganir fjár, sem heimilt er að binda í banka-
reikningi um ákveðinn tímai"'Ákvæði þetta getur
einnig náð til gjaldeyriskaupa til annars en vöru-
kaupa, samkvæmt nánari ákvörðun ráðuneytisins.
— 2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 30,
25. maí 1960, um skipan innflutnings- og gjald-
eyrismála o.fl., og öðlast gildi nú þegar.
Viðskiptamálaráðuneytið,
27. oktöber 1967.
Gylfi Þ. Gíslason (sign).
Þórhallur Ásgeirsson (sign).
LÖGTÖK
Lögtaksúrskurður að kröfu innheimtumanns rík-
issjóðs hér í bæ, var kveðinn upp 20. október s.l.
Lögtök fara fram án frekari fyrirvara á kostnað
gjaldenda, en á ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar til trygg-
ingar eftirtöldum gjaldföllnum gjöldum ársins
1967 og fyrri ára:
ÞENGGJÖLD:
Iðgjöld til almannatryggingasjóðs, slysa-
tryggingas'jóðs skv. 40. gr., atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, lífeyrissjóðs skv. 28. gr.
Alm.trl., framlög bæjars’jóðs til þeirra
sjóða, tekjuskattur, eignaskattur, launa-
skattur, námsbókagjald, iðnlánasjóðs-
gjald, iðnaðargjald, kirkjufgjaM, kirkju-
garðsgjald.
BIFREIÐAGJÖLD:
Bifreiðaskattur, bifreiðaskoðunargjald, vá-
tryggingariðgjald ökumanna. gjöld skv.
vegalögum.
Skemmtanaskattur, sælgætis- og flöskugjald.
Gjald af innlendum tollvörum.
Tollgjöld, út- og innflutningsgjald.
Skipula'gsgjald.
Skipaskoðunargj ald, lestagj ald,, vitagj ald.
Vélaeftirlitsgjald.
Óryggiseftirlitsgj ald.
Rafstöðvagjald, rafmagnseftirlitsgjald.
Fjall s'kilas j óðs gjald.
Gjöld vegna lögskráðra sjómanna.
Söluskattur.
Aukatekjur ríkissjóðs o.fl.
Vextir og kostnaður vegna innheimtu gjaldanna
eru og lögtakshæf.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
EINAR INGIMUNDARSON.
Aug/ýsing
um lokun á Almannagjá fyrir umferð
ökutækja.
Samkvæmt ákvörðun Þingvallanefndar hinn 4.
sept. 1967 verður öll umferð ökutækja um núver-
andi þ’jóðveg í Almannagjá á Þingvöllum bönnuð
frá og með hádegi hinn 1. nóv. 1967.
í stað vegarins í Almannagjá skal ekið um veginn,
sem liggur á norðurbakka Almannagjár, um Leir-
gjá og Innri-Velli og er sá vegur merktur í sam-
ræmi við þessa breytingu á umferð.
Reykjavík, 21. október 1967.
VEGAMÁLASTJÓRI.
útvarplð
Bruðkaup
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14-40 Við, sem heima sitjum. -
Gerður Magnúsd. talar um
Ólöfu skáldkonu frá Hlöðum.
15.00 Miðdegisútvarp. Hljóm-
sveit Josefs Leos Grubers
leikur. T!he New Christy
Minstrels syngja lagasyrpú.
Edmundö Ros og hljómsveit
hains leifca lög úr „Porgy og
Bess.“ Santo og Johnny leika
á sítara.
16.05 Síðdegistónleikar. Banda-
rískir hljóðfæraleikarar flytja
,.Kadenza“, kvintett fyrir
hörpu, óbó, tvær klarinettur
og fagott eftir Leif Þórárins-
son. Artur Rubinstein leikur
„Carnival“ op. 9 eftir Schu-
mann.
16.40 Framburðarkennsla í
dönsku og ensku á vegum
bréfaskólá SÍS og ASÍ.
17.05 Við græna borðið. Hjalti
Elíasson rafvirkjameistarj
flytur bridgeþátt.
17.40 Útvarpssaga bamanna: —
Alltaf gerist eitthvað nýtt. —
■ Höfundurinn, séra Jón Kr.
Isfeld, byrjar lestur nýrrar
sögu (1).
18 00 Tónlerkar. ,
19.30 Daglegt mál. Svavar Sig-
mundsson cand. mag. flytur
báttinn.
19.35 Víðsjá.
19-50 Píanósónata í f-mpll eftir
Howard Pcrguson. Dame
Myra Hess leikur á píanó.
20.15 Pósthólf 120. Guðmundur
Jónsson les bréf frá hltrstend-
um.
20.40 Lög unga fólksins. Her-
mann Gunnarsson kynnir.
21.30 Útvarpssagan: Nirfillinn
eftir Arnold Bennett. Geir
Kristjánsson íslenzkaði- Þor-
steinn Hannesson les (17).
22.15 Lúther á ríkisþinginu £
Worms. Jóhann Hannesson
prófessor flytur erindi-
22.40 „Der Heiland ist erstand-
en“, mótetta eftir Anton
Heiller. Kammerkórinn í Vín-
arborg syngur. Söngstjóri: H.
Gillesberger.
22.50 Á hljóðbergi. Bjöm Th.
Björnsson listfræðingur velur
efnið txg kynnir. Leikrit eftir
Christopher Marlove: „The
Tragical History og Doctor
Faustus“.
22-55 Fréttir í stutta máli.
Dagskrárlok.
sjónvarpið
• Þann 7. september vom gef-
in saman í hjónaband i Nes-
kirkju af séra Jóni Thoraren-
sen ungfrú Kristín Blöndail og
hr. Karl Karlsson. Heimili
þeirra er að Öldugötu 4.
(Stadio Guðmundar,
Garðastræti 8, sími 20900). ’
Þriðjudagur 31. 10. 19G7.
20.00 Erlend málefni. Umsjón:
Markús Örn Antonsson.
20.20 Nýja stærðfræðin. Sjötti
þáttur Guðmundar Arnlaugs-
sonar.
20.40 Slys. Þessa kvikmynd
gerði Reynir Oddsson fyrir
Slysavarnafélag íslands. Hún
hlaut viðurkenningu á kvik-
myndahátíð í Cork 1962.
20.55 Húsbyggingar. Þessi þátt-
ur fjallar um húsgrunhinn og
frágang á neðsta gólfi. Um-
sjón með þættinum hefur
Ólafur Jensson. fulltrúi, en
gestur þáttarins verður Har-
aldur Ásgeirsson, forstjón
I Rannsóknarstofnunar bygg-
ingariðnaðarins.
21.15 Fyrri heimsstyrjöldin. (9
þáttur). Bretar hefja strið á
nýjum vígstöðvum en bíða
mikinn ósigur við -Gallipoli.
Þýðandi og þulur: Þorsteinn
Thorarensen.
21.40 Heyrnarhjálp. Fyrri hluti
myndar- er lýsir kennslu og
meðferð heyrnardaufra
barrfa. (Nordvision — Danska
sjónvarpið).
22.10 Dagskrárlok.
• Þann 9. september s.l. voru
gefin saman í hjónaband í
Kópavogskirkju aE séra Sigurði
Hauki Guðjónssyni ungfrú
Lilja Ingibjörg Jóhannsdótlir,
Kirkjuvegi 7, Selfossi og Jón
Sævar Alfonsson, Digranesvegi
34 Kópavogi. Heimili þeirra
verður að Rauðalæk 71.
(Stadio Guðmundar.
Garðastræti 8, síml 20900).
• Hver vill
eignast bréfavin
í Kanada?
• Ung stúlka af þýzkum upp-
runa, en nú búsett í Kanada,
hefur skriíað blaðinu og bið-
ur um bréfavini á íslandi. Seg-
ist hún hafa mikinn áhuga á
landi og þjóð og langa til að
fræðast meira um ísland.
Stúlkan heitir Ursula Osteneck,
er 21 árs, skrifar þýzku og
ensku óg kann dálítið í
frönsku. Áhugamál hennar fara
nokkuð eftir árstímum, segir
hún, en eru aðallega Ijósmynd-
un, prjónaskapur, bóklestur,
bréfaskriftir og íþróttir (sund,
skíðaíerðir, útreiðar, göngu-
ferðir). Ursula vinnur nú á
skrifstofu, en fer í hjúkrunar-
nám eftir áramótin. Hún von-
ar að einhver hafi tíma til að
skrifast á við hana, en heim-
ilisfangið er:
Ursula Osteneck,
6504 — 32 Avenue N.W.,
Calgary,
Alberta,
CANADA.
• Góð auglýsing
• Eftir að tveir grímuklædd-
ir þjófar brutust nýlega inn í
eitt stærsta vöruhús Toronto,
stálu þar nær þrem miljónum
króna og komust undan á bíl,
sem þeir höfðu áður stolið írá
bílasala að nafni Willison, kom
eftirfarandi auglýsing í dag-
blöðunum:
„Það er augljóst, að ef þér
þarfnizt bifreiðar sem þér get-
ið treyst upp á sekúndu, verð-
ið þér að knupa hana hjá Pau)
Willison".
• „Veðráttan"
• Nýlega eru komin út brjú
hefti af Veðrátlunni, yfirlits-
riti Veðurstofu Islands, þ. e.
mánaðaryfirlit yfir appríl og
maí á þessu ári og tíðarfars-
yfirlit síðasta árs, 1966.
/
LÖGTÖK
Lögtaksúrskurður að kröfu innheimturnanns rík-
issjóðs hér í sýslunni var kveðinn upp 20. októ-
ber síðastliðinn.
Lögtök fara fram án frekari fyrirvara á kostnað
gjaldenda, en á ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar til trygg-
ingar eftirtöldum gjaldföllnum gjöldum ársins
1967 og fyrri ára:
ÞINGGJÖLD:
Iðgjöld til almannatryggingasjóðs, slysa-
tryggingas'jóðs skv. 40. gr., atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, lífeyrissjóðs skv. 28. gr.
Alm.trl., framlög sveitarsjóða til þessara
sjóða, tekjuskattur, eignaskattur, launa-
skattur, hundaskattur, sýsluvegasjóðsgjald,
námsbókagjald, iðnlánasjóðsgjald, iðnað-
argjald. kirk'jugjald, kirkjugarðsgjald.
BIFREIÐAG J ÖLD:
Bifreiðaskattur, bifreiðaskoðunargjald, vá-
tryggingariðgjald ökumanna. gjöld skv.
vegalögum.
Skemmtanaskattur, sælgætis- og flöskugjald.
Gjald af innlendum tollvörutegundum.
Tollgjöld, út- og innflutningsgjöld.
Skipulagsgjald.
SKIPAGJÖLD:
Skipaskoðunargjald, lestagjald, vitagjald.
V élaeftirlitsg j ald.
Öryggisef tirlitsgj ald.
Rafstöðvagjald, rafmagnseftirlitsgjald.
F jallskilas jóðsgj ald.
Gjöld vegna lögskráðra sjómanna.
Söluskattur.
Aukatekjur ríkissjóðs o.fl.
Vextir og kostnaður vegna innheimtu gjaldanna
eru og lögtakshæf. 1
i
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
EINAR INGIMUNDARSON.
Vatteraðir nyionjakkar
hettuúlpur, peysur og terylenebuxur. —
Athugið okkar lága verð. — Póstsendum.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
<§níineiital
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar íull-
komiiu sjálívirku neglingarvél.
veita íyllsta öryggi í snjó’ ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eítir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL’ hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMfVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
i
V