Þjóðviljinn - 11.11.1967, Síða 6

Þjóðviljinn - 11.11.1967, Síða 6
0 SlÐA — I>.TÖÐVILJINN — Laoigawiagw 1L. nóvember L963. • Fiðlusnillingur í morgunleikfimi • Það er cnginn venjulegur borgari scm þarna er í morgunleikfimi fyrir opnum glugga, heldur sjálfur Ychudi Mcnuhin, heimsfrægur fiðlusnillingur, sem á þennan hátt vcgur upp á móti árcynslu tónlcikanna. Myndin var tckin við glugga brczka scndiráðsins í París og cins og sést á hcnni eru það jogaæfingar sem meistarinn leggur aðaláherzlu á. XJm leikfimina hefur Mcnuhin látið hafa cftir sér: — Mig Iangar að verða 130 ára eins og fólkið í Kákasus. Kannski lærði ég þá loks að spila á balalaiku. MargfróðSr söguþœttir Nýjar bækur FramhaiUi af 2. síðu. börnum sínum myndskreytt sögubrél Fannst honum þetta milda grimmdaráhrif stríðsins á huga sinn. í þessuœ bréfum sagði hánn bömum sínum frá Dagfinni, lækninum sem af tilviljun lærði dýramál af páfagauknum sínum, hóf dýralækningar og lenti í fjölmörgum ævintýrum vegna hinnar sérstæðu tungu- málakunnáttu sinnar! Bréfin voru geymd þar til Lofting kom heim úr stríðinu, að þau voru gefin út. Bókin náði miklum vinsældum og þegar Lofting sendi aðra bók sína á markað, 1923, fékk hann Newbexy verðlaunin sem er ein mesta viðurkenning sem veitt er í Bandaríkjunum fyrir bamabækur. Nú hefur Dagfinnur dýra- læknir verið kvikmyndaður í Bandaríkjunum og fer Rex Harrison með aðalhlutverkið, en auk hans og fjölda annarra leikara koma fram 1500 tam- in dýr í myndinni. Rússar eru einnig að kvik- mynda Dagfinn dýralækni og sá sem leikur hann í þeirri mynd er frægur rússneskur leikari, Oleg Yeframov. Bókin er prentuð í Prent- smiðjunni Eddu, myndamót eru gerð hjá Litrófi hf. en kápu- teikningu annaðist Gísli B. Björnsson. Bókin kostar kr. 198,00, með söluskatti. Togaraflotl Framhald af &. síðu. skemmdar langtímum saman og vinna það eftir því, sem haganlegast er fyrir reksturinn. Til þess að greiða fyrir fram- gangi þessa máls þarf aðstoð hins opinbera að koma til, bæði að því er varðar aðild að smíðasamningi skuttogara og útvegun lánsfjár. Hins vegar er eðlilegt, að starfandi bæjarút- gerðum og öðrum togarafélög- um verði gefinn kostur á að eignast og reka hina nýju skut- togara, þegar þar að kæmi. Ef til vill reynist nauðsynlegt, meðan útgerð slíkra togara er á tilraunastígi hér, að hið cpin- bera styðji þær tilraunir með einhverjum hætti. Engan veg- inn er þó víst, að til fjárstuðn-. ings þurfi að koma umfram það, sem felst í fyrirgreiðslu varðandi hagkvæm lán til kaupanna. Jafnskjótt og einhver reynsla væri komin á hin nýju skip og talið, að hún' lofaði góðu, yrði að gera nokkurra ára á- ætlun um endurnýjun íslenzka togaraflotans, t.d. þannig, að honum bætist a.m.k. 4-5 skip á ári. En eins og nú standa sak- ir, ber brýna nauðsyn til, að sem allra fyTst sé hafizt handa um öflun skuttogara í tilrauna- skyni. Þess vegna er frumvarp þetta flutt. Charles Bickford látinn HOLLYWOOD 10/11 — Einn af kunnusfru skapgerðarleikurum bandarískra kvikmynda, Charles Biokford, lézt í nótt sem ' leið, 78 ára gamall. Hannibal Framhald af 1. síðu. hennar dóm, hvort rangt hafi verið að hafna „kostaboðum" ríkisstjórnarinnar. Hvað svo gerist, veft enginn. Það er allra veðra v<*n. Annars vil ég segja það að lokum, að það vandamál, sem þessar umræður snerust um, er smámál eitt í samanburði við vandamál atvinnuveganna, sem úrlausnar bíða. Þetta eru bara gjaldkeraá- hyggjur rikissjóðs. Erfiðleikar atvinnuveganna eru hinsvegar vandamál fjármála- ráðherrans. Og þegar þau verða tekin til úrlausnar, hygg ég að vert sé að gera sér ljóst, að þá duga þær efnahagsaðgerðir einar, sem efla og treysta grund- völl framleiðsluatvinnuveganna. — Allar aðrar efnahagsráðstaf- anir munu reynast haldlausar og á sandi byggðar. Nvtt bankaútibú Framhald af 10. síðu. búðarhverfi, en jafnfnamt nálægt oUírum verzluitar- og skrifetofu- bygs'' ’um og í grennd við vaxandi iðnaðarhverfi. Húsakynni útibúsins eru á 200 ferm. jarðhæð þar sem er af- greiðslusalur, herbergi fyrir úti- bússtjóra, tvö lítil vinnuherbergi og eldtraust geymsla. I kjallara eru geymsluhólf, kaffistofa starfsfólks, snyrtiher- bergi, fatageym.sla og almennt geymslupláss- Þess má geta að Nina Tryggva- dóttir mun gera rpósaikmynd á einn vegg afgreiðslusalarins. Auk venjulegra sparisjóðs- og hlaupareikningsviðskiptá geta viðskiptamenn Múlaútibús fengið afgreiðslu í öllum greinum gjald- eyri,sviðskipta, samkvæmt þeim reglum, sem um þau viðskipti gilda á hverjum tíma. Þetta é jafnt við um kaup og sölu á erlendum tékkum, ferðatékkum og erlendri mynt, yfirfærslum, bréflegum og símleiðis, inn- heimtu á erlendum kröfum og opnun erlendra ábyrgða. Enn- fremur annast það kaup og sölu á innlcndum ávísunum, tekur að sér innlendar innheimtur og hvcrskonar fyrirgreiðslu innan- lands og utan, sem bankar ann- ast að jafnaði. Þá mun útibúið annast varð- veizlu á verðbréfum og öðrum verðmætum, sem viðskiptamenn óska að láta bankann gcyma og annast um. Útibúið hefur geymsluhólf til leigu og menn geta fengið þar> afnot af næturhólfi- Við innréttingu húsnæðisins hefur bankinn notið aðstoðar og fyrirgreiðsu Jóns Karlssonar, arkitekts í Stokkhólmi, en Helgi Hallgrímsson annast störf arki- tckts að öðru leyti. Útibústjóri verður Jón Júl. Sigurðsson, sem undanfarið hef- ur veitt forstöðu Langholtsútibúi bankans. Bókari verður Bjarni Magnússon og gjaldkeri Gylfi Friðriksson. Framhald af 10. síðu smekklega út gefin og hefur Al- þýðuprentsmiðjan hf. sett og prent-jö inngang, en bókband annað’s^ Nýja bókbandið, hvort tveggja unnið eftir forsögn Haf- steins Guðmundssonar. Ólafur Pálmason skýrði blaða- mönnum frá vali þessa fyrsta rits í útgáfuflokiknum og sagði ad margt hefði komið til álita, eins og t.d. notagildi fyrir mál- frasðinga, fjöldi varðveittra ein- taka og hvort bókin hefði mark- að tfmamót í prentlist eða út,- gáfustarfsemi og væri bókin sem orðið hefði fyrir valinu nú af síðasta flokknum. Rakti hann hvemig allt prentverk hefði hálfa þriðju öld eftir að það fluttist til Islands verið vigt kristinni kirkju og rétttrúnaði hennar og verið undir handar- jaðri biskupa fyrst á Hólum og víðar og síðast í Skálholti eða allt fram að því að Hrappseyj- arprentverk tók til starfa 1773. Aðeins tvisvar varð ofurlítið frávik frá hinni linnulausu út- gáfu guðsorðarita, í fyrra skipt- ið þegar Islendingabók, Land- náma og fleiri voru gefnar út í Skálholti og síðan 1756 þegar Gísli biskup Magnússon og Bjöm Markússon staðarráðsmað- Hægri — vinstri Framhald af 4. síðu. félag virðist vanhaga um flest annað en akstur á hægra kanti. Þeim hundruðum miljóna, sem hverfa munu í þessa fram- kvæmd, væri sannarllega bet- ur varið til annarra hluta. Þetta vita allir og viðurkenna. Ymsir segja, að of seint sé að snúa við, það sé þegar búið að gera svo mikið. Hvað er búið að gera? Stór hópur manna fór til Svíþjóðar og lifði þar við gestrisni og góðan fagnað, nokkur gul prik hafa verið rek- in hiður meðfram þjóðvegun- um, samið um kaup á bflgrind- um, sem vafalaust er unnt að selja, þetta cr> nú öll ósköp- in. Þeir sem leggja hönd að verki til þess að stöðva þessa fárón- legu framkvæmd, munu sann- arlega fá þökk alþjóðar. maður á Hólum gáfu út Nokkra margfróða söguþætti og sama ár- ið Ágætar fornmannasögur. Hlutu útgefendur á sínum tíma þó nokkurt ámæli margra fyrir þessa útgáfu á harðinda- öld og efuðust menn um gagn- semi hennar, sagði Ólafur og vitnaði m.a. í bréf frá Birni Hall- dórssyni í Sauðlauksdal, þar sem hann segir um bókaútgáfuna á Hólum: „Þaðan útganga gamlar sögur, en á meðal þeirra nokkrar hneykslislegar ljótar lyga- og tröllasögur, hvar með fáfróður almúgi lokkast til að miðla af sínum brauðbita fyrir það, sem kóngleg majestet hefur fordæmt til eilífrar gleymsku með þvf að banna að lesa það.“ Þess má geta til gamans að bókin kostaði þá 24 fiska og var gefin út í 1000 eintökum. Tvö þeirra eru til á Landsbókasafn- inu nú. Nú er bókin komin aftur, sagði Ólafur Pálmason að lokum, — til leyfilegrar skemmtunar með- an enn er beðið eftir bjargráð- um. Jennifer Jones Jennifer Jones milli heims og helju IIOLLYW OOD 10/11 — Leik- V.onan Jennifer Jones, sem hlaut Oscarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Söngurinn um Bcrnadottu" árið 1943, fannst i dag nær dauða en lífi undir 146 metra háum kletti við Mari- buströnd i Hollywood. Henni mun þó vera hugað líf. Leit var gerð að henni eftir að Hæknir hennar skýrði frá þvi að hún ætlaði að fremja sjálfsmorð. • Leyfilegt að yfirheyra lög- reglumenn • Þjóðviljanum barst í gær eftiríarandi athugasemd pm yf- irheyrslu lögreglumanna eða -kvenna: „I sambandi við rannsókn á svokölluðu „Bjargsmáli" hefur mátt sjá í dagblöðum eftirfar- andi klausu: ..Starfskonur kvenlögregl- unnar hafa ekki verið yfir- heyrðar, en ekki er venja að lögreglumenn taki skýrslur af lögreglumönnum, en rannsókn- arlögreglumerm í Hafnarfirði hafa tekið skýrslur f þessu máli hingað til“- Vera má að það eigi að vera venja að lögreglumenn taki ekki skýrslur af lögreglumönn- um, en ég hlýt að mótmæla þessu vegna eigin reynslu. Fyr- ir nær ári síðan var gerð til- raun til að koma á mig skemmd, sem varð á lögreglu- bifreið okkar hér í flögreglu Hafnarfjarðar. Við þá ná- kvæmu rannsókn, sem fram fór í því sambandi var ég und- irritaður tekinn fyrir af Rann- sóknarlögreglunni við Lögregl- una hér- Ég vil vekja athygli á þessu og benda á, að framan greind ummæli dagblaðanna eru ekki undantekningarlaus með öllu. . Þakka fyrir birtinguna. Hafnarfirði 9- nóvember 1961 Gísli Sigurðsson lögregluvarðstjóri". flthugasemdir við Þingvallalistann í gær endurprentaði Þjóðvilj- inn lista þann" sem tímaritið Samvinnan hefur birt yfir hand- hafa sumarbústaðalóða í Þing- vallalandi. Vegna þessarar grein- ar hafa tveir einstaklingar haft samband við blaðið: Ingibjörg Thors, ekkja Ólafs Thors fyrrum forsætisráðherra, kvað það rangt að fjölskylda Ólafs Thors ætti sumarbústað innan þjóðgarðsins á Þingvöllum, hún væri ein eig- andinn. Gunnar G. Schram deild- arstjóri kvaðst ekki vera hand- hafi lóðar undir sumarbústað, hvorki í Gjábakka’andi né ann- arsstaðar á Þingvöllum. sjónvarpið 17.00 Enskukennsla sjónvarps- ins (Walter & Connie). Leið- beinandi Heimir Áskelsson. 1. kennslustund endurtekin. 2. kennslustund frumflutt. 17.40 Endurtekið efni. Labbað um Lónsöræfi. Þessa kvik- mynd gerði Ásgeir Long sumarið 1965 og lýsir hún ævintýralegu ferðalagi 12 manna hóps um eitthvert hrikalegasta fjallendi íslands. Tónlist: Ragnar Páll Einars- son. — Þulur: Róbert Ani- finnsson — Áður sýnd 18. okt. 1967. 18.10 Iþróttir. Bfni m. a. Queens Park Rangers og Blackburn úr ensku knatt- spymunni. — HLÉ — 20i.30 Frú Jóa Jóns. Aðalhlut- verkin leika Kathleen Harri- son og Hugh Manning. ís- lenzkur texti: Gylfi Gröndal. 21.20 Að hrökkva eða stökkva. (To Have and Have not). Bandarísk kvikmynd eftir skáldsögu Emest Hemingway. Handrit gerðu Jules Forth- man og William Faulkner. Aðalhlutverkin leika Hump- hrey Bogart og Laureen Bacall. íslenzkur texti: Ósk- ar Ingimarsson. • Lailgardagur 11. nóv. 1961. 13,00 Óskalög sjúkílinga. Krist- ín jSveinbjörnsdóttir kynnir. 14.30 A nótum æskunnar. Dóra Ingvadóttir og Pétur Stein- grímsson kynna nýjustudæg- urlögin. 15,10 Séra Óskar J. Þorláksson dómkirkjuprestur les sjálfval- ið efni. — Tónleikar. 16,05 Tónlistarmaður velur sér hljómplötur. — Guðmundur Jónsson söngvari. 17,05 Tómstundaþáttur barna og unglinga. Jón Pálsson liytur þáttinn. 17,(0 Úr myndabók náttúrunn- ar. Ingimar Óskarsson nátt- úrufræðingur talar um körfu- blóm. 17,50 Söngvar í léttum tón: Los Paraguayos tríóið. 19.30 Daglegt líf. Ámi Gunn- arsson fréttamaður. 20,00 „Ásýnd ófreskjunnar". — Leikrit eftir Edoardo Anton. Þýðandi: Torfey Steinsdóttir. Leikstjóri: Helgi Skúlason. Leikendur: Helga Bachmann, Jón Sigurbjörnsson, Rúrik Haraldsson, Guðrún Stephen- sen, Róbert Amfinnsson, Helga Valtýsdóttir. 21.15 Hljómsveitarsvíta nr. 2 í h-moll eftir Bach. Fílharm- oniusveit Berlínar leikur; H. von Karajan1 stjómar. Ein- leikari á flautu: Karl-Heinz Zöllner. 21,35 „Hjónin uppi og hjónin niðri“, smásaga eftir O’Henry. Sveinn Bjarman fslenzkaði. Þorsteinn ö. Stephensen les. 22.15 Danslög. 23,55 Fréttir í stuttu máli.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.