Þjóðviljinn - 11.11.1967, Blaðsíða 10
ÞORGEIR ÞORGEIRSSON
sýnír
4 KVIKMYNDIR
(ekki geröar fyrír sjónvarp)
Mitaveítuævintýrí i
Græníandsflug
AÖ byggja
tVlaÖur og verksmiðja
*
h
I
I
i
!
!
I
I
!
Q Þorgeir Þorgeirsson sýnir
í kvöld fjórar kvikmyndir sem
hann hefur gert og verða tvær
kvikmyndanna Að byggja og
Maður og verksmiðja frumsýnd-
ar. Hinar tvær eru Hitaveitu-
ævintýri sem gerð var 1963 og
Grænlandsflug sem lokið var
1965. „Þar sem ég veit að blöðin
þurfa á sínum auglýsingatekjum
að halda, ætla ég ekki að skýra
frá því núna“, sagði Þorgeir er
hann var spurður að því á blaða-
.mannafundi 1 fyrradag hvers
vegna frumsýningin væri ekki í
einhverju kvikmyndahúsanna 1
Reykjavík.
Q Leifur Þórarinsson hefur
samið tónlist í Grænlandsflug og
Að byggja.
i
Allir vélunnarar íslenzkrar kvikmyndagerðar velkomnir:
Frumsýning á isknzkum kvikmynd-
um í Hlégarði sunnudagskvöld kl. 9
Sýndar verða fjórar kvikmyndir eftir Þorgeir Þorgeirsson og fjytur
hann inngangsorð: ,Menningarlegt vandræðabarn í einangrun/
!
„Fyrir byrjandi þjóðlega
kvikmyndagerð er það allt
í senn, íyrsta verkefnið,
fyrsta siðferðiskyldan og
fyirsta listræna freistingin
að uppgötva umhverfið í
landi sínu og Iýsa því“.
Marcel Martin-
Höfundur gerir eftirfarandi
grein fyrir sýningunni og
myndunum:
„Þessar fjórar kvikmyndir,
sem nú verða samferða fyrir
almennings sjónir eru til
orðnar á síðastliðnum fimm
árum. Upphaflega var það
ætlun höfundarins, eða réttara
þó sagt von, að þessar stuttu
myndir mættu, líkt og víða
tíðkast, þéna sem aukamyndir
fyrir kvikmyndahúsin. Áhugi
kvikmyndahúsa hér á sýning-
um innlendra aukamynda hef-
ur til þessa sofið vært og
fyrst enn sjást nú engin merki
þess að hann sé að rumska er
' gripið til þess ráðs að hóa
þessum verkum saman í eina
sýningu svo sundurleit sem
þau þó eru í mörgu tilliti —
sé slíkt tiltæki vafasamt, og
vissulega er það vafasamt, þá
má þó altént reyna að afsaka
það sem eins konar afmælis-
hátíð eftir fimm ára viðleitni
til kvikmyndagerðar án mark-
aðsvoða — eitt hlálegasta
fyrirbrigði sem um getur,
— Myndirnar eru sýndar í
þeirri röð sem þær urðu til ef
ske kynni að þannig mætti
.merkja samhengisþráð í þess-
ari viðleitni.
Elzta myndin er Hitaveitu-
ævintýri, sem gerð er að til-
hlutan Reykjavíkurborgar og
vAr fullgerð sumarið 1963.
wfendin er hugsuð jöfnum
höndum sem lýsing á upphit-
unarkerfi borgarinnar og
kennslumynd fyrir börn til að
gera þeim ljósa lausn á fé-
lagslegu vandamáli. Spurs-
málið um upphitun er tengd
einföldu vandamáli, sem börn
skilja (að villast og rata heim).
Þannig gæti myndin orðið
forsenda samræðu við barn
um þetta fyrirbrigði — lausn
félagslegs vandamáls. Vonandi
firrist enginn þó þessi barna-
mynd fljóti hér með.
Þetta er frumraun höfund-
ar að loknu námi.
Grænlandsflug var tekin á
þriggja sólarhringa ferðalagi
með skíðaflugvél Flugfélags
Islands vorið 1964 en var
fullfrágefigin síðla árs 1965.
Að byggja var tekin á síð-
astliðnu ári að tilhlutan Kópa-
■ vogskaupstaðar, sem kostar
myndina að nokkru leyti í til-
efni 10 ára afmælis kaupstað-
arins.
Þetta er frumsýning þessar-
ar myndar sem og seinasta
verksins á efnisskránni: Mað-
ur og verksmiðja.
Maður og verksmiðja er
raunar fyrsta myndin sem
höfundur gerir án annars til-
efnis en þeirrar frásagnar, sem
myndin felur í sér.
Margvegsömuð sumarvinna
námsmanna er tekin ögn til
athugunar ásamt þvf um-
hverfi sem ein síldarverk-
smiðja hefur upp á að bjóða.
Þessari mynd var lókiðfyrir
mánuði.“
Dagskráin í Hlégarði hefst
kl. 9 annað kvöld með því að
Þorgeir Þorgeirsson flytur
inngangsorð sem hann nefnir:
Menningarlegt vandræðabam
í einangrun.
Síðan verða kvikmyndirnar
fjórar sýndar.
Allir velunnarar íslenzkrar
kvikmyndagerðar eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
5. útibú Landsbankans í Reykjavík:
Múlaútibú opnað í
gær aö Lágmúla 9
□ í gær viar opnað að Lágmúla 9 fimmta útibú Lands-
banka íslands í Reykjavík og nefnist það Múlaútibú. Verð-
ur þar um hönd höfð öll venjuleg bankaþjónusta, hlið-
stæð þeirri er Austurbæjarútibú veitir, þar á meðal gjald-
eyrisviðskipti.
Fyrsta útibú Landsbankans
hér í Reykjavík var Austur-
bæjarútibúið, sem stofnað var
1931 og var það lengi eina úti-
bú bankans hér í borginni...
Hefur starfsemi þess vaxið mjög
hin síðari ár, einkum eftir að
það flutti í ný húsakynni að
Laugavegi 77 vorið 1960.
önnur útibú bankans í bæn-
um eru Langholtsútibú, stofnað
1949, Vegamótaútibú, stofnað
1960 og Vesturbæjarútibú, er
stofnað var fyrir réttum 5 árum.
Öll þessi útibú eru fyrst pg
fremst fyrir sparisjóðs- og
hlaupareiknrngsviðskipti, jafn-
framt því að hafa milligöngu
um alla aðra bankaþjónustu.
Hlutur útibúanna fer ört vax-
andi í starfsemi bankans. Ef
miðað er við færslufjölda, þá er
nú svo komið, að meira en helm-
ingur viðskipta Landsbankans í
bænum, fer fram í útibúunum. I
aðalbankanum hefur samt sem
áður verið um mjög mikla aukn-
ingu viðskipta að ræða, eða eins
mikla og húsakynni hafa fram-
ast leyft. , -
Á árinu 1965 festi bankinn
kaup á húsnæði fyrir Múlaúti-
bú í húsi Bræðranna Ormsson
h-f., sem var í smíðum að Lág-
múla 9. Við staðarval var haft í
huga að húsið er við þéttbýlt í-
Framhald á 6. síðu.
Alþýðubanda-
lagið í Reykjavík
Fulltrúairáðsfundur verður
haldinn á morgun klukkan
14.00 í Domus Medica, Egils-
götu 3.
Fundarefni: Efnahagsráð-
stafanir rikisstjómarinnair og
afstaða Iaunþegasamtakanna.
Frummælándi: Hannihal
Valdimarsson, forseti ASl-
Stjómin.
Haldið námskeiB fyrir 125
stjórnendur á vinnuvélum
□ Um 125 stjómendur stórvirkra vinnuvéla sækja nám-
skeið, sem hefst hér í Reykjavík á mánudaginn kemur á
vegum öryggiseftirlitsins og Verkamannafélagsins Dags-
brúnar. \
Námskeið þetta stendur yfir
þrjú kvöld, en að auki verður
efnt til sýnikennslu í meðferð
jarðýtna, ámokstursvéla og fleiri
slíkra tækja hjá gamla gollfvell-
inum við suðurenda Kringlumýr-
arbrautar á morgun, sunnudag
ki. 2. Bandarikjamaður, sér-
fræðingur frá hinum frægu Caí-
erpillarverksmiðjum, mun sjá um
sýnikennslu þessa, en hann er
hingað kominn gagngert vegna
námskeiðsins og verður einn af
aðalkennurum þess. Þessi sýni-
kennsla á morgun er opin öllum
og ekki eingöngu ætluð þátttak-
endum námskeiðsins, en þess má,
geta að mun fleiri vildu sækja
það en hægt var að skrá til þátt-
töku. Verður því væntanlega efnt
til annars námskeiðs fyrir stjóm-
endur vinnuvéla innan skamms.
öryggiseftirllit ríkisins ogDags-
brún hafa áður efnt til svona
námskeiðs fyrir stjómendur
vinnuvéla, þ.e. á síðasta vori; en
þá voru þátttakendur á þriðja
hundrað talsins.
Margfróðir söguþættir íslendinga gefnir út á ný
. V,.. .^..^..VVV.V.V'VVNV .v.svvvv....
Til leyfilegrar skemmtunar
meðan enn erbeðið bjargráða
★ A hallærisöld, 1756, var gefin
út á Hólum bókin NOKKRIR
MARGFRÖÐIR SÖGUÞÆTT-
IR ÍSLEIWDINGA, til leyfi-
legrar skemmtunar og dægra-
styttingar þessa lands inn-
byggjurum, að því er segir á
titilblaði. ömuðust ma/rgir
við og efuðust um gagnsemi
útgáfustarfseminnar á þess-
um harðindatímum, og töldu
fólk hafa annað við fjármuni
sína að gera en eyða þeim í
bækur.
★ Nú er bókln komin út aftur
í frumgerð sinni, — „til leyfi-
legrar skemmtunar meðan
enn er beðið eftir bjargráð-
um‘‘, eins og Ólafur Pálma-
son magister, orðaði það, en
hann ritaði inngang að bók-
irnii á vegum Landsbókasafns-
ins.
Það er fyrirtækið Endurprent-
un sf. undir forystu Ólafs Þor-
grímssonar og Ólafs Hansen, sem
ráðizt hefur í endurútgáfu þess-
arar bókar í samvinnu við
Landsbókasafn Islands og hafa
þessir aðilar ákveðið að gefa út,
ef svo má til takast, nokkur
merk íslenzk rit i frumgerð
þeirra, að því er segir í upphafi
bókar. Safnsins menn vellja rit-
in og semja — eða láta semja —
inngan’g, þar sem gerð verður
grem fyriT ritunum og frumút-
gáfu þeirra, en Endurþrent sf.
arfnast að öðru leyti alla útgerð
ritanna og drehSngu þeirra.
tJtgáfuaðilar kynntu blaða-
mönnum bókina í gær og skýrði
Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður frá því að þetta væri
fyrsta bókin' í flokki islenzkra
rita, sem gefin yrðu út í frum-
gerð á þennan hátt, en næsta rit
verður Brevis Commentarivs de
Islandia eftir Arngrim Jónsson
lærða, — fyrsta vamarrit hans
gegn óhróðri erlendra manna um
ísland og íslendinga, sem út
kom í Kaupmannahöfn 1593.
Inngang að Nokkrum marg-
fróðum söguþáttum hefur Ólafur
Páknason magister ritað, en inn-
gangur að riti Arngríms lærða
verður eftir dr. Jakob Benedikts-
son. Fyflgir nngangi Ólafs út-
dráttur á ensku.
Hin ijósprentaða útgáfa sögu-
2ii Sítfeffgrttt ©f ímtun<tt/
ptffa Söttfee? Snbosgíutum
TitiII bókairinnar: Nockrer marg-frooder Sþpu-Þættcr Islcndinga til Ieifelegrar skemtunar og dægra-
stittingar þessa Iands inbyggiurum.
þáttanna er prentuð í aðeins 600
eintökum og kostar í vönduðu
bandi kr. 970,00, en þeir sem hug
hafa á að éignast bókina verða
að snúa sér beint til Endurprents
s£. á Gunnarsbraut 28, þvi hún,
verður ekki til. sölu á aimenn-
um markaði. Bókin er mjög
Framhald á 6. síðu.