Þjóðviljinn - 25.11.1967, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 25.11.1967, Blaðsíða 10
Yfir 40 árekstrar í Reykjavík og ná- grenni—4 slösuð- Mjög margrir árekgtrar urðu í hálkunni í gær í Reykjavík og nágrannabæjunum. Voru bókað- ir hjá lögreglunni í Reykjavík yfir 30 árekstrar yfir daginn, en fimm í Hafnarfirði og fimm í Kópavogi. Fólk slasaðist í tveim árekstranna. Skömmu fyrir kl. 11 varð harkalegur árekstur milli stræt- isvagns og fólksbíls á mótum Gunnarsbrautar og Flókagötu. Slösuðust háðir ökumennirnir og farþegi í folksbifreiðinni og voru fluttir á slysavarðstofuna. en ekki var vitað í gærkvöld hve alvarleg meiðsl þeirra reynd- ust. í Kópavogi varð umferðarslys um 6-leytið í gær, ekið á dreng á mótum Borgarholtsbrautar og Skólagerðis. Var drengurinn fluttur á slysavarðstofuna og síðan á Landspítalann til frek- ari rannsóknar. Skömmu síðar valt bíll á Álf- hólsvegi í Kópavogi, á móts við hús' nr. 81. Ekki urðu slys á mönnum. Alþýðubanda- liíið í Kópavogl Alþýðubandalagið í Kópavogi hefur myndasýningu í Félags- heimili Kópavogs sunnudaginn 26. nóvember kl. 4 síðdegis fyr- ir börn félagsmanna og þátt- takendur í berjaferð félagsins á sl. hausti. Sýnd verður m.a. kvikmynd sem tekin var í berja- ferðinni. Klukkan 21 um kvöldið verð- ur mynda- og kaffikvöld full- orðinna í Félagsheimilinu, efri sal. Allt Alþýðubandalaesfólk og gestir þess er velkomið tn sér- staklega er þess vænzt að þeir sem fóru í skemmtiferð Alþýðu- bandalagsins á Snæfellsnes sl. sumar mæti og taki með sér myndir úr ferðalaginu. Alþýðubandalagið á Suðurnesjum Alþýðubandalagið á Suður- nesjum heldur fund í Aðalveri í Keflavík n.k. sunnudag kl. 3 e.h. — Fundarefni: Stjórnmála- viðhorfið. — Frummælandi er Hannibal Valdimarsson. Vöruúrvals-limra í gærdag er grandvör kelling gekk út að kaupa í velling. Sagð’ún: Ég saltlúku vil. Svarað var: Ekkert til - nema splunkuný gengisfelling. 1 | Greinargerð Inga R. Helgasonar: ! Engar forsendur eru fyrir ! svo mikilli gengisfellingu | f I X r tihnfijivorð efnnhnfifiráðstöfiin. ^ □ Á fundi bankaráðs Seðlabankans er haldinn var í fyrradag var samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2 sú tillaga bankastjómarinnar að lækka gengi íslenzku krónunnar um 24,6%. Með þeirri ákvörðun greiddu at- kvæði bankaráðsmennirnir Emil Jónsson, Birgir Kjar- an og Þorvaldur Jón Júlíusson en á móti henni voru Ingi B. Helgason, fulltrúi Alþýðubandalagsins í banka- stjórninni, og Sigurjón Guðmundsson, fulltrúi Fram- sóknarflokksins. — Gerði Ingi R. Helgason eftirfar- andi grein fyrir atkvæði sínu: I " Bankastjórnin leggur hér u til, að gengi ísilenzkrar krónu ^ verði lækkað um 24,6% frá L því sem það er nú, en það " er gengisbreyting, sem felur í b sér hækkun bandaríkjadollars " um 32.6% gagnvart íslenzkri krónu. Enginn tölulegur útreikn ingur fylgir þessari tillögu, sem sýnir, hvernig hlutfalls- tala þessi er fundin, engin gögn eru lögð fram um stöðu atvinnuveganna eða þarfir H þeirra og engar upplýsingar " gefnar um áhrif þessarar stór- felildu gengislækkunar á af- komu ríkissjóðs. Tillaga þessi er því nánast órökstudd á þessum vettvangi. Gengislækkun sterlings- pundsins veldur að sjálfsögðu breytingu á viðskiptum ís- lands til hins verra. Til að vinna þá röskun upp, þarf að lækka gengi íslenzkrar krónu um 6-7% eða um svipað hlut- fall og Danir lækkuðu strax gengið hjá sér. Sú umfram- gengislækkun, sem hér erlögð ti'l, á sér því innlendar rætur, sem raktar verða til sjálfrar stjórnarstefnunnar og stað- festir hið alvarlega og sjúka efnahagsástand, sem hér ríkir nú” og sífellt hefur farið versnandi vegna verðlagsþró- unarinnar innanlands, en allt verðlag hér hefur meira en tvöfaldazt á undanförnum 6 árum. Gengislækkun er mjög var- hugaverð efnahagsráðstöfun, sem beita þarf með varfærni og aðeins undir vissum kring- umstæðum, en jákvæður og varanlegur árangur hennar þjóðhagslegur, er allur kom- inn undir sjálfri framkvæmd hennar og þeim hliðarráðstöf- unum, sem jafnframt þarf að grípa til. Gengislækkunin ein leysir engan efnahagsvanda og hún getur orðið mjög hættu- leg efnahag landsins, ef illa tekst til um framkvæmd henn- ar, svo sem verður ef ó- breyttri stjórnarstefnu verður fram haldið. Höfuðforsendur fyrir því, að framkvæma eigi gengislækk- un við núverandi aðstæður á islandi, eru þær, að sam- komulag sé við stéttasamtökin um framkvæmd hennar og hliðarráðstafanir og að víðtæk samstaða sé um það megin- atriði, að verðlagsþróuninni innanlands sé haldið í skefj- um. Með því að ekkert liggur hér fyrir um, að tilgreindar forsendur séu fyrir hehdi, get ég ekki greitt atkvæði með þessari gengislækkun og segi því nei. Ingi R. Helgason. Stjérn og trúna&arráð VR vítt fyrir framkomu sína •h í fyrrakvöld fór fram aðal- i íundur í launþegadeild sam- vinnustarfsroanna Verzl-' unarmannafélags/Reykjavíkur og gerði þessi fundur ályktun, þar sem vítt er sú ákvörðun meirihluta trúnaðarráðs og stjórnar, að hætta við verk- fallsboðun fyrsta desember á sínum tíma og rjúfa þannig dýrmæta samstöðu launþega- samtakanna til varnar kjör- um sínum í þjóðfélaginu. ★ Veiðuiv að draga í efa al- mennan hljómgrunn meðal verzlunarmanna sjálfra gagn- vart þessari ákvörðun trún- aðarráðsins. ★ Hér fer á eftir ályktun aðal- fundar og var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæð- um fundarmanna gegn einu: „Aðalfundur launþegadeildar Samvinnustarfsmanna í V.R. haldinn 23. nóvember 1967 for- dæmir harðlega þá ákvörðun meirihluta trúnaðarmannaráðs V. R. að rjúfa samstöðu alþýðusam- takanna og boða éigi til verk- falls 1. desember n.k. Telur fundurinn, að ákvörðun trúnaðarmannaráðsins sé' aðeins til þess fallinn að veikja sam- stöðu hinna vinnandi stétta í þeirri varnarbaráttu sem fram- undan er. Jafnframt mótmælir fundurinn harðlega ákvörðup formanns V.R. að kljúfa sig úr 12 manna nefnd- inni. Telur fundurinn, að bæði formaður og trúnaðarmannáráð | félagsins hafi eigi heímild • j þess að taka svo afdrifaríka til kvörðun manna. án samþykkis félags- Framhald á 7. síðu. Laugardagur 25. nóvember 1967 — 32. árgangur — 268. tölublað. Vinnubrögðunum mótmælt: Bankaráðið éttí að- eins að samþykkja! Á fundi bankastjórnar Seðla- banka íslands, þar sem form- lega var tekin ákvörðun um gengisfellingu íslenzku krónunn- ar, lét Ingi R..Helgason, fulltrúi Alþýðubandalagsins í Seðla- bankastjórninni, bóka eftirfar- andi mótmæli við vinnubrögðum er viðhöfð voru við ákvörðun gengisfellingarinnar: „Með sérstakri bokun Ieyfi ég mér að mótmæla harðlega þeim vjnnubrögðum, sem viðhöfð eru í þessu máli. Samkvæmt lögum á þessi stofnun, bankaráð Seðla- banka íslands, ákvörðunaraðikl að gengisbreytingum. Samkvæmt skýlausum lagafyrirmælum og reglugerðarákvæðum á banka- stjórn Seðlabankans, þ.e. fram- kvæmdastjórarnir þrír, að hafa „náið samráð“ við bankaráð um gengisbreytingar, ef þeirra er þörf í fjóra daga hafa öll gjald- eyrisviðskipti verið stöðvuð í landinu meðan bankastjórnin er að athuga, livort nauðsynlegt og rétt sé að fella gengi íslenzkrar krónu eða ekki. Á beim tíma hefur bankaráðið aldrei verið kvatt saman til fundar, engar upplýsingar eða útreikningar verið lagðir fyrir bankaráðið og bankaráðsmönnum ekki gefinn kostur á því að fylgjast með þeirri athugun, sem fram heför farið á vegum Seðlabankans í þessum afdrifaríku málum. Siðan ætlast bankastjórnin til að bankaráðsmenn greiði' at- kvæði um gengislækkunina án gagna og umhugsunarfrests á klukkutíma fundi. Með þessum vinnubrögðum er bankastjórnin að lítilsvirða bankaráð og virða að vettugi bein lagafyrirmæli, sem ber að víta“. Ingi R. Helgason. Datt í bálkunni og mjaðmabrotnaði Það slys varð á Suðurgötu i gærkvöld að eldri maður, Jón Á. Kristjánsson datt í hálku með þeim afleiðingum að hann mjaðmarbrotnaði og liggur nú á sjúkrahúsi. Nafn bílstjórans Maðurinn sem beið bana í bflsiysinu við Kiðafellsá á mið- vikudagskvöld var Gunnlaugur Sigursveinsson frá Ölafsfirði, 37 ára gamall. Gunnlaugur heitinn var kvæntur og átti þrjú böm. Vélhjóli stolið Aðfaranótt fimmtudagsins var stolið þríhjóli með hjálparmótor frá Efstasundi 100. Fötluð kona er eigandi hjólsins og er hvarf þess eðlilega mjpg bagalegt fyrir hana. Eru þeir sem einhverjar upplýsingar gætu gefið umstuld- in eða rekizt hafá á slíkt hjól beðnir að snúa sér til rannsókn- arl ögreglunnar. er nú að endurskoðim í gær barst Þjóðviljanum éft- irfarandi fréttatilkynning frá dómsmálaráðuneytinu: ,,Á síðastliðnu ári ritaði ráðu- neytið stjórnarnefnd ríkisspítal- anna bréf þar sem þess var ósk- að að hún gerði, í samráði við yfirlækna ríkisspítalanna, tillög- ur að reglum um verksvið og ábyrgð lækna ríkisspítalanna, einnig um starfssvið spítala- stjóra við Landspítalann og semdi frumvarp að reglugerð um verkefni og starfssvið stjómar- nefndarinnar með hliðsjón af 9. gr. sjúkrahúsalaga nr. 54'1964. Stjórnarnefndin , kornst að j^eirri niðurstcðu, að æskilegt væri, að leitað væri til Svíþjóð- ar eftir sérfræðingi til þess að kanna eftirtalin atriði: 1. Æskilegar breytingar á rekstri Landspítalans, m.a. varðandi verkefni hans, svo að hann gæti sem bezt gegnt hlutverki sínu sem kennsluspítali, sér- deildasjúkrahús fyrir landið og rannsóknaspítali. 2. Þörf fyrir starfslið í Land- spítala, vinnutíma þess og vinnuskipulag í spítalanum. 3. Hlutverk stjórnarnefndar, spítalastjóra og yfirlækna í Landspítala. Ráðuneytið leitaði aðstoðar sendiráðs íslands í Stokkhólmi, sem sneri sér til yfirstjórnar heilbrigðismála, er að lokum benti á tvo sérfróða menn, er vildu takast þetta verk á hend- ur, eða veita liðsinni sitt til úr- lausnar því. í framhaldi af þessu komu síðan hingað til lands að kvöldi sunnudagsins 19 þ.m. prófessor Carl-Axel Hamberger frá Karol- inska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og sjúkrahús-forstjóri Gunnar Högberg frá sænska Landþings- sambandinu í Stokkhólmi. Dvöldu þeir hér á landi mánu- daginn 20. og þriðjudaginn 21. nóvember, og öfluðu sér upp- lýsinga um rekstur ríkissjúkra- húsanna hér, þó einkum Land- spítalans, auk ýmissa annarra málefna er sjúkrahús og kennslu læknaefna varða. Áttu þeir fundi með eftirtöldum aðilum: Stjórnarnefnd ríkisspííalanna, stjórn læknaráðs Landspítalans, stjórnum Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur, for- seta læknadéildar Háskólans, Jónasi Hallgrímssyni lækni, Kjartani Jðhannssyni verkfræð- ingi og fulltrúum frá ráðuneyt- inu. Munu í framhaldi af þessu gerðar áætlanir um framkvæmd þeirra rannsókna, sem stefnt er að, eftir að álitsgerð berst frá hinum sænsku sérfræðingum“. Eru til varftveittar myndir af ióni biskupi Arasyni? Saga, tímarit Sögufélagsins, er nýkomið út fyrir árið 1967 og birtir m.a. varðveittar myndir af Jóni biskupi Arasyni og börn- um hans: Björn f»orsteinsson birtir þar ritgerð um Grundar- stólinn á Nationalmuseet í Kaupmannahöfn, en á herðafjöl hans og bakrimla eru skornar mannamyndir. Björn leiðir riik að þvi, að stóllinn muni skorinn síðla árs 1550 eða í janúar 1551, á vegum Þórunnar Jónsdóttur á Grund I Eyjafirði, og sé þetta minningagripur um Jón biskup og börn hans gerður handa kirkj- unni á Grund Þá birtir dr. Trausti Einars- son prófessor þar ritgerðina: Myndunarsaga Lándeyja og nokk- ur atriði byggðarsögunnar, en þar leiðir hann m.a. rök að því. að allmikill dalur hafi verið við Bergþórshvol á dögum Njáls. Dalurinn i hvolnum í Njálu er ekki jafn mikill skáldskapur og menn hafa ætlað. Haraldur Sigurðsson skriíar rækilega ritgerð um Vínlands- kortið, aldur þess og uppruna. Þar mun dregið fram það ein- hlítasta, sem um þann fræga grip hefur verið sagt. Lúðvík Kristjánsson skrifar um nýjustu og merkustu rit. i sem út hafa komið um fiskveiði- og útgerðarsögu Færeyiiíga, en færeysk saga hefur verið allt of lítið kunn hér á landi til þessa. líS á Magnús Már Lárusson Framhald á 7- *5Öu. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.