Þjóðviljinn - 02.12.1967, Blaðsíða 2
2 SlÐA — ÞJOÐVXLJXNN — Laugardagur 2. desember 1967.
Körfuknattleikur:
KR sigraði KFR me5 77:63
stigum og ÍR Ármann 62:61
I fyrrakvöld fóru fram tveir
leikir í meistaraflokki Hvíkur-
mótsins í körfuknattleik. Voru
báðir ieikirnir mjög jafnir og
spennandi, sérstaklega Ieikur
IR og Ármanns.
KR-KFR 77:63
KFR-ingar mættu mjög á-
kveðnir til leiks og beittu
vörninni maður gegn manni,
öllum á óvart, því að ]>eir voru
--------- ----- ---------— <
Fundur um 2ja
dómara kerfi með
Lennart Larsson
Á sunnudagsmorgun kl. 10
verður haldinn fundur í Vals-
heimilinu með sænska dómar-
anum Lennart Larsson, sem
dæmir hér landsleikina f hand-
knattleik við Tékka. Er fundur
bessi ætlaður handknattleiks-
dómurum og verður þar rætt
um tveggja dómarakerfið, en
nú er almennt búizt við aðþað
verði tekið upp af alþjóðasam-
bandinu 1. janúar 1969. Kerfi
þetta hefur verið reynt á öllum
Norðurlöndunum og þótt gef-
ast vel. Hér hefur það enn lít-
ið verið reynt en í athugun er
að taka það upp í II. deildinni
í vetur.
Þá verður á miðvikudaginn
kl. 5 sd. haíldinn fundur fyrir
þjálfara með tékkneska þjálf-
aranum B. König.
seinir að átta sig. Fyrir bragðið
hafðd KFR frumkvæðið mestall-
an fyrri hálfleik, en undir lok
hálfleiksins tóku KR-lingar svo-
lítinn sprett, sem skapaði þeim
4 stiga forustu í hálfleik 37:33.
Þáttur Þóris Magnússonar var
mjög stór í þessum hálfleiksem
og þeim síðari, og var hann
helzti ógnvaldur KR-vamarinn-
ar. Hitni hans var næsta ótrú-
leg, og er mjög erfitt að stöðva
hann, þegar þannig liggur á
honum.
I byrjun seinni hálfleiks
breikkaði bi'lið milli liðanna og
var orðið 15 stig, en KFR-ing-
um tókst að minnka það mjög
er á leikinn leið. Hélzt lengst
af 6-10 stiga munur, sem er
hálf ótrygg forustu í körfu-
knattleilc. Um miðjan seinni
hálfleik var Sigurði Helgasyni.
miðherja KFR, vísað af leik-
velli, eftir að hafa fengið 5
villur, og skömmu seinna
Kristni Stefánssyni, mið'heria
KR, af sömu ástæðu, Á síð-
ustu mínútum leiksins tókst
ICR-ingum aftur að auka for-
skot sitt, sem var orðið 14 stig,
þegar dómarinn flautaði leikinn
af. Lauk leiknum því með sigri
KR 77:63.
Eins og fyrr segir var Þórir
Magnússon mjög skeinuhættur
vörn KR, og hafðd hann skorað
35 stig, þegar yfir iauk. Marinó.
Sigurður og Ólafur Thorlacius
áttu aliir ágætan leik. Skoraði
Marinó 10 stig, en Sigurður og
Ólafur 8 hvor.
KR-ingar voru mjög óá-
kveðnir í fyrstu, en jöfnuðu
sig, þegar á leikinn leið. Þeir
kunna augsýnilega ekki við sig
í litla Hálogalandssalnum, og
hentar þeim eflaust betur að
leika á stórum velli. Flest stig
skoruðu: Guttormur, 28 stig,
Kolbeinn 18 og Kristinn 15.
Gunnar Gunnarsson virtist eitt-
hvað miður sín og skoraði að-
eins 1 stig, sem er fátítt, þegar
hann á í hlut. Af yngri mönn-
um liðsins áttu Ágúst Svavars-
son og Brynjólfur Markússon
beztan leik, en geta báðir gert
betur.
Dómarar í leik þessum voru
Hólmsteinn Sigurðsson og Tóm-
as Zoega, báðir úr IR. Dæmdu
þeir vægast sagt mjög illa. Má
furðulegt teljast, að KR-ingar
skuli ekki fyrir löngu hafa far-
ið fram á, að Hólmsteinn yrði
ekki látinn dæma leiki þeirra.
Kemur afstaða hans til KR-
liðsins mjög berlega í ljós í
mörgum dómum hans. Einnig
gerir hann sig sekan um það.
að dæma á brot, sem fraimið er
hinum megin á vellinum, enda
þótt meðdómari hans sé í miklu
betri aðstöðu til að dæma um
það.
ÍR-Ármann 62:61
Þessi leikur var frá fyrstu
mínútu til hinnar síðustu geysi-
lega jafn og spennandi, og var
munurinn á liðunum oft ekki
nema 2-4 stig. ÍR-ingar léku
maður gegn manni, en Ár-
menningar léku svæðisvöm. t
hálflleik var staðan 25:24 IR i
hag.
1 seinni hálfleik hélt sami
bamingurinn áfram, og á töfl-
unni mátti sjá 40-40, 50-48 og
58-56 fyrir Ármann. Var nú
komið að lokamínútum leiksins.
Agnar jafnar fyrir ÍR 58-58,
en Ármenningar skora 60-58.
Þá fær Hallgrimur, Ármanni,
tvö vítaskot, skorar í fyrra
skotinu, 61-58, en síðara skotið
misheppnast. Rúnar, Ármanni,
nær samt frákastinu. en gerir
þá stóru skyssu, þegar hann
tekur ótimabært skot úr lok-
uðu færi. Má fyrst og fremst
kenna reynsluleysi þar um. Rétt
á eftir fær Hólmsteinn, IR, tvö
vítaskot og skorar af öryggi í
báðum tilraunum, og staðan er
61-60 Ármanni í vil. Ármenn-
ingar hefja sókn, en glopra
knettinum út af. ÍR-ingar fá
knöttinn og leika fram, og
Birgir Jakobsson skorar mjög
faLlega körfu, 62-61 fyrir IR.
Vom nú aðeins um 30 sekúnd-
ur til leiksloka, og þá fær Jón
Sigurðsson, Ármanni tvö víta-
skot og þar með tækifæri til að
vinna leikinn fyrir Ármann.
En það er allt annað en þægi-
legt fyrir ungan mann, sem
leikur sinn fyrsta meistara-
flokksleik að standa á vítalínu
á síðustu sekúndum leiksins,
með úrslit leiksins í hendi sér.
Enda fór það svo að bæði skot-
in misheppnuðust, og ÍR-ingar
innsigluðu sigurinn með því að
halda knettinum það sem eft-
ir var leiktímans.
iR-liðið hefur oft leikið bet-
ur, en það gerði nú. Það sem
úrslitum réði var skynsamari
leikur þeirra undir lokin. Birg-
ir Jakobsson og Agnar Frið-
riksson vom beztu menn liðsins
og skoraðu þýðingarmikil stig.
Skúli Jóhannsson barðist vel,
og Sigmar og Þoriákur era báð-
ir efnilegir. Anton Bjarnason
gerði ýmislegt vel, en hann
virðist ekki enn vera alveg orð-
inn dús við körfuna.
Ármannsliðið vakti atihygli
fyrir góðan leik, og miklafram-
för frá því í fyrra. Rúnari hef-
ur sérstakilega farið mikið fram
í sumar, en hann vantar enn
reynslu í tvísýnum leikjum, og
einnig gerði hann sig sekan um
nokkrar kæraleysislegar send-
ingar. Sigurður Ingólfsson átti
góðan leik og er miklu ákveðn-
ari en áður. Birgir og Hall-
grímur voru báðir góðir þrátt
fyrir æfingarleysi, og var Hall-
grímur stighæsti maður liðsins.
Grímur Valdimarsson virðist
vera í betri æfingu heldur en
undanflarin ár. Sérstaka athygli
vakti hinn kornungi bakvörð-
ur, Jón Sigurðsson, sem skoraði
6 stig í síðari hluta leiksins.
Er þar mikið og gott efni á
ferð.
Leikinn dæmdu þeir Jón
Eysteinsson og Marinó Sveins-
son og gerðu hilutverkinu góð
skil.
Tilkynningar-
frestur lengdur
til 5. desember
Frestur til að skila þátttöku-
tilkynningum í íslandsmótinu f
körfuknattleik 1967 hefur verið
framlengdur til 5. desember.
Eftir þann tíma verður of seint
að tilkynna lið í mótið. Þátt-
tökutilkynningar sendist til
Körfuknattleikssambands Isl.
Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Stjómin.
VAUXHALL
BEDFORD
umboðið
ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900
Gagn-
stæð viðhorf
Þegar gengi krónunnar var
lækkað skulduðu heildsalar
og kaupsýslumenn um 700
miljónir íslenzkra króna í er-
lendum gjaldeyri — þeir höfðu
hagnýtt sér frelsið til þess að
taka lán hjá erlendum aðil-
um frekar en innlendum
vegna þess að þannig nutu
þeir mun lægri vaxta. Þessi
lán tóku kaupsýslumenn al-
gerlega á eigin ábyrgð, án
nokkurrar baktryggingar rík-
issjóðs eða íslenzkra banka
— um leið og heildsalarnir
fengu frelsið áttu þeir einn-
ig að taka á sig áhættuna.
Engu að síður lét ríkisstjórn-
in það vera fyrsta verkefni
sitt eftir kollsteypuna að létta
gengistapinu af kaupsýslu-
mönnunum, heimila þeim með
sérstökum lagaákvæðum að
hækka tafarlaust verð á öll-
um þeim vörubirgðum sem
keyptar höfðu verið fyrir er-
lent lánsfé. Á sama tíma var
launafólki sagt með lands-
föðurlegum umvöndunartóni
að það yrði að taka á sig
möglunarlaust þær byrðar
sem á það væru lagðar —
að öðrum kosti kæmi gengis-
lækkunin ekki „að gagni“.
Hver
er gengisgróðinn ?
Áhrif gengislækkunarinnar
á afkomu kaupsýslumanna
hafa vafalaust verið tvíþætt
— í reikningum þeirra er-
lendis mun fleira skráð en
skuldir. Það hefur verið al-
kunn staðreynd áratugum
saman að ýmsir íslenzkir
fjármálamenn hafa komið
undan stóreignum í erlendum
gjaldeyri, bæði í sambandi
við innflutning og útflutn-
ing. Nokkru eftir styrjöldina
lýsti einn af kunnustu stjóm-
málamölnnum fslendinga til
að mynda yfir því að hann
teldi eignir íslenzkra kaup-
sýslumanna í Bandaríkjunum
nema um 400 miljónum
króna — og þá voru krónurn-
ar margfalt stærri en nú.
Naumast dregur nokkur í
efa að hliðstæð iðja hafi
haldið áfram og verið ástund-
uð af mestu kappi þegar
gengislækkun var fyrirsjáan-
leg. Síðan 1961 hefur verð-
lag á fslandi meira en tvö-
faldazt — allt nema erlend-
ur gjaldeyrir. Öruggasta leið-
in til þess að fá traust verð-
mæti fyrir fjármuni sína var
að breyta þeim í erlendan
gjaldeyri. og íslenzkir kaup-
sýslumenn eru ekki þeir fá-
ráðlingar að þeir hafi ekki
hagnýtt þau tækifæri sem
buðust á tímum frelsisins.
Einföld leið er að gefa upp
falsaðar faktúrur en leggja
verðmuninn í banka erlendis.
en einnig hefur verið beitt
frumstæðari aðferðum. Þann-
ig skýrði Bjarni Benedikts-
son frá því á þingi fyrir
skömmu að Seðlabankinn
hefði fengið sendar frá er-
lendum bönkum miklu hærri
upphæðir í erlendum seðlum
en jafngilti farareyri ferða-
manna.
Upp:
vís dæmi
Ekki er ýkja langt síðan
uppvíst varð um mál sem
sönnuðu hversu slælegt eftir-
lit hefur verið með gjaldeyr-
isviðskiptum, bæði í sam-
bandi við innflutning og út-
flutning. Einn lítill heildsali
reyndist hafa komizt upp
með að falsa faktúrur svo
að nam miljónaupphæðum,
og trúlega mundi hann enn
vera önnum kafinn við þá
iðju ef danska lögreglan hefði
ekki skorizt í leikinn. Og nú
er rannsókn á máli eins Iít-
ils útflytjanda komin á það
stig að skiptaráðandi borgar-
fógeta hefur greint svo frá
að kröfur í gjaldþrotabú hans
nemi ríflega 54 miljónum
króna. Þar á meðal er krafa
frá erlendu fyrirtæki sem
nemur rúmlega 83 þúsund-
um sterlingspunda, eða yfir
10 miljónum íslenzkra króna.
Fróðlegt væri að fá nánari
skýringu á þeirri kröfu. Hafði
útflytjandinn, Friðrik Jörg-
ensen, fengið þessa upphæð
greidda án þess að skila út-
flutningsafurðum á móti? Og
hvað varð þá um gjaldeyr-
inn?
Gagn-
kröfur ?
Viðhorf stjórnarvaldannatil
fésýslumanna eru öll önnur
en ef launafólk á hlut að
máli. Útflytjandinn Friðrik
Jörgensen naut til að mynda
sérstakrar pólitískrar vernd-
ar Alþýðuflokksráðherranna
árum saman. Ár eftir ár veitti
Emil Jónsson honum undan-
þágur frá einokunarreglum
þeim sem annars eru í gildi
um útflutning. Nú er ekki að
undra þótt fólk spyrji hvort
gjaldþrotabú Friðriks Jörgeh-
sens gæti ef til vill átt ein-
hverjar gagnkröfur á Al-
þýðuflokkinn. Slíkt hefur áð-
ur gerzt í fjársvikamáli.
— Austri.
Rauðrófur, niðursoðnar
Agúrkur, niðursoðnar.
Kavíar í túbum.
BIRGÐASTOÐ
i
]
Happdrættis Þjóðviljans 1967
s ■
: REYKJANESKJÖRDÆMI: — Kópavogur: Hallvarður Guð- j
laugsson, Auðbrekku 21. Hafnarfjörður: Geir Gunn- j
arsson, Þúfubarð 2. Njarðvíkur: Oddbergur Eiriks-.
son. Grundarvegi 17A. Keflavík: Gestur Auðuns- j
son, Birkiteig 13. Sandgerði: Hjörtur Helgason, Upp- j
salavegi 6.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI: — Akranes: Páll Jóhanns- j
son, Skagabraut 26. Borgarnes: Olgeir Friðfinnsson.. . i
Stykkishólmur: Erlingur Viggósson. Grundarfjörð- ,í
ur: Jóhann Ásmundsson, Kverná. Heliissandur: ' !
Skúli Alexandersson. Ólafsvik: Elías Valgeirsson.
rafveitustjóri. Dalasýsla: Sigurður Lárusson, Tjalda- . i
nesi, Saurbæ. . ■
| VESTFJARÐAKJÖRDÆMI: — ísafjörður: Halldór Ólafs- ■
son. bókavörður. Dýrafjörður: Friðgeir Magnússon. 'j
Þingeyri: Súgandafjörður: Guðsteinn Þengilsson. ,j
læknir. :
j N ORÐURL ANDSK J ÖRDÆMl — VESTRA: — Blönduós: j
Guðmundur Theódórsson. Skagaströnd: Friðjón Guð- :
mundsson. Sauðárkrókur: Hulda Sigurbjarnardótt- ' j
ir, Skagfirðingabraut 37. Siglufjörður: Kolbeinh :
Friðbjarnarson, Bifreiðastöðinni. ■
j VORÐURLANDSKJÖRDÆMl — EYSTRA: — Ólafsfjörð I
ur. Sæmundur Ólafsson, Ólafsvegi 2. Akureyri: Rögn- ;
valdur Rögnvaldsson. Munkaþverárstræti 22 Húsa- ■ ■
vík: Gunnar Valdimarsson. Uppsa’avegi 12 Raufat- ;
höfn: Guðmundur Lúðvíksson. , ■
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI: — Vopnafjörður: Davíð Vig- ’j
fússon. Fljótsdalshérað: Sveinn Árnason. Egilsstöð- ■
! .■
um. Seyðisfjörður: Jóhann Sveinbjörnsson. Brekku- ■»
vegi 4 Eskifjörður: Alfreð Guðnason Neskaupstað- ■
ur: Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri Reyðarfjörður: ■
■
Björn Jónsson. kaupfélaginu. Fáskrúðsf.iörður: Har- !
aldur Björnsson. Hornafjörður: Benedikt Þorsteins- ' !
son, Höfn.
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI: — Selfoss: Þórmundur Guð . j
mundsson, Miðtún 17. Hveragerði: Björgvin Árna. ■
son, Hverahlíð 12. Stokkseyri: Frímann Sigurðs- ' ;
son. Jaðri. V.-Skaftafellssýsla: Magnús Þórðarson ;■
Vík í Mýrdal. Vestmannaeyjar: Tryggvi Gunnars-
son, Vestmannabraut 8.
I 5
j AFGREIÐSLA HAPPDRÆTTTSINS í Reykjavik er í Tjarn- j
■ argötu 20 og á Skólavörðustíg 19.
I GERID SKIL — GERIÐ SKIL.
UMBOÐSMENN