Þjóðviljinn - 16.12.1967, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.12.1967, Blaðsíða 12
Hitaveitumál rædd á fundi borgarstjóra með fréttamönnum Óhjákvæmilegt að endurbæta kerfið i vissum Nú hefur kyndistöðin við Árbæ verið tekin í fulla notkun os er farin að kynda báða katla hennar, sasði borsarstjóri á fundi með fréttamönnum í gær. Myndin er tekin í kuldakastinu um daginn er kveikt var undir fyrri katlinum í dauðans ofboði og er borgar- stjóri þarna að ræða við verkfræðing hitaveitunnar. (Ljósm. G.M.). borgarhverfum Borgarstjórinn í Reykjavík, Geir Hallgrímsson, - hélt mánaðarlegan fund með fréttamönnum blaða, útvarps og sjónvarps í gær. Var borgarstjóri þar m.a. að því spurður, hvort þess væri að vænta að viðunandi lausn fengist á hitaveitumálum í þeim hverfum borgarinnar þar sem einfalt kerfi er í götunum nema með því að breyta lögninni í tvöfalt kerfi. Svaraði borgarstjóri því til að athugun hefði leitt í Ijós, að kostnaður yrði svo geysilegur við að leggja tvöfalda lögn í gömlu hverfin, að það væri ekki framkvæman- legt. Hins vegar myndi óhjákvæmilegt að gera endur- bætur á vissum, takmörkuðum svæðum, sagði borgar- stjóri. Hítaveitumálin voru meðal þess sem borgarstjóri var spurð- ur sérstaklega um. Skýrði hann svo frá, að nú hefðu báðir katl- arnir í kyndistöðinni við Árbæ verið teknir í notkun. Ennfrem- ur sagði hann, að búið væri að setja niður eina af þeim fjórum bordselum sem komu til lands- ins um daginn, en þessar dæiur eru miklu fullkomnari og öflugri en þær sem hér hafa verið no> aðar tii þessa. Ná þær m.a. til vatnsins um 30 metrum dýpra í holunni. Hafa mælingar sýnt oð A tvinnuástandið er lakast hjá iðnaðarnwnnafélögunum Á fundi með fréttamönnum í gær var Geir Hallgrímsson borgarstjóri að því spurður meðal annars. hvað kannan- ir þær sem nú standa yfir á vegum borgarinnar á atvinnu^ ástandinu í borginni hefðu l^itt í ljós. Borgarstjóri sagði, að einn liðurinn í þessári könnun hefði verið sá, að 13 verka- lýðsfélögum í borginni var ritað bréf þar sem þau voru þeðin að láta í ljós álit sitt á þessu máli. Svör munu hafa borizt frá 11 af bessum fé- lögum og sagði borgarstjóri. að tvö þeirra, Málarafélag Reykjavíkur og Múrarafélag Reykjavíkur, hefðu talið, að ekki væri um að ræða næga vetrarv.innu fyrir félagsmenn sín§. Hin félögin 9 sem svör hafa • • gefið munu hinsvegar ekki hafa talið að um atvinnuleysi væri að ræða hjá félagsmöna- um sínum að því er þorgar- stjóri sagði. Þá var hann að því spurður hvaða svar Xðja, félag verksmi ðjufólks, hefði gefið og sagði borgarstjóri þá, að í svari Iðju hefði það m.a. komið fram, að nú væri 150 mönnum færra starfandi í verksmiðjuiðnaðinum heldur en í októbermánuði í fyrra, en aðspurður kvaðst borgar- stjóri búast við að þetta fólk hefði horfið að öðrum störf- um. Við þessar upplýsingar borg- arstjóra um atvinnuástandið i borginni vill Þjóðviljinn gera þá athugasemd, að blaðinu er kunnugt um að t.d. Félag járniðnaðarmanna sag»i í svari sínu til borgarhagfræð- ings, að verulegur samdráttur hefði orðið í atvinnu á starfs- svæði félagsins á sl. ári, eink- um hefði yfirvinna minnkað mjög mikið og sumsstaðar al- veg lagzt niður, en kaup fyrir fasta eftirvinnu hefur verið um fjórði hluti af tekjum járniðnaðarmanna. í svarbréfinu sem dagsett er 23. október s.l. segir orðréít: Beint atvinnuleysi mun ekki vera enn sem komið er, þar sem félagi voru hefur tekizt að útvega mönnum, sem þess óska, atvinnu fram til þessa. Við þetta er svo þvi að bæta, að samkvæmt upplýs- ingum sem forijnaður Félags járniðnaðarmanna gaf Þjóð- viljanum í gær, hefur ástand- ið í atvinnumálum járniðn- aðarmanna stórum versnað frá þvi í október, er félagið svaraði fyrirspurn borgarhag- fræðings. eftir að nýja dælan var sett í þessa einu holu jókst vatnsmagn- ið sem úr henni fékkst úr 23 sekúndulítrum í 43 sekúndulitra. Þá skýrði borgarstjóri frá þvi að í gær hefði átt að mæla end- anlega vatnsmagnið sem fæst úr nýju borholunni í Blesugróf, en það hefur verið áætlað vera um 40 sekúndulítrar af um 100 stiga heitu vatni. Er talið líklegt að þar sé um annað vatn að ræða en nýtt hefur verið á Reykja- víkursvæðinu og Reykjasvæðinu. Næst verður borinii fluttur nær aðalæðinni frá Reykjum og bor- að í nágrenni veiðiskálans við Eiliðaár, sagði borgarstjóri. Borgarstjóri sagði, að með hemlakerfinu sem sett hefði ver- ið upp í gömlu hverfunum þar sem aðeins er einföld hitalögn í götunum ætti að vera hægt eð jafna þrýstinginn á heita vatn- inu í einstökum hverfum borgar- i-nnar og hefði verið gripið til þess ráðs -til þess að bæta úr heitavatnsskortinum í gömlu hverfunum, þar sem alltof kostn- aðarsamt væri að leggja tvöfalt kerfi í allan gamla bæinn, en einfalt kerfi mun vera á nær ölly svæðinu inman Hringbrautar og Snorrabrautar. Þá sagði borgarstjóri, að' nú þegar ætti að vera nægilegt varmamagn fyrir hendi, það er eftir tilkomu kyndistöðvarinnar við Árbæ og nýju boríholudæl- anna, myndi það koma befcur í ljós á hvaða svæðum í borg- inni væri þörf á að gera endur- bætur á kerfinu, en þess myndi vera þörf á vissum takmörkuð- um svæðum, sagði borgarstjóri, að lokum. LOGFESTING A ARANGRI FARMANNA VIRKFALLANNA Gæti orðið fordæmi öðrum starfshópum ■ Á þingfundi j gær benti Magnús „Kjartansson á að með samþykkt skattfríðinda til farmanna er Alþingi að lögfesta jafngildi kauphækkunar til þeirra, lögfesta árangur far- mannaverkfallanna sl. sumar, og m-un það geta jafngilt allt að 14% kauphækkun fyrir ýmsa yfirmenn skipanna sem í verkföllunum stóðu. Væri hér augljóst fordæmi öðrum starfshópum og stéttarfélogum. Lýsti Magnús yfir fylgi sínu við skattfríðindin, eins og aðrir þingmenn stjórnarandstöð- unnar höfðu gert. Við 2. umræðu stjórnarfrum- varpsins um breytingar á tekjiv skattslögunum vakti Magnús Kjartamsson afchygli á því að skattfríðindin til farmanna, 36 þúsund krónur til frádráttar sem jafngilti 21.600 kr. nettókaup- hækkun væri afleiðing tvenrtra verkfalla sem yfirmeri-n á skip- unum hefðu gert á sl. surrui. Hefði fyrra verk-fallið verið bannað með lögum en hið síðara leyst með samkomulagi um skatt- fríðindi og rikissjóður þannig tek- ið að sér að greiða raunveru.lega kauphækkun í stað skipaeigenda. Yfirmennirnir sem í samningum 'hefðu átt væru yfirleitt nokkuð kaupháir, og venulegur hluli kaupsins væri tekinn í opinber gjöld. Hjá ýmsum yfirmönnum Framhald á 3. síðu. Gerið skil úti á landi ti\ umboðsmanna happ- drættisins. Sjá, skrá yfir þá á 8. síðu. Laugardagur 16. desember 1967 — 32. árgangur — 286. tölublað. Þessi mynd er tekin fyrir nokkru, þegar verið var að setja skíða- lyftuna upp, í Seljalandsdal. 1250 m. skíðalyfta sett upp á Isafirði Fundur um hitaveitu í Sigtúni HGSEIGENDAFÉLAG Reykjavíkí- ur hefur nú ákveðið fundar- stað og fundartíma til þess að ræða um hitaveitumálin. Verður þessi fundur ha-Idinn í Sigtúni næsta miðvikudags- kvöld og hefst hann ki. 8,39. A FUNDINUM munu mæta Geir Hallgrímsson, borgarstjóri og Jóhannes Zoega, hitaveitu- stjóri og veita upplýsingar við hugsanlegum fyrirspurnum frá fundarmönnum. Hér er kjörið tækifæri að kynnastá- standinu í hitavcitumálum borgarinnar. Sjálfvirk símstöð opnuð á Hellu S.l. miðvikudag var opnuð sjálfvirk símstöð á Hellu á Rang- árvöllum. Símar um 40 notenda voru tengd stöðinni og fá þeir símanúmer milili 5800 og 5899 en stöðin hefur svæðisnúmer 99 ei-ns og Selfoss. Tekin var í notkun ný skíða- lyfta, af gerðinni Pomagalski, I Seljalandsdal við Isafjörð nú i vikunni. Skiðalyftan er 1250 m. löng og nær upp á Gullhól svo- nefndan, sem ér I tæplega 500 mctra hæð. Lyftan vcrður reynd á næstunni, en ekki vígð form- lega fyrr en eftir áramót. Isfirzki skíðamaðuri-nn Krist- inn Benediktsson kalilaði blaða- menn á sinn fund í gær ogsagði frá hinni nýju skíðalyftu. A fundi-num var einnig staddur Frakkinn Daniel Bertrand, sem hefur dvalizt á Isafirði í tæpa riku og gengið endanlega frá stillingum á lyftunni o.þ.h. Sagði Kristinn að frá endastöð lyftunnar væru skíðabrekkur við allra hæfi, þar mætti velja allt frá aflíðandi brekkum upp í brattar brekkur. Lengsta brekk- an væri um 3 km, frá. Gullhóli niður að Seljalandi. Tilvallið væri fyrir þá sem vildu fara ígöngu- ferðir að fara með lyftunni uppá Gullhól, því að þaðan væri mjög víðáttumikið skiðaland sem hæfði jafnt byrjendum og þaul- æfðum s-k-íðaköppum. Daniel Bertrand sagði að fyr- irtækið Pomagalski, sem hann er fulltrúi fyrir, hefði með hönd- um um 50% af allri skíðalyftu- sölu í heiminum. Hámarksafköst s-kíðalyftunnar á Isafirði er að flytja 535 manns á klukkustund. 42 sæti eru á lyftu-nni, en möguleikar eru á að bæta við þau. Skíðalyftan kostaði hingað komin um 900 þúsund krónur og er þá ótalinn með kostnaður við uppsetningu. Eigandi hennar er Skíðalyfta-n hf. á Isafirði, sem I- þróttabandalagið á ísafirði rekur. 300 þúsund króna styrkur fékkst frá bæjarsjóði til lyftukaupanna og 400 þúsund kr. styrkur faest frá I-þrótfcasjóði. Bjarni boðinn í steik hjá stór- kaupmönnum Félag stórkaupmanna hélt hádcgisverðarfund I gærdag í Þjóðleikhúskjallaranum og bauð Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra á fundinn. Þarjia stóð upp hver heild- sa'linn á fætur öðrum og ha.fði sitt hvað að segja um hinar ; nýju álagningarreglur — var | sótt að Bjarna um hríð. Bjarni vairðist vel og enn ; drap hann á innanlandsófrið- i inn í Alþýðubandalaginu og i taldi hann veigamikinn þátt | til þess að halda verkalýðs- j hreyfingunni í skefjum — : mætti taka á sig takmarkan- i ir í bili til þess að ná miklu I meiru síðar,,— þar ætti hann i drjúgan hlut í stórkaupmönn- i um. | Þarna stóð upp meðal ann- | arra Hannes J. Þorsteinsson, | og ræddi meðal annars vænt- i anleg töp af útlendum verzl- i unarskuldum fyrir gengisfell- | ingu — hann sem innflytjandi ; hcfði samt ekki tapað neinu I af því að hann hefði gert sér i Hjóst a-f hinum miklu svardög- ; um ráðherranna fyrir gengis- j fellingu, að nú væru þeir að ■ Ijúga og hefði hagað sér sam- j kvæmt því. Þá veittist Björg- ; vin Schram stórkaupmaður, : að ráðherra og rakti nokkuð ! takmarkanir á verðlagsákvæð- Endurkjör / framkvæmda- stjórn Alþýðubandalagsins ir. Framkvæmdastjórn Al- þýðubandalagsins, sem kjör- in var á fundi miðstjórnar samtakanna fyrir skömmu, hélt fyrsta fund sinn sl. mið- vikudag. Formaður fram- kvæmdastjórnar var kjörinn Guðmundur Hjartarson, varaformaður Guðmundur Vigfússon og ritari Gils Guð- mundsson, allir endurkjöm- * 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.