Þjóðviljinn - 24.12.1967, Side 5

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Side 5
Sunnudagur 24. desember 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA g V Jolatré Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan og Stýri- mannafélag íslands halda jólatrésfagnað sihn Hótel Sögu föstudaginn 29. desember kl. 3 e.h. Aðgöngumiðar fást hjá eftirtöldum mönnum Guðjóni Péturssyni, Höfðavík, sími 15334. Jóni B. Einarssyni, Laugateig 6 sími 32707. Þorvarði Ámasyni, Kaplaskjólsvegi 45, sími 18217 Herði Þórhallssyni, Fjölnisvegi 18, sími 12823. Trésmiðafélag Reykjavíkur fyrir börn félagsmanna verður haldin í Sigtúni laugardaginn 30. desember. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu félagsins eftir 27. desember. Skemmtinefndin, Félag jámiðnaðarmanna Jólatrésskemmtun Félags járniðnaðarmanna verður haldin í Sigtúni föstudaginn 29. des. kl. 3 e.h. / Miðar verða seldir á skrifstofu félagsins Skóla- vörðustíg 16 á miðvikudag og fimmtud. kl. 5—7. W";. f Egyptaland ætti að fara að dæmi Kínverja gagnvart USA KAÍRÓ 22/12 — Blaðið „A1 Ahram“, sérstakt málgagn eg- ypzku stjórnarinnar, segir í dag að. Egyptar ættu að taka Kín- verja sér til fyrirmyndar í sam- skiptunum við Bandaríkin. Kín- verjar hafi getað varizt ásælni Bandaríkjanna, en vegna þolin- mæði þeirra hafi þeim tekizt að koma í veg fyrir að í odda skær- ist. Egyptar gætu að sjálfsögðu ekki staðið Bandaríkjunum snúning, en þeir yrðu að halda áfram að veita allt það viðnám sem þeir gætu. Engin lausn myndi fást á málum í Aust- urlöndum nær án samþykkis Bandaríkjanna, hins vegar vildu Bandarikin ekki neina póli-tíska lausn þar. Þeim bæri hins vegar skylda til að leita hennar. Þau væru í fyrsta lagi skuldbundin Egyptum vegna þess að þau lögðu að þeim að verða ekki fyrri til í stríðinu í sumar, en það hafi verið meginorsök ófar- anna. í öðru lagi myndu Banda- ríkin endurheimta vináttu araba ef þau stuðluðu að slíkri lausn og að lokum væri vert að hafa í huga að Bandaríkin ættu mik- illa hagsmuna að gæta í löndun- um fyrir botni Miðjarðarhafs. Vietnamar eru flestir Búddatrúarmenn, og hlusta á frásagnir um dauða og pínu Jesú Krists án mikilla geðbrigða. Og vissulega eiga þeir sjálfir marga píslarvotta, því daglega faiia tigir þeirra fyrir morðtólum Bandaríkjamanna og leppa þeirra. Þessi Búdda- munkur, sem brcnnir sig til bana til að mótmæla ofbeldi Bandaríkjanna og leppa þeirra í Vietnam, er dæmi um það óbugandi siðferðisþrek og fullvissu, sem einkennir baráttu Vietnama. Þessi Búddamunkur, veit að hann er ekki að frclsa heiminn. Fórn hans er einungis skerfur til hins sameiginlega málstaðar. Óskum félagsmönnum sambandsfélag- anna og samstarfsmönnum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Málm- og skipasmiðasamband íslands (M. S. í.) Enn er fæðingarhátíð fagnað af gjörvallri Adaras ætt. Að baki henni liggur hugþekk vögguminníng Krists, jötu- barnsins í Nazaret, sem við sjáum nú stöðugt blikna fyrir sfcrani Dg kaupskap í höndum þeirra hinna sömu og afmælis- barnið rak útúr helgidóminum forðum. Slíkri hneigð hefur þó ekki með öllu tekizt að ger- sneyða jólahátíðina þeim mann- úðarhugmyndum, sem tilefni hennar, mannkynsfrelsari fæddur í jötu, hefur óhjá- kvæmilega innblásið hverri kynslóð af annarri; börnum eru gefnar gjafir, og fátækum á fætuma. Af þcssu lciðir að varla getur talizt goðgá að leiða hugann að þcirri stað- reynd, að meðan við í ár ósk- um hver öðrum gleðilegra jóla, er í fjarlægu landi unnið að útrýmingu þjóðar, bókstaflega talað- Eyðíngarhernaður Bandaríkja- manna í Víetnam ber öll sér- kenni þjóðarmorðs. Með beinu innrásarstríði, spreingjurcgni og pyndíngum hyggst herra- þjóð Natóveldanna knýja ber- fætta bændur hinum megin á hnettinum í sáttafaðm sinn, og e»- nú með eitri og brennum lángt á veg komin með að gera þessu fólki ólíft í sínu eigin iandi. Þrátt fyrir þá staöreynd að árum saman ihafa blóðlæk- imir streymt um Víetnam af ÁJÓLUM Úr jólaboðskap Æskulýðsfylkingarinnar völdum Bandarikjanna og ann- arra erlendra gistivina, er hin opinbera skýríng þeirra sú að takmarkið sé eingaungu friður og samkomulag, ásamt háleit- um oröum um vilja guðs varð- andi ]>etta fátæka land. Þessi sérstæða friðunaraðgerð Banda- ríkjamanna er nú orðin ein- hver mesta viðurstyggð heims- sögunnar. Háttsettur sérfraslíngur USA um Asíumálefni hefur lýst því hve Víetnam sé Banda- ríkjamönnum ómetanlegt, ekki aðcins sem pólitísk bæki- stöð cða liður í hernað- arkerfinu, heldur einnig sem prófvcrkcfni um, hvemig vold- ugt hervcldi með litlum pólit- ískum styrk á viðkomandi stað geti sigrazt á homaðarlega vanmáttugum en hugsjónalega sterkum andstæðíngi. 1 Víet- nam geti þeir lært hvernig þeir geti auðveldlegast unnið slíkan sigur á „þýðingarmiklum" svæðum í Asíu, Afríku og Suð- ur-Ameríku. Napalmeldurinn, lati hundurinn, pyndíngamar og citurdreifíngin em með öðr- um orðum saklaus æfíng undir afskipti þessara friðarboða af þeim þjóðum sem kynnu að vilja sækja fram til mann- sæmandi lífskjara. 1 Víetnam er heimsbyggðin í senn vitni að reisn og smán mannsins, einsog þetta tvennt getur skýrast birzt, þar sem nær yfirskilvitlegt manndóms- þrek lítilmagnans verst níð- ínpslegu hci'vaidi, sem teflt er fram af siðferðislegum og pól- itískum mannleysum. Herraþjóð Nató er að friða land og æfa sig; og nú skortir Islendínga tvo vctur á tuttugu í aðild sinni að þessu morð- félagi. Bandai'íkin vinna aldrei neinskonar sigur í Vietnam. Hinn siðferðilegi sigur hins hrjáða og smáa yfir heims- böðlinum er laungu ótvíræður í þessu yfirlýsta tilraunaslát- urhúsi morðvarganna. Hversu mörg saklaus börn þeim tekst að tæta sundur með benzín- hlaupi og flisaspreingjum, hversu marga fátæka bændur þeir klófesta handa kvala- bekknum og þótt þeim tækist að eyða víotrkim.sku þjóðinni í eldslogum, biði þeirra ósigur; og sérhver skyni borinn mað- ur verður að skoða hug sinn um það hvort hann vill bíða þá niðurlægíngu með þeim. Og nú óskum við hver öðr- um gleðilegra jóla- Okkur er tamt ‘ að tala um hátíð bam- anna; og þeim er ekki gleymt þarsem vará er seld. 1 ár gefa verzlanirnar islcnzkum bömum til dæmis kost á litabókum Dg plastmódelum af Bandaríkja- • forseta og ímynd hinnar amer- ísku stríðshetju. Salan geingur vel. Á jólum skírskota menn gjaman til mcölíöunar og rétt- l'ætiskenndar. 1 því sambandi er það vægast sagt sanngjöm krafa aði menn vakni til vit- undar um ok sinnar þagnar, sinnulcysis og samsektar, þeg- ar þeir hugleiða hinn amer íska jóiaboðskap, einsog hann horfir við hciminum. Varðstaia vii bandaríska sendiráðii í dag klukkan þrjú síðdegis hefst varðstaða Æskulýðsfylkingarinnar við sendiráð Banda- ríkjanna á Íslandi. Yarðstaðan mun standa óslitið fram til klukkan þrjú á annan í jólum, en þá mun henni ljúka með ávarpi, sem Ingimar Erlendnr Sigurðsson flytur. •f / I tilefni þessara aðgerða hefur Æskulýðs- fylkingin gefið út bælding til að vekja at- hygli á málstað vietnömsku þjóðarinnar, sem dreift er í 2500 eintökum. Skrifstofa Æskulýðsfylkingarinnar í Tjarn- argötu 20 verður opin yfir jólin, og veitirhún allar nánari upplýsingar. Eru allir ungir and- stæðingar útrýmingarstríðs Bandaríkjanna í Vjetnam hvattir til að hafa samband við skrifstofuna og skrá sig á vaktir. Sími 17513.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.