Þjóðviljinn - 25.01.1968, Blaðsíða 4
4 SfÐA — ÞJÖÐVEL/JINN — Fimmtudagur 2S. janúar 1968.
Útgeíandi: Samemingarflokkur alþýðu - Sósialistaflokkurinn.
Ritstjórar: ívar H. Jónsson. (áb.), Magnús Kjartansson.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Símí 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Alvarleg áminning
Jafnvel hinir alvarlegustu atburðir missa áhrifa-
mátt sinn í hugsun manna ef þeir gerast í
sífellu, dag eftir dag og ár eftir ár. Þannig er
því til að mynda háttað um kjamorkuógnanir
Bandaríkjanna, sem láta flugvéláflota í sí-
fellu sveima í háloftunum, hlaðna vetnis-
sprengjum. Flugflotar þessir eru sendir eftir
ýmsum leiðum í átt til landamæra Sovétríkj-
anna, og hver hópur hefur meðferðis fyrirmæli um
það hvar kasta eigi vetnissprengjum innan Sovét-
ríkjanna ef slík boð berist á leiðinni. Þessi óhugn-
anlegi stríðsleikur vakti að vonum skelfingu og
reiði þegar kunnugt varð um hann, stjórrumála-
menn, vísindamenn og skáld hafa tek.ið þessa kald-
rifjuðu stríðsögranastefnu til meðferðar — í
Reykjavík hefur að undanförnu verið sýnd áhrifa-
mikil kvikmynd sem gerð var að þessu tilefni.
Engu að síður fymist yfir þennan ömurlega vem-
leika í hugum manna, enda þótt hann endurtaki
sig dag hvern; það þarf öhöpp eða slys til þess að
minna fólk á það hversu stutt er í tortímingu
kjarnorkustyrjaldar. En slík slys eru alltaf að
gerast. Bandaríska hermálaráðuneytið hefur við-
urkennt 13 slys hjá flugvélum þeim sem bera hel-
sprengjurnar yfir lönd og álfur, en ráðuneytið við-
urkennir þau slys ein sem fregnir berast af með
öðru móti. Fyrir tveimur árum fórst flugvél af
þessu tagi yfir Spáni og fjórar ve'tnissprengjut
féllu til jarðar, en mikinn viðbúnað þurfti til þess
að komast hjá hinum alvarlegustu afleiðingum. Og
á sunnudaginn var gerðist hliðstæður atburður í
nágrannalandi okkan Grænlandi með afleiðingum
sem enn em ófyrirsjáanlegar.
rr~\
^stæða er fyrir íslendinga til þess að gefa atburð-
unum í Grænlandi sérstakan gaum. Danir töldu
sig hafa um það afdráttarlausan samning við
Bandaríkjastjórn að kjarnorkuvopn yrðu ekki höfð
á dönsku landi og að flugvélar með slíkan farm
flygju ekki yfir danskt yfirráðasvæði, en stað-
reyndir hafa nú sannað að við þennan samning
er ekki staðið af hálfu bandarískra stjómarvalda.
íslenzk stjórnarvöld telja sig einnig hafa hliðstæða
samninga við Bandaríkjastjórn, en atburðirnir í
Grænlandi gera óhjákvæmilegt að það mál verði
tafarlaust tekið til nýrrar athugunar. Ríkisstjórn
íslands ber umsvifalaust að lýsa yfir því að kjam-
orkuvopn séu ekki leyfð á íslandi, að flugvéluim
með slík vopn séu bannaðar ferðir yfir íslenzkt yf-
irráðasvæði, og að lending slíkra flugvéla sé óheim-
il með öllu — einnig nauðlendingar sem hafa a '
sjálfsögðu mesta hættu í för með sér. Jafnframt
ber að ganga eftir því að ríkisstjóm Bandaríkj-
anna heiti að virða þessa stefnu í einu og öllu.
jafnframt því sem komið verði á af íslands hálfu
fullnægjandi eftirliti með efnd slíks loforðs.
þegar rætt var um þessi mál á þingi í fyrradag
virtist Emil Jónsson ekki hafa gert sér neina
grein fyrir þeim ályktunum sem íslendingar hljóta
að draga af atburðunum í Grænlandi. Hins vegaT
hét hann því að taka málið upp við Bandaríkja
stjórn, og ber alþingi að fylgiast með því að vi
það fyrirheit venði síaðið. — m.
Þeodorakis — hinn gríski tónn
EFTIR ROBERT NAUR
•r ;5 SSSftl ■
□ Þann 5. september síðastliðinn leiddi
formaður grísku öryggislögreglunnar, Papa-
spyropoulos, einn af föngum sínum tónskáld-
ið Mikis Þeodorakis fram til vitnisburðar um
það, að meðferðin á honum hefði verið sýnu
verri í fréttum en í reyndinni; hann hefði
ekki fengið svo mikið sem glóðarauga.
Um líkt leyti var lagi eft.ir
hann, sem hann kallar „Aldr-
ei“, komið á laun út úr aðal-
stöðvum lögreglunriar, sem heita
Boubouiinas, lag betta er dul-
ræður frelsissöngur, frá hendi
þess manns, sem gat komið
fólki hvar á hnettinum sem var
til að syngja Bag sitt „Zorba“,
og aðra þjóðlega söngva gríska.
Nú er beðið eftir því að
Maria Faranturi bæti þessu lagi
við þau fimmtári, sem fyrir eru,
á grammófónplötu, og þessi
hugrakki frelsisvinur ogóvenju-
legi tónsnillingur hefur ort.
Þeodorakis sjálfur og með
honum iítil tíu manna hljóm-
sveit, hefur spilað lögin inn á
plötumar, en hljómsveit þessi
ieikur á ævafom hljóðfæri grísk,
einkúm það sem kallast bouzo-
ukia, (búzúkfa) og skylt er
mandolíni eða banjó, og gefur
frá sér titrandi tóna. Lögin eru
öll saman á LP-pIötu, sem gef-
in er út hjá Columbia og nefn-
ist Hinn gríski tónn, eða Lag
Grikkiands.
Þeodorakis er sem kunnugt
er hámenntaður tónlistarmaður.
og hefur hann samið ballett.
sem hefur verið sýndur í Cov-
ent Garden árum saman, og
auk þess ýms tónverk við
gömiu grisku harmlejkina, suma
hverja.
Hann er sannfærður sósíalLsti,
hefur verið þingmaður og upp-
hafsmaður æskulýössamtaka —
sem nú eru auðvitað bönnuð —
og orðin voru svo fjölmenn, að
f þeim voru hundruð þúsunda
af ungmennum. Hann er 42 ára
og var þegar á árunum er hin
síðari heimsstyrjöld geisaði.
settur í fangelsi vegna róttækrn
skoðena.
Þegar herstjómarklíkan hrifs-
aði völdin í apríl, faldi I>eodor-
akis sig, og fannst ekki fvrr en
tveim mánuðum síðar, og var
það leynilögreglan, sem hafði
upp á honum, en hann var tek-
inn fastur á þeirri forsendu, að
hann hefði móðgað Hans hátign
Konstantín konung.
Hann var orðinn heimsfrægt
tónskáld löngu áður en hin af-
dráttarlausa stefna hans í
stjórnmálum olli þvf að hann
varð að þoia pfslarvætti henn-
ar vegna.
Tónlist hans varð honum
miki'U stuðningur til að ná tök-
um á fjöldanum, einnig i
frelsisbaráttunni, og hljómsveit
sína lét hann leika undir beru
lofti, og dreif þá að sá fjöldi
fólks, að ískyggilegt þótti, og
var lögreglan látin koma að og
dreifa mannfjöldanum. Tónlist
hans er nú bönnuð í Grikk-
landi.
í landi, sem Dengi hefur ver-
ið í viðjum frelsisskerðingar og
áþjánar, ætti ekki að þurfa að
minna á það* hvflfkt táknrænt
gildi tónlist getur haft. Með því
að fangelsa Þeodorakis ogbanna
vgrk hans, hefur herstjómar-
klíkan sýnt svo berlega sem
verða má, þvflík grimmileg
ógnarstjóm það er, sem hún
hefur kornið á, og jafnframt
hefur hún fengið andspymu-
hreyfingunni það andlegt vopn
í hendur, sem um munar. Aldr-
ei hafa lög hans fengið betrí
hljómgrunn en núna, eftir að
þau voru bönnuð.
Þeodorakis missir aldrei
marks, heldur hittir hann svo
beint að furða má finnast.
Þessi sextán lög eru öll dans-
lög, og raunar samrunnin þjóð-
legri tónlist grískri sem eng-
inn veit hverjir. eru höfundar
að. Þau hafa engan söngtexta,
en í þeim er mikil auðlegð
stemmninga, allt frá þýðum, Jýr-
iskum smálögum til eldlegs
guðmóðs og ofsa. Eæssi yfirlæt-
islausi boðskapur smýgur eyru
manns, það þýðir ekki að ætla
sér að daufheyrast við honum,
því þetta „Grikklands lag“ er
runnið úr sál þjóðarinnar
sjálfri.' Þarna má heyra tóna
Mikis Þeodorakis með Margaritu dóttur sína áður en herforingja-
stjórain komst til valda og lét handtaka hann.
frá Byzans sem og aftan úr nið-
dimmri fomeskju, tóntegund-
irnar eru sérstæðar, og hljóð-
fallið rís og hnígur án fastrar
reglu. Chopin barðist fyrir frelsi
lands sfns í sölum aðalsfólks,
en Þeodorakis gerir það mitt á
meðal landa sinna, þessa fólks
sem ekki mun lengi þola vald-
ræningjunum kúgun og píslir —
hún mun rísa upp í krafti
þéirra heilbrigðu afla, sem f
henni sjálfri búa — og setja þá
af.
Afengisneyila hefur aukizt
um 0,45 lítra s/. fimm ár
n Á árinu 1967 jókst áfengissalan hjá Áfengisverzlun
ríkisins um 41 miljón króna eða 9% frá árinu áður en
áfengisneyzlan jókst úr 2,32 lítrum á mann miðað við
10Q% áfengi í 2.38 lítra eða um 2,6%.
Árið 1967 nam heildarsala á-
fengis frá öllum útsölustöðum
Áfengisverzlunarinnar kr. 543,1
milj. og er það 4i miljón kr.
meira en árið áður en talsverð
verðhækkun varð á áfengi síð-
ari; hluta árs 1967. Salan skipt-
ist svo eftir einstökum útsölu-
stöðum á landinu:
Reykjavík 413.8 milj. kr.
Alpureyri 51.2 milj. kr.
fsafjörður 14.6 milj. kr.
Siglufjörður 8.8 milj. kr.
Seyðisfjörður 15.8 milj. kr.
Keflavík 20.6 milj. kr.
Vestm.eyjar 18.2 milj. kr.
Áfengisútsalan í Keflavík var
opnuð 24. febrúar 1967 og á-
fengisútsalan í Vestmannaeyj-
um var opnuð 10. marz. i
Áfengisneyzlan á mann, mið-
að við 1(10% áfengi, hefur auk-
izt sl. 5 ár sem hér segir:
1963: 1.92 lítrar
1964: 1.97 lítrar
1965: 2.07 lítrar
1966: 2.32 lítrar
1967: 2.38 lítrar.
Moskva 4.700 km., Suðurpóllinn 20.009 km., Ve:tingahúsið Rostungur 25 km.
m., Botn (beint niður) 3.800 m. — Þetta eru ále ranirnar á vegvísinum. sem
fljóiandi rannsóknarsioð Sovétrikjanna Norðurpóllinn-15.
Norðurpóllinn 700
stendur á hinni
í 700 metra
fjarlægð frá
Norðurpólnum
Rannsóknarstöðin Norðurpóll-
inn-15, sem er á fljótandi ís-
jaka, hefur nú farið hjá norð-
urpólnum eins og til stóð. Þeg-
ar hún komst næst honum var
hún aðeins í um mílu fjarlægð.
„Áhöfnin“ á ísjakanum skýrði
frá því að ofsaveður hafi geng-
ið yfir um það leyti. sem farið
var hjá pólnum, en hiti hafi
verið „þægilegur“ aðeins mín-
us 24 gráður á celcius.
Jakann rekur nú í átt til
Grænlands. Ferðin hófst fyrir
18 mánuðum og hefur verið
hraðað upp á síðkastið vegna
sterkfar sunnan- og suðvestan-
áttar.
Norðurpóllinn 1., sem vaíf
fyrsta sovézka rannsóknarstöð
af þessu tagi var „hrundið af
stokkunum" árið 1937.
Frá þeim tíma hafa þessai:
rannsóknarstöðvar á ísjökum
safnað mjög miklum upplýsing-
um sem koma sérstaklega að
góðum notum við veðurspár.
I