Þjóðviljinn - 19.03.1968, Blaðsíða 6
T
' • -
g SÍÐA — ÞJÓÐVIWINN — Þrtojudagur 19. irmrz 1968.
Verkfallsannáll:
Fjölmennasta verkfall á Islandi
70 félög með nœr 22 þúsund félagsmonnum tóku þátt í verkfallsaðgerðum
□ Á miðnætti aðfaramótt
mánudagstns 4. marz
hófust verkföll 30 verka-
lýðsfélaga um land allt
með hátt í 12 þúsund fé-
lagsmenn og 24 félög
önnur höfðu boðað til
verkfalla næstu daga.
Voru vérkföll þessi gerð
til þess að knýja fram
samninga við atvinnu-
rekendur um vísitöluupp-
bætur á laun.
□ Verkfallsbaráttan stóð í
hálfan mánuð og lykt-
aði með samningum við
atvinnurekendur um
nokkuð skertar vísitölu-
uppbætur. Urðu þetta
umfangsmestu verkfalls-
aðger’ðir sem orðið hafa
hér á landi. Alls tóku
þátt í verkfallsaðgerðun-
um 70 verklýðsfélög með
nálega 22 þúsund félags-
menn og þegar samning-
ar tókust voru 57 félög
með nær 20 þúsund fé-
lagsmenn í verkfalli en
5 félög höfðu samið og
8 félög voru ekki byrj-
uð i verkföllum. Hefur
það aldrei áður gerzt á
fslandi að 20 þúsundir
manna hafi verið í verk-
ifalli samtímis.
f3 Hér á eftir fer stuttur
annáll verkfallsins þar
sem drepið er á helztu
. , viðburð} í sambandi við
það og samningana.
4. marz,i mánudagur
Á miðnætti aðfaranótt 4. marz
hófust verkföll 30 verkalýðsfé-
laga, 12 í Reykjavík og 18 úti á
landi, en 6 önnur fél., 3 í Reykja-
vík og 3 úti á landi, sem boðað
höfðu verkfall þennan dag frest-
uðu framkvæmd þeirra um óá-
kveðinn tíma, en áskildu sér rétt
til að hefja verkföll með tveggja
daga fyrirvara.
Þessi verkalýðsfélög hófu verk-
föll 4. marz. Í Reykjavík: Bif-
reiðastjórafélagið Sleipnir, Bók-
bindarafélag íslands,. Félag bif-
vélavirkja, Félag blikksmiða, Fé-
lag íslenzkra kjötiðnaðarmanna,
Félag járniðnaðarmanna, Hið ís-
lenzka prentarafélag, Iðja, félag
verksmiðjufólks í Reykjavík,
Nót, sveinafélag netagerðar-
manna, Sveinafélag skipasmiða,
Trésmiðafélag Reykjavíkur,
Verkamannafélagið Dagsbrún.
Eftirtalin verkalýðsfélög úti á
landi hófu verkföll 4. marz: Bíl-
stjórafélag Akureyrar, Verka-
lýðsfélagið Eining, Akureyri,
Verkamannafélagið Hlíf, Hafnar-
firði, Verkalýðsfélag Norðfirð-
inga, Neskaupstað, Verkakvenna-
félagið ' Aldan, Sauðárkróki,
Verkalýðsfélagið Vaka, Siglu.
firði, Félag byggingariðnaðar-
manna, Árnessýslu, Járniðnaðar-
mannafélag Árnessýslu, Verka-
lýðs- og sjómannafélagið Bjarmi,
Stokkseyri, Verkamannafélagið
Báran, Eyrarbakka, Verkalýðsfé.
lag Skagastrandar, Verkakvenna-
félagið Framtíð, Eskifirði, Verka-
lýðsfélag Vopnafjarðar, Verka-
lýðs- og sjómannafélag Fáskrúðs.
fjarðar, Verkalýðs- og sjómanna-
félag Stöðvarfjarðar, Verka-
mannafélag Borgarfjarðar, Borg.
arfirði eystra, Verkamannafélag-
ið Árvakúr, Eskifirði, Verkalýðs-
félag * Raufarhafnar.
Sex félög frestuðu framkvæmd
verkfallsboðunar um sinn. í
Reykjavík voru það ASB, félag
afgreiðslustúlkna í brauða- og
mjólkurbúðum, Mjólkurfræð-
ingafélag íslands og Starfs-
stúlknafélagið Sókn, Verkalýðs-
félagið Þór, og Ökuþór á Selfossi
fréstuðu einnig verkföllum sín-
um og Verkalýðsfélag Borgar-
ness., Af verkfallsfrestun þessara
félaga leiddi, að ekki kom að
sinni til stöðvunar á vinnslu,
Hér scst hluti af samninganefnd verkalýðsfélaganna á fundi á dögunum. Talið frá vinstri: Jón Sigurðsson, Björn Jónsson, Jón Ingi-
marsson, Sigfinnur Karlsson, Sverrir Hermannsson, Jón Ágústsso n. Ernar Ögmundsson, Benedikt Davíðsson, Eðvarð Sigurðsson,
Snorri Jónsson, Björgvin Sigurðsson, Jóna Guðjónsdóttir og Hermann Guðmundsson.
flutningum og dreifingu mjólkur
né takmarkana á starfsemi
sjúkrahúsa (Sókn).
Þá höfðu 18 félög önnur boðað
verkföll næstu daga.
í félögunum 30 sem verkföllin
hófu voru um 11.600 félagsmenn.
7.500 í Reykjavíkurfélögunum 12
og 4.100 í félögunum 18 úti á
landi. Félögin 6 sem frestuðu
vérkfölium Háfa úm 1800 félags-
menn, 1.300 í Reykjavíkurfélög-
unum þrem og um 500 í Selfoss-
og Borgarnessfélögunum.
Er verkföllin hófust stóð yfir
fundur sáttasemjara ríkisins með
fulltrúum deiluaðila. Á þessum
fundi buðu atvinnurekendur að
hefja greiðslu vísitölubóta á kaup
að nýju í vor miðað við grunn-
töluna 100 1. maí n.k. og yrði vísi_
talan þá reiknuð út í fyrsta sinn
1. júní. Fólst í þessu tilboði, að
launþegar ættu að gefa eftir 5.34
% vísitölubætur sem þeim bar að
fá 1. marz og ca. 2—3% bætur
fyrir tímabilið 1. marz til 1. maí.
Fundinum lauk um miðja nótt og
bar engan árangur. Nýr fundur
hófst kl. 2 um daginn og stóð til
kl. 2 e.m.
Á alþingi 4. marz kröfðust
leiðtogar stjórnarandstöðunnar,
Lúðvík Jósepsson og Eysteinn
Jónsson, þess, að ríkisstjórnin
beitti sér þegar í stað fyrir sam-
þykkt lagaákvæða um verðtrygg-
ingu kaups og leysti þar með
kjaradeiluna. Bjarni Benedikts-
son forsætisráðherra svaraði með
því að ítreka fullyrðingar sínar
um að þjóðin öll yrði að þola
kjaraskerðingu og hótaði óspart
atvinnuleysi. Ráðherrar Alþýðu-
flokksins, Gylfi og Emil, lögðu
lítið til málanna. Emil tók undir
hótanir Bjarna um atvinnuleysi
en Gylfi ræddi eingöngu um SÍS.
Framkvæmd verkfallanna gekk
hvarvetna átakalaust þennan dag.
Fimmtudaginn 14. marz afhenti söfnunamefnd Bandalags starfsmanna ríkis og bæja Alþýðusambandinu nær hálfa miljón króna er
safnað hafði verið meðal opinberra starfsmanna til verkfallsmanna. Haraldur Steinþórsson formaður söfnunamefndar sést hér afhenda
Hannibal Valdimarssyni forseta ASl f járhæðina. Sitjandi til hægri er Kristján Thorlacius formaður ’ BSRB.
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hóf strax þennan
fyrsta verkfallsdag undirbúning
að fjársöfnun meðal félagsmanna
bandalagsins til stuðnings verk-
fallsmönnum.
5. marz, þriðjudagur
6 verklýðsfélög hófu verkföll 5.
marz. 1 í Reykjavík, Verka-
kvennafélagið Fraimsókn, og 5
úti á landi: Verkalýðsfélag Akra-
ness, Iðja, félag verksmiðjufólks
á Akureyri, Verkakvennafélagið
Framtíðin í Hafnarfir^i, Verka-
lýðsfélag Hveragerðis óg Verka-
lýðsfélag Reyðarfjarðarhrepps,
Reyðarfirði.
í verkfölum voru þá 36 félög
með um 15.400 félagsmenn, 13 fé-
lög með um 9.200 félagsmenn í
Reykjavík og 23 félög úti á landi
með samtals um 6.200 félags-
menn.
Þá boðuðu 5 ný verklýðsfélög
verkföll: Bifreiðastjórafélagið
Keilir í Keflavík, Verklýðsfélag
Tálknafjarðar, Súgandi á Suður-
eyri, Verkalýðs- og sjómannafé-
lag Bolungarvíkur og Verkalýðs.
fél. A-Húnavatnssýslu á Blöndu-
ósi.
Sáttasesnjari hóf fund með
deiluaðilum kl. 2 síðdegis og stóð
hann til kl. 3 eftir miðnætti og
bar engan árangur.
Sovézkt olíuflutningaskip með
15000 lestir af gasolíu kom til
Reykjavíkur og lagðist á ytri
höfnina en ekki var leyfð losun
úr því vegna verkfalls Dagsbrún-
ar. Hins vegar leyfði Dagsbrún
afgreiðslu olíu til kyndingar í-
búðarhúsa og í nokkrum fleiri
tilfellum; ennfremur voru veittar
undanþágur til benzínafgreiðslu
á sama hátt og í fyrri verkföllum.
Olía er hins vegar á þrotum í
borginni og benzínbirgðir tak-
markaðar.
6. marz, miðvikudagur
Eitt félag bættist í verkfallið
6. marz; Sveinafél. pípulagninga-
manna í Reykjavík. Bifreiða-
stjórafélagið Sleipnir frestaði
hins vegar verkfalli sínu til 13.
marz, er verkfall Bifréiðastjórafé-
lagsins Keilis í Keflavík hefst.
Á Norðfirði tókust' samningar
6. marz milli Verklýðsfél. Norð-
firðinga og atvinnurekenda á
staðnum og var verkfallinu þar
aflýst úm kvöldið og vinna hafin
á ný. Atvinnurekendur féllust á
þá kröfu verklýðsfélagsins að
greiða fulla visitöluuppbót á
laun, 5,34%, frá 4. marz að teljg.
Samningurinn er uppsegjanlegur
með mánaðarfyrirvara á þriggja
mánaða fresti, í fyrsta sinn 1. maí
n.k. miðað við að samningurinn
renni út 1. júní.
Sáttafundur hófst með deilu-
aðilum kl. 20.30 og stóð nokkuð
fraAi yfir miðnætti en bar engan
árangur.
Annað sovézkt olíuskip kom til
Reykjavíkur með 6000 lestir af
gasolíu og allmikið magn af ben-
síni. Lagðist það einnig á ytri
höfnina:
7. marz, fimmtudagur
Undirritaður var samningur
milli Verklýðs- og sjómannafé-
lags Stöðvarfjarðar og atvinnu-
rekenda þar á sama grundvelli og
Norðfjarðarsamningurinn.
Fimm ný félög hófu verkföll,
eitt i Reykjavík: Fél. íslenzkra
rafvirkja, og fjögur úti á landi:
Verkalýðsfélagið Baldur á ísa-
firði, Verkakvennafélagið Sigur-
von og Verkalýðs- og sjómanna-
félag Ólafsfjarðar og Verkalýðs-
félagið Bryjnja á Þingeyri.
Alls eru þá í verkfalli 39 félög
með um 16 þúsund félagsmenn,'
14 félög í Reykjavík með um 9600
félaga og 25 félög úti á landi með
um 6400 félagsmenn. 20 félög til
viðbótar þessum 39 hafa boðað
verkföll.
Sáttafundur hófst kl. 2.30 síð-
degis og stóð til kl. 7 um kvöldið
en bar engan árangur.
Selfossfélögin, Þór og Ökuþór,
hafa tilkynt að þau muni hefja
verkfall á laugardaginn en þau
frestuðu verkfallinu 4. marz eins
og áður er sagt. Þa mun Mjólk-
urfræðingafélagið hefja verkfall
sitt á mánudaginn. Leggst vinnsla
mjólkur og flutningar hennar frá
Selfossi til Reykjavíkur því nið-
ur á laugardag. Þá hefur Starfs-
stúlknafélagið Sókn ákveðið að
hefja verkfall sitt á mánudag, 11.1
marz og lamast þá strax starf-
semi sjúkrahúsa borgarinnar.
— Á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur kom til umræðu og
afgréiðslu svohljóðandi tillaga
frá borgarfulltrúum Alþýðu-
bandalagsins og Framsóknar-
flokksins:
„Borgarstjómin ályktar eftir-
farandi varðandi vísitölubætur á
laun: •
1. aS fela borgarstjóra og borgar-
ráði að taka nú þegar tipp sér.
samninga um verðtryggingu
kaupgjalds við þau verkalýðs-
félög, sem borgin er samnings-
aðili við.
2. að greiða starfsfólki borgar-
innar og borgarstofnana visi-
tölubætur á laun samkv. vísi-
tölu Hagstofunnar frá 1. marz
1968 og eftirleiðis með sama
hætti og var, áður en verð-
trygging launa var numin úr
lögum.“
Þessari tillögu var vísað frá með
i
i
l
I