Þjóðviljinn - 19.03.1968, Page 7
I
Þr&S&sdagux 19. nwz 1968 — ÞJÖÐ'VII.nNTí — SÍÐA
....... ——------------------------------------------------------------------
A samningafundi á dögunum. Talið frá vinstri: Eövarð Sigurðsson, Snorri Jónsson, Björgvin Sigurðsson, Jóna GuðjónsdóUir, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Hermann Guðmundsson, Ifannibal VaHdimarsson, Jón Sigurðsson, Björn Jónsson, Magnús Sveinsson, Jón
fiiirfinniir Kark^nn.
Ino'iana.netiAn
gegn 5 atkvaeðum Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknar. Tvejr
fultrúar Alþýðuflokksins sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna! — Um
kvöldið voru yerkfallsmálin til
umræðu á fundi fulltrúaráðs Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík.
Benedikt Davíðsson hafði fram-
söguræðu í málinu en aðrir ræðu-
menn voru Guðmundur Ágústs-
son, Páll Bergþórsson, Helgi Guð-
mundsson, Magnús Kjartansson,
Jón Snorri Þorleifsson, Jens
Tómasson og Haraldur Steinþórs-
son.
8. marz, föstudagur
Eitt félag í Reykjavík hóf verk-
fall 8. marz; Sveinafélag hús-
gagnasmiða og er tala verkfalls-
félaga þá komin upp í 40. í hóp
þeirra félagá sem boðað hafa
verkföll hafa bætzt Verkalýðsfé.
lagið Fram á Seyðisfirði, Sveina-
félag húsgagnabólstrara í Reykja-
vík, Verkalýðsfélag Húsavíkur
og Iðnsveinafélag Suðurnesja í
Keflavík. Þá hefur eitt félag sem
ekki er aðili að ASÍ, Félag ofsett-
prentara, samþykkt að boða til
verkfalls.
Félag offsettprentara samþykkti
einnig á fundi að banna félags-
mönnum sínum að vinna við frá-
gang Ijósprentaðra blaða meðan
verkfall prentara stendur yfir.
Var samþykkt þessi gerð vegna
dulbúinnar útgáfu Vísis undir
nafninu „Blaðið“, sem ljósprent-
að er hjá Kassagerð Reykjavíkur.
Þessi samþykkt kom þó ekki til
framkvæmda þar er Kassagerðin
hótaði skaðabótamáli.
Sáttafundur hófst kl. 4 síðdegis
og stóð til kl. 2 eftir miðnætti.
9. marz, laugardagur
Enn eitt félag í Reykjavík hóf
verkfall: Málarafélag Reykjavík-
ur. Þá hófst verkfall félaganna
Þórs og Ökuþórs á Selfossi, sem
frestað höfðu framkvæmd boðaðs
verkfalls 4. marz. Eru þá 43 félög
komin í verkföll.
* Af verkfalli Selfossfélaganna
leiðir að aðeins um 15 þúsund
lítrar mjólkur komast á markað-
inn í Reykjavík daglega í stað 80
—90 þúsund lítra áður. Var mikil
hömstrun á mjólk í Reykjavík og
nágrenni í dag.
10. marz, sunnudagur
Eitt félag enn bættist í hóp
verkfallsfélaganna í dag: Súgandi
á Suðureyri í Súgandafirði. Eru
þá alls 44 félög komin í verkfall.
Samningafundur hófst í kvöld
og stóð hann fram á nótt en bar
engan árangur fremur en fyrri
fundir.
Mikið þref stendur nú yfir út
af losun olíuskipanna sovézku en
olía er nú alveg á þrotum í borg-
inni. Skipin eru búin að vera
hér svo lengi að þeim ber ekki
lengur skylda til þess að bíða og
geta þau farið er þau vilja. Dags-
brún neitar enn um leyfi til þess
að losa oiíuna í geyma í landi. Þá
vildu olíufélögin fá að losa olíu
úr skipunum í Litlafell tfl flutn-
inga á hafnir þar sem ekki er
verkfall og töldu sam-ningsrof ef
skipstjórarnir yrðu ekki við
þeirri ósk. Dagsbrún lýsti hins
vegar yfir að það væri verkfalls-
brot að losa olíu í Litlafellið.
11. itjarz, mánudagur
Fjögur ný félög hófu verkföll
en þrjú sömdu. Mjólkurfræðinga-
félag íslands og Starfsstúlknafé-
lagið Sókn, sem frestað höfðu
verkfállsaðgerðum í viku hófu
þær nú. Þá hóf Múrarafélag
Reykjavíkur verkfall og sömu-
leiðis Verkalýðsfélag Austur-
Húnvetninga á Blönduósi. Eru þá
alls 45 félög í verkfalli.
Þrjú félög á Austurlandi gerðu
bráðabirgðasamkomulag við at-
l vinnurekendur og afléttu verk-
föllum sínum. Voru það Verka-
kvennafélagið Framtíðin og
Verkamannafélagið Árvakur á
Eskifirði og Verkalýðs. og sjó-
imannafél. Fáskrúðsfjarðar. Sam-
ið var um að atvinnurekendur
greiddu fulla vísitöluuppbót í
einn mánuð en síðan tækju gildi
væntanlegir Reykjavíkursamn-
ingar. Þá var samið um að
hreppsfélögin greiddu mismun-
inn, þ.e. bættu atvinnurekendum
það sem þeir kynnu að greiða
umfram væntanlega Reykjavík-
ursamninga þennan mánaðar-
tíma.
Eitt félag utan vébanda ASÍ,
Félag byggingariðnaðarmanna í
Hafnarfirði boðaði verkfall 18.
marz. Þá var um helgina sam-
þykkt í Verzlunarmannafélagi
Akureyrar heimild til vinnu-
stöðvunar í samráði við önnur
félög innan LÍV.
Lögg var fram á Alþingi eftir-
farandi þingsályktunartillaga um
lausn verkfalla. Flutningsmenn:
Lúðvík Jósepsson, Ólafur Jó-
hannesson, Magnús Kjartansson
og Þórarinn Þórarinsson:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að beita sér þegar í
stað fyrir lausn verkfallanna
með lagasetningu um verðtrygg-
ingu launa í samræmi við það
sem verkalýðsstéttin hefur sett
fram.“
Farið var fram á útvarpsum-
ræður um þingsályktunartillög-
una.
Sáttafundur hófst kl. 20.30 og
stóð til kl: 4 eftir miðnætti.
Hafin fjársöfnun á vegum ASI
um land allt til styrktar þeim
sem í verkföllunum eiga. Fram-
kvæmdanefnd söfnunarinnar
skipa Þórir Daníelsson fram-
kvæmdastjóri Verkamannasam-
bands íslands, Sigfús Bjarnason
varaformaður Sjómannafélags
Reykjavíkur og Helgi K Guð-
brandsson stjórnarmaður í Verzl-
unarmannafélaginu.
12. marz, þriðjudagur
Fimm ný verklýðsfélög úti á
landi hefja verkföll: Verka-
kvennafélagið Snót og Vérka-
lýðsfélag Vestmannaeyja, Verka.
lýðsfélag Patreksfjarðar, Verka-
lýðsfélag Tálknafjarðar og
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur.
Þá stendur yfir verkfall hjá 50
verklýðsfélögum með samtals um
18.500 félagsmenn, 19 félögum í
Reykjavík með um 11 þúsund fé.
lagsmönnum og 31 félagi úti á
landi með um 7.500 félagsmönn-
um. 5 félög úti á landi með sam-
tals um 800 félagsmenn hafa
samið.
Sáttasemjari boðaði til fundar
með deiluaðilum að kvöldi 12.
marz og stóð fundurinn fram um
kl. 2 um nótina. Á þessum fundi
hneyfði sáttasemjari fyrsit hug-
myndum sem hann var með um
lausn deilunnar og fóru tillögur
hans nokkuð bil beggja. Voru
helztu atriði þeirra að verkalýðs-
félögin gæfu eftir um helming
þeirra vísutölubóta sem þau áttu
rétt á 1. marz en fengju síðan
greiddar vísitöluuppbætur í á-
föngum. Einnig að miðað yrði við
um 10 þúsund króna laun jafnt
fyrir alla, sem vísitöluuppbætur
yrðu greiddar á.
Verkakvennafélagið Framsókn
felldi niður undanþágu sem veitt
hafði verið til ræstingar í skólum
borgarinnar og er búizt við að af
því kunni að leiða lokun skól-
anna innan tíðar.
Enn óbreytt ástand í olíudeil-
unni en olíufélögin hætt að geta
afgreitt olíu til húsakyndingar
vegna oliuskorts. Sovézka sendi-
ráðið tilkynnir að olíuskipin tvö
geti ekki beðið öllu lengur en
heitir að tilkynnt verði um brott.
för þeirra með sólarhringsfyrir-
vara.
13. marz, miðvikudagur
Þrjú félög hefja verkfall: Bif-
reiðastjóriafélagið Sleipnir í
Reykjavík sem hefur verkfall að
nýju eftir viku frestun, Bifreiða-
stjórafélagið Keilir í Keflavík og
Verklýðsfélagið Skjöldur á Flat-
eyri.
Þrjú félög bætast í hóp þeirra
sem boða verkföll: Prentmynda-
smiðafélag íslands, Verklýðsfé-
lagið Jökull í Ólafsvík og Verk-
lýðsfélag Stykkishólms, Jökull
20k marz en hin tvö 21. marz.
Undimefnd samninganeíndar
ASÍ, sjö manna nefndin, átti
fund með fulltrúum ríkisstjóm-
arinnar síðdegis og voru þar
rædd atvinnu- og húsnæðismál.
Sáttafundur hóíst kl. 4 síð-
degis og stóð hann aðeins í tvo
tíma. Var þar áfram rætt um
tillögur sáttasemjara.
Síðdegis var undinritað sam-
komulag milli Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar annars vegar og
ríkisstjómarinniar hiné vegax um
að DagS'brún leyíði losun stæxra
sovézka oh'uskipsins í tanka í Ör-
firisey og Laugamesi gegn því
að Dagsbrún fengi að hafa eft-
irlit með geymunum og ekki yrði
losuð úr þeim olía nema með
leyfi Dagsbrúnar. Er skipið með
um 15 þúsund lestir olíu. Vegna
veðurs gat skipið þó ekki komið
upp undir Örfirisey inn kvöldið.
14. marz, fimmtudagur
Eitt félag bættist í vsrkfiallið,
Verkalýðsfélag Húsavíkur og er
tala verkfiáilsfélaga þá komin
upp í 54.
Sáttafundur hófst kl. 2 e.h.
og stóð fram til kl. 3 um nótt-
ina en án árangurs.
Fyrir hádegi ræddi sjö manna
nefnd ASÍ öðru sinni við full-
trúa ríkisstjómarinnar um at-
vinnu- og húsnæðismál.
Kl. 1.30 e.h. afhenti Harald-
ur Steinþórsson formaður söfn-
unamefndar BSRB Hannibal
Valdimarssyni forseta ASÍ kr.
460 þúsund er komið höfðu inn
í söfmminmi tii styrktar verk-
fallsmömnum. Væntanlegar voru
til viðbótar um 40 þúsund krón-
ur utan af liandi þannig að söfn-
unin í heild nam um hálfri
mdljón króna. Verður henni hald-
ið áfiram. Að söfinuninni standa
öll helztu aðildarfélög BSRB
nema Starfsmannafélag Reykja-
vikurborgar. Auk Haraldar eiga
sæti í söfnunamefndinni Einar
Ólafsson, Magnús Eggertsson,
Karl Guðjónsson og Bjami Ól-
afsson.
Borgarlæknir ítrekiar tilmæli
sín um það að komið verði á
skömmtun þeirrar mjólkur sem á
markaðnum er i Reykja-vík til
ungbama og bamshafiandi
kvenna. Mjólkursamsalan gengst
loks inn á að athuga um að koma
'slíkri skömmtun á, en telur bó.
að íramkvæmd hennar muni
þurfa nokkum undirbúning. Til
j>essa hafa mjólkurbúðimar
sjálfar skammtað hverjum
kaupanda 1 lítra en ekkert ver-
ið farið eftir því, hvort í hlut
eiga bamafjölskyldur eða ekki.
Fyrir hádegi kom sovézka olíu-
skipið Upp undir örfirisey, og
hófst löndun olíunnar úr því í
geyma þar.
Harðair umræður urðu á al-
þingi utan dagskrár um þings-
ályktunartillögu Lúðviks Jóseps-
sonar, Ólafs Jóhannessonar,
Magnúsar Kjartanssoniar og Þór-
arins Þórarinssonar um lausn
verkfaUanna. Kröfðust flutnings-
menn þess, að þingsályktunartil--
lagan yrði tekin fyrir tafarlaust
og útvarpsumræður færu fram
um hana á föstudagskvöld. For-
sætisráðherra, Bjami Benedikts-
son, og Birgir Finnsson, farseti
sameinaðs alþingis héldu uppi
vöm fyrir stj ómarflokkana fyr-
ir að vilja ekki ræða mólið og
báru því við að Vinnuveitenda-
sambandið, sáttasemjari og
Hannibal Valdimaxsson vildu
ekki að alþingi fjaUaði um málið
meðan á samningaviðræðum
stæði. Var þeim bent á að eng-
in tilmæU hefðu komið frá verka-
lýðssamtökunum um slikt og tug-
þúsundir verkfallsmanna um land
aUt ættu heimtingu á að skýrt
kæmi fram afstaða flokka og
þingmanna til hinnar sanngjömu
kröfu verkalýðssamtakanna um
verðtryggingu launa. Óþingleg og
ólýðræðisleg hindrun etjómar- •
flokkanna á útvarpsumræðum
sýndi aðeins að ríkisstjómih
þyrði ekki að korna fram fyrir
þjóðina með málstað sinn.
15. marz, föstudagur
Enn eitt verklýðsfélág hóf verk-
fall í dag: Verkamannafélagið
Fram á Seyðisfirði. Eru félög-
in í verkfaUinu þá orðin 55 að
tölu, 20 í Reykjavík og 35 úti
á landi.
Sáttafundur hófst kl. 4 síð-
degis og stóð í 12 tíma eða til
kl. 4 um nóttina.
Almennt var við þvi búizt, að
um helgina færi eitthvað af-
gerandi að gerast í samninga-
málunum, enda margt sem far-
ið var að reka á eftir, t.d. var
að verða oUulitið viða úti um
land og verksmiðjur að stöðv-
ast á þeim stöðum þar sem ekki
var verkfall. Þá var ástandið £
mjólkurmálunum orðið alvar-
legt, vandræpi víða á bama-
heimilum vegna mjólkurskorts
og tjón bænda orðið mikið, en
þeir voru farnir að hella niður
mjólkinni þar sem þeir gátu
ekki geymt hana eða unnið úr
henni nema að mjög takmörkuðu
leyti. Var talið að tjón bænda
nærni um 1 miljón króna á dag.
í sjúkrahúsum borgarinnar og
ríkisins var einnig orðið alvar-
legt ástand vegna verkfaUs
starfsstúlknanna og hafði fjórð-
Framhald á 10. síðu.
Þessi mynd er tekin í Félagsheimili prentara við Hverfisgötu og áttu prentarar kest á verkfa/Ilssopa
í verkfailinu. Það vorn konur prentara scm sáu um kaffihitun og kökugcrð. Frú Eiín Guðmunds-
dóttir er hér að hclla upp á könnuna.