Þjóðviljinn - 28.04.1968, Page 3
\
Sunnudagur 28. apríl 1968 — ÞJÖÐVXLJINN — SÍÐA 3
Fer gofnt yfir snjó, ís, leðju og vatn
• Þetta tarartæki var nýlega smíðað í Sovétríkjunum og kemur sér vel í vegleysum — það getur
farið jafnt yfir snjó, ís, leðju og vatn. Það vegur 3600 kg og getur borið 1200 kg, farm. Hraði
þess er 20 km á snjó og 10—12 km á vatni. Undir því-eru hvorki hjól né belti heldur sívalning-
ar fylltir með fnauðplasti.
Ferð Árna Oddssonar
í Landfara 13. þ.m. er grein
um iferð Áma Oddssonar yfir
öræfin, skrifuð af Halldóri
nofekrum Sigurðssyni. Nú hef-
ut því víst ekki verið mót-
mælt,, sð ferð þessi geti hafa
verið farin á þeim tíma sem
tiltekinn er. Hann ber sig
illa yfir persónulegum brigzlum
og hvefsni að mér skiist frá
Hallgrími Jónassyni og Bene-
dikt frá Hofteigi. Hann segir
svo: „Á yngri árum hefði ég
ekki látið mig muna um að
taka í hnakkann á þessum
herrum“. Hann kemst svo að
þeirri niðurstöðu að Benedikt
þykist vita allt milli himins
og jarðar. Svo teik ég hór til-
vitnun í grein Halldórs: „Það
virðist hafa veriðþegjandisam-
komulag samitíðarmanma hans
(þ.e. Benedikts) að hafa sem fæst
orð um þessa úrskurði, enda
hefur hann opinberlega kvart-
að undan því að Sigurður Nor-
dal og aðrir afbragðsmenn
vilji ekki eiga orðastað við
sig.‘‘ Ég hefi nú ekki getað
fundið þesa hvefsni í skrif-
um þeirra. Hailgrímur Jónas-
son er þekktur fyrir að hafa
mann a mestan kunnugleika á
íslenzkum öræfum og skrif
hans yfirleitt vonduð að orð-
færi og prúðmannleg.
Hvað Benedikt snertir er
þetta nú reyndar ekki svara-
vert, svo kunnur fræðimaður
og ættfræðingur sem hann er,
og tæplega held ég að dr. Sig-
urði Nordal sé nokkur þökk á
að láta blanda nafni sínu í
þessar deilur eins og Halldór
þessi gerir. Sjálfsagt er Nordal
vel ljóst að í upphafi síns ágæta
fræðaferils hafði hann etkki
höndlað alla vizku og að ýmis-
legt, sem hann taldi gott og
gilt þá, til dæmis tilurð og
sannindi íslendingasagna, eru
nú staðlausir stafir. Enda verð-
ur víst seint full þreifað um
brotin þar. Nokkuð mun á
stundum hafa borið á milli um
álit þeirra Nordals og Bene-
dikts um ýmislegt viðkomandi
íslenzkum fræðum. Og seint
, hygg ég að úrslitadómur verði
þar upp kveðinn. Hitt mun
fremur að ályktanir byggðar
á rannsóknum og heilbrigðu
maiti verdi að notast að öðrum
þnæði. Ég ar nú ekfci viss
-----------------*--------------
Tryggja þarf
nýtingu Alfta-
nessvæðisins
• Atvinnuflugmenn ræddu ný-
lega á fundi flugvallarmál Rvík-
ur ng nágrennis og samþykktn þá
ályktun, þar sem áherzla er lögð
á að tryggja þurfi nú þegar land
| undir framtíðarflugvöll á Álfta-
l nesi og jafnframt að þess verði
' gætt að flugtæknilegir kostir
svæðisins nýtist til fullnustu.
Áiyktun sú, sem hér um ræðir
er svohljóðaindi :
„Almennur fólagsfundur í Fé-
lagi íslenzkra a.’fcvinnufluigmaniia
haldinn 18/4 1968, beinir þeirri
eindregnu áskorun til ríkisstjóm-
ar og flugmálayfirvalda, að nú
þegar verði hafizt handa við að
tryggja land undir framtíðarflug-
völl á Álftanesi, fyrir Reykjavík
og nágrenni.
Fundurinn leggur meginá-
herzlu á, að tryggja land þaranig,
að hægt verði að byggia filugvöll
í saimiræmi við L tilhögun filug-
vallar eims og fram kemutr í
nefndaráiiti minnihluita fluigvalla-
nefndar 1965-1967, og að tryggðir
verði fulilir stækkunarmöguleik-
ar slíks flu.giva'nar.
Sú tilhögun hefir að mati flug-
manna alla flugtæknilega kosti
fram yfir fyrirkomulag X, sem
meirihluti nefndarimnar mælir
með.
Flugmenm Hta svo á, sð um
nægjanlega crfiðieika sé a\ ræða
vegna staðhátta á ýmsum flug-
völlum úti á landi, þó ekki verði
vitandi vits bygigðul- filuigvöllur- á
Álftanesi þanniig að flugtækni-
legir kostir svæðisims séu ekki
notaðir til hins ítrasta.
Þá krefst fuindurimn þess, að
af öryggisástæðum verði ekki
Ikreppt meina að Reykjavíkur-
flugvelli en 01 -ðið er meðan ann-
ar fhigvöllur er ekki til fyrir
Reykjavikursvæðið".
Hvaðd reglur gilda
um friðrn fugla?
Nú er suimarið genigið í garð
og senn hefst varptími ýmissa
fugla. Af því tilefni hefur
stjóm Dýravemdunarfélags ís-
lands sent öllum skólastjórum
á landinu bækling um verpdun
fugla með þeirri ósk að efni
hans verði vkynnt nemendun-
um. í bækíingi þessum eru
m.a. birt lög um sinubrennur
og meðferð elds á víðavangi,
sagt frá friðun fugla hér á
landi og minnt á þær reglur
er gilda um friðun grágæsar-
innar.
Til glöggvunar fyrir lesend-
ur Þjóðviljans fara hér á eftir
þær upplýsingar sem birtar em
í fyrmefndum bæklingi um
friðun einstakra fuglategunda:
Á íslandi skulu aUar villtax
fuglategundir vera friðaðar allt
árið, að undanskildum þeim
tegundum sem hér greinir:
a. Ófriðaðir allt árið: Kjói,
svartbakur (veiðibjalla),
sílamáfur, (lilli-svartbakur),
silfurmáfur og hrafn.
b. Ófriðaðir frá 20. ágúst til
15. marz: Dílaskarfur, topp-
skarfur, grágæs, heiðargæs,
blesgæs helsingi.
c. Ófriðaðir jrá 1. september
. til 31. marz: Lómur, fýll,
súla, stokkönd, urtönd, rauð-
höfðaönd, grafönd, dugg-
önd, skúfönd, hávella, topp-
önd, skúmur, hvítmáfur,
bjartmáfur, hettumáfur, rita.
d. Ófriðaður frá 1. september
FramJiald á 7. siðu.
'U-m að langskólamenn eigi að
hafa nein sérréttindi til að
vega og meta orð fornbók-
menntanna og mynda niður-
stöður..
Sjálímennlaðir gáfu- og á-
hugamenn geta lagt þar til
drjúgan skerf. sem ekki á að
varwneta. Hitt er svo erfitt fyrir
menntamennina að viðurkenna
misstig, sem alltaf verða ein-
hver, og ekki sízt ef það eru
nú bara fyrrverandi bændur,
t.d. á þorð við Benedikt frá
Hofteigi eða Helga á Hrafn-
kellsstöðum, sem telja sig vita
betur. Menntun er máttur, en
það skiptir ekki öllu máli á
hvem hátt hennar hefur ver-
ið aflað. Höfundar gullaldar-
bókmennta okkar hafa eflaust
verið menntaðir á þeirra tíma
vísu. En samkvæmt áliti Hall-
dórs hefðu þeir sennilega flest-
ir talizt alþýðumenn og því
ekki svara veröir. Þó mundu nú
orð Ara fróða „að hafa það er
réttara reynist" og hvaðan,
sem það kemur, standa enn í
fullu gildi. Það vita nú íleiri
en ég hvílíkur fræðasjóður
Benedikt írá Hofteigi er, og
margur hefur fengið drjúgan
skerf úr þeim sjóði.
Og að lokum lilfæri ég svo
niðuriagið á grein HaiHdórs Sig-
urðssonar, svona sem ábend-
ingu um þá andlegu breiddar-
gráðu sem hann virðist stadd-
ur á. Það er svona: „Þó vil ég
stinga þvi' að honum, að ég
sem Húnvolningur mun þekkja
hross á borð við hann“. Þetta
er kannski einhver húnvetnsk
málvenja eða speki, en ég er
nú það treggreindur að mér
er ofvaxið að skilja. Annars
verða rannsóknir á fombók-
menntum okkar vonandi eilífð-
ar verkeíni íslenzkri þjóð og
okkur' ber að þakka öllum jafnt
lærðum, sem leikum, sem þar
leggja hönd að. Meðan svo er
eigum við nokkurn rétt á að
halda landi og þjóðemi.
Kópavogi 17/1 1968.
Þórarinn frá Steintúni.
Ég þið Þjóðviljann fyrir
þessa grein, sem legið hefur
lengi á ritstjóm Tímans, en
ekki fengizt birt í þættinum
„Landfara“ þrátt fyrir loforð.
Þ. V. M.
Flugkennara-
félag fslands
Nýlega var stofnað á Reykja-
víkurflugvelli stéttarfélag flug-
keniniara og amnarra aifcviinimiflug-
manna.
Hlutverk félagsin er:
Að efla kynningu og samheldni
íslenzkra flugkennara.
Að auka áhuga þek-xa og þekk-
ingu á sibarfinu, og fylgjast með
nýjungum á sviði flug- og flug-
kennslumála.
Að gæta hagsmuna félags-
manna í hvívetna.
Að vera í forsvari fyrir þé
gagnvart atvinnuveitendum, yfir-
völdum og öðrum aðilum, inn-
lenduim og erlendum, sem félagið
kann að eiga samskipti við.
Heiimili félagsiins og varmar-
þing er í Reykjavfk. Stjóm fé-
lagsiins skipa:
Einar Frederiksen, flugstjóri,
form., Helgi Jónsson, flugkennari,
ritari, Petuir Valbergsson, flug-
kennari, gjaldkeri.
KOMMÓÐUR
— teak og eik
Húsgagnaverzlun Axels Eyjólfssonar
Kjörskrá
til forsetakosninga fyrir Kópavogskaupstað sem
fram eiga að fara hinn 30. ]úní 1968 liggur
frammi á pósthúsinu í Kópavogi frá og með 30.
apríl, til og með 27. maí 1968.
Kjærtim út af kjörskránni ber að skila bæjarskrif-
stofunni eigi síðar en 8. júni 1968.
Pósthúsið er opið frá kl. 9—18 alla virka daga
nema laugardaga til kl. 12,30 26. apríl 1968.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
AÐALFUNDUR
HUSEIGENDAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl n.k. kl. 18
að Bergstaðastræti 11.
FUNDAREFNI:
1. Veniuleg aðalfundarstörf,
2. Lagabreytingar.
Stjómin.
R-RKI
R-RKI
SumardvaUr
tekið verður á móti umsóknum um sumardvöl fyr-
ir börn hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands,
dagana 2. og 3. maí n.k., kl. 10—12 og 14—18 á
skrifst&fu Rauða krossins, Öldugötu 4. Ekki tekið
við umsóknum í síma.
Eingöngu verða tekin Reykjavíkurböm fædd á
tímabilinu 1. janúar 1961 til 1. júní 1964. Aðrir
aldursflokkar koma ekki til greina.
Áæflað er að gefa kost á 6 vikna eða 12 vikna
tímabilum.
Stjóm Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands.
HUGMYNDASAMKEPPNI UM EINBYLISHÚS
SÝNING
1 Tillöguuppdrættir er bárust í keppn-
inrii verða til sýnis að Laugavegi 1 8a
3. hæð í dag laugardag og morgun
sunnudag kl. 2—6 e.K. I næstu viku
daglega.kl. 4—10 e.h.
Ollum heimill ókeypis aðgangur.
Dómnefndin.
*
t