Þjóðviljinn - 10.11.1968, Qupperneq 1
Alþýðubandalagsmenn í Reykjaneskjördœmi. Munið fundinn í Kópavogi í dag kl. 15,00
Sunnudagur lO.nóvember 1968 — 33. árgangur — 244. tölublað.
Alþýðubandalagið efnir í das
kl. 15 til almenns fundar fyrir
Reykjaneskjördæmi í Félagsheim-
ili Kópavogs, uppi, og verður
hinn nýstofnaði stjórnmálaflokk-
ur þar kynntur og ennfremur
rætt um ástand og horfur íefna-
hagsmálum og atvinnumálum
þjóðarinnar.
Fundurinn hefst með því að
Gáls Guðnvundsson alllþiinigisimað-
ur flytur áviarpsorð. Þá talar
Adda Bára Sigfúsdóttir, varafor-
maður Alþýðubandaiaigsins uim
nýafstaðinn landsfund. Guðjtón
Gils Guðmundsson
Jónsson ritari Alþýðusambands-
ins og fonmaður Féilags járniðn.-
aðarmainna tala um hoi*fur í at-
vinniu-- og kjaramálum. Loks tal-
ar Lúðvík Jósepsson alþingis-
maður og svarar spumingunni:
Hvað er að gerast í efn ahagsmái-
unum?
Fúndur þessi er4 annar í röð-
inni af fundum sem Alþýðu-
bandalagið eflndr til á næstunni
víðs vegar um land til þess að
kynna hinn nýja stjórmtmálafllokk
og stefniumál hans. Eru Ailþýðu-
bandalagsmenn hvattir til ad
fjölmenna á flundi þessa.
Gengislækkun á morgun?
Viðrœðum stjórnmólaflokkanna lauk í gœr
Fullvíst má telja að fjórða viðreisnargengis lækkunin díynji yfir alveg á næstunni, jafnvel
á morgun. Voru stjórnarflokkarnir á miklum fundum um helgina og jafnframt var búizt
við fundi í bankaráði Seðlabankans, en bann hefur sem kunnugt er einhliða vald til gengis-
lækkunar. Stuttur fundur var í viðræðunefnd stjórnmálaflokkanna á laugardag, og lauk
með því að gefin var út yfirlýsing um að viðræ ðunum væri lokið.
Viðræðum þeim sem staðið hafa yfir milli
stjórnmálaflokkanna síðan í haust lauk í gær.
Stóð síðasti fundur tæpa klukkustupd en að
honum loknum var gefin út svohljóðandi
fréttatilkynning: '
,Viðræður þær, sem að undanförnu hafa
staðið yfir á milli fulltrúa stjórnmálaflokk-
ft
anna, hafa ekki borið þann árangur að sam-
komulag hafi náðst, og er þeim nú lokið.
Flokkarnir munu hver um sig gera grein
fyrir afstöðu sinni til mála, eftir því sem til-
éfni gefst, enda munu málin lögð fyrir Al-
þingi næstu daga“.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna vildu ekkert
frekar um þessi málalok segja í gær, en búizt
Var Ingólfur Jónsson meÓalgöngumaður?
Önnur viðskipti Landsímans og Sjálf-
stæðisflokksins?
■ Það er víðar en í Reykja-
víik sem dularfull viðskipti
eiga sér stað milli póst- og
símamálastjómarinnar ann-
ars vegar og Sjálfstæðis-
flókksins hins vegar. Fyrir
nokkru kom póst- og síma-
málastjórnin sér upp nýju
húsi á Selfossi og flutti starf-
semi sína í það á síðasta ári.
Eldra húsið samrýmdist ekki
skipulagi bæjarins, og af
þeim ástæðum vildi hreppur-
inn komast yfir það; sneri
oddvitinn sértil póst- og síma-
málastjóra og óskaði eftir
kaupum á húsinu og var þeirri
málaleitan vel tekið í fyrstu.
Síðan var húsið auglýst til
sölu, og ítrekaði oddvitinn þá
enn málaleitan sína.
■ Nú er hins vegar kom-
ið í ljós að annar aðili átti
greiðari aðgang að póst-
og símamálastjórninni en
Selfosshreppur. Húsið er
nú komið í hendur nýs
eiganda: Fulltrúaráðs
S jálf stæðisflokksins!
■ Fróðlegt væri að fá vitn'
eskju um þessi viðskipti frá
ráðamönnum pósts og síma,
frétta um verð og aðra mála-
vexti. Einnig væri forvitni-
legt að frétta. hvort Ingólfur
Jónsson ráðherra hefur einn'
iíj í þessu máli hagnýtt þá á-
k'jósanlegu aðstöðu að veúa í
senn seljandi og kaupandi.
var við að fjallað yrði um viðræðurnar á fund-
um á þingi á morgun.
Skömmu eftir að fundum viðræðunefndar-
innar lauk hófust aðrir fundir í alþingishúsinu,
þingflokksfundur hjá Sjálfstæðisflokknum og
miðstjórnarfundur hjá Alþýðuflokknum. Mun
ætlunin hafa verið að leggja þar fyrir til end-
anlegrar ákvörðunar niðurstöðurnar af samn-
ingamakki stjórnarflokkanna að undanförnu.
Hafa þeir samningar verið langvinnir og næsta
erfiðir og veruleg andstaða gegn stefnu ráð-
herranna bæði innan Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins. Allar horfur voru þó taldar á
því í gær að niðurstöðurnar yrðu samþykktar
af báðum aðilum.
Hafi stjórnarflokkarnir náð endanlegu
samkomulagi var talið líklegt að bankaráð
Seðlabankans yrði kallað saman á fund í dag
til þess að taka ákvörðun um stórfellda geng-
islækkun, og var jafnvel búizt við að hún
kæmi til framkvæmda þegar á morgun, en
jafnframt yrðu lögð fyrir alþingi frumvörp
í tengslum við hana.
Mikið hefur verið rætt um hina fyrirhug-
uðu gengislækkun að undanfömu. Telja
margir að hún muni jafngilda 50—60%
hækkun á erlendum gjaldeyri — að dollar-
inn komist upp í tæpar hundrað krónur! Inn
í þá tölu yrði þá felldur 20% gjaldeyris-
skatturinn sem þegar er kominn til fram-
kvæmda. Búizt er við að ætlun stjórnarflokk-
anna sé sú að ákveða með lögum að kaup
megi ekki hækka af völdum þessara ráðstaf-
ana, og jafnframt mun fyrirhugað að afla-
hlutur sjómanna verði skertur með lagaboði.
ASÍ hvetur til uppsagnar á kjarasamningum
- vegna hins ófrygga ásfands i efnahagsmálum
□ Á fimmtudagskvöld samþykkti miðstjórn
A.S.Í. að fara fram á það við sambandsfélögin,
að þau- segðu upp samningum vegna hins ó-
trygga ástands í efnahagsmálum enda eru efna-
hagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar væntanlegar
núna eftir helgi.
□ Þing A.S.Í. verður haldið síðar í þessum
mánuði og er talið æskilegt, að félögin hafi los-
að um samninga áður en forustumenn félaganna
mæta á áðurnefndu þingi.
□ Þá hafði Þjóðviljinn samband við Jón Sig-
urðsson, formann Sjómannasambands íslands í
gær og kvað hann Sjómannasambandið hafa sagt
upp síldveiðisamningum og samkomulagi um
söltunarlaun.
□ Var það gert fyrir mánaðamót og er upp-
sögnin þannig stíluð á áramót — munu síld-
veiðisamningarnir þá renna út.
□ Hins vegar hefur hinum almennu bátakjara-
samningum ennþá ekki verið sagt upp, sagði
Jón — verður að gera það með tveggja mánaða
fyrirvara eins og uppsögn á síldveiðisamningum.
MUNIÐ að Happdrætti Þjóðviljans 1968 er nú hafíð!