Þjóðviljinn - 01.12.1968, Blaðsíða 1
Samþykkt 31. þings ASÍ:
Hvetur tíl aðstoðar
við fátækar þjóðir
□ 31. þing Alþýðusambands íslands ítrekar fyrri
samþykkt sína um að stofnað verði með lögum
til reglubundinnar og samfelldrar aðstoðar af
hálfu íslands við þróunarlöndin.
O Telur þingið að heppilegast sé að stofnaður
verði sérstakur opinber sjóður í þessu skyni og
væntir þess, að það geti orðið hið fyrsta.
□ Þingið skorar á Alþingi og ríkisstjóm að hrinda
þessu máli í framkvæmd serri fyrst. Það minn-
ir á, að hér er um að ræða áhuga- og baráttu-
mál hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar og
felur því miðstjóm og skorar á verkalýðsfélög-
in að vinna sem ötulast að framgangi þess.
Mikiii útfíutningur á
hrossum á þessu ári
■ Þjóðviljinn fékk þær upplýsingar hjá atvinnumála-
ráðuneytinu núna fyrir helgina, að á þessu ári myndu alls
verða flutt út héðan til útlanda yfir 700 hiross og er það
meiri hrossaútflutningur, en verið hefur um mörg ár. Verð
á hrossunum mum vera mjög misjafnt, einkum á eldishross-
um, mun einstaka kjörgripur fara allt upp í 60 búsund krön-
ur en meðalverð vera um 14 til 16 þúsund. Ótamin hross
munu hins vegar seld á um 12 þúsund krónur.
Þjóðminjasafn fær
sjóð og góða gripi
Klukka frá 18. öld, smíðuð í Lynn. Þetta er einn af mörprum gróðum
gripum sem Ása Guðmundsdóttir Wrig-ht í Trinidad hefur sent Þjóð-
minjasafninu að gjöf. Nýlega stofnaði hún sjóð til minningar um
mann sinn, sem var plantekrueigandi í Trinidad. Er sjóðurinn að
upphæð um 1,7 milj. ísl. kr. og verður vöxtunum varið til að styrkja
einn erlendan fræðimann á ári til íslandsferðar. Er ætlunin að
hann haldi fyrirlestra á vegum Þjóðminjasafnsins og verði þeir síð-
ar gefnir út í bæklingi. — Myndin er af klukkunni. En hjá hennl
standa talið frá vinstri: Dr. Sturla Friðriksson, Þór Magnússon
þjóðminjavörðiu: og dr. Halldór Halldórsson prófessor. — Ljósm.
Þjóðv. A.K.
Seðlabankinn úthlutar fé ti/
útgáfustarfs og friðlýsingar
Til lesenda
ÞJóSvilians
Þjóðviljinn minmist í dag, 1.
desember, háifnar aldar fúll-
veldis Islands með þvi að
birta ýmislegt efni í þessu 16
síðan blaði, m.a. greinar eftir
Einar Olgeirsson fyrrverandi
alþingismanm og Gunnar Bene-
diktsson, rithöfund, dönsk-is-
lenzku sambandslögin frá
1918, frásögn af aðdraganda
samningsgerðarinnar, kvæði,
forys-tugrein og sitt hvað
fleira.
Ætlunin var sú að gefa
út mymdarlegt aukablað Þjóð-
viljans helgað fullveldisaf-
mælinu, enda haJfa aukáblöð
verið gefin út af minna til-
efni áður, en þau áform
reyndust óframkvæmanleg þar
sem pappírssending til blaðs-
ins barst ekki á réttum tima
og grípa varð til örþrifaráða
til að tryggja útkomiu þlaðsins
— í minma bröti. Bru lesend-
ur beðnir að hafa þetta í huga
þegar þeir fletta blaðinu í
dag.
1 framhaldi af þessu er þess
og að geta, að jólablað Þjóð-
viljans 1968 er nú að notokru
komið í prentun, en eimhver
töf verður óhjákvæmilega á
útkomu þess vegna paippírs-
málsins. Þó er þess að vænta
að blaðið komi út í næstu
viku og nú stærra en notokru
sinni áður: 120 síður.
Téku sæti í stjérn
ASÍ sem fulltrúar
minnihlutans
„Tillögur okkar um menn I
sambandsstjórn eru óháðar þeim
meirihluta, er myndazt hefur hér
á þinginu og án nokkurra samn-
inga né samráðs við hann og
Iýsum við okkur því óbundna áf
öllum þeim samningum, sem
forustumenn meirihlutans kunna
að hafa gert“.
Á þessa leið mælti Snorri
Jónsson, er hann lýsti tillögu
sinni um fjóra fuiHltrúa Alþýðu-
bandalagsins í miðstjórm Al-
þýðusambands Islands á þingi
þess aðfaranótt sl. föstudags.
Túlkar þessi yfirlýsing, að full-
trúar Alþýðubandalagsins taka
sæti í miðstjóm ASl sem sjálf-
stæður minnihluti algerlega ó-
bundinn af öllum samningum
meirihlutaflokkanna í Alþýðu-
sambandsistjóminni.
Þjóðviljinn hafði fregnað, að
til stæði að flytja út með Skóga-
fossi í þessari viku 60 hross í
lest og sneri sér til ráðuneytis-
ins af því tdlefni, og spurðist
fyrir um, hvort heimilt væri lög-
um samkvæmt að flytja út hross
í lest á þessum tíma árs, en Dýra-
vemdun-arfélagið mun lita þesisa
flutninga notokru homauga.
Blaðið fékk þ®u svör hjá ráðu-
neytinu, að löigum samikvæmt
. Væri það á valdi ráðuneytisins
áð veita hoimild til slíks fluitn-
inigs á eldishestum, hvenær á ár-
iniu sem væri, en öðru máli gegn-
ir um útflutninig á ótömdum
hrossum. Þó þarf samþykki Bún-
aðarfélags íslands og yfirdýra-
læknis til flutninga elþishesta að
vetrarlagi. Veitti ráðuneytið Sig-
urðd Hannessyni leyfi pl út-
flutninigs 60 eldisihesta í síðasta
mánuði en vegma tafa á skipa-
ferðum drógn.ist þeir flutningar
fram yfir 1. desember en leyfið
mun endumýjað, enda heimild
BÍ og yfirdýralæknis til þess.
Hross þessi fara til Þýzkalands
en þangað hafa flest hrossin ver-
ið flutt í sumar, nokkur hafia þó
farið til annarra landa, t.d. til
Danmerkur og Noregs og víðar.
Fóru flest hrossin, þau ótömdu,
með sérstökuorrf' gripaflutninga-
skipum í sumar og haust.
Tvö innbrot
Tvö innbrot voru framin í
fyiu-aikvöld. Stolið var ellefu pör-
um af karlmannaskóm í Skósöl-
unni við Snorrabraut 38 og níu
hjólbörðum í Detokjaverkstæðdnu
Múla við Suðurlandsbraut. FUnd-
ust þau í gærmorgun i skurði
þar rétt hjá. Innbrotin eru í
rannsókn.
í gær barst Þjóðviljanum eft-
i-rfiairandi fréttatilkynndmg frá
Seðlabantoa íslands:
í tilefni 50 ára afmælis full-
veldisins hefur bankastjóm
Seðlabainkans, að höfðu samráði
við bankaráð og bankiamiálaráð-
herra, ákveðið eftiirfarandi út-
hlutanir úr inniheimtusjóði ávís-
ana.
1) Til víisindafélags fslendinga,
500 þúsund krónur, veitt í tii-
efni 50 ára afmælis félagsdns
1. desember, en fénu veæði
einkum varið til eflingar á
útgáfustarfsemi félagsins.
2) Til Hins íslenzka bókmennta-
félags, 50o þúsund krónur,
veitt í tilefnd af 150 ára af-
mæli félagsins fyrir nokkru,
fénu verði varið til eiflingar
á útgáfustarfsemi félagsins.
3) Til ráðstöfunar Náittúru-
vemdarráðs, eim miljón krón-
ur, en Náttúiruvemdarráð
ráðstafi fénu til friðlýsimgar
á tilteknum stað.
Ók á kindahép
Um kluktoan ellefu í gærmorg-
un óto fólksbíll úr Reytojavik á
kindahóp á Reykjanesbrautinni
skaimmt fyrir sunnan Þúfubarð.
Bóndinn í Þorlákstúni var að
retoa kindahóp sinn yfir braut-
ina, þegar bíllinn ók á mikilii
fe»-ð inn í hópinn miðjan og
drápust þagar þrjár kindiur. Bill-
inn var Opel Capitan og skemmd-
ist mikið. Bílstjórinn slapp ó»
meiddur með jarmið yfir sér í
bílflakimu.
að sem flestir sjái sér fært
að láta eitthvað af hendi
rakna til útgáfu málgagns
verkalýðsins, Þjóðviljans. Og
til að Iétta starfið við happ-
drættið er áríðandi, að menn
geri skil sem allra fyrst, helzt
fljótt upp úr mánaðamótun-
um, ef menn mögulega geta.
• Eftir röskar þrjár vikur
verður dregið I Happdrætti
Þjóðviljans 1968 um Skoda-
bifreið af gcrðinni MB 1000
og fimm aukavinninga, hvcrn
að verðmæti 20-25 þúsund kr.
Þennan síðasta tíma er áríð-
andi að velunnarar Þjóðvilj-
ans vinni vel í happdrættinu,
þvi sjaldan hefur verið mciri
nauðsyn en nú að styrkja
blaðið og tryggja útgáfu þess.
Munið happdrœtti Þ;ó3vilgans. - Gerið skil
• Tekið er á móti skilum á
afgreiðslu Þjóðviljans að
Skólavörðustíg 19, sími 17500,
opið til klukkan sex virka
daga, og í skrifstofunni í
Tjarnargötu 20, sími 17512, —
opið til klukkan sjö e.h. —
• Okkur er það ljóst, að al-
þýða manna hcfur ekki lengi
haft jafn IStiI fjárráð og nií.
Þrátt fyrir það vonum við,