Þjóðviljinn - 28.01.1969, Blaðsíða 3
feriðijuidagMr 28. jairáar 1969 — ÞJ'ÓÐVIiL«IIiTTN — SDBA J
Skærufíðasveitir ÞFF herða
aðgerðir sínar í S- Vietnam
SAIGON 27/1 — Skæruhemað-
ur heíur færzt í aukaina í Suður-
Vietnam að undanfömu, en
mdonia verið um meiriháttar bar-
daiga milli þjóðfrelsishersins og
Eandaríkjamainnía.
í samræmi við þetta tilkynnti
uta'nrikisráðuneyti Sáigonstjóm-
arinnar í dag að fyrirmæli hefðu
komið frá Hanoi um að ..hermd-
arverk skyldu aukin til að bæta
fyrir hina misheppnuðu vetrar-
sókn.“ f orðsenidingu til hdnmar
aiþjóðlegu nefindar sem enn á að
heita að hafi „eftirlit með voptna-
Héi“ í Vietnam segir Saigon-
stjómin að Norður-Vietnam bafi
fyrirskipað s'kæruliðum að auka
aðgerðir sínar í Saigon og ýmsum
fylkjum Suður-Vietniams til þess
að „bæta aðstöðu kommúnista
við samninigaborðið í París“.
Aðfaranótt mánudags komst
flokkur skæruliða inn í bapinn
Pban Rang á ströndinni um 260
km fyrir norðan Saigon. og skaut
eldflaugum á lögreglustöðina
þar. Sagt er að tveir skæruliða
hafi verið teknir höndum eftir
harða götubardaga.
Skæruliðasveit reyndi einnig í
nótt sem leið að sprengja „al-
manmavamastöð" í loft upp og
var unnið nokkurt tjón á henni.
Tvær konur voru handteknar í
Saigon, gmnaðar um að vera úr
sveit skæmliða sem sagðir em
hafa ætlað að sprengja raforku-
ver í loft upp.
Á laugairdag tókst sveit skæru-
Iiða að laumast fram hjá*va-rð-
stöðvum og virkjum umhverfis
flugvöll í nágrenni við Saigon og
skjóta eldflaugum á stöðvar þar.
Skæmliðamir komust allir und-
an. /
Annar hópur skæruliða klippti
í sundur gaddavírsgirðingu um-
hverfis hina miklu flugstöð við
Phan Rang um helgina og eitnn-
i@« þar var skotið eldflauguim.
Bandarískur talsmaður sagði að
Barátta ákveðin
gegn herstöðvum
TOKIO 27/1 — Sósiaílistaifilok’kur
Japans, stærsti flloikkur stjó-mar-
andstöðunnar hélt ársþing sitt í
Tokio um heiigina og setti sér þar
það takmark að koma í veg fyrir
að „öryggissáttmáli" Japans og
Bandaríkjanna yrði endurnýjað-
ur. Sáttmálli þessi veitir Banda-
ríkjamönnum rétt til hersebu í
Japan, en gildistíma hans lýkur
á næsta ári. 4
lítið tjón hefði verið unnið á hin-
um bandarísku og áströlsku
flugvélum í flugstc/Smni. Víða
annars staðar í Suður-Vietn-am
urðu átök um helgina.
Sjö bandarískir hermen-n biðu
Segir Bandaríkjamenn hafa
fefít 420 þúsund Vietnama
WASHINGTON 27/1 — Yfirfor-
ingi bandaríska herafilans á
Kyrrahafssvæðinu, John McCain
flotaforingi, heldur því fram að
„Vietcong og Norður-Vietnamar“
hafi misst 420.000 menn failna
bana og tveir særðust þegar j síðustu sex ár og megi gera ráð
sprengiefni sem nota átti til að j fyrir að þeir hafi beðið endan-
gera jarðsprengjur óvirkair j legan hernaðarósigur.
sprakk of snemma. I McCain heldur fram í viðtali
Fjórtán fífíátnir í Bagdad
fyrir njósnir fyrir Israel
BAGDAD 27/:l — Fjórtán manns,
níu þeirra íraskir fyðingar, vom
í morgun hengdir í írak, en þeir
höfðu verið dæmdir til lífláis
fyrir njósnir í þágu ísraels. Bll-
efu þeirra vo-ra hemgdir á FrellB-
istorginu í Bagdad en þrír aðrir
í bænum Basra í suðurhluta
landsins. Fimmtán höfðu verið
Aftur loftárásir
HONGKONG 27/1 — Fréttastofa
Norður-Vietnams skýrði frá bví í
gær að bandarískt stórskotalið
hefði skotið á noröurhluta „frið-
lýsta“ svæðisins á vopnahlés-
mörkumum við 17. breiddarbaug.
Einnig hefðu verið gerðar loft-
árásir á héraðið Nghe An í Norð-
ur-Víetnam.
dæmdir til dauða en einn var
náðaður.
Lík hinina hedgdu voru ekki
teíkiin niður úf góliglunum og tug-
þúsumdir manna söfnuðust saim-
an á Frettsistonginu að tilmælum
sitjómarvaldanna og kölfluðu þar
„dauða yfir mjósnam og svik-
ara.“
Aftökurnar sem ýmislegt bend-
ir til að séu aðeins upphaf að
fleiri slfkium hafia vakið ógn og
reiði manna í ísrael. Eshkol for-
sætiisráðherra sagði á ísraels'ka
þinginu í dag að Mf allra þeiri-a
gyðinga sem enn búa í löndum
araba væri í bráðri hættu og
kvað hann Israelsstjórn myndu
gera allt sem í hennar- ' valdi
stæði til að bjarga þeim og koma
því til leiðar að þeir fengju að
flytjast til Israels. *
við bandaríslka tíimaritið „Read-
er‘s Digest“ að Banidaríkin hafi
unnið fullan sigur í stríðinu í
Vietnam: — Við höfum fram-
kvæðið á öllum sviðum. Ég er
sannfærður um að þetta er á-
stæþan til þess að óvinirnir hafa
setzt við saimningaborðið í Par-
ís, að þeir muni reyna að koma
því fram þar sem þeir gátu ekki
komdð fram á vígvellinum, sagði
flotaiforimgiinn.
McCain sagði að „hersveitir
komimúnista“ myndu ekki geta
sett af stað neina sókn af sama
taigi og hina mdklu Tet-sókn í
febráar í fyrra og að bandarísika
herliðið sem nú er í Suður-Viet-
nam — 549.500 manns — gæti
fyllilega leyst af hendi það verk-
efni sem því hefði verið faflið.
Hdnis vegar myndi nauðsynlegt að
bandarfskt herlið yrði áfram í
Vietnaim uim langt árabifl enn,
eins og na-uðsynlegt var að
ba-ndarískur hier yrði áfram í
Kóreu eftir að stríðinu þar lauk.
McCain segir að auk þeirra
420.000 Víetnama sem fallið hafi
síðan Bandaríkin hófu afskiptd
sfn af stríðin-u í Vietnam, hafi
„Vietcong o-g Norður-Vietnam-
ar“ mdsst 90.000 men-n sem hlaup-
ið hafa undan merkjum eða verið
teknir hönduim.. Á hveni viku
gerisf 5.500 menn þeirra liðhlaup-
ar eða séu teknir höndum, sagði
McCain flotaforingi ennfremur,
og virðist ekiki hafa skeytt um
að augljóst ósamræmi er milíld
þeirra talna sem hann fer með.
Enn átök á mifíi ungmenna og
lögreglu á Vensislásartorgi
PRAG 27/1 — Fréttaritari Reut-
ers í Prag kvaðst í dag hafa það
eftir góðum heiimilldum að tékk-
nesk stjónnarvöld hefðu gefið út
yfirlýsingu sína um að ekki yrði
tekið vettflingatökum á þeim sem
spilltu friði í landdnu eifitir að
þeim hafði borizt bréf frá Bres-
néf, aðalritara sovézka komrnún-
istaflokksins. Bresnéf er sa-gður
hafia sagt tébkneskum ráðamönn-
u.m að þeir yrðu að giera ölflum
ljóst f hverra hönduim völdin
væru. Sa-gt er að Bresnéf hafi
ekki talað rnedna tæpitungu í
bréfi sínu, en hafi þó verið
„skilningsríkur".
Sömu heimildarmenn bera til
baka frétt sem barst firá Prag
um helgina að Kosygin, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, hefði
komið í snögga heimsókn til
Tékkósllóvakíu í síðustu viku.
Ókyrrð var enn í Prag í dag,
aðallega á Vensislásartorgi sem
frá upphafi hernámsins hiefur
verið miðdepill andstöðunnar
gegn því. Lögreglan réðst enn í
dag gegn hópum ungmerma sem
safnazt höfðu saman á torginu og
fór með þau burt. í gær höfðu
orðið harðar sviptingar á torginu
milli ungrg manna og lögregft-
unnar. 199 vora sagðir hafa ver-
ið handteknir, 60 þeirra yngri en
18 ára, hinir á aldrinuim 18—25
áfa. Lögre-glan siegir að aðeins
40 stúdentar hafi verið mieðal
hin-na handteknu.
Samtök stúdenta höfðu hvatt
félaga sína til að hætta ölilum
aðgerðum á almanmiafæri eftir.
miðnætti á laugardag, en þann
dag fór fram útför Jans Palachs,
stúdentsins sem brenndi sig til
bana. Lögreglan lét sér þó ekki
nægja að fjarflægja fólk sem
safnaðist sama-’ við styttu Vens-
islásar, heldur fjarlægði hún
einnig blómsveiga, fána og spjöld
sem þar höfðu verið fest upp.
Það mun hafa vakið reiði stúd-
enta og annarra æsk-umanna og
vera höfuðástæðan tii þess að
mótmælunum á Vensislásartorgi
var haldið áfra-m eftir miðniætti
á laugardag.
1 dag var sex erlenduim fréttæ
mönnum vísað úr Tékkóslóvakíu,
en 16 starfsbræðram þeirra hafði
áður verið vísað úr lamdi síðustu
daga.
Fjöldi manna tekinn höndum á
Spáni eftir „undanþágulögin "
Umsátursins um
Leníngrad minnzt
LENÍNGRAD 27/1 — Þess var
minnzt í Leníngrad í gær að þá
voru liðin 25 ár síðan borgin var
leyst úr umsátri í síðari heiras-
styrjöldinni, en það stóð í 900
daga og þegar þvi laúk vora
flestir íbúanna látnir úr hungri
og vosbúð, en 90 prósent bygg-
inga i borginni voru eyðilögð.
MADRID 27/1 — Fullyrt er í Madrid að síðan lýst var yfir
„undaníþáguástandi“ á Spáni á föstudaginn hafi hundruð
manna verið handtekin í landinu, en heimilt er samkvæmt
„undanþágunum11 að handtaka menn og halda þeim í fang-
elsi eins lengi og stjómarvöldunum þóknast án'þess að
nokkrar sakir séu bornar á þá eða þeir leiddir fyrir rétt.
Stjórn-arvöldin í Madrid reyna
að gera sem minnst úr þessum
handtökum og halda þau því
fram að fjöldi handtekinna síðan
á föstudag sé innan við eitt
hundrað. en samkvæmt öðrum
heimildum hafa mörg humdiruð
manna, allt að níu hundruð, ver-
ið. handtekin.
Það er mjög erfitt að átta sig
á hvað gerzt hefur á Spáni síð-
ustu sólarhringa, einnig fyrir þá
sök, að atger ritskoðun var á
laugardag aftur sett á öll blöð
og f réttastofn an i r sem verða nú
að fá leyfi fyrir birtingu alls les-
máls og allr-a mynda.
f Reutersf-rétt frá Madrid í
gær var sagt að allt væri með
kyrrum kjörurn hvarvetna á
Spáni, en haft var eftir heim-
ildairmönnum. í aindstöðu við
Francostjómima að 300 stúdentar
hefðu verið handteknir í Madrid
einni samam. Aðrir töldu þó að
tala hinn-a handteknu í höfuð-
borgimni væri lægri.
Ekkert nýtt á fyrsta blaða-
mannafundi Nixons forseta
WASHINGTON 27/1 — Richard
Nixon hélt fyrsta blaðamanma-
fund sinn í Washingtom í dag efit-
ir að bann tók við embætti for-
seta og fór svo eins og við métti
búast að ekkert nýtt kæmi fram
á þeim fundi. Rætt var aðallega
um utamríkismál sem Nixon
kvaðst reyndar ætia að leggja
höfuðáherzlu á í stjórrrartið
sin’ni og var ekki hægt að ráða
annað aí svörum hans en stjóm
han-s myndi íylgja sömu stefnu
ag stjórn Johnsons í öfllum höf-
Uðatriðum.
Nixon hét þvi að visu að
Bandaríkin myndu „iaka nýtt
í'rumkvæði" til þess að koma á
friði í Vietmam, en ekki lýsti
hiamn því niámar hvemig það
myndi verða. Bandaríkin myndu,
s-agði hanin, reyn-a að stilla til
friðar í löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Fylgt yrði áfram
þeirri stefnu að Bandaríkim
beittu sér fyrir því að Kína yrði
ekki tekið í SÞ.
Nixon kyaðst gera. sér ljóst að
margir bandarískir öldunigadeild-
anneiin og einnig margir stjóm-
málamenn í öðrum löndum heíðu
mælt með bví að Kín-a yrði við-
urkennt, en það breytti í engu
afstöðu Bandaríkjastjómiar.
Á laugardaig var 21 ' maður
tekinn höndum í Barcelonia, svo
vitað sé, m.a. fimm prestar úr
reglu jesúíta og kunnur kaibólsk-
ur rithöfundur, Alfonso Carlos
Comin. Enn í gær voru ýmsir
menn sem taldir eru faafa for-
ystu fyrir hinni síharðnandi and-
stöðu gegn Franco-stjórninmi
frjálslr. Ma-rgir þeinra voru sa-gð-
ir búast við að verða hiandtekn-
ir inman sk-amms.
Áhrifa „tmdaniþáiguliaiganin'a"
gætir mest í blöðuhum, segir
fréttaritari Reuters í Madrid.
Hann tók sem dæmi um ritskoð-
unin-a að í sunmudagsblöðunum
hefði bað eitt staðið um ástiand-
ið í landimu að holluistuyfirlýs-
in-gar hefðu borizt til stjórnar-
innar í Madrid ,frá öllum héraðs-
stjómum í lan-dimu.
Óvanir „frelsinu**
Einn a-f talsmöntnum Franco-
stjómarinnar. ritstjórinn Emilio
Romero, sagði á lauigairdaigs-
kvöld að óspektir af völdum
stúdenta væru ekki eima ástæð-
an fyrir þvi að lýst var yfir
„unidanþáguást'aniditnu“. í for-
ystugrein í kvöldblaðinu ,,Pu-
eblo“ sem kom út eftir að rit-
skoðunin hafði aftur verið sett á
sagði Romero að sök á því að
nauðsynlegt hefði verið að lýsa
yfir „undanþáguástandinu“ ættu
bæði byltingarsinn'aðir stúdent-
ar, stjómmálasamtök sem staðið
hefðu að bakj óspektum og stydd-
ust við verklýðsstéttima og blöð
landsins. Spánverjar hefðu enn
einu sintni sýnt að þeir kynnu
ekki að njóta frjálsræðis. sagði
ritstjórinn.
Andstaða niilli stéttanna
f frétt Reuters segir. að í for-
ystu-greminnj ha-fi ekki verið
nefnd einu orði sú aukna atnd-
staða sem millistéttirnar hafi
sýnt stjórn Francos að undan-
fömu. Sem dæmi um þá and-
stöðu er nefnt að snemma í þess-
um mátnuði hafi lögmamnafélagið
í Medrid, áhrifamestu samtök
lögfræðinga á Spáni, samþykkt
með miklum meirihluta að fara
þess á leit við ríkisstjómina að
hún afnæmi hina sérstöku dóm-
stóla sem fjalla um pólitisk af-
brot. í sömu viku hafi innan-
ríkisráðuneytið fengið tilmæli
um að rannsaka meira en 100
tilfelli af misþyrmi'ngum og
pyndingum sem lögreglan hefði
beitt mótmælendur. Þau tilmæli
voru umdirrituð af meira en 1500
spæmskum menntamönnum.
Parísarviðræðurnar um frið
/ Vietnam eru hafnar aftur
PARIS 27/1 — Nefndimar sem
taka þátt í samningaviðræðum í
París um frið í Víetnam kynntu
sér um helgina yfirlýsingarnar
sem andstæðingar og viðsemj-
endur þeirra birtu á fyrsta eig-
inlega samningafundinum síðan í
nóvember, en hann var haldinn
á laugardaginn og stóð í hállfan
sjöunda klukkutíma.
Aðilai» ítrekuðu að mestu bau
sjónarmið sem þeir hafa áður
látið í ljós, en sagt er að „góð-
ur andi“ hafi rífct á fundinum.
Næsti fundur verður á fimmtu-
daginn.
Það var fulltrái Þjóðfrelsis-
fylkingar Suður-Víetnams sem
fyrstur tók til máls á fundinum.
Hann lagði til að mynduð yrði
samsteypustjórn í Suður-Víet- !
nam á breiðum grundvelli og ! HONGKONG 27/1 — Mao TSie-
skyldi hún hafa það verkefni að j tung sem talið er að hafi verið
undirbúa frjálsar kosningar í
bæri þeim sjálfum að leysa án
íhhitunar annarra í samrasmi
við stetfnuskrá fylkingarinnar.
Hinn nýi formaður bandarísku
sendinefndarinnar, Henry Cabot
Lodge, sem Nixon forseti skip-
aði í staðinn fyrir Averell Harri-
man, lagði mikla áherzlu á að
„friðlýsta" svæðið á vopnáhlés-
mörkuðunum við 17. breiddar-
baug yrði í rauninni friðlýst,
allt herlið og öll hergögn tflutt
þaðan burt. Þá lagði hann til að
stríðsaðilar skiptust á föngum.
Mao Tsetung á
F
I
landinu. Hann tók fram að ef
Bandaríkin vildu í rauninni
binda enda á stríðið, yrðu þau
að viðurkenna Þjóðfrelsisfylk-
inguna
veikur að undanfömu var stadd-
ur á mdikflum útifundi í Peking
á laugardaginn. Kínverska frétta-
stofan segir að hann hafi leikið
j á als oddi og verið við bezfcu
Málefni Suður-Víetnama heilsu.
Isn
Arshátíi Alþýðubandalagsins
í Reykjavík
I verður haldin laugardaginn 1. febrúar í Sigtúni við Austurvöll og
! hefst kl. 7 á borðhaldi.
DAGSKRÁ HEFST KL. 9.00:
1. Stutt ávarp: Sigurjón Björnsson, borgarfulltrúi.
2. Samfléttað ljóð og leikur. — Þáttur í umsjá
Eddu Þórarimsdóttur.
3. Spumingakeppnd (gaman
flokkur, . borgarf ulltrú ar,
og fleiri keppa.
4. Dans til kl. a.m.k. 2 e.m. Hljómsveitin Emir
leiba fyrir dansinum.
og alvara, þin.g-
fl-amkvæmdastjóm
Að sjálfsögðu munu svo söngfuglar hreyfingarinnar efna til
fjöldasöngs, svo sem venja er til.
Miðasala á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Laugavegi 11.
Félagar fjölmennið. Skemmtinefndin.