Þjóðviljinn - 21.09.1969, Side 4

Þjóðviljinn - 21.09.1969, Side 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 21. septeraber 1969. — málgagn sósíaiisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Útgefandl: Útgáfuféiag Pjóðviljans. Ritstjórari Ivar H. Jónsson (áb.). Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttarltstjórli Sigurður V. Frlðþjófsson. Auglýsingastj.: Olafur Jónsson. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Slml 17500 (5 llnur). — Askriftarverð kr. 150,00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10,00. Grundvallaratriði J^andsvirkjun hefur gert grein fyrir hugmyndum sínum um virkjunarframkvæmdir næstu fjög- ur árin. Þar- ex gert ráð fyrir því að fullgera Búr- fellsvirkjun, ganga frá miðlunarmannvirkjum við Þórisvatn og koma upp nýrri 135.000 kílóvatta virkjun við Sigöldu. Verði af þessum áformum verður orkuvinnsla Landsvirkjunar orðin fimm- falt' meiri 1974 en hún var 1968. Ekki er neinn á- greiningur um það á íslandi, að nýta beri sem fyrst orku vatnsfalla og hvera; menn hafa ævin- lega litið til þeirra auðlinda sem fyrirheita uim bjartari og öruggari framtíð, forsendu þess að ís- lendingar gætu komið upp nútímalegum iðnaði. Ágreiningurinn snýst um hitt hvernig nýta eigi orkuna. Alþýðubandalagið hefur lagt á það hina þyngstu áherzlu að orkuframleiðsla og íslenzk iðnvæðing verði að haldast í hendur; landsmenn •verði að tryggja sjálfum sér þann arð sem í orku- lindunum felst. Stjórnarflokkarnir telja hins veg- ar að íslendingar ráði ekki við þetta verkefni og verði að láta sér lynda að eftirláta erlendum auð- félögum raforkuna, svo að þau geti breytt henni í markaðsverðmæti og flutt arðinn úr landi. Hér er um að ræða ágreining um alger grundvallar- atriði sem skera munu úr unn þróun íslenzks þjóð- félags. Með því að opna landið erlendum auðfélögum er' verið að breyta allri gerð þjóðfélagsins, og mjög umfangsmikil breyting er þegar komin til framkvæmda. Þegar alúmínbræðslan í Straumi er komin í fulla stærð verður fjárfesting í því fyrir- tæki árnóta mikil og fjárfesting íslendinga sjálfra í öllum iðnaði sínuim. Þá þegar verður svo komið að helmingurinn af iðnáðarfjármagninu hér á landi er í höndum erlends aðila, sem að verulegu leyti er undanþeginn íslenzkri löggjöf og ákvörð- unum íslenzkra dómstóla og er gersamlega óháð- ur íslenzku þjóðfélagi. Ekki dylst að áformin um Sigölduvirkjun eru við það miðuð að gerður verði hliðstæður samningur við annað eða önnur erlend auðfyrirtæki. Og valdhafana dreymir um miklu örari þróun. í Morgunblaðinu hafa síðustu mán- uði komið fram hugmyndir uim að á næisita áratug eða svo verði komið upp hérlendis sex eða sjö erlendum auðfyrirtækjum af svipaðri stærð og alúmínbræðslan í Straumi. Verði þróunin slík ráða erlendir aðilar yfir meginhlutanum af allri iðnaðarframleiðslu á íslandi? en athafnir lands- manna sjálfra verða aðeins aukageta. Með því hefði hið efnahagslega vald flutzt úr landi á nýj- an leik; fjárhagslegt fullveldi landsmanna væri - formið eitt. Hvergi í ,víðri veröld finnast dæmi um nokkurt sjálfstætt ríki sem hafi á þennan hátt afhent erlendum aðilum yfirráð yfir orku- lindum sínum og efnahagskerfi; hliðstæður verða aðeins fundnar í nýlendum og hálfnýlend- um. Reynsla þeirra þjóðfélaga bendir sízt af öllu til þess að slík stefna léiði íil hagsældar og ör- yggis; ímyndi menn sér að reynsla íslendinga verði önnur, verða þeir að færa rök fyrir því mati. — m. Fyrsia flokks neyzluvörur unnar úr afurSum bœnda fryggja arðvœnlegusfu viSskipfin SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS _____________ S0NNAK RAFGEYMARNIR eru framleiddir í samvinnu við eina þekktustu rafgeymaverksmiðju Norður- landa. Þeir eru viðurkenndir jafngóðir bez'tu raf- geymum sem á markaðnum eru. Fjölbreytt úrval 6 og 12 volta rafgeyma jafnan fyrirliggjandi. TÆKNIVER, Hellu, Rang. ÁRNESINGAR! Útborgun bóta Almannatrygginga 'fyrir 3. ársfjórðung 1969 hefst á sýsluskrifstofunni 22. þ.m. og stendur 'fil 15. október n.k. Þinggjöld óskasf greidd um leið og bóta- greíðslur fara fram. Skrifsitofu Árnessýslu, 12! sept. 1969 SÝSLUMAÐUR ÁRNESSÝSLU. FYRIRLIGGJANDI STEYPUHRÆRIVÉLAR STEYPUVÍBRATORAR A. Wendel hf. Umboðs- og heildverzlun • Sörlaskjóli 26 — Sími 154(64. KENT Með hinum þekkta Micronite filter er eftirspurðasto ameríska filter sígarettan Hvergerðingar og aðrir Sunnlendingar! Við seljuim fatnað á alla fjölskylduna. Ennfremur vefnaðarvörur og snyrtivörur. GOTT VÖRUVAL. , VERZLUNIN VARMÁ Hveragerði •— sími 4197.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.