Þjóðviljinn - 21.09.1969, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 21. septeraber 1969.
— málgagn sósíaiisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandl: Útgáfuféiag Pjóðviljans.
Ritstjórari Ivar H. Jónsson (áb.). Magnús Kjartansson.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttarltstjórli Sigurður V. Frlðþjófsson.
Auglýsingastj.: Olafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Slml 17500
(5 llnur). — Askriftarverð kr. 150,00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10,00.
Grundvallaratriði
J^andsvirkjun hefur gert grein fyrir hugmyndum
sínum um virkjunarframkvæmdir næstu fjög-
ur árin. Þar- ex gert ráð fyrir því að fullgera Búr-
fellsvirkjun, ganga frá miðlunarmannvirkjum við
Þórisvatn og koma upp nýrri 135.000 kílóvatta
virkjun við Sigöldu. Verði af þessum áformum
verður orkuvinnsla Landsvirkjunar orðin fimm-
falt' meiri 1974 en hún var 1968. Ekki er neinn á-
greiningur um það á íslandi, að nýta beri sem
fyrst orku vatnsfalla og hvera; menn hafa ævin-
lega litið til þeirra auðlinda sem fyrirheita uim
bjartari og öruggari framtíð, forsendu þess að ís-
lendingar gætu komið upp nútímalegum iðnaði.
Ágreiningurinn snýst um hitt hvernig nýta eigi
orkuna. Alþýðubandalagið hefur lagt á það hina
þyngstu áherzlu að orkuframleiðsla og íslenzk
iðnvæðing verði að haldast í hendur; landsmenn
•verði að tryggja sjálfum sér þann arð sem í orku-
lindunum felst. Stjórnarflokkarnir telja hins veg-
ar að íslendingar ráði ekki við þetta verkefni og
verði að láta sér lynda að eftirláta erlendum auð-
félögum raforkuna, svo að þau geti breytt henni
í markaðsverðmæti og flutt arðinn úr landi. Hér
er um að ræða ágreining um alger grundvallar-
atriði sem skera munu úr unn þróun íslenzks þjóð-
félags.
Með því að opna landið erlendum auðfélögum er'
verið að breyta allri gerð þjóðfélagsins, og
mjög umfangsmikil breyting er þegar komin til
framkvæmda. Þegar alúmínbræðslan í Straumi er
komin í fulla stærð verður fjárfesting í því fyrir-
tæki árnóta mikil og fjárfesting íslendinga sjálfra
í öllum iðnaði sínuim. Þá þegar verður svo komið
að helmingurinn af iðnáðarfjármagninu hér á
landi er í höndum erlends aðila, sem að verulegu
leyti er undanþeginn íslenzkri löggjöf og ákvörð-
unum íslenzkra dómstóla og er gersamlega óháð-
ur íslenzku þjóðfélagi. Ekki dylst að áformin um
Sigölduvirkjun eru við það miðuð að gerður verði
hliðstæður samningur við annað eða önnur erlend
auðfyrirtæki. Og valdhafana dreymir um miklu
örari þróun. í Morgunblaðinu hafa síðustu mán-
uði komið fram hugmyndir uim að á næisita áratug
eða svo verði komið upp hérlendis sex eða sjö
erlendum auðfyrirtækjum af svipaðri stærð og
alúmínbræðslan í Straumi. Verði þróunin slík
ráða erlendir aðilar yfir meginhlutanum af allri
iðnaðarframleiðslu á íslandi? en athafnir lands-
manna sjálfra verða aðeins aukageta. Með því
hefði hið efnahagslega vald flutzt úr landi á nýj-
an leik; fjárhagslegt fullveldi landsmanna væri
- formið eitt. Hvergi í ,víðri veröld finnast dæmi
um nokkurt sjálfstætt ríki sem hafi á þennan
hátt afhent erlendum aðilum yfirráð yfir orku-
lindum sínum og efnahagskerfi; hliðstæður
verða aðeins fundnar í nýlendum og hálfnýlend-
um. Reynsla þeirra þjóðfélaga bendir sízt af öllu
til þess að slík stefna léiði íil hagsældar og ör-
yggis; ímyndi menn sér að reynsla íslendinga
verði önnur, verða þeir að færa rök fyrir því
mati. — m.
Fyrsia flokks
neyzluvörur
unnar úr
afurSum
bœnda
fryggja
arðvœnlegusfu
viSskipfin
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
_____________
S0NNAK
RAFGEYMARNIR
eru framleiddir í samvinnu við eina
þekktustu rafgeymaverksmiðju Norður-
landa.
Þeir eru viðurkenndir jafngóðir bez'tu raf-
geymum sem á markaðnum eru.
Fjölbreytt úrval 6 og 12 volta rafgeyma
jafnan fyrirliggjandi.
TÆKNIVER,
Hellu, Rang.
ÁRNESINGAR!
Útborgun bóta Almannatrygginga 'fyrir 3.
ársfjórðung 1969 hefst á sýsluskrifstofunni
22. þ.m. og stendur 'fil 15. október n.k.
Þinggjöld óskasf greidd um leið og bóta-
greíðslur fara fram.
Skrifsitofu Árnessýslu, 12! sept. 1969
SÝSLUMAÐUR ÁRNESSÝSLU.
FYRIRLIGGJANDI
STEYPUHRÆRIVÉLAR
STEYPUVÍBRATORAR
A. Wendel hf.
Umboðs- og heildverzlun •
Sörlaskjóli 26 — Sími 154(64.
KENT
Með hinum þekkta
Micronite filter
er eftirspurðasto
ameríska filter sígarettan
Hvergerðingar og
aðrir Sunnlendingar!
Við seljuim fatnað á alla fjölskylduna.
Ennfremur vefnaðarvörur og snyrtivörur.
GOTT VÖRUVAL.
, VERZLUNIN VARMÁ
Hveragerði •— sími 4197.