Þjóðviljinn - 06.12.1969, Síða 5
Laugarda/gur 6. dasember 1"969
ÞJÖÐVILJINN
SÍÖA 5
SJÓNVARPSRÝNI
Föstudagskvöldið fór að
mestu í EFTA og kynningu á
því lausnarorði. Ýmsir hafa
orðið til að bera lof á þetta
„framtak“ sjónvarpsins, en ég
get ekki orðið i þeim hópi
nema að takmörkuðu leyti- Að
vísu mun venjulegum veg-
faranda nú eitthvað ljósara en
áður, hvað EFTA er, að svo
miklu leyti sem ailmenningur
skilur málfar viðskiptalílfsins.
En sú örlagaríka spuming,
hvort íslendingar eigi að
ganga í EFTA, hlaut lævís-
lega einihliða handfjötlun. Af
öllum þeim mannasæg, sem
við var talað, var aðeins einn
úr hópi þeirra, sem eru and-
vígir inngöngu- Það sýnir
ekki rétt hlutföll- Af útlend-
ingum var nær einvörðungu
rætt við ráðherra úr stjórn-
um aðildarríkja og æðstu
starfsmenn bandalagsins, og
það er ekki nokkur tilætlun
að þeir geri annað en hrósa
sinni stefnu- Það má svosem
vel vera, að þjóðir þessara
ríkja séu einhuga um ágæti
EFTA aðildar, en það yrði
tekið trúanlegra. hefði einn-
egin verið rætt við fulltrúa
verkamanna, sjómanna og
bænda svo eitthvað sé nefnt.
— Enn greinilegra var þó
þetta missmíði hér á heima-
vigstöðvum. Þar var að vísu
leitað álits fulltrúa allra þing-
flokka og Jóni Hannibals loifað
líka, en síðan var rætt við
tvo iðnrekendur, sem báðir
Lævísi og loðmulla
voru fylgjandi aðild, en engan
sem mælti í geign. Þó er öll-
um sem með fylgjast kunnugt,
að a-m-k. */4 iðnrekenda eru
aðildinni algerlega andvígir,
fjölmenn samtök iðnaðar-
manna hafa lýst sig mót-
fallin henni. Og þátrturinn hef-
ur vonandi átt að upplýsa þá,
sem illa þekktu til- Þar á of-
an var ekki spurt um álit eins
einasta iðnverkamanns, hvað
þá fulltrúa Verkamannasam-
bandsins, Sjómannasambands-
ins, Alþýðuisambandsins sjálfs
eða Stéttarsambands bæ<nda,
og eru þetta þó fjölmennustu
stéttir þjóðfélagsins. En því «r
líkast, að litið sé á þetta fólk
sem „samsafn fífla einna“.
eins og það var eitt sinn brð-
að í Morgunblaðinu, og ekki
taki þvi að spyrja um skoðanir
þess- Það getur meira en ver-
ið, að niðurstaðan hefði orðið
hin sama, en vinnubrögðin eru
slík, að maður tekur að hugsa
um reglur útvarpsins um að
gæta fyllstu óhlutdrægni
gagnvart öllum skoðunum o-
s-frv. Þá bar nokkuð á því, að
reynt væri að sýna EBE sem
hálfgerða grýlu í samanburði
við sakleysingjan EFTA. En
nú aukast líkur á að Bretar,
Danir og Norðmenn gangi í
EBE, og hvað þá? Einnig gætti
nokkurs rugjings, þegar
stjórnandi talaði um, að
„þjóðir“ Efnahagsbandalagsins
hefðu séð sér hag í að tengj-
ast nánar til að mynda í kola-
og stáliðnaði, þar sem auðvit-
að er um að ræða auðfyrirtæk-
in, sem öllu ráða á því sviði-
— Ég vil allsekki gera því
skóna, að stjórnandi þáttarins
hafi visvitandi viljað leiða
menn á villigötur með hálf-
sannleik, heldur mun félags-
legt uppeldi ráða því, að hon-
um finnst hann vera ærlegur
og óhlutdrægur. En niðurstaða
ófróðs sjáanda hlaut að verða
sú, að okkur væri ótvíræður
hagur að inngöngu.
★
Hér var á dögunum veitzt
allharkalega að sovézku sjón-
varpsefni, sem okkur bærist-
Því fremur er skylt að geta
þess, sem gott er, en því var
að heilsa með laugardagís-
kvikmyndinni Hermaður í or-
lofi, sem eiginlega heitir þó
Ballaða um hcrmann. Þetta er
ein af þeim góðu myndum
með efni úr stríðinu, sem
gerðar Voru á tímum Krúst-
joffs, hvort sem það var til-
viljun. Hún minnir bæði á
Trönurnar fljúga og Heiðan
himin, en er ekki eins áhrifa-
mikil og örlög manns- Þetta
er falleg mynd og indæl,
mannleg og sorgleg, og slapp
þó að mestu við væmni. Meira
af svo góðu-
Þátturinn 1 góðu tómi var
öllu lakari nú en í fyrsta sinn,
enda komu nú tvær hljóm-
sveitir fram í stað einnar- Þvi
verr gefast heimskra manna
ráð, sem þeir koma fleiri sam-
an. Einhvemveginn fannst
mér endilega fulltrúi Dúmbó
og Steina segja, að þeim hefði
fundizt þeir vera orðnir loð-
mullulegir og vildu þvi hætta-
En kannski var þetta einhver
heilabrenglun í mér, af því
mér fannst þeir vera það. —
Hljómsveitin Náttúra virðist
vilja vel, en mega lítið Þeir
hugsa sér að dekra ekki við
smekk, sem er undir meðal-
visitölu, eins og hinsvegar
Ævintýri gerir, og er það út
af fyrir sig gott- Þeim féll illa,
að þurfa að stytta 2ja tíma
óperu- Ojæja- Ég hef séð
Hamlet styttan í tilraúnaleik-
húsi úr 4rum tímum oní 3
stundarfjórðunga, og það var
ágætt. En leikstjórinn vildi
helzt stytta hann oní kortér.
— Það eru ósköp að sjá þetta
fólk, sem sækir Tónabæ- Því
er .yfirleitt vamað máls fyrir
jórturleðri, augun eru daufleg
og sviplaus, þá sjaldan sést
í þau fyrir hárlufsum- Verst
ef menn fara að halda, að
þetta sé eitthvert valið úrtak
íslenzkrar æsku- Sem betur fer
mun þetta fremur afmarkaður
hópur. Og þá er spumingin:
Hversvegna var ekki rætt við
álíka marga unglinga, sem
ekki sækja Tónabæ að stað-
aldri og af hverju? Þeir eru
þó án efa fleiri. — Þá var rætt
við Björn Vigni blaðamann á
Mogganum, af hverju sem
hann varð nú fyrir valinu-
Einhverntíma var sú þjóðsaga
á kreiki, að blaðamenn væru
upp til hópa orðskáir, fljótir
að hugsa, fyndnir, jafnvel
andríkir- Þetta hefur kannski
verið arfsögn frá fyrstu tímum
blaðamennsku hér, þegar
menn eins og Gestur Pálsson,
Jón Ólafsson, Einar Bene-
diktsson, Þorsteinn Erlingsson
og Skúli Thoroddsen fengust
við þetta- Kannski er velgem-
ingur að kveða þessa þjóðsögu
niður. — Ég er ekki frá þvi að
Stefán Halldórsson reynist far-
sæll; hann er a.m-k- ný gerð
af stjómanda, reynir ekkert
að trana sér fram eða vera
sniðugur og stela senum- En
lengi skal manninn reyna-
Á þriðjudaginn fór fram
ópinber hýðing- Það er utan
vafa ójafnaisti leikur, sem sézt
hefur í þættinum A öndverð-
um meiði, þegar Lúðvík Jós-
efsson þjarmaði að sjávarút-
vegsmálaráðherra Eggert G.
Þorsteinssyni, sem mátti sér
enga vöm veita fremur en
hann væri kominn með box-
hanzka inn í hringinn á mótá
Kassíusi Klei- Þótt maður
væri málstað Lúðviks alveg
sammála, var ékki hægt ann-
að en kenna í brjósti um
eymingja Eggert- En þama
fór saman yfirburða þekking
Lúðvíks á þessu efni og skýr-
leiki í framsetningu móti
minni gjörþekkingu og loð-
mullulegu orðatfari Eggerts; '
og stoðaði ekki þótt stjómandi
reyndi að koma ráðherra ör-
lítið til hjólpar. — Það fór
vel á þvi ,að næsti dagskrár-
liður hét Á flótta. sem var
reyndar með skásta móti að
þessu sinni.
Miðvikudagsmyndin var
ekki sem verst, þótt hugmynd-
in þyki nokkuð þvæld nú. En
á undan var þáttur um til-
raur.ir manna einkum í
Banda- og Sovétríkjunum við
að láta böm þroskast fyrr en
gerzt hefur Námið byrjar þeg-
ar í vöggunni. — ef þá ekki
fyrr. Mér kom þá aðeins í
hug það. sem sr. Sigurður
Pálsson sagði eitt sinn í rússa-
gildi við okkur ungstúdenta:
að hann vonaði að þrátt fyr-
ir allar tækniframfarir mund-
um við halda áfram að elska
konur okkar, og að hið ham-
ingjusama mannkyn framtið-
arinnar mætti verða til á svip-
aðan hátt og hingaðtil-
Á. Bj.
Sjónvarpið
viku
Sunnudagur 7. desember
18.00 Helgistund. Séra Þorsteinn
t L- Jónsson, Vestmannaeyjum-
1815 Stundin okkar. Ágústa
Rósmundsdóttir og Kristján
Stef ánsson leika á harmonikk-
ur. Á Skansinum, mynd úr
dýragarðinum í Stofckhólmi,
4 þáttur-Þýðandi Höskuldur
Þráinssun- (Nordyision —
Sænska sjónvarpið). Nemend-
ur dansskóla Sigvalda sýna
dansa. Heimsókn í öldutúns-
skóla í Hafnarfirði.
Kristín Ölafsdóttir- Umsjón:
Andrés Indriðason og Tage
Ammendrup.
18 55 Hlé.
20.00 Fréttir-
20- 00 Skemmtiþáttur. Umsjón-
armaður Svavar Gests- Mán-
ar frá Selfossi, Bassi Bjarna-
son, Inga Þórðardóttir og
- Ingibjörg Guðmundsdóttir
■ skemmta- Gestur þáttarins:
Enok Ingimundarson.
21- 05 Barbara- Norskt sjón-
. varpsleikrit- Aðalhlutverk:
Tom Tollefsen, Kari Simon-
sen, Jon Heggedal og Kjersti
Dövigen- Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. — Kvæntur
blaðamaður er tekinn að
\ þreytast í hjónabandinu, og
brá eftir tilbreytimru gerir
óþyrmilega va.rt við sig hjá
honum. — (Nordvision —
Norska sjónvarpið).
21- 50 Veröld vélanna- Mynd án
orða um lff nútímamanns í
heimi hábróaðrar tækni.
22- 25 Dagskrárlok
Mánudagur 8 desember-
20 00 Fréttir.
20-35 Tón akvartetetinn frá
Húsavík- Kvart-ettinn skipa:
Ingvar Þórarinsson, Eysteinn
Sigurjónsson. Stefán Þórar-
ins-son og Stefán Sören-sson-
Undirleik annast Björg Friðr-
iksdóttir.
20-50 Oliver Twist- Upphaf nýs
framhaldsmvndaflokks. sem
BBC hefur gert eftir sam-
nefndri skáldsögu Charles
Dickens.‘Þýðandi: Dóra Ha|!
eteinsdóttir- — 1. og 2 h'
ur- Co-'-t------ r' ■
T
ur: Oliver Twiist: Bruce Pro-
chnifc; Hr. Bumble: Willough-
by Goddard; Frú Mann: Mary
Quinn; Hr. Sawberry: Donald
Eccles; frú Sawberry: Barbara
Hicks-
21-45 Gandhi og Indland- ■ Þess •
hefur verið víða mirtnzt í ár,
að öld er liðin frá fæðirtgu
Gandihis, hinnar hæglátu og
staðföstu frelsishetju Ind-
lands, en hann var ráðinn af
dögum árið 1948. — Þýðandi
og þulur: Þórður öm Sigurðs-
son.
22 35 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 9. desember
20.00 Fréttir-
20- 30 Kona er nefnd • • - Aðal-
björg Sigurðardóttir. — Elín
Pálmadóttir „ræðir við Aðal-
björgu-
21- 00 Á flótta. Dómurinn. Fyrri
hluti lokaþáttar Þýðandi:
Ingibjörg Jónsdóttir-
21- 55 Fangar í búri- Ótal dýr
lifa ófrjáls i framandi um-
hverfi í dýragörðum- (Nord-
vision — Finnska sjónvarp-
ið).
22- 20 Dagskrárlok-
Miðvikudagur 10. desember.
18.00 Guistur- Dýralæknirinn-
Þýðandi: Ellert Sigurbjöms-
son-
18-25 Hrói höttur- Svarta pjatlan-
Þýðandi: Ellert. Sigurbjöms-
son-
18.50 Hlé-
20 00 Fréttir.
20- 30 Það er svo margt....
Kvikmyndaþáttur Magnúsar
Jóhannssonar- Flug á Græn-
landsjökul árið 1951- ísland
árið 1938, landkynningar-
mynd, sem tekin var í tilefni
af Heiimssýningunni í New
York 1939-
21- 00 Lucy Ball- Lucy tekur
þátt í bökunarkeppni- Þýð-.
andi Knstmann Eiðsison-
21-35 Seglskipið Pamir. Þýzk
myrtd um þetta fræga skip,
sem var síðasta stórseglskip
í heiminum Lýsir hún einni
af síðustu ferðum þess- Þýð-
andi Björn Mattlhíasson
23- 00 Dagskráriok.
7° d-sembcr 1969-
,20.35 Munir og minjair. Þegair ,
ljósmyndavélin kom- Þór
Magnússon, þjóðminjavörður,
talar um fyrstu ljósmyndar-
ana hér á landi og bregður
upp nokkmm 'ljósmyndum
frá síðustu tugum nítjándu
aldar-
21-00 Fræknir feðgar. Dýravin-
urinn- Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21- 50 Stefnumót í Stokkhólmi.
Sænskur skemmtiþáttur með
franska söngvaranum Sacha
Distel og sænsku söngkon-
unni Monicu Zetterlund-
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
22- 40 Erlend málefni. Umsjón-
armaður Ásgeir Ingólfsison.
.23 00 Dagskráriok.
Laugardagur 13. desember 1969-
15.30 Endurtekið efni: Hús-
mæðraþáttur. Jólabaksturinn.
Margrét Kristinsdó-ttir leið-
beinir um kökugerð- Áður
sýnt 6- desember 1969-
16-10 Albert Schweitzer. Mynd
um lækninn og mannvininn
Albert Schweitzer, sem fékk
friðarverðlaun Nóbels árið
1952. Lýst er æsku hans og
uppvexti, margþættu námi
og starfi hans í Afríku- Þýð-
andi og þulur Gylfi Pálsson-
Áður sýnt 10- nóvember 1969-
17.00 Þýzka í sjónvarpi. 10.
kennis-lustund endurtekin- 11-
kennslustund frumflutt- Leið-
beinandi Baldur Ingólfsson- f’
17.45 íþróttir.
Hlé.
20-00 Fréttir.
20-25 Smart spæjari. Hinn fram-
liðni. Þýðandi Biörn Matt-
híasson.
20.50 Se’ ■'"ynd um
ævi e: "'rkisbera
súmc '.álaralist.
Segir ' g ofan af
ævi þe' rings, sem
kveðst vera Hermes endur-
borinn, tvitfari konu sinnar,
afsprengi Seifs, ódauðlegur og
alvitur — og ýmsir telja ein-
hvem frumlegasta listamann
vorra tíma og hreinasta
galdraman” 4 sviði sjálfs-
kynninrr- « 'mdi Óskar
f rv •’ rv* « •
Myndin er af Bruce Prochnik í lilutverki Olivers Twists.
21-45 Tíðindalaust á vesturvíg-
sitöðvunum. Verðlaunamynd
frá árin-u 1930, gerð eftir
skóldsögu Eric Maria Re-
marque- Leikstjóri Lewis
Milestone. Aðalhlutverk: Lew
Ayres, Louis Wolheim og
Joihn Wray- Þýðandi Dóra
Hafsteinisdóttir. — Óharðn-
aður unglingur býður sig
fram til herþjónustu, ásamt
bekkjarbræðrum sínum, þeg-
ar hedmsstyrjöldin fyrri brýzt
út- Fullur af eldmóði og ætt-
jarðarást heldur hann til vig-
vallanna og kynnist þar
grimmd og vitfirringu striðs-
ins.
23.25 Dagskrárlok-
Heyþurrkun
Fraimihald af 4. síðu
af vatni fyrir hvern hcstburð
heys-
Hraðþurrkunartaaki þiau fyrir
hey, sem hafa ruitt sér til rúms
á seánni árum, er árangur af
áratuga þróun, sem fyrst og
fremst hefur •miðað að því að
nýta sem bezt hitaorku olí-
unnar (hráalía eða svartoh'a).
Algjengt er, að við notkun þess-
ara tækja þurfi 700-1000 kcal
til þess að eima einn lítra vatns,
en þetta samsvarar þvi, að 1
h'tri af olíu eimi um 10 1 af
vatni.
Þurfi íslenzkir bændur að
verka 400 þús. tonn af þurr-
heyi á ári hamda búpeningi sín-
um, fyligja því um 1,2 milj.
tonna af vatni, sém þarf að
þurrka. Sé það gert með hita-
orku ur oh'u og notuð hrað-
þurrkunartæki með góðri orku-
nýtingu, mundi þurfa um 100
þús. tonn af olíu á ári hverju
tdl heyþurrkunar, eða 25 kg
(30 1) á hestburð.
Slik hraðþurrkunartaaki eru
dýr í stofnkostnaði og rekstri
og mundu tæplega leysa úr
heyþurrkunarvanda íslenzkra
bænda almennt í náinni fram-
tíð. Þax verður að leita ann-
arra úrræða- Skulu þau eklú
rædd hér, en lögð áherzla á
það, að nauðsyn ber að efla þá
rannsóknastarfsemi, sem þegar
er hafin á sviði heyverkv.nar og
fóðuröflunaf hér á landi U1
hagræðis fyrir bændur og
þjóðina í heild.
ólafur Guðmundsson,
tilraunastjóri.
RÝMINGARSALA
93
Komið,
— RÝMINGARSALA — RÝMINGARSALA —|
skoðið,
kaupið.
RYMINGARSALA
ALLT Á MJÖG LÁGtT
VERÐI
VÖRUSKEMMAN
Grettisgötu 2
f
ALLT Á AÐ SELJAST
RÝMINGARSALA —
Karimanns
barna
og kvenskór
<
i-J
<
03
<\
O
z,
’ÍH
03
RÝMINGARSALA —
i