Þjóðviljinn - 11.01.1970, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVTLJTN'N — SuiniiOTdlaigar ÍSL jauiúar 1970.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufétag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Bitstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Ólafur Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Að ráðaium hug
^ það var bent hér í blaðinu fyrir nokkrum dög-
um að augljóst væri að stjómarvöld og sérfræð-
ingar væm að framkvæma hérlendis hagfræði-
kenninguna um það „hæfilega atvinnuleysi“ sem
dygði til þess að halda lífskjömm launafólks í
lágmarki. Morgunblaðið segir í gær að í þessu
viðhorfi birtist „hyldýpi ofstækis“, en hver er
dómur reynslunnar?
þegar á árinu 1967 var fyrirsjáanlega framundan
vemlegt atvinnuleysi vegna þess hversu mikill
samdráttur hafði orðið í atvinnulífi landsmanna
af völdum viðreisnanstefnunnar. Þá þegar voru
bomar fram kröfur um ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir atvinnuleysi, en þeiim var í engu
sinnt af valdhöfunuim. Því varð mjög vemlegur at-
vinnuskortur á íslandi veturinn 1967-1968. í kjara-
samningunum vorið 1968 bar atvinnumálin mjög
á góma, og málalok urðu þau að verklýðshreyf-
ingin féllst á verulega skerðingu á vísitölukerfinu,
gegn jþví að ríkisstjómin hét því í yfirlýsingu í
mörgum liðum að gera ráðstafanir til þéss að
tryggja fullt atvinnuöryggi á nýjan leik. Efndim-
ar urðu hins vegar þær að hver einasti liður y'fir-
lýsingarinnar var svikinn. Sumarið 1968 leið án
þess að nokkrar ráðstafanir væru gerðar til þess
að koma í veg fyrir eða takmarka stórfellt at-
vinnuleysi sem fyrirsjáanlegt var veturinn á eft-
ir, enda tók atvinnuleysi að maignast með haust-
dögum. í janúarmánuði 1969 vom um 6.000 manns
skráðir atvinnulausir, og enn gerði ríkisstjórnin
nýtt samkomulag um ráðstafanir sem ættu að
leysa vandann, að þessu sinni með skipun atvinnu-
málanefnda og útvegun á lánsfé. Engu að síður
hefur atvinnuleysið haldizt óslitið síðan, einnig
um hábjargræðistímann þegar a|drei var atvinnu-
leysi á verstu kreppuámnum fyrir stríð. Um síð-
ustu áramót reyndust svo skráðir atvinnuleys-
ingjar fleiri en um næstu áramót á undan, enda
þótt á annað þúsund manns hefðu flúið land í at-
vinnuleit á því tímabili. Allar líkur benda 'til þess
að ástandið í vetur verði enn alvarlegra en það
var í fyrra.
JJíkisstjómin hefur þannig haft hvorki meira né
iminna en þrjú ár til þess að leysa þetta örlaga-
ríka vandamál. Hún getur ekki lengur borið því
við að hana hafi skort þekkingu og ráðrúm; at-
vinnuleysið á íslandi er óumdeilanlegt sjálfskap-
arvíti. Enda fer það nú mjög í vöxí að ráðamenn
tali um atvinnuleysið sem eðlilegt og sjálfsagt
ástand og vitni til þess að það sé ekki verra hér
en í- ýmsum löndum öðrum. Sú ályktun verður
því ekki umflúin að atvinnuleysið hafi verið skipu-
lagt af ráðnum hug til þess að gera samningsað-
stöðu alþýðusamtakanna erfiðari, ítiJ þess að gera
ísland að því varanlega láglaunasvæði sem var
ein af forsendunum fyrlr inngöngu í EFTA. — m.
Elín Ellingsen
Örfá kveðju- og þakkarorð
Á morsun, mánudaginn 12.
jan. 1970, verður gerð frá Dóm-
kirkjunini útför frú Ellínar Sig-
ríðar BUingsen, Mikiubraut 9
Ihér í borg, en hún lézt aðfara-
nótt 6. jan. s.l.
Maðurinn með ljáinn vægir
engu, hann hefur nú, enin einu
sinni, sýnt mátt sdnn, svo
skyndilega og ótvirætt, að við
seim eraniþá bíðum eftdr ferjunni,
eigum erfitt með að sætta okkur
við miskuinnarleysið.
Frú Elín var fædd i Reykja-
vík þann 7. aprfl 1909, dóttir
hjónanna Haraldar Níelssonar
prófessors og f. k. h. Bergljótar
Sigurðardótfcur, alþim. og próf-
asts í Stykkishólmi. Hún hlaut í
vöggugjölf góðar gáfur, gjörvi-
leifc og glæsilega reisn, sem síð-
an fylgdu henni ævilangt.
Þanrt 6. janúar 1934 gekk hún
að eiga eftirlifandi eiginmann
sinn, Erling Ellingsen verkfræð-<$>
ing, og eignuðust þau einn sora
bama, Harald viðskiptafræð-
ing.
Árið 1951 stofnuðu þau hjón-
in áisamt fleirum hlutafélagið
Tryggingu, og við, sem með
þessum línum viljum votta frú
Elínu virðingu okkar, gerðumst
starfsfólk þess féilags og áttum
því láni að fagna að kynnast
þessari mikilhæfu og indælu
konu, lífsauðgun, sem enginn
okkar hefði nú viljað án vera.
Frú Elín fylgdist aíf Iífi og sál
með störfum manns síns og
gengi félagsins í heild og þá
ekki hvað sizt með högum okk-
ar staxfsfólksins, sem hún lét
sig jafnan miklu skipta, gladd-
ist við hvem sigur, en stóð
jafnframt með útrétta hjálpar-
hönd, ef þuúfa þótti, og vildi
hvers manns vanda leysa. Fyrir
það ber okkur í dag að þakka
•af hoilum- hug.
Við biöjum um styrk til handa
eiginmanni, syni, tengdadóttur,
barnabörnum, öllum ættiingjum
og vinum.
Frú Elínu kveðjum við með
þakklæti og virðingu.
Blessuð sé minning hennar.
Vinir
L0KAÐ
Vegna jarðarfarar frú Elínar Sigríðar
Ellingsen verða skrifstofur vorar lok-
aðar mánud. 1 2. jan. n.k.
TRYGGING H.F.
ALLIANCE FRANCAISE
FRÖNSKUNÁMSKEID
Frönskumámskeiðin hefjast bráðlega. Kennt verður
í mörgum flokkum. í framihaldsflokkum kennir
franski sendikennarinn Jacques RAYMOND og
ffú Marcelle RAYMOND.
Innritun og nánari upplýsingar í Bókaverzlun
Snæbjamar Jónssonar & Co., Hafnarstræti 9. —
Símar 1-19-36 og 1-31-33.
Væntanlegir netnendur eru beðnir að koma til við-
tals þriðjudaginn 13. janúar kj. 6.30 í þriðju
kennslustofu, háskólanum.
sraba skert?
NEW YORK 9/1 — Sameinuðu
þjóðimar hafa lagt til að kann-
að verði, hvað hæft sé í þeim
fullyrðingum, að arabar búsett-
ir á svæðum, sem hersetin eru
af ísraelsmönnum, njóti ekki
fullra mannxéttinda. Hefur verið
skipuð rannsóknamefnd, og eiga
í henni sæti fulltrúar frá Júgó-
slavíu, Ceylon og Somalíu. Isra-
elsmenn hafa hins vegar bafnað
þessari tillögu á þeirri forsendu,
að nefndin muni ekki gæta hlut-
leysis í könnun þessari, því að
nefndanmenn hafi þegar tekið
neikvæða afstöðu gagnvaxt Isra-
el.
SJOVA
erelztaog
reyndasta...
Til vinslri er BWIW 1937 ein fyrsta bifreiðin, sem var tryggð hjá Sjóvá. Til hægri
er Cortina fyrsta bifreiðin tryggð á árinu 1970.
... bifr eiðatryggingafélag á íslandi og hef-
ur þjónað bifreiðaeigendum frá 1937. Er
það þá ekki einmitt rétti aðilinn til að vá-
tryggja bifreiðina yðar?
. fÍlRibiVtMft '•jjf'ÉnHÉft.atlKT ... ,
'Qtfy* -
SJÓVÁTRYGGINGARFÉLAG
ÍSLANDS 1»
LAUGAVEGí 176 — REYKJAVÍK — SÍMI 11700
TEPPAHÚSIÐ
Suðurlandsbraut 10
Sími: 83570
á feppabúfum byrjar á mánudag
MIKILL AFSLÁTTUR
mi