Þjóðviljinn - 18.11.1970, Page 10
10 StoA~ ÞðÖÐVœraNN — MðwlfeiÖagltr 18. noveöíSea? ÍmÓ,
Harper Lee:
Ab granda
söngfugli
20
Jemmi spurði Atticus hvort
hann myndi haldast eitthvað.
Jemmi hafði aldrei séð snjó
heldur, en hann vissi þó hvað
hann var. Atticus sagðist efcki
hafa meira vit á snjó en Jemrni
sjálfur, en:
— Ég held að hann breytist
fljótlega í vætu þegar hann er
svona blautur.
Síminn hringdi og Atticus reis
upp frá morgunverðinum tii að
svara. Þegar hann kom tii baka
sagði hann:
— Þetta var Eula May. Ég
endurtek orð hennar: Þar sem
ekki hefu-r snjóað i Maycomb-
sýslu síðan árið 1885, verður öll
r / EFNI
K/ SMÁVÖRUR
1 TÍZKUHNAPPAR
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 188 HI. hæð (lyfta)
Sími 24-G-16,
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðastræti 21. SÍMI 33-9-68
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
kennsla í skólanum felld niður
í dag.
Eula May var símastúlkan í
Maycomb. Hún hafði einnig það
hlutverk að koma til skila opin-
berum orðsendingum, boðum í
brúðka-upsveizlur, fregnum um
eldsvoða o-g leiðbeiningum í
hjálp í viðlögum þegar Reynolds
læknir var að beiman.
Þegar Atticus var loks búinn
að róa okku-r dálítið og sldpaði
ökkur að beina athy-gli að disk-
unum okkar í stað þess að góna
sífellt út um gluggann, spurði
Jemmi:
— Hvemig á maðu-r að búa til
snjókarl?
— Það hef ég enga hugmynd
um, sagði Atticus. — Ég vil
ógjaman valda ykkur vonbrigð-
um, en ég efast um að það falli
einu sinni nógur snjór í snjó-
bólta.
Calpu-rnia kom á vettvang og
sagðist h-alda að snjóxánn héldist.
Og þegar við æddum út í garðinn
var hann þakinn þunnu lagi af
blautu krapi.
— E3dd vaða svona yfir hann
ailan, sagði Jemmi. — Sjáðu bara
sj-álf; hvert einasta fótspor eyði-
leggu-r hann.
Ég horfði til baka á blaut
sporin eftir mig. Jemmi sagði að
ef við biðum þangað til að kasmi
svolítið meiri snjór, gætum við
safnað honum öllum saman og
gert úr honum snjókari. Ég
teygði tunguna út úr mér eins
langt og ég gat og náði í stóra
snjóflyksu. Hún brenndi mi-g.
— Jemmi, hann er heitur!
— Hann er ekkert heitur. Hann
er bara svo kaidu-r að hann
brennir. Og vertu ekki að éta
hann, Skjáta; þá fer hann tdl
spillis. Leyfðu honum að falla.
— En mér finnst svo gaman
að ganga í honum.
— Mér dettur nokkuð í hug:
Við skulum koma yfir tilMaudie.
Jemmi stikaði af stað yfir
ga-rðinn. Ég reyndi eftir beztu
getu að stíga í sporin hans. Þegar
við vorum komin á gangstéttina
fyrir framan húsið hennar
Maudie, fór herra Avery að agn-
úast við okkur. And-litið á honum
var rauðbleikt, og stóra ístran
hékk niðu-r fyrir beltið.
— Já, það er þokkalegt sem
þið haifið á samvizkunni, sagði
hann. — Það hefur elkki snjóað
í manna minnum í Maycomb.
Það eru óþekktarormar eins og
þið sem trufla gang árstíðanna.
Ég velti fyrir mér hvort herra
Aveiy vissi með hvílíkum ákafa
við höfðum beðið þess að hann
endurtæki glansnúmerið sitt, og
ég hugsaði með mér að ef þetta
væri rafsingin fyrir það afbrot,
þá væri sitt hvað gott um synd-
ina að segja. Hins vegar braut ég
heilann ekkert um hvaðan herra
Avery hefði veðurfræðiupplýs-
ingar sínar; þaö var óþarfi; þær
kpmu beina leið af Rosette-
steininum.
— Jem Finch; hailó Jemmi
litli Finch!
— Ungfrú Maudie er að kalla
á þig, Jemmi.
— Reyndu nú að halda þig á
miðri grasflötinni. Það vex enskt
gras undir snj’ónum alveg hjá
veröndirxrri. Gæbtu þess að troða
það ekki niður.
— Já, ungfrú Maudie, hrópaði
Jernmi. — Þetta er svei mér
stórkostlegt, ungf-rú Maudie, er
það ektó?
— Og fjandakomið! Bf það
kernur frost í nótt, þá er úti
um azaleurnar mínar!
Gamli stráhatturinn hennar
Maudie glitraði af litlurn snjó-
komum. Hún var að bogra yfir
runnum og vafði utan um þá
gömlum pokastriga. Jemmi
spurði hana, af hverju hún væri
að þessu.
— Til að halda á þeim hita,
sagði hún.
— Hvernig er hægt að halda
hita á blómum? Þau hafa enga
blóðrás.
— Tja, sjáðu til Jemmi litli
Finch, þessu get ég ekki svarað.
Ég veit það eitt, að ef það
kem-ur frost í nótt, þá deyja
plönturnar og þess vegna þarf að
vefja einhverju um þær. Skil-
urðu það.
— Já, ungfrú Maudie. Ungfrú
Maudie?
— Hvað nú ungi maður?
— Megum við Skjáta fá dálítið
af snjónum þínum að láni?
— Með mestu ánægju — takið
hann allan. Inni u-ndir hús-inu er
gömul ferskjukarfa — þið getið
borið hann í henni. Unglfrú
Maudie kipraði saman augun. —
En segðu mér eitt, Jemmi Finch,
hvað ætlið þið að gera við snjó-
inn minn?
— Það skaltu fá að sjá seinna,
sagði Jemmi, og við fórum nú
að bera eins mikinn snjó og við
gátum úr garðinum hennar
Maudie og inn í garðinn ofckar,
Og þetta var allsóðalegt fyrirtæki.
— Hvað eigum við að gera,
Jemmi? spurðf ég.
— Það færðu að sjá seinna,
sagði hann. — Taktu nú körfuna
og safnaðu saman öllum þeim
snjó sem þú getur rótað saman í
fremri garðinum. Og gættu þess
að stíga í sporin eftir sjálfa þdg,
bætti hann við aðvarandi.
— Eigum við að búa til snjó-
krakka, Jemmi?
— Nei. Alvöru snjókari. En
það verður púl.
Jemmi hljóp um í garðinum,
fann gamlan haka og fór að
hamast bak við brenniihlaðann
en lagði þó til hliðar alla orma
og lirfur sem hann fann til að
nota síðar. Síðan hvarf hann
aftur inn í húsið en kram til baka
eftir andartak með þvottakörf-
una, fyllti hana af mold og bar
hana fram fyrir húsið. Þegar
við vorum búin að draga að
okku-r fimm körfur af mold og
tvær körfur af snjó, sagði Jemmi
að nú gætum við byrjað.
— Finnst þér þetta ekki dáh't-
ill sóðaskapur? spurði ég var-
fæmislega.
— í bili, jú — en þetta lagast
á eftir, sagði hann sjálfumglaður.
Jemmi rótaði upp haug af leir-
ugri mold, þjappaði henni sam-
an, lagði síðan nýjan haug ofaná,
þjappaði honum saman og þann-
ig hélt hann áfram þar til kom-
inn var gróffigerður húkur.
— Jemmi, sagði ég. — Ég
hef aldrei heyrt talað um svert-
ingjasnjókarl.
— Hann verður efcki svartur
lengi, urraði Jemmi.
Hann sótti nokkra trjápinna
yfir í bakgarðinn og fór að hlaða
moldarklíningi utaná þá, svo að
þeir líktust eins loonar útlimum.
— Hann er eins og ungfrú
Stefania Grawford þegar hún
stendur með hendur á mjöðm-
um, sagði ég: — Feit um mittið
og með pínulitla thandleggi.
— Þeir stækka, sagði Jemmi
og rótaði medri moldardrullu á
karlinn. Hann virti hann íhug-
andi fyrir sér nokkra stund, svo
tók hann til við að búa til á
hann þungan framstæðan kvið
fyrir neðan beltisstað. Hann gaut
til mín auigunum og aiugu hans
ljómuðu.
— Finnst þér ekki líka herra
Avery líkur snjókarli?
Nú réðst Jernmi á snjódnn og
fór að klína honum ofaná mold-
ina. Ég fókk bara leyfi til að
meðhöndla á honum bakið; hann
vildi sjálfur annast framhliðina.
Hægt en markvisst varð herra
Avery hvítur og þokkalegur.
Með því að nota smáspýtur
fyrir augu, nef, munn og hnappa
kom smátt og smátt sikilsmynd
á herra Avery. Hann var dálítið
önuglegu-r á svip. Brennibútur
fullkomnaði verkið. Jemmi steig
skref aftur á bak og virti fyrir
sér handaverk sín.
— Hann er dásamlegur, Jemmd,
sagði ég. — Manni finnst næst-
um því eins og hann gæti talað.
— Já, er það ekki? sagði hann
með hæfilegri hógværð.
Við gátum ekki beðið eftir þvi
að Atticus kæmi að borða, heldu-r
hringdum við til hans og sógð-
umst þurfa- að sýna honum dá-
lítið sem kæmi honum á óvart.
Hann sýndist dálítið undrandi
þega-r hann sá að megnið af kál-
garðinum var komið fram fyrir
hús, en hann sagði samt, að við
hefðum staðið okk-ur með mestu
prýði.
— Ég hefði ekki haldið að þú
gætir þetta, sonur sæll, sagöi
hann við Jemma. — En fram-
vegis þarf ég víst ekki að haifa
neinar áihyggjur af því hvað úr
þér verður; þú ert svo sannar-
lega hugmyndaríkur.
Hrós Atticusar varð til þess að
Jemmi roðnaði alveg út að eyr-
um, en hann lei-t upp með vök-
ulum svip þegar Atticus steig
fáein skref aftur á bak. Þar stóð
hann, kipraði saman augunum
og einblíndi á snjókarlinn. Fyrst
brosti hann. Síðan hló hann. Og
loks sagði hann:
— Já, drengur minn, ég veit
sved mér ekki hvað verður úr
þér í fyllingu tímans — verkfræð-
ingur, lögfræðingur eða mynda-
smiður — en í þessu tiilviki hef-
urðu komizt býsna nærri dálitlu
sem við köllum ærumeiðingar í
mínum verkahring. Þú verður að
duibúa d-rjólann dálítið.
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270sm
Aðrar siærðir. smiðaðar eftir beiðni.
gluggas miðjan
Siðumúja 12 - Sími 38220
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi BRETTl — HURÐIR — VÉLALOK
og GEYMSLULOK á Volkswagen í allflestum litum. —
Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið
verð. — REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholti 25 — Sími 19099 og 20988.
HARPIC er ilmandf efni sem hreinsar
salernisskálina og drepnr sýkla
Indversk
undraveröld
Frá Austurlöndum fjær, úrval hand-
unninna skrautmuna úr margvisleg-
um efnivið m.a. útskorin borð, flóka-
teppi. heklaðir dúkar, kamfóruviðar-
kistur, uppstoppaðir villikettir, Bali-
styttur. kertastjakar, ávaxta- og kon-
fektskálar, blómavasar. könnur, ösku-
bakkar, borðbjöllur, vindla- og sígar-
ettukassar, ódýrir, indverskir skart-
gripir og margt fleira.
m
Einnig margar tegundir af reykelsi.
Fallegar og sérkennilegar gjafir, sem
veita varanlega ánseg'ju, fáið þér á
SNORRABRAUT 22.
SENDIBÍLASTÖÐ KÓPAVOGS H.F.
Sími 42222
Tökum að okkur
breytingar, viðgerðir og húsbyggingar.
Vönduð vinna
Upplýsingar í síma 18892.
Röskur sendill
óskast fyrir hádegi. — Þarf að hafa hjól.
ÞJÓÐVILJINN sími 17500.
JÓLASKYRTURNAR
í miklu og fallegu úrvali.
PÓSTSENDUM.
Laugavegi 71. Sími
20141.