Þjóðviljinn - 10.12.1970, Blaðsíða 3
®awm'ftw3agss‘ *a áesain&ey t970 — W«3©V-I^JINTSr — SÍÐA 3
Herrétti í máli 16 þjóðernissirinaðra Baska fokíð
Barátta Baskanna hefur sameinað
sundurleita andstæðinga Francos
BURGOS 9/12 — Herrétti yfir 16 Böskum í Burgos á Norð-
ur Spáni lauk í dag, en dóms er ekki að væn ta fyrr en
eftir helgina. Óttazt er að 6 eigi dauðadóma yfir höfði sér
og hinir samtals 754 ára fangelsisvist. Réttai'böld þessi
hafa vakið meiri athygli en önnur, sem fram hafa farið á
Spáni síðan í lok heimsstyrjaldarinnar síðari.
Róstursamt var viö réttarhöld-
in í dag, og kvað svo rammt að
í lokin, að blaðamönnum og
öðrum áheyrendum var vísað út,
og siðari hluti yfirilieyrslunnar
fór fram fyrir lufctum dyrum.
Verjandi hinna ákærðu neitaði
að leiða fram vitni, á þeirri
forsendu að öll málsmeöferð hefði
verið ólögleg.
Hér fer á eftir lauslega ]>ýð-
ing úr Le Monde, og er þar
gerð grein fyrir málsstað og bar-
Sendiráð
hertekið
VlN 9/12 — 30 íranskir stúdentar
í Vínarborg hertóku í dag sendi-
ráð írans í borginni og höfðu
það á valdi sínu í hálfan annan
tíma. Var hertakan gerð í mót-
mælaskyni við handtöku íransks
menntamanns, sem ætlaði að
takast á hendur rannsókn á
skýrslum um pólitískar handtökur
í íran.
Hannibalistar
komu á fund þing-
flokka AB og Afl.
Lóksins í gær létu þeir afþrá-
anntn 1 Hannib.il Valddmarsson,
Bjöm Jónsson og Karl Guðjóns-
son og mæittu á flundi með þáng-
Eokkum Alþýðubandalagsins og
Albýðuiflokksins, en þessir þrir
þingmenn höfðu áður neitað að
sitja fundi með Alþýðuibandalag-
inu og Aflþýðufloklknum í sam-
einingu. Hins vegar hafa þeir
mætt á viðræðufundum með þi.ng-
flokki Alþýðuflokksins.
Viðræðufundiur þessara aðila —
þingtflokka Alþýðubandalagsáns,
Alþýðufílolkksiins, frjélslyndra og
Karls — hófst í Þórshamri kl.
17,30 í gærdag og stóð fundurinn
fram til kl. 19. Nýr fundur hef-
ur ekfci verið boðaður.
Símaskráin
Framhald af 12. síðu
inn frá Kirkjustræti, (í húsnæði
sem innheimta landssímans var
í .áður) DagJegur afgreiðsiutiml
er frá 9—19. Athygli símnotenda
skal vakin á auiglýsingum í daig-
blöðunum um afigreiðslu síma-
skrárinnar.
Símaskráin 1971 gengur í glildi
um leið og eitt þúsund númera
stækkun Grensásstöðvarínnar
verður tekin í notkun aðfiaranótt
f'mmtudagsins 17. desemtoer n.k.
Simnotendum skal vinsamilegast
bent á að eyðileggia símasikrána
frá 1969, sem er orðin úreit vegna
fjölda númeraibreytinga og nýrra
númera, sem bætzt hafa við. síð-
an hún kom út í september 1969,
enda ekkd lengur í giildi.
áttu Baska. Greinin er skrifuð
af blaðamanninum Marcel Nie-
dergang.
1 septembermánuði síðast liðn-
um gerðist sá atburður í San Se-
bastian, að maður nokkur kveikti
í klæðum sínum, kastaði sér að
fótum Francos hershöfðingja, sem
staddur var við opnun heims-
meistarakeppni í knattleik þeim
sem er þjóðaríþrótt Baska, og
hrópaði: — Lifi frjáls Basikahér-
uð. Lögreglumenn úr fylgdarliði
Prancos kæfðu fljótt örvænting-
arópin, tóku manninn, Joseba
Elosegui, á sitt vald, og síðan
var hann leiddur fyrir rétt.
Árið 1936 stjómaði hann í Guer-
nica sveit Baska sem börðust
með lýðveldishernum. Hann var
tekinn til fanga nokkrum sinn-
um eftir stríðið, og nýllega dró
hann fána Baska að hún á tumi
dómkirkjunnar i San Sebastian.
Hann er sá fyrsti, sem freistar
þess að draga athygli heimsins að
vandamálum Baska með því að
ætla að brenna sig lifandi.
Þjóðemissinnaðir Baskar, sem
að öllum líkindum rændu þýzka
kt>nsúlnum í San Sebastian fyrir
skömmu em af öðru sauðalhúsi
og annarri kynslóð. Þeir eru
Mynntir skæruihemaði í borgum
og sveitum, og hafa tileinkað sér
svipaðar aðferðir og byltingá-
sinnuð öfl í rómönsku Ameríku
og Palestínuarabar, þ. e. mann-
rán.
Ólík öfl sameinast
Frá því að 5. aðalfundur þjóð-
ernissamtaka Báska, ETÁ, var
haldinn árið 1967 hafa yngstu og
róttækustu meðlimirnir í sam-
tö'kunum gagnrýnt þá félaga sína,
sem haifa viljað fara hægara
í safcirnar. Ennfremur hafa þeir
gagnrýnt hinn sósíalíska verka-
mannaflokk Spánar fyrir linkind.
Á síðasta aðalfundi samtakanna,
sem haldinn var á þessu ári
neituðu þeir róttækari að taka
þátt í umræðunum á þeirri for-
sendu, að tími orða væri liðinn,
en stund athafna mnnin upp.
Vafalítið hafa hin róttæku öfl
í ETTA-samtökunum, komið stjórn-
inni í Madiid í erfiðari aðstöðu
en hún hefur lent í eftir borgara-
stríðið, en aðgerðir þeirra kunna
einnig að verða til þess að
b'reikka enn bilið milli hinna
sundurleitu hópa innan ETA-
samtakanna, en fyrir nokkrum
vikum vom .gerðar mi'klar til-
raunir til að jafna ágreininginn.
Atferli þeirra kann einnig að
verða til þess, að herrétturinn
í Burgos kveði upp þyngri refs-
ingu en ella. En það hefur
komið róti á ýmsar andstöðu-
hreyfingar gegn stjórninni, til að
mynda, stjórnmála- Og verka-
lýðshreyfinguna, svo og stúdenta-
samtök. Fréttin um herréttinn í
Burgos og starfsreglur hans, sem
minntu á hina dimmu daga
bofgarastríðsins hefur þokað'
saman ýmsum andstæðum fylk-
Tilkynning
Að gefnu tilefni skal þeim e>r hyggjast kaupa íbúð-
ir í Kópavogskaupstað bent á, að kynna sér áður
en kaup eru gerð, hvort teikningar af viðkomandi
íbúð, savnþykktar af bygginganefnd Kópavogs eru
fyrir hendi.
Kópavogi, 7. des. 1970.
Byggingaí'ulltrúinn.
ingum, sem eiga það sameigin-
legt að vera andvígar Franco og
stjórn hans. Má þar nefna
konjmúnista, frjálslynda og kon-
ungssinna, og kristilega demó-
krata.
Meðal þeirra sem réttarhöld-
in hafa sameinað í baráttu fyr-
ir afnámd dauðarefsingar á
Spáni eru sósíalistinn, Tierno
Calvan, kristilegí demókxatinn,
Ruiz Jimenez, Jose Maria Gil
Robles. fyrrum framkvæmda-
stjóirj „Bandalags sjálfsstjó'rnar-
sinna“ og greifinn af Mitrico,
fyrrum einkaritari greifans af
Barcelona höfuðborg Katalóna,
sem einnig berjast fyrir auknu
sjálfstæði. Biskupair bafa farið
þess á leit við Vatikanið, að
það láti Spánarstjórn fá orð í
eyra, og þa@ var gert. Árangur-
inn af því var sá, að réttarhöld-
in í Burgos, sem fram áttu að
fara fyrir luktum dyrum, voru
gerð opinber. Það var lítið sppr
en þó í rétta átt.
Hver hagnast á mannráninu?
Það er ekki útilokað að því að
baki standi öfl, aUs óskyld þjóð-
(Vnishireiytfingu Baslkia, sem
vilji með þessu fá dómiairana í
Burgos til að kveða upp þyngri
dóma en ella yfir þjóðernissinn-
unum. Ef hin róttæ'ku öfl innan
ETA væri allsráðandi í þess-
ari hreyfingu, myndu þau enn
magna þær andstæður, sem
ekiki hefur tekizt að sætta á
þeim þremur áratugum, sem
liðnir eru frá lofcum borgara-
styirjaldiarjnnar.
Aukin róttækni
Á þessu árj eru 33 ár liðin
frá því að árásdn var g’erð á
Guemioa. G&mlir baráttumenn
rifja upp í hiuga sér hinn
skamrna tíma, þegar Baskax
nutu sjálfsstjórnar samkvæmt á-
kvör ðun lý ðvel disst j ómarinnar
árið 1936. Það var árangur bar-
áttu aðskilnaðarsinna. sem létu
til skarar skríða vjð lok síð-
ustu aldar, er iðnþróun í Baska-
héruðunum hafði verið miklu
hraðari en í öðrum héruðum
Spánar.
Sabin d’Arana Gorni stofnaði
Þjóðfrelsisflokk Basfca áriS 1890,
og markmið hans var að berjast
fyrir sjálfsstjórn í héruðunum.
Flokk'Uirinn var stofnaður á
grundvelli glæstrar fortíðar, og
eftir erfiði og þjáningar Basfca
á tímum Navarra-konungsdæmis-
ins, en spænska ríkisvaldið leit
sjálfstæðisviðleitni þeima óhýru
auiga, og jafnvel er taiið, að
lýðveldisstjórninnj bafi verið
þa'ð þvert um geð. þegar hún
lét undan kröfum þeirra efttir
uppreisn falangista Enginn
vafi er á því, að hörmungar
borgarastyrj aldarinnar blésu
glæðum að þjóðerniskennd Bask-
anna. Þeir komu á fót útlaga-
stjóm, og tugþúsundi.r Baska,
sem hiurfu úr landi. reyndust
hugsjónum sínum trúir.
í Baskahéruðunum þremur á
Spánj hafa hinir varfæmari
þjóðemisfilokkar Basika orðið að
víkja fyri.r yngri og byltingar-
sinnaðri mönnum sem sætta sig
ekki við þær kúgunaraðferðir,
sem Franco tók upp í ágúst
1936. þ.e. banni við skólahaldi
Baska og notkun tungu þeirra.
„Ólöglegu verkföllin“ i Baska-
héruðunum 1947 voru voru ó-
tvíræður fyrirboði þess sem í
vændum var. Það var ekkj fyrr
en 1953 að stúdentar stofnuðu
samtökin. EKIN. en upp úr þeim
var ETA stofnuð 1959, en sam-
tökin heiita réttu nafni Eiuzkadi
Ta Az'katasuba eða Euzkadi og
frelsi þess.
ETA hélt sifit fyrsta þing árið
1962, og voru þá siamtökin skil-
greind svo: Byltingarhreyfing
Basba. sem berst fyrir þjóð-
freisi. Á stefnuskrá þeirra var
m. a. barátta fyrir sjálfstæði og
sameiningiu Baskahéraðanna,
breyttu efnahaigskerfi, nýrri
skipan í þjóðfélags- og menn-
ingarmálum, og að kom-a á fót
sósíalísfcu stjóma'rfari.
Síðan hafa samtöfcin gerzt æ
róttækari en um leið klofnað.
ETA „Berri“ eða nýja ETA er
andvíg vopnaðri baráttu og
marx-lenínskum tilhneigingum,
en augijóst er að meirihluti
hinna virku þjóðernissinn.a sver
efcki af sér hugtök svo sem sósí-
alisti og byltingarmaður. Vig-
staðan er mjög skýr. Frá því í
janúar 1968 hafa herlög verið
í gildi í Baska-héruðunum. og
undanfarið ár hefur þar stöðugr-
ar ólgu gætt meðal lærðra og
leikra, enda njóta frelsissamtökin
stuðnings fjölmargra kaþólskra
presta.
Hegðun 5- Víetnama
í Kambodíu vítt
PHANOM PEHN 9/12 — Stjórn Kambodju hefur sent
Saigon-stjórninni mótm'ælaorðsending'u vegna fralnferðis
suðurvíetnamskra hermanna í landinu. Segir þar m.a. að
Suður-Víetnamar hafi tekið herskildi með ólöglegum hætti
ýmis landsvæði í Kambodju.
Utanríkisráðherra Suður-Viet-
nam lýsti því yfir í dag, að við-
komandi ráduneytum hefði verið
fyrirskipað að setja á laggimar
rannsóknarnefnd til að kanna,
hvað hæft væri í þessum ásökun-
um. Blöð í Kambodju hafa gagn-
rýnt harðlega að undanfömu
hegðan suður-vietnamskra her-
manna í landinu, og í dag skrif-
aði blaðið Noktor Thom mjög
harðorða ritstjórnargrein, þar
sem m. a. var staðhæft, að suður-
vietnamskir hermenn kæmu fram
við Kambodjumenn sem sigraða
þjóð. Hertækju þeir stór svæði,
,AIþýðubandalag' Pakistan
hefur meiríhluta á þinginu
KARACHI 9/12 — „Alþýðu-
bandalag“ Mujbur Rahmans, sem
berst fyrir aukinni sjálfstjóm
Austur-Pakistans, varð sigurveg-
ari í fyrstu lýðræðislegu kosn-
ingunum í Pakistan og fékk
hreinan meirihluta á hinu nýja
fuHtrúaþingi.
■ Mujbur sagði strax eftir að
úrslit voru kunn, að sigurinn
væri augljós vísbending um, að
Vísa um áhrifa-
vald og hundahald
Einn. lesenda blaðsins hafði
samiband við Þjóðviljann í gær-
morgun, og sagðiist hafia hlýttog
horft á sjónvarpsiþátt þann, er
Gylfi Þ. GísláSón'sat fyri-r svör-
um, en spyrlar voru fréttamenn
sjónvarpsins, Eiður Guðnason og
MagnúsBjamfreðsson. Húshónda-
hollustan sikein út úr andlitum
þeirra, er þeir spurðu ráðherr-
ann og þess vegna varð til þessi
vísa um frammdstöðu ráðherrans
og fréttamannanna:
Oft hef ég dáð hans áhrifaivald,
en ekki get cg neitað hinu,
að mér finnst nóg um það
hundahald,
sem honum leyfist í sjónvarpinu.
Fyrirlestur um
sálfræði í kvöld
Sigurjón Björnsson sálfræðing-
ur mun flytja fyrsta fyrirlestur-
inn, sem haldinn ver@ur á vegum
Sálfræðingafélagis íslands í wtiur
og verður hann haldinn í Nor-
ræna húsinu í kvöld, fimmtudag,
fcl. 8.30 Nefnist hann „Tengsl
uppeldis og umhverfis við greind
og námsárangur“ og byggist á
rannsóknum, sem Sigurjón hefur
unnið á geðheilbrigði barna í
Reykjavik. Aðgangur er öllum'
heimill og ókeypis. Á fundinum
gefst mönnum kostur á að gerast
áskriftarfélagar í félaginu.
Fólk vantar til
blaðdreifingar á
Rauðalæk
Lauganeshverfi
Langholt
Sogamýri
sími 17 500.
kjósendur styddu kröfu flokksins
um algera sjálfstjórn fyrir Aust-
ur-Pafcistan, þar sem aðalbæki-
stöðvar flokksins eru.
Alþýðubandalagið hefur nú 151
mann í þinginu, sem telur 300
þingmenn, og fyrsta verkefni
þess er að semja nýja stjómar-
skrá landsins innan fjögurra
mánaða, Sósíalistaflokfcurinn í
Vestur-Pakistan getur unað mjög
vel við sinn hlut i þessum kosn-
ingum. en hann vann 81 þing-
sæti. Leiðtogi hans er Zulfikar
al Bhutto fyrrum utanríkisráð-
herra Pakistan. Þirðji stærsti
flokkurinn eftlr þingkosningar er
Mlúhameðsþandalagið. en það
mun hafa hlotið 9 þingsæti.
rændu, rupluðu, - brenndu og
nauðguðu konum.
í ritstjórnargreininni segir m.
a., að framferði hermannanna
sýni og sanni, að Þjóðfrelsis-
fylkingin og Norður-Vietnamar
séu ekki sameiginlegir fjendur
Kambodju og Suður-Vietnams
heldur aðeins Kambodju. Enn-
fremur segir, að aukin hemaðar-
átök í Kambodju komi sér mjög
vel fyrir Saigon-stjómina, þvi að
það létti henni byrðina, en komi
henni jafniframt á herðar Kam-
bodju. „Saigon-stjórnin æskár
þess í raun réttri ekki, að
Kambodjumenn beri sigurorð af
kommúnistum, og vill, að stríðið
breiðist i æ ríkara mæli til
Kambodju, til að létta sér land-
vinningastefnu sína“, segir í
greininni.
Mótmælaorðsendingin til Sai-
gon-stjómar var send skömmu.
eftir útkomu blaðsins
ft'.rxí'A - nx
Forvextir
lækkaðir
BRUSSEL 9/12 — Belgíski seðla-
bankinn lækkaði í dag forvexti
frá 7 niður í 6%%. Forvextir i
Belgíu voru síðast lækkaðir um
%% 22. okt. s. 1.
Hœfta 20
nemendur
að Hólum?
Nemendur í eldri deild
Bændaskólans að Hólum
hafa. ritað landbúnaðarráð-
herra bréf, þar sem honum
er tilkynnt, að þeir rnuni
ekki halda áfram í skólan-:.
um eftir jólaleyfi vegna
úppsagnarbréfs, sem skóla-
stjórinn hefur ritaö, x$ð&-
manni og tamningákennara
við skólann.
Ráðherra sendi fulltrúa
úr landbúnaðarráðuneytinu
í fyrradag norður til samn-
inga í málinu og er hann
væntanlegur að norðan í
dag.