Þjóðviljinn - 29.12.1970, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.12.1970, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 29. desember 1970 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J Vinna að undirbúningi XX. 0L / Miinchen 1972 Sem kunnugt er verða næstu clympíuleikar, sum- arleikarnir, haldnir í Miinchen í Vestur-Þýzka- landi dagana 26. ágúst til 10. september 1972. Þetta verða tuttugustu olympíuleikarnir á vor- um dögum. Fyrir löngu er margháttaður undir- búningurinn hafinn fyrir þessa miklu íþróttahátið og undirbúningsnefndin í Vestur-Þýzkalandi sendir reglulega frá sér ýmsar fréttir um gang mála. Nú siðast fékk Þjóðviljinn senda þcssa mynd af því fólki, sem undirbúnings- starfið hvílir mest á og er aðalframkvæmdastjór- inn, Ernst Schmidt-Hilde- brandt fyrir miðri mynd (með gleraugu). Aleksejew bætti heimsmetið mmmm íí'i'Í-ffiííftvíífííííS' Sterkasti maður veraldar, sovézki lyftingamaðurlnn Wassilj Al- eksejew bætti heimsmet sitt í lyftingum á sovézka meistaramót- inu sem haldið var um jólahelgina. Lyfti Aleksejew samtals 625 kg. Hann pressaði 22^5 kg„ snaraðj 172,5 og jafnhattaði 230 kg. Aleksejew bætti heimsmetið síðasta á heimsmeistara- keppninni er fram fór í Bandaríkjunum á liðnu sumri. Liilian Board er látin Þessi mynd er tekin. þegar Lilllan Board hóf endasprettinn í 4x400 m. boðhlaupinu fyrir ensku sveitina er setti glæsilegt heimsmet í samveldisleikunum sem fram fóru í júnímánuði sl. Elnhver frægasta íþrótta- kona síðari ára, Lillian Board lézt sl. sunnudag á sjúkrahúsi í V-Þýzkalandi eftir margra mánaða erfiða sjúkrahúslegu. Lillian Board fæddist í S-Afr- íku, en fluttist þaðan kornung til Englands, þar sem hún ólst upp og fyrir England hef- ur hún unmið hvern stórsigur- inn af öðrum í 400 og 800 m. hlaupum á síðasta áratug. -<S> „íþróttamaður árslas" verður kjörinn í dag 1 daig munu íþrótta- fréttaimenn velja „íþirótta- mann ársíns“ 1970 og verður valið kunngjört í hótfii er firóttamenn halda síðari hluta dags. öruggt má telja að val „íiþnóitta- manns ársins“ verði mjög jafint eins og endranær, enda hafa margir ísienzk- ir fþróttamenn unnið góð af.rek í srumar og sl. vetur. íþróttamaður ársdns 1969 var sem kunnugt er Guö- mundur Gíslason sund- maður en á undan honum Geir HaMsteánsson. S.dór. Lillian Board var talin sig- urstranglegust í 400 m hlaupi á síðustu Ólympíuleikum, en tapaði óvænt fyrir franskri stúlku Besson að naífni og varð að láta sér nægja 2. sætið, en síðan vann hún 800 m hlaupið. Síðan hafa þær Besson og Board háð fjölda mörg ein- vígi á hlaupabrautinni cg sigr- að til skipti's, en verið of jarlar annarra kvenna í þessum hlaupagreinum. Frægust varð Lillian Board fyrir endasprett sinn með ensku boðhlaupsveit- inni í 4x400 m hlaupi á síð- ustu samveldisleikunum er fram fór á liðnu sumri. Þá setti sveitin nýtt heimsmet 3.30,8 mín. Var það ekki sízt hinn stórkostlegi endasprett- ur Board er tryggði sveitinni sigur og þetta glæsilega heims- met. En það er skamrnt milli Iífs og dauða. Fljótlega eftir sam- veldisleikana, þeir fóru fram í júní sl., fótr Lillian Board að kenna sér þess meins er að Iokum dró hana til dauða eins og áður segir sl. sunnudag. Að sögn lækna var það hivít- blæði er þessi fræga íþrótta- kona varð að lúta í lægra lialdi fyrir. // ÍÞRÓTTAPAR ÁRSINS vv Þetta er sovézka listskautaparið Alexandr Suraikin og Ludmilla er kjörin hafa verið „íþróttapar ársins“ og ekki að ástæðulausu. Þau urðu bæði heimsmeistarar og Evrópumeistarar í, listskautahlaupi sl. tvö ár. Þau eru bæði stúdentar við háskóla í Leningrad og eru 21 og 22ia ára gömul. Lillian Board á

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.