Þjóðviljinn - 20.07.1971, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.07.1971, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJTNN — Þriðjudagur 20. jiúlí 190. Dregið í riðla HM í knattspyrnu Islmd í ríðli með Hollandi, Belgíu, Noregi Eins og komið hefur fram í fréttum ákvað stjórn KSI að íslenzka landsliðið skyldi taka þátt í heimsmeistara keppninni í knattspymu, það er að segja undanrásum henn- ar. A laugardaginn var svo dregið um hvaða lið leiki saman i riðli og lenti Island þá i riðli með Hollandi, Belg- íu og Noregi. Það verða því engir aukvisar er íslenzkalið- ið fær á möti sér, þar sem þama er um að ræða at- vinnumannalið þessara þjóða. Leikið verður að sjálfsögðu heima og heiman svo íslenzk- ir knattspyrauunnendur eiga von á góðri skemmtun að sjá tvð af beztu landsliðum Evrópu leika hér á Laugar- dalsvellinum. ★ Hollendingar eru nú orðnir ein mesta knattspyrauþjóð Evrópu og hafa meistaralið þeirra orðið Evrópumeistarar tvö síðustu árin; nú siðast Ajax, en áður Fejenoord, sem einnig vann það afrek að verða heimsmeistari félags- liða eftir úrslitaleik við Suð- ur-Ameríkumeistarana Estud- iantes frá Argentínu. Lands- lið Hollands er eitt bezta landslið Evrópu í dag, enda hlýtur svo að vera hjá þjóð, sem á jafn mörg góð fé- lagslið og Hollendingar, jafn- vel þótt í félagsliðunum séu alltaf einhverjir útlendingar. Þá eru Belgíumenn ekki síðri og má sem dæmi nefna að þeir voru meðal 16 beztu í síðustu HM og komust í Iokakeppnina í Mexíkó. — I undankeppni síðustu HM voru Belgiumenn í riðli með Júgó- slövum, Spánverjum og Finn- um. Belgarnir unnu þáFinna 2:1 og 6:1, Júgóslavana 3:0, Spánverjana 2:1, en jafntefli 1:1 varð í síðari lciknum og Belgíumennirnir unnu riðilinn eins og áður segir og komust til Mexíkó. Það þarf vart að segja meira, því það eitt að komast í lokakcppnina segir meira en nokkur orð um styrkleika þeirra. Norðmenn eru okkur að sjálfsögðu aö góðu kunnir og norska liðið er eina liðið, sem við getum gert okkur nokkr- ar vonir um sigur gegn, í riöl- inum. En hvort sem viðvinn- um eða töpum í þessari und- ankeppni er þátttaka í heims- meistarakeppni eini mögu- Ieikinn sem við eigum til að fá svo sterk lið, sem Belgíu og Holland til að koma hing- að til lands og leika hér og það eitt réttlætir þátttöku okkar í keppninni. íslandsmótið 1. deild: Fram — ÍBA 5:2 ÍBA náði 2ja marka forskoti en Fram vann bað upp í sigur □ Enn halda Framarar sínu striki í 1. deild- arkeppninni og- hafa nú náð þar umtalsverðu for- skoti, I leiknum við ÍBA gerðist það, að Akur. eyringarnir náðu txeggja marka forskoti í byrj- gp leiksins, en hsegt og sígandi unnu Framar. arnir það upp og áður en lauk höfðu þeir skor- að 5 mörk gegn þessum tveim mörkum Akur- eyring-a og þótt þetta sé of mikill munur var sigur Fram sanngjarn. Akureyringamir byrjuðu leikinn af krafti og sitrax á 4 miínútu átti Eyjóifur Ágústsson dauðaifæri er hann komst einn innfyrir Fram-vömina en Þor- bergur kom út og lokaði mark- inu mjög vel svo efckert varð 'úr sKöti “Eýjöilfs." En svo á 12. mínútu kom fyrsta markið. Skúli Ágústsson gaf vel fyrir markið, Eyjólfur bróðir hans vissi af Sigbimi Gunnarssyni I betri stöðu fyrir aftan sig svo hann hoppaði yf- íslandsmótið 1. deild: ÍBV — ÍA 3:2 Enn tapa íslandsmeistarar ÍBV bezta liðið sem leikið hefur á Akranesi í sumar □ Það fer vart á milli mála, að ÍBV-liðið er eitt bezta lið landsins um þessar mundir og það sýndi betri leik en nokkurt lið hefur sýnt hér á Akranesi í sumar, er það sigraði ÍA 3:1 sl. laug- ard. Sigurinn var sanngjarn, þótt munurinn hefði ef til vill ekki átt að vera nema eitt mark mið- að við gang leiksins og tækifæri. Það sem gerði gæfumuninn f leiknum var, að Vestmiaranaey- ingar voru mun átoveðcnari og fljótari á boltann og síðast en ekiki sízt var úthald þeirra mun betra en Skaigamanna. Greini- lega hefur komið í Ijós, þegar Skagamann mæta betri liðun Stóían í 1. deild Elftir 'úrslit í X. deild um helgina: ÍBV-lA 3:1 og Fram- IBA 5:2, er staðan í deildinni bessá: Fram IBV Keflavík Valur ÍBA IA Breiðablik KK 8 6 1 1 23:11 13 8422 21:11 10 6 3 2 1 14:7 7322 13:14 8 3 14 15:18 8 3 0 5 15:18 7 2 0 5 6 10 5 4:19 4:11 um í deildinni, aið úthald liös- ins er akki nóg og ef hraða er haldið uppi í ieiknum má segja að leikmennimir hafi ekki út- hald nena í fyrri hálftteik, a.m. k. hafði miaður það á tilifinn- ingiunmi að þessu sinni. Til að byrja með var leikurinn nokik- uð jafn og liðin skiptust á að sækja en fátt markvert gerðist fyrr en á 25. mínútu. Þá var boltinn sendur í átt að ÍA-markinu en hann fór í Harald Sturlaugsson og breytti viö það stefnu, hrökk til Tóm- asar Páissonar er var óvaldað- ur á vítateig og hann átti auð- velt með að skora 1:0. Áfram var sótt og varizt en greiniiegt var að IBV hafði ráðin í leiknum, en þeim Eyja- mönnum tókst þó ekki að skora naestu mínúturnar. En svo kornn mark númer tvö rétt fyrir leik- hié. Á 41. mínútu fékk hlnn ungi og- efnilegi útherji ÍBV, Örn Óskarsson stungubolta innfyrir ÍA-vömina og skoraði auðveld- lega 2:0. Þannig var svo staðan í leik- hléi og ekki annað hægt að segja en þetta hafi verið sann- gjörn staða miðað við gang leiksims. Það sama hélt áfram í síðari hállfleiknuim að Eyja- mennímir voru mun ákveðnari og úthald þeirra greinillegai mjög gott. Þeim tókst þó ekki að skora nema einu sinni í síð- ari hálfleiknun. Það vair á 22. mínútu að einn bezti maður liðsins Einar Frið- þjófsson skaut hörkuskoti fri vítateigslínu og boltinn hafnaði í netinu. alls óverjandi fyrir Davíð Kristjánsson markvörð IA og hann verður ekki sakað- ur um mörkin þrjú. Þar með má segja að gert hafi verið endanlega út um leikin og vomir Skagamanna um þó ekki vseri nema annað stigið að enigu orðnar. Á síðustu mínútum leiksins lagaði Matthías Hallrímsson stöðuna fyrir ÍA er hann einlék í gegnum vörnina og lék á Pál markvörð og skoraði eina mark 1A. Leiknum lauk því cins og Framhald á 7. saðu. , Ir boltann, sem rann til Sig- björas er skoraði glæsilega 1:0. Og það leið svo ekki mínúta þar til Magnús Jónatansson bætti síðara mairki ÍBA við, eftir að Kári Ámason hafði stungið varnarmann Fram af og komist uppaö endamörkum, þaðan sem hann gaf vel fyrir markið. En Framiaramir létu þetta ekkert á sig fá og' sóttu nú stíft næstu mínúturnar. Uppskeran varð þó engin fyrr en á 22. miínútu. Kjartan Kjartansson sendi þá vel fyrir markið og þar var Kristinn Jörundsson hinn markheppni leikmaður fyrir og hann átti auðvelt mcð aðskora. Að margra dómi var Kristinn þarna rangstæður, en svo mun þó ekki hafa verið, þar sem bakvörður ÍBA var fyrir aft- an hann þogar spymt var, en hljóp út á móti boltanum og hugðist skalla frá, sem honum þó mistókst. Þannig var þá staðan í ieiik- Méi og haifði þessd fyrri hálf- leikur verið nokikuð vel leikinn og sikommtilegur á að horfa. Það sama er okiki hægt að segja um síðairi háilfleikdnn ,er var eiinin hinn leiðinlegasti er maður hefur lengi séð, ef þessi fjögur mörk er Fram skoraði eru undanskilin. Ilið fyrsta þcirra, jöfnunar- markið kom úr vítaspyrnu er dæmd var á Stclnþór Þórarins- son á 6. mínútu fyrir að bjarga marki með því að slá boltann yfir markið og úr vítaspym- unni skoraði Marteinn Geirs- son auðveldlcga. Næst var það svo á 11. mín- útu að Kjartan Kjartansson komst einn innfyrir ÍBA-vöm- ina og skoraði 3ja mark Fram- en litlu munaði að Árna Stef- ánssyni tækist að verja þetta skot. Kristinn Jörundsson náði markaforustunni í 1. deild með marki á 15 .mínútu en það var skorað úr mikilli þvögu er myndaðist inní markteig ÍBA. A 33. mínútu bætti Eriendur Magnússon 5ta markinu við, eftir gróf mistök Steinþórs Þór- Framhald á 7. síðu. 1 Þessar myndir sýna viðureign Þorbergs Atlasonar markvarðar Fram og hins efnilega útherja ÍBA Sigurbjörns Gunnarssonar. Á efri myndinni hefur Sigurbjörn náð að krækja boltanum frá Þorbergi en á þeirri neðri kemur Þorbergur svifandi og náði að handsama boltann.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.