Þjóðviljinn - 05.09.1971, Qupperneq 3
Sunwudagur 5. Eeptember 498* — SlÐA 3
Hér er brezkur togari á miðunum innan 12 milna. Skipsmenn hafa breitt húð yfir nafn togarans
og númer, en þó má greina fyrsta orðið í nafni togarans, LORD. 1 baksýn grillir í brezkan bryn-
dreka hennar hátignar.
Myndin sýnir brezkan togara stefna á fullri ferð á haf út, eftir að hann hafði fengið stöðvunar-
merki frá íslenzku varðskipi. Atburðir sem þessi voru algengir í landhelgisstríðinu svonefnda.
Skipstjórar togaranna lögðu traust sitt á það, að brezku bryndrekamir kæmu þeim til hjálpar.
12 mílur 1958
50 mílur 1972
Þegar vinstri stjómin var
mynduð árið 1956, lýsti hún
yfir í málefnasamningi, að hún
hygðist færa út landhelgina í ,
12 míluir. Lengi stóð í stappi
að fá stjórnmálaflokkana til að
saimeinast um útfærslu. Var
Sjálfstæðisflokkurinn flolcka
tregastur til að taka ákvörðun
og vildi samningamakk við
NATO-ríkin um lífshagsmuna-
mál þjóðarinnar. Aliþýðuiflokk-
t urinn-ya.iiviengi tregur, en féiist
loks á útfærslu og gaf þá Lúð-
vík Jósépsson sjávarú tvegsráð-
, herrn -ýí-,,t:eg 1 ugerð um útfærslu.
30. júni 1958, sem síðain gekk
í gildi 1. sep. 1958
Þann dag fyrir 13 árum við-
urkenndu öll ríki 12 mílna fisik-
veiðilögsöguna i verki, nema
Bretar. Þeir beittu óPbeldi og
veiddu undir berskipavernd.
eins og ýmsar af meðfylgjandi
myndum sýna. Árið 1961 samdi
viðreisnarstjómin við stjórn
i'nnrásarflotans. en Alþýðu-
bandalagið og Framsókn and-
mæltu þeim samningum og
lýstu þá nauðungarsamninga.
Nú stendur íslenzka þjóðin
enn einu sinni frammi fyrir
því, að verða að færa út fisk-
veiðilögsöguna að þessu sinni
í 50 mílur, til að vernda fiski-
stofninn. Ríkisstjórnin hefur lýst
því yfir að útfærsla fiskveiði-
lögsögunnar verði framkvæmd
eigi síðar en 1. september 1972,
en áður verði samningunum við
Breta og Vestur-Þjóðveirja sagt
upp. Nú ríður á að þjóðin
standi einih.uga að útfærslunni
í þetta sinn og því kappkosta
stjórnvöld að ná samstöðu um
aðgerðir.
v .■
Brezkir gerðu mikið af þvi, að falsa einkenmsstafi og nofn togara
,
þeirra sem. voru að veiðum innan 12 mílna markanna. Hér sjáum
við mcrki»gu á einum slíkum og verður ekki sagt að fölsunin sé
sannfærandi.
■I
^v.1 y ■
x-x^x-k?:
iíi
V -X-- V
-----------------É
vXvvv/..
Hér sjáum’ við varðskipið Albert koma til hafnar í Vestmannaeyjum með landhclgisbrjót. Hannes lóðs, hafnsögubáturinn í Eyjum
aðstcðar varðskipið við að koma togaranum að bryggju. - , , ,,, - ’-iMi'tiÍHIUÍin lii
Á meðan nauðungarsamningarnir við Breta og Þjóðverja fóru fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, stóð hópur fólks vörð
við húsið nótt og dag með spjöld sem á voru letraðar kröfur um að íslendingar stæðu fast á rétti sínum.
50
MÍLUR
1972
I»ó íslenzku varðskipin væru lítil samanborið við brezku bryndrekana þá tókst þeim samt að taka
marga togara að ól'öglegum veiðum, þó svo að bryndrekarnir beittu þá ógnunum o.g ofbeldi. Brczk-
ir sáu að togveiðar undir herskipavernd voru illframkvæmalilegar. Myndln sýnir nokkur varð-
skipanna í Reykjavíkurhöfn.
>