Þjóðviljinn - 07.07.1972, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.07.1972, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Köstudagur 7. júli 1972 MOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag ÞJóðviljans. Framkvæmdastjóri: EiSur Bergmann, Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.). Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuðf. Lausasöluverð kr. 15.00. Prentun: Blaðaprent h.f. Skáklist í hættu íslenzk blöð skrifa leiðara um heims- meistaraeinvigið i skák, eins og vonlegt er. í Morgunblaðsleiðara i fyrradag er t.d. tekinn upp hanzkinn fyrir Bobby Fischer með svofelldu móti: ,,Þess er þó að gæta, að hann hefur verið samkvæmur sjálfum sér i kröfum sinum frá upphafi, og ekkert bendir til þess, að hann geri i þeim efnum neitt, sem að mati hans sjálfs er ekki rétt”. Þetta hljómar kannski ekki illa, en fær i reynd ekki staðizt. Ef það er lagt til grundvallar á mati á athöfnum manna, hvort þeim sjálfum einum finnist þeir gera rétt eða ekki, þá er undirstöðunni kippt undan staðhæfingum um rétt eða rangt i mannlegu félagi. Og þegar hér við bætist, að framferði Bobby Fischers hef- ur, umbúðalaust sagt, miðað að þvi einu að kúga meira fé af Skáksambandi ís- lands (eða hverjum þeim sem vildi hlaupa i skarðið) þá verður afsökunin enn hæpnari. Þó svo geti vel átt heima á siðum Morgunblaðsins, sem jafnan hefur talið mönnum það helzt til ágætis að þeir kynnu að græða fé — hvernig svo sem þeir færu að þvi. Það hefur verið talað um það, að kröfu- harka Fischers á skákmótum geti bætt kjör skákmanna yfir höfuð, og vist kann nokkuð að vera til i þvi. En hitt skiptir þó miklu meira máli i þessu sambandi, að þessi „kommersialisering”, þetta fjár- málabrask með ágæta iþrótt, mun vart verða henni til framdráttar i bráð og lengd. Umsvif.Fischers geta sjálfsagt leitt til þess, að teflt verði i stærri sölum, t.d. i heimalandi hans, að meira fé verði i veltu, að fleiri fái meiri tekjur af skák en hingað til, osfrv. En hér mun á eftir fara margt fleira sem fylgir braski með iþróttir : spá- kaupmennska, hæpin veðmálastarfsemi, baksamningar, mútur og annað góðgæti. Má vera að svo fari, að skák, þessi iþrótt einbeittni, rökvisi og hugkvæmni, verði að lokum breytt i einskonar andlega hnefa- leika, sem stjórnað verði af þeim skipu- lögðu glæpa flokkum, sem jafnan eru mættir þar sem peningaþefur er af keppni — eins og dæmi hinna eiginlegu hnefaleika sanna. We are not impressed. Lélegur rekstur í Straumsvík Þjóðviljinn hefur undanfarna tvo daga birt athyglisverðar greinar um áliðnaðinn og auðhringinn Alusuisse. Er þar gerður samanburður á rekstri islenzku Álverk- smiðjunnar i Straumsvik og Húsness i Noregi, en bæði eru fyrirtækin dótturfyr- irtæki Alusuisse. í þessum greinum kem- ur m.a. fram: 1. Áliðnaðurinn átti að skapa festu i islenzku efnahagslifi og vera til fyrir- myndar um framleiðni, en þar skella fyr- irvaralaust á markaðsörðugleikar, verð- fall og samdráttur i framleiðslu. 2. Samanburður milli Húsness og Straumsvikur leiðir i ljós, að framleiðni i annars sambærilegum fyrirtækjum i Noregi er allt að helmingi meiri i Noregi. 3. Vegna taprekstrarins eignaðist dótt- urfyrirtæki Alusuisse á íslandi innistæðu hjá rikinu upp á 47 milj. kr., en raunveru- leg skattgreiðsla þess varð aðeins 9 miljónir. 4. Forsvarsmenn Alusuisse hælast um yfir hinu lága rafmagnsverði á íslandi, enda er það að verða 50% lægra en i Noregi. Þá er varpað fram þeirri spurningu i greinunum, vegna gróða auðhringsins, en bókhaldstaps dótturfyrirtækisins, hvort hugsanlegt sé, að 300 miljónir hafi farið undir borðið til Sviss, þar af 200 miljónir sem skattaivilnun. Næg atvinna og vantar fólk á Patreksfirði — segir Svavar Júlíusson, kaupfélagsstjóri Mikið er um að vera hér á Patreksfirði, og rikir hér yfirleitt fram- kvæmdahugur og bjart- sýni hjá fólki, sagði Svavar Júliusson, kaup- félagsstjóri, i viðtali við Þjóðviljann i gær. Fólk hér er ekki uggandi yfir dýrtiðarmálum, og virðist mér fólk lita svo á að sumar af þessum verðhækkunum hafi verið óhjákvæmilegar. Fólk leggur miklu meira upp úr vinnufriði og atvinnuöryggi. Hefur fólk þannig lagt út i ýmis- konar framkvæmdir og dýrar fjárfestingar. Sjálfseignarbilstjórar hafa endurnýjað vörubila sina og keypt nýja bila. Ekki færri en 14 einbýlishús eru i smiðum hér i sumar. Var byrjað á þeim i vor. Ennfremur er hreppsfélagið að láta reisa verkamannabústaði. Er þegar byrjað á sex ibúða stigahúsi sem fyrri áfanga, en fyrirhugað er aö byggja tólf ibúða blokk i þessu skyni. Þá eru undirbúningsfram- kvæmdir hafnar að byggingu nýs frystihúss á vegum Hraðfrysti- húss Patreksfjarðar h.f. Hefur þegar verið sótt um lóð við höfn- ina. Ég veit ekki betur en hún sé fengin, sagði Svavar. Ekki þótti svara kostnaði að endurbyggja gamla frystihúsið. Verður nýja húsið byggt eftir ströngustu kröf- um um hreinlæti og þrifnað. Linuvertiðin gekk ágætlega hér i vetur, og öfluðu bátar vel eins og Þrymur, Drangey og Maria Júlia. Stöðug vinna var i báðum frystihúsunum og átti fólk kost á helgarvinnu oft á tiðum. Hafðist ekki undan að vinna fiskinn, og uröum við stundum að senda fisk frá okkur til Tálknafjarðar og Bildudals til vinnslu þar. Um áramótin voru keyptir hingað Hólmanesið og Pétur Thorsteinsson. Hafa þessi skip verið á togveiðum og fiskað held- ur illa. En það bregður til hins betra fyrr en varir, sagði Svavar. Hér vantar sannarlega fólk i frystihúsin og sjómenn á bátana. Ekki er óeðlilegt, að svona staður geti byggzt upp með aðrar eins náttúruauðlindir hér fyrir utan, — á ég þá við hin fengsælu fiskimið. Hvar er vænlegra til búsetu en i nágrenni við einar dýrustu náttúruauðlindir heims? Unga fólkið vantar hér i at- vinnulifið, og höfum við hafið Svavar Júliusson. smiði á nýju félagsheimili i vor. Fyrsti áfangi af þessari byggingu verður fokheldur með haustinu. Hér er næg atvinna og mikil gróska á öllum sviðum, sagði Svavar að lokum. g.m. Nei, nei- stefnan Nú dregur að þvi, að gömlu við- reisnarflokkarnir séu búnir að vera i eitt ár i stjórnarandstöðu. Alþýðuflokkurinn lýsti þvi sjálfur yfir, aðhann teldi rétt að sitja um tima i skammarkrók islenzkra stjórnmála eftir ósigurinn i fyrra og fara á endurhæfingarnám- skeið. Ekki er að vita, hve lengi það verður, en fyrri hluta vetrar sýndi flokkurinn þó nokkra til- burði i þá átt að styðja rikis- stjórnina til góðra verka, eins og þeir orðuðu það. En eftir að for- maðurinn kom heim, þá fylgdi flokkurinn gamla vanaganginum og skilaði sér við hlið gamla höf- uðbólsins. Þrátt fyrir það verður Alþýðuflokkurinn ekki sakaður um það, að hafa ekki haft neitt til málanna að leggja: ekki hefur hann verið einhliða neikvæður i stjórnarandstöðu. Það sama verður hins vegar ekki sagt um Sjálfstæðisflokkinn. A þingi i vetur hafði flokkurinn ekkert sjálfstætt til málanna að leggja, engin úrræði, en var yfir- leitt á móti velflestum tillögum stjórnarinnar eða var með sýndaryfirböð. Skýrasta dæmið um yfirboðsstefnuna var i land- helgismálinu, þar sem þeir reyndu að sýnast róttækastir af öllum, mennirnir sem lögðu i hendur Breta árið 1961 eina vopn- ið sem þeir geta nú beitt gegn Is- lendingum. Meira að segja voru Sjálfstæðismenn svo samkvæmir sjálfum sér i nei — nei — afstöðu sinni, að við lá að þingflokkurinn greiddi atkvæði gegn styttingu vinnuvikunnar i 40 stundir og lengingu orlofs. Við afgreiðslu skattamálanna var sama nei- kvæða hljóðið i Sjálfstæðisflokkn- um, en þegar breytingarnar voru orðnar að lögum, þá voru þeir manna æstastir i að nýta álagn- ingarheimildir til hins ýtrasta. Nú, þegar umræður eru um verðhækkanirnar og ráðstafanir til að tryggja kaupmátt launa, þá heyrist aðeins barlómur og hrunkjaftæði úr herbúðum Sjálf- stæðismanna. Engar tillögur hafa þeir á takteinum um aðgerðir i efnahagsmálum, nema ef vera skyldi gengislækkun. Þeir sjá að- eins fram á ógurlegt hrun og biða. Lýsingar þeirra á ástandi efna- hagsmálanna eru svo svartar, að ef þessir menn tryðu þvi sem þeir segja, þá hlytu þeir að flýja land. Þeir tækju þá eflaust undir með Jóni i íslandsklukkunni og segðu landiö vera að sökkva. Það var sú tið, að hermt var upp á núverandi forsætisráð- herra, að hann fylgdi já — já, — nei — nei — stefnu. Nú litur hins vegar út fyrir, að forsætisráð- herra skuggastjórnarinnar, við skulum segja að það sé Jóhann Hafstein, að hann hafi tileinkað sér siðari hluta þessarar stefnu Ólafs Jóhannessonar og fylgi nei- nei-nei-stefnu. Sannleikurinn er sá, að aldrei hefur lélegri stjórn- arandstaða verið á tslandi. Hún veitir ekkert aðhald, enga rök- studda gagnrýni, engin úrræði, en setur sig upp á móti öllu, sem gert er. Þannig mun hún eflaust segja nei-nei- ef vinstri stjórnin gerir ráðstafanir til að hindra frekari verðhækkanir og tryggja kaup- máttinn. Það er heldur engin furða, að Sjálfstæðismenn hafa ekki upp á annaö en nei-nei-stefnu að bjóða. Þeir hafa engan tima til að fjalla um stjórnmálaástandið, vegna innanflokksátakanna. í þau átök fer öll þeirra orka; við andstæðinginn mega þeir ekki vera að berjast. err.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.