Þjóðviljinn - 18.07.1972, Side 8
8. SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur. 18. júU. 1972
EVA RAAAM:
MANNFALL
OG
MEYJAVAL
— Og við berjumst fyrir þessu
átta hæða húsivegna þess að við
hugsum um velferö annarra, ekki
aðeins sjálfra okkar eins og
minnihlutinn. Við i verkamanna-
flokknum erum þeirrar skóðunar,
að annað fólk eigi sama rétt á lifs-
ins gæðum og við, og við litum svo
á —
— Nei, nú ertu svo sannarlega
búinn að mala nógu lengi, Stor-
haug, sagði Gunda sárgröm. —
Nú verðurðu svei mér að skrúfa
fyrir. Ég veit ekki til hvers þú ert
að þvæla þetta, þetta er allt fyrir-
fram ákveðið hvort eð er!
Það varð dauðakyrrð i salnum.
Tuttugu og fimm andlit sneru sér
að Gundu. Tuttugu og fimm and-
lit horfðu á hana með skelfingu,
rétt eins og hún væri villimaður
og siðleysingi sem brytist inn i
kirkju. Hakan á Hermanni
Henriksen hafði sigið niður að
öðrum skyrtuhnappi, hann skipti
litum eins og götuviti. Brita sneri
sér að blaðamanninum og reyndi
að láta sem hún þekkti Gundu alls
ekki neitt.hefði aldrei séð hana
áður, aldrei talað við hana, hefði
af einskærri tilviljun lent við
hliðina á henni á stól hér i bæjar-
þingsalnum. Blaðamaðurinn
sneri sér hins vegar skelfdur að
hinum sessunaut sínum, hann
vildi ekki fyrir nokkurn mun
þekkja Britu sem þekkti Gundu
Henriksen. Lillagulla flissaði
ákaft niður i vasaklútinn.
— Má ég biðja þig að yfirgefa
salinn, sagði forsetinn virðulega.
— Cviðurkvæmilegar athuga-
semdir áheyrenda eru ekki
leyfðar. Og tillögur verða að
berast skriflega i tæka tið fyrir
fund.
— Humm, sagði Gunda, dálitið
rjóð i vöngum en ennþá altekin
réttlátri reiði. — Ég get svo sem
Ég held að þeim Mogga-
mönnum veitti ekki af að fá
sér smá endurhæfingu, eða
jafnvel taka nokkrar krappar
beygjur (eins og sumir) i
ýmsum stefnumálum. Um
daginn stungu þeir uppá þvi
snjallræði,rétt si svona, að
bezta lausnin i landhelgis-
málinu væri sú að semja um
málið, rétt eins og þeir gerðu
foröum McMillan og
Ólafur Thors.”
Er ekki kominn timi til að
viðurkenna i eitt skipti fyrir
öll, að samningurinn frá 1961
var til skammar? Eða er
ihaldiðkannske að boða nú, að
komist það til valda einhvern-
timann seinna, verði samið
einsog 1961?
vel yfirgefið salinn. Ég þarf hvort
sem er að fara heim til
krakkanna. En mig langaði bara
til að segja, að annan eins kjafta-
vaðal hef ég ekki heyrt siðan
krakkarnir böbluðu i vöggu.
Málið hefði getað veriö afgreitt
fyrir mörgum klukkutimum, og
ekki aðeins þetta mál, heldur
mörg önnur.
Hnakkakerrt og með dinglandi
tagl stikaði hún út úr salnum, og
Brita og Lillagulla röltu niður-
lútar á eftir.
— Hafið þið nokkurn tima
heyrtannaðeins! sagði hún þegar
þær komu að bilnum. — Sex hæðir
eða átta. Það er svo sem ekki að
undra þótt þeir hafi ekki tima til
að fást við það sem máli skiptir,
eins og kamrana i norðurbæ og
vatnið i suðurbæ, þegar þeir sóa
öllum þessum tima i tvær hæðir!
Er það nokkuð skrýtið, að það
skuli verða strið, þegar tuttugu og
fimm karlmenn geta ekki kor.izt
að samkomulagi um eitt einasta
skitið hús. Nei, ég held svo
sannarlega, að það sé timi til
kominn að það komi konur i þessa
bæjarstjórn. Hoppið upp i ,
stelpur, ég skal aka ykkur heim.
Hún ók upp eftir Stórgötunni
með samanbitinn munn og glóð i
augum. Umhverfis þær var
bærinn kyrrlátur og dimmur; i
Totta gekk fólkið snemma til
náða. Utan af firðinum heyrðust
lágir smellir i vélbát á leið I höfn,
og áætlunarbáturinn boðaði
siðustu ferð með lágu væli. Bil-
glugginn var opinn, og loftið sem
streymdi inn var svalt og salt-
mengað. Þær óku þegjandi unz
þær komu að Totta-ánni.
— Við getum farið úr hér, sagði
Brita. — Við höfum gott af þvi að
ganga þennan siðasta spöl.
— Allt i lagi, sagði Gunda. —
Eins og þú vilt.
Brita klifraði niður úr háu
sætinu eins og henni bráðlægi á að
komast út fyrir seilingu Gundu.
Lillagulla brosti upp til Gundu.
— Þetta var alveg stór-
skemmtilegt, sagði hún hlæjandi.
Brita andvarpaði þungan.
— Biðið þið bara þangað til á
morgun þegar allir frétta þetta!
Svo gat hún ekki stillt sig lengur
og skellti uppúr og gat varla
stunið upp:
— Ég hefði svo sem átt að vita
betur en að fara með þér! Það
gerist alltaf eitthvað þegar þú ert
nærri! En sástu framani forset-
ann, þegar þú greipst framí fyrir
honum i þessari finu ræðu hans?
Sástu hökuna? Sástu öll aulalegu
andlitin? Gunda, þú er ófor-
betranleg, en ég hefði ekki fyrir
nokkurn mun viljað missa af
þessu!
Gunda hló lika.
— Ég varð vist dálitið reið,
viðurkenndi hún. — Og þegar mér
verður hugsað til þess hvað
Hermann segir — Ég ætti kannski
að sofa úti i nótt. Heldurðu að það
sé kalt i skemmtigarðinum,
Brita?
— Úha,sagði Brita hlæjandi. —
Það er áreiðanlega hlýrra við
bakið á Hermanni.
— Það er óvist eftir allt þetta,
sagði Gunda, og það fór hrollur
um hana.
Lillagulla stundi af ánægju.
— Það er langt siðan ég hef
skemmt mér svona vel. Biðið þið
bara þangað til hinar i bekknum
frétta þetta. Þær eiga eftir að
setja met i spretthlaupi til að
komast á bæjarstjórnarfundina
eftir þetta. Og þú Gunda, þú er
stórkostlegasta kona sem ég
þekki. Ég vil miklu heldur horfa á
þig en Elisabetu Taylor. Þú ert
kannski ekki alveg eins lagleg og
hún, en þú ert þúsund sinnum
skemmtilegri.
V
Það leið að bæjarstjórnarkosn-
ingum og kosningagolan lék um
Totta. Um vorið og sumarið var
hún næstum orðin að fárviðri, hún
blés og næddi þung og ólgandi —
til hægri, til hægri, álitu ihalds-
mennirnir, til vinstri, til vinstri!
vonuðu hinir róttæku. Hún hvein
og vældi: Kjósið hægri, kjósið
vinstri, nei, kjósið Kristilega
Þjöðarflokkinn. Vitleysa, kjósið
sósialista, kjósið verkamanna-
flokkinn, kommúnista, sósiáliska
þjóðarflokkinn! Hægri nei,
vinstrij nei, Kristilega þjóðar-
flokkinn, nei, verkamanna-
flokkurinn er flokkur allrar
þjóðarinnar, þar sem hver og
einn, rikur sem snauður,
gyðingur sem grikki, kona sem
karl geta fundið sér stað, svo
framarlega sem þeir sjá villu sins
vegar og trúa á okkur.
Já, það ólgaði og sauð i Totta
eins og i gerjandi ölkeri. Útbýtt
var kosningaáróðri, plakatar
limdir upp, fundir haldir i sam-
komusalnum i iðnskólanum, þar
sem mælskumenn úr þinginu létu
ljós sitt skina og leiddu fólkið i
allan sannleika. Flestir voru
orðnir alveg ringlaðir og rugluðu
saman stefnuskrám hinna ýmsu
flokka. Að visu vissu allir að til
var hægri flokkur og vinstri
flokkur og kommúnistar og mið-
flokkur, en hver var i svipinn
vinstra megin við hvern og öfugt
og hver i miðjunni, það var ekki
eins einfalt viðureignar. Að visu
mátti gera ráð fyrir að Hægri og
Vinstri og Miðflokkurinn og
Kristilegi Þjóðarflokkurinn væru
til hægri við kommúnista og
Hægri flokkurinn hægra megin
við Vinstri og Vinstri vinstra
megin við Miðflokkinn en þó
stundum til hægri, og að Kristi-
legi þjóðarflokkurinn væri á
dálitlu vappi milli Vinstri og Mið-
flokksins, rétt eins og húsmóðir
sem gat ekki ákveðið hvort hún
ætti að kaupa buffið eða kóte-
letturnar. Og svo var auðvitað
Sósialiski þjóðarflokkurinn sem
taldi sig ögn til vinstri við Vinstri
flokkinn og ögn til hægri við
kommúnista, en var i rauninni
lengra til vinstri við Vinstri en
vinstri álman i Vinstri flokknum.
Þetta var allt saman dálitið
ruglingslegt, en virtist augljóst
öllum þeim sem tóku þátt á
stjórnmálum.
Hin ýmsu félög voru lafmóð af
ákafri athafnasemi. Hamingjan
góða, voru ekki kosningar i nánd!
Og var ekki bráðnauðsynlegt að
reyna að sannfæra fólk, svo að
hægt væri að koma sem allra
flestum úr sinum flokki inn i
bæjarstjórnina? Það voru
auðvitað þeir sem hugsuðu fyrst
og fremst um hag bæjarbúa!
Fyrir utan kosningaskrifstofu
Verkamannaflokksins var stórt
spjald með teikningu af barni
sem rétti hendurnar i átt til föður-
ins, sterklegs verkamanns og
horfði á hann bláum spurnar-
augum:
— Pabbi, hvað er öryggi?
Og faðirinn svaraði og tók um
leið litla barnshöndina i vinnu-
lúna hönd sina:
— öryggi, drengur minn,
öðlast Noregur þegar Verka-
mannaflokkurinn heldur um
stjórnvölinn. Kjósið VF!
Og i Prófessors Tinglestads-
götu, þar sem hægri flokkurinn
hafði kosningaskrifstofur sinar,
sat litil glókolla i fangi pappa-
mömmu sinnar og spurði ein-
beitnislega:
— Mamma, hefurðu gert
eitthvað til að tryggja framtið
mina?
— Já, barnið gott, svaraði
móðirin ástúðlega. — Ég hefalltaf
kosið hægri flokkinn og það ætla
ég lika að gera i ár!
Lausn á
sunnudags-
krossgátu
1 = M,2 = 0, 3 = L,4 = A,5 = R, 6 = S,
|7 = G, 8 = A, 9 = T, 10 = D, 11 = 1,
'12 = E, 13 = U, 14 = ö, 15 = F,
16 = Æ, 17 = P, 18 = Ú, 19 = Ö,
j20 = N, 21 = K, 22 = É, 23 = Þ, 24 = J,
25 = B.
Þ RIÐJUDAGUR 18. júlí
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 07.00, 8.15,
og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.) 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.45. Morgunleikfimi kl.
7.50. Morgunstund
barnanna kl. 8.45: Sigriður
Eyþórsdóttir les söguna
„Kári litli og Lappi” eftir
Stefán Júliusson (2).
Tilkynningar kl. 8.30. Létt '
lög ITiiill liða. Viðsjóinn kl.
10.25. Ingólfur Síefánsson
ræðir við Jóhann J. E. Kúld
um meðferð aflans. Sjó-
mannalög. Hljómplöturabb
(endurtekinn þáttur Þor-
steins Hannessonar)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 S iðd e g i s s a g a n :
„Eyrarvatns-Anna” eftir
Sigurð Helgason. Ingólfur
Kristjánsson les (18).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 Miðdegistónleikar. Artur
Rubinstein leikur Andante,
tilbrigði i f-moll eftir
Haydn. Gervase de Peyer,
Cecil Arnowitz og Lamar
Crowson leika Trió i Es-dúr
fyrir klarinettu, lágfiðlu, og
pianó (K498) eftir Mozart.
Vladimir Horowitz leikur á
pianó Sónötu i c-moll op. 34.
nr. 2 eftir Clementi.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 „Sagan af sólrúnu” eftir
Dagbjörtu Dagsdóttur.
Þórunn Magnúsdóttir leik-
‘kona les. (2).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Heimsmeistaraeinvigið i
skák.
18.25 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Fréttaspegill.
19.45 islenzkt umhverfi.
Steingrimur Hermannsson
alþingismaður talar.
20.00 Lög unga fólksins.
Sigurður Garðarsson
kynnir.
21.00 iþróítlr. Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.20. Vettvangur. 1 þættinum
er fjallað um utanlands-
ferðir unglinga. Umsjónar-
maður: Sigmar B. Hauks-
son.
21.45 Sinfónisk tilbrigði fyrir
pianó og hljómsveit eftir
César Franck. Valentin
Gheorghiu leikur með
Sinfóniuhljómsveit
útvarpsins i Búkaresti,
Richard Schumacher
stjórnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
„Kvöldsagan „Sumarást”
eftir Francoise Sagan.
Þórunn Sigurðardóttir leik-
kona les (11).
22.35 Harmonikulög. Poul
Norback leikur finnsk
harmonikulpg.
22.50 A hljóðbergi. „Ned med
alting”. Ebbe Rode les
nokkrarvaldar gamansögur
eftir Storm P.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
VEITINGAHUSIÐ
ÓÐAL
VID AUSTURVÖLL
ijj i !|| ‘ ||i|jjjl I |iiffc*n^ir rcitif
|»? 'ftyk J||||j| ( <H' loúgumioiSur
Ipliill !iiiiu:‘;’::l|l 1 fr.í
i,.......:ti, ?! ki ii iu 14 00
i'íifJijlhiiJi?:. <v kl is 23 40
j .,:'i!:|j,| j!!|ii;ií"' ij Borðp.uuanu li|á
L’lj',llllilHI(,,,,|i fl"". !ii';:! \firfram rciðsluinanni
!ll|illi!P::!|«'; 1: , S.nn 11122
Auglýsing
um lögtök vegna fasteigna- og bruna-
bótagjalda i Reykjavik.
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h.
Gjaldheimtunnar i Reykjavik og sam-
kvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 17.
þ.m. verða lögtök látin fram fara til
tryggingar ógreiddum fasteignasköttum
og brunabótagjöldum, samkvæmt II kafla
laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveitarfé-
iaga, en gjalddagi þeirra var 15. mai s.l.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
látin fram fara að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar, verði þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik, 17.
júli 1972.