Þjóðviljinn - 09.08.1972, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 9. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA &
FJÚRfiUNGUR ÞJÚDARINNAR A FERDALACI
Frá Laugarvatni.
Prettán þús. manns
komu að Laugarvatni
Fyrirmyndarframkoma þrátt fyrir
mikla ölvun, segir lögreglan
„Svona eins og vant
er” sagði lögreglan
um þjóðhátíðina
Á einum sólarhring breyttist
Laugarvatn úr friðsælu skóla-
setri i 13þúsund manna þorp, en
talið er að gestir hafi ekki verið
færri en það á laugardeginum.
Að sögn Tómasar Jónssonar
varðstjóra hjá Selfosslögregl-
unni var þetta hin mesta fyrir-
myndarskemmtun. Tómas
sagði að ölvun hefði að visu ver-
ið mjög mikil á laugard.kvöld
inu, en engin vandræði heföu
hlotizt af. Lögreglan þurfti að-
eins að taka úr umferð 60 manns
vegna ölvunar á laugardags-
kvöld og það getur ekki talizt
mikið þar sem 13 þúsund manns
er saman komið.
Þá sagöi Tómas að það hefði
verið til mikillar fyrirmyndar
aö sjá hvernig unga fólkið
myndaði biðraðir við söluop og
aðra afgreiðslustaði og þetta
gerðist án þess að nokkur skip-
aði svo fyrir. Eins hefðu allir
Aldrei hefur verið jafn fátt
fólk á útiskemmtun þeirra
Borgfirðinga um verzlar-
mannahelgina og að þessu sinni.
Þegar mest var á laugardaginn
töldu menn að um 5000 manns
væri að Húsafelli. Sjálfsagt
hefur óhagstætt veður þar efra
setið i áhorfendabrekkunni þeg-
ar skemmtiatriði fóru fram, svo
sem manntafl þeirra Friðriks
og Larsens, sem var eitt vinsæl-
asta atriðið á dagskránni. Tóm-
as sagðist aldrei fyrr hafa orðið
vitni að jafn mikilli kurteisi og
prúðmennsku hjá ungu fólki og
þarna á skemmtuninni, þrátt
fyrir þá miklu ölvun sem var á
laugardagskvöldið. ölvun var
ekki teljandi annan tima meðan
á skemmtuninni stóð en það
voru þrir dagar.
Engin teljandi slys eða óhöpp
uröu meðan á Laugarvatnshá-
tiðinni stóð. Smá meiðsli, svo
sem hrufl og smáskurðir sem
hægt var að gera að á staðnum,
en engin slys. Mikið ryk var yfir
staðnum vegna umferðarinnar.
Veður var gott alla dagana.
Fremur kalt á laugardaginn en
sólskin, en á sunnudag og
mánudag var sól og hiti.
valdið þessu. En þar var bæði
kuldi og rigningarúði á laugar-
daginn og eins var fremur kalt
þar efra & sunnudeginum.
Að sögn Harðar Jóhannssonar
yfirlögregluþjóns, sem stjórn-
aði löggæzlu að Húsafelli, fór
þar allt friðsamlega fram, mun
minna var að gera hjá lögregl-
unni nú en undanfarin ár, og olli
þvi að sjálfsögðu fólksfæðin.
Hörður sagði að engin stór-
vægileg óhöpp hefðu átt sér
stað. Þó hafði stúlka fótbrotnað
og eins var eitthvað um skrám-
ur og smá-skurði sem gert var
að á staðnum. ölvun var mun
minni en undanfarin ár og leit
að áfengi i farangri unglinga
bar mun minni árangur en á
liðnum árum. Sökum þess hve
friðsamt var að Húsafelli voru
lögreglumenn sem komnir voru
þangað uppeftir, sendir að
Laugarvatni þar sem mest var
um að vera.
Hörður sagði að mun meira
hefði borið á fjölskyldum að
Húsafelli nú en unglingum
einum. Þeir hafa hópazt að
Laugarvatni að þessu sinni og
þvi var mest um að vera þar
um helgina.
Hópast
saman
Útiskemmtanirnar i Atlavik
og Vaglaskógi fóru að mestu
forgörðum sökum mannfæðar,
en óhagstætt veður, rigning og
rok fældi fólk frá þessum stöð-
um. Þó komu nokkur hundruð
manns á hvorn staðinn og
skemmti fólk sér hið bezta.
Þá hópaðist margt fólk saman
i Húnaveri eða um 3000 manns,
1000 manns var i Varmahlið i
Skagafirði, 700 manns var i
Bjarkarlundi og álika margt i
Flókalundi. Þá voru Þórs-
mörkin og Landmannalaugar
vinsælir dvalarstaðir eins og
vant er. Mjög margt fólk fór
einnig á staði sem ekki eru
frægir fyrir samkomur, eins og
Herdisarvik, Krýsuvikurleið og
viðar. Þá má ekki gleyma Þing-
völlum-, þar dvaldi margt fólk
um helgina. Og sjálfsagt hefur
svo verið um marga aðra staði.
Það er ekki hægt að segja
annað en að þjóðhátiðin i Eyjum
hafi farið fram með svipuðum
blæ og undanfarin ár. ölvun var
hvorki meiri né minni, og óhöpp
eða slys með minna móti, sagði
lögreglan i Vestmannaeyjum er
við höfðum samband við hana i
gærdag.
Talið er að milli 6 og 7000
manns hafi verið á þjóðhátið-
inni. Um 2000 manns frá landi
kom út i Eyjar að þvi að talið er.
Mjög gott veður var alla móts-
dagana og að sögn lögreglunnar
var ölvun hvorki meiri né minni
en vant er á þjóðhátið. Ef eitt-
hvað hefur verið þá heldur
minni en vant er. Lögreglan
Vegir landsins voru i góðu
ástandi og vel færir nú um
verzlunarmannahelgina. Föstu-
daginn barst þó tilkynning um
það, að Sandá á Kjalvegi, rétt
fyrir ofan Gullfoss, væri var-
hugaverð smærri bilum vegna
þess, að kvisl úr Tungufljóti
hafði breytt um farveg og runn-
ið i Sandá. Kjalvegur var góður
að öðru leyti. Á föstudagskvöld
lokaðist vegurinn um
Uxahryggi vegna gifurlegs
sandbyls við Sandkluftarvatn.
Um nóttina rigndiá þessumslóð-
um, og veðrið lægði. Þvi var
aftur hægt að aka Uxahryggja-
leið daginn eftir og var hún
greiðfær það sem eftir var helg-
arinnar. Laugardaginn 5. ágúst
tepptust nokkrar leiðir vegna
þurfti ekki að hýsa nema 70
manns og þykir það iitið á þjóð-
hátið. Lögreglan segir að það sé
segin saga þegar gott veður er,
þá sé minna um ólæti og óhöpp
en þegar illa viðrar.
Lögreglan tók nokkuð mikið
magn af vini af unglingum sem
komu til Eyja, enda hægara um
vik að taka vin af þeim en
heimamönnum, sem geta falið
sitt vin hingað og þangað. Þá
var minna um þjófnaði úr tjöld-
um en vant er, en það er önnur
saga en sögð var frá Laugar-
vatni, þar sem þess konar þjófn-
aðir voru hvað mestu vandræðin
á mótinu.
snjóa og bleytu, en á Norð-
Austurlandi hafði snjóað um
nóttina. Axarfjarðarheiði varð
þungfær og aðeins fær jeppum
og stærri bilum. Hellisheiði
milli Vopnafjarðar og Jökulsár-
hliðar varð ófær. Seinna um
laugardaginn bárust svo þær
fréttir, að Möðrudalsöræfi væru
orðin þungfær. Færðin lagaðist
þó er liða tók á kvöldið og var
orðin all-sæmileg á sunnudag.
Aðrir vegir voru góðir þótt þeir
hafi viðast hvar verið mjög
harðir og þurrir, einkum
sunnanlands og vestan. Á
nokkrum stöðum fara fram
vegaframkvæmdir, sem eitt-
hvað munu hafa hamlað þar, að
umferð gengi greiðlega.
Aldrei jafn fátt
að Húsafelli og nú
ASTAND VEGA
Stórslysalaus verzlunarmannahelgi — ölvun í meira lagi —
13 þús. manna þorp á Laugarvatni — minni umferð en í fyrra
Að vanda gekk mikið á um verzlunarmanna-
helgina og hélt hún þvi enn sem áður að vera
mesta ferðahelgi ársins. Sem betur fór gekk hún
stórslysalaust fyrir sig þótt ekki yrði hjá þvi kom-
izt að um minniháttar óhöpp væri að ræða bæði i
umferðinni og á mótssvæðunum, þar sem úti-
samkomur voru haldnar, en þær voru 6 alls. Talið
er að á þessar 6 útisamkomur hafi komið um 30
þúsund manns þegar mest var. Á mjög marga
aðra staði hópaðist ferðafólk saman og er ekki
óliklegt að meira en fjórðungur þjóðarinnar hafi
verið á ferðalagi um helgina.
Það er ef til vill athygliverð- við þá kenningu umferðarlög-
ast við þessa miklu ferðahelgi
hve litið var um umferðarslys,
eins óskapleg og umferðin var
hvarvetna á vegum landsins.
Þetta kemur þó heim og saman
reglunnar, að þegar aksturs-
skilyrði eru hvað verst, þá eru
umferðarslysin fæst. Þegar aft-
ur á móti akstursskilyrðin eru
bezt eru slysin flest og alvarleg-
ust. Sannast sagna var umferð-
in þannig bæði i Borgarfirði og
einkum fyrir austan fjall, að á
stundum var um samfelldar
bilalestir að 'ræða. Vegir voru
skrælþurrir og rykmökkurinn lá
eins og skýjabreiða yfir vegum
og sveitum þar sem umferðin
var mest. Menn óku með ljósum
um hábjartan daginn i sólskin-
inu, sem raunar sást ekki fyrir
rykmekkinum. Og varúðin var i
fyrirrúmi hjá öllum.
3 slys.
Vitað er um 3 umferðarslys
um helgina. Fyrst varö slys að-
fararnótt laugardagsins við
Svinavatn i Húnavatnssýslu, er
bifreið var ekið útaf veginum og
piltur og stúlka sem i bifreiðinni
voru meiddust svo flytja varð
þau á sjúkrahúsið á Blönduósi.
Aðfaranótt laugardags varö
árekstur milli fólksbifreiðar og
vörubifreiðar i nágrenni Egils-
staða. Tveir menn voru fluttir i
sjúkraskýlið á Egilsstöðum.
Munu þeir báðir hafa sloppið við
alvarleg meiðsli.
Um hádegi á sunnudag var
bifreið ekið útaf veginum á
Mosfellsheiði og valt hún með
þeim afleiðingum að maður og
kona, sem voru i bifreiðinni,
meiddust og voru bæði flutt á
slysadeild Borgarspitalans.
Bifreiðin var ekki búin öryggis-
beltum. Karlmaðurinn, sem var
ökumaður, mun hafa hlotið
höfuðáverka en konan röskun á
hálsliðum. Var konan flutt á
sjúkrahús.
Fleiri slys urðu ekki i umferð-
inni en árekstrar urðu nokkur
fleiri. Til að mynda varð mjög
harður árekstur á hæð á Norð-
fjarðarvegi er tvær bifreiðar
rákust saman með þeim afleið-
ingum að báðar eru óökufærar
eftir, en fólkið i þeim meiddist
ekki.
Ein tegund óhappa er ótalin,
enda hljótast sjaldan slys af
þeim, en það eru rúðubrot.
Rúðubrot hafa margfaldazt eft-
ir að hægri umferðin tók gildi á
tslandi. Þau eru að verða hreinn
ógnvaldur, bæði ökumönnum og
tryggingarfyrirtæjum. Ekki er
ótrúlegt að rúðubrot i umferð-
inni hafa skipt hundruðum um
helginga. Undirritaöur sá 8'bila
með brotna rúðu frá Hveragerði
til Reykjavikur á laugardaginn
og var þá ekki mikil umferð.
Hvernig hefur þá ástandið verið
þegar umferðin var hvað mest á
föstudaginn, laugardagskvöldið
og á mánudaginn?
—S.dór.