Þjóðviljinn - 09.08.1972, Page 5
Miðvikudagur 9. ágúst 1972 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5.
Eitthvað fyrir okkur Islendinga?
Vilja draga borgar-
ísjaka til Kaliforníu
— til að leysa ferskvatnsvandamáliii
Los Angeles 31/7. Tveir
visindamenn í Los
Angeles hafa nú komið á
framfæri nýstárlegri til-
lögu um hvernig leysa
megi vatnsvandamál
þorstlátra íbúa sólar-
ríkisins Kaliforníu. Þeir
vilja draga ísjaka frá
Suður-íshafinu til Kali-
forníu og bræða þá þar,
en það telja þeir mun
heppilegri og ódýrari
lausn en þá er nú er við-
höfð, sem sé að dæla
vatni um langa vegu, frá
norðurhluta Kaliforníu
til suðurhlutans.
,,isjakahugmyndin er
engan veginn ný af
nálinni", segja þeir,
,,þegar um árið 1950 var
tekið að impra á henni af
hálfu virtra vísinda-
manna". ,,Við höfum
fengið styrk til að rann-
saka málið gaumgæfi-
lega og ætlum að sýna
fram á hversu hagkvæm
þessi lausn er".
Visindamennirnir telja, aö
hægt sé að selja vatnið úr
borgarisjökunum á 25 dollara,
miðað við eins fets dýpt á
hverja ekru lands, en verð
sama magns úr vatnslögnun-
um nemur nú 65 dollurum.
Samkvæmt útreikningum
þeirra þarf minni orku til að
draga vænan isjaka norður til
Kaliforniu heldur en að dæla
vatninu. Framkvæmdinni
verður þannig hagað, að stál-
vir er brugðið utan um traust-
lega isjaka, þeim skipað i
halarófu og öll hersingin siðan
dregin á áfangastað með tog-
skipi. Til þess að draga úr
bráðnun vegna sólar og salts,
er ætlunin að pakka isjökun-
um inn i einskonar plastpoka,
en þar stendur hnifurinn i
kúnni- þvi að framkvæmdar-
atriði þeirrar aðferðar eru enn
óleyst. Að sjálfsögðu mun þó
eitthvert vatnsmagn fara til
spillis við flutningana,. en
samkvæmt útreikningum mun
það ekki nema meiru en sem
svarar tiu af hundraði.
Þegar isjakarnir koma á
áfangastað, eftir tiu mánaða
siglingu, verða þeir hlutaðir
niður. bræddir og vatnið sett i
geyma, þar sem þvi verður
siðan dælt til kaupenda.
Hugmyndin er ef til vill ekki
jafn fráleit og hún kann að
virðast i fljótu bragði, og vist
er um það, að af nógum is er
að taka á Suður-
heimskautinu. Um 75 af
hundraöi fersks vatns á
jörðinni er is, og 90 hundraðs-
hlutar þess magns eru á
Suðurskauti.
Jane Fonda: Nixon er mesti
manndrápari vcraldarsögunnar.
Jane Fonda um Nixon
við heimkomuna:
„Hundingi,
lygari og
morðingi”
,,Hanoi-rós!" ,,Rauö-
liói", — voru köllin sem
blönduöust kveöjum þeim
er leikkonan Jane Fonda
fékk á flugvellinum við
heimkomuna til New York
frá Noröur-Vietnam. Ung-
frú Fonda hefur haft sig
mjög i frammi í róttækri
st jórnmá labaráttu í
Bandarikjunum síðustu
misserin og er einn
háværasti andstæöingur
styrja Idarstefnu Nixons
forseta. Heimsókn hennar
til Noröur-Vietnam stóö i
tvær vikur, og þann tima
notaði hún dyggilega til aö
kvikmynda ummerki um
glæpsamlegar loftárásir
samlanda sinna og auk þess
flutti hún ræðu i Hanoiút-
varpiö, þar sem hún
skoraði á bandaríska flug-
menn aö hætta árásunum.
Ekki var hún fyrr stigin á
fósturjörðina, er tveir þingmenn
úr flokki Republikana sökuðu
hana um landráð og svik við þjóð
sina. Hún svaraði ásökunum á
fundi meö blaðamönnum, kvað
þær hlálegar og rakalausar;
styrjöldin væri engu siður banda-
riskur harmleikur en vietnamsk-
ur og sem Bandarikjamaður bæri
hún ábyrgð á þróun mála.
Aðspurð sagði hún aðeins eina
hlið vera til á styrjöldinni i
Indókina; Bandarikjastjórn væri
ein sek um hörmungarnar, og
Norður-Vietnamar væru sak-
lausir með öllu. Hún kallaði
Nixon forseta „hundingja, lygara
og morðingja”, og sagði að lok-
um: „Að minu viti er Richard
Nixon stórfelldasti manndrápari
veraldarsögunnar”.
Skrifstoíustörf
Vegagerð rikisins óskar að ráða karl
eða konu til bókhaldsstarfa frá n.k.
mánaðamótum eða fyrr eftir samkomu-
lagi. Einnig stúlku til starfa við vélabók-
hald frá sama tima. Æskilegt er, að um-
sækjendur hafi verzlunarskólapróf eða
hliðstæða menntun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf þurfa að berast
skrifstofunni i Borgartúni 1 fyrir 20. þ.m.
Vegagerð rikisins
Húsbyggjendur —
Yerktakar
Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum og
beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina.
Stálborg h.f.
Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480.
Einn þeirra fékk guðlega vitrun
á tunglinu...
Apollofarar
uppvísir
að gróðabralli
Áhöfn bandariska tungl-
farsins Apollo 15. á ekki
beinlinis upp á pallboröiö
hjá yfirmönnum sinum við
geimvisindastofnunina um
þessar mundir. Tungl-
fararnir þrir uröu sem sé
uppvisir að fjárplógsstarf-
semi, þ.e. aö þeir höföu
stimpíuð og frimerkt um-
slög meö sér út i himin-
geiminn, sem þeir hugðust
siöan selja söfnurum fyrir
okurfé. Gróöabralliö komst
upp, og þeir D.Scott og A.
Warden voru reknir úr
geimfarastöðinni og settir
til vinnu á skrifstofu
• stofnunarinnar i refsingar-
skyni, en mönnum er
komið hafa til tunglsins
mun þykja þaö fremur lág-
kúrulegt starf.
Sá þriðji James Irwing, skaut
yfirmönnum sinum aftur á móti
ref fyrir rass. I maimánuði
siðastliðnum sagði hann starfi
sinu lausu og gerðist yfirmaður
Baptistasafnaðar. Stofnunin ber
heitið „Háflug”, en Irwing segist
hafa fengið guðlega vitrun á
tunglinu og náð andlegu sam-
bandi við drottin allsherjar. Téð
vitrum varð til þess, að hann
sneri sér að trúmálum, og i viðtali
við fréttastofu Baptista kvaðst
hann nýlega vona að umslaga-
yfirsjónin yrði sér fyrirgefin,
bæði af hálfu trúbræðranna og
skaparans.
PARIS Le Monde skýrir frá þvi,
að tvenn samtök vinni nú að þvi,
að berjast fyrir framboði Phil-
ippe de Gaulle aðmiráls, sonar
Charles de Gaulle, til forseta. Er
það að sumu leyti ekki undarlegt
þar eð de Gaulle sjálfur liktist
meira arfakóngi i framferði sinu
en þjóðkjörnum forseta — og þvi
þá ekki að gera tignina arfgenga?
Aðmirállinn hefur til þessa neitað
þvi, að hann ætlaði að snúa sér að
stjórnmálum.
Vilja son de
Gaulle í for-
setaembætti
Ekki er öll sérvizkan eins...
Brctar hafa löngum getað státað sig af fleiri og frumlcgri sérvitringum
en aðrar þjóöir, og á myndinni sést bústaður eins sllks, — skammt frá
Thorpeness. Húsið, sem reist var fyrir nokkrum áratugum, er allt hið
undarlegasta og það cr eitt f jölmargra kynlegra bygginga sem getið er
um í nýútkominni bók, „Monumental Follies”. Eins og bókarheitið
gcfur til kynna, fjallar hún um fáránleg mannvirki i Brctaveldi, en þaö
mun vera orðin allvinsæl tómstundaiðja eyjaskeggja að leita uppi því-
lik minnismerki um hugdettur forfeðranna.